Morgunblaðið - 14.08.2006, Page 27

Morgunblaðið - 14.08.2006, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 2006 27 MINNINGAR sér ekki að gefast upp fyrir krabba- meininu. Ég kveð nú kæra æskuvinkonu og mun sakna hennar mikið. Ég sendi Jens og fjölskyldu samúðarkveður og enda með broti úr kvæði eftir Stefán frá Hvítadal, Þér konur: Þér konur með víðfaðma vængi og vonir, er djarfar blossa. Þér springið út og ilmið við ástir faðmlög og kossa. að lokum fölnar og fellur hver fjóla og anganreyr, en kynslóð af kynslóð fæðist og kyssir, starfar og deyr. Jóhanna Óskarsdóttir. „Það er ekkert nema sigur í stöð- unni,“ sagði Sigurlaug við mig í des- ember sl. þegar hún hafði greinst með krabbamein, en nú er baráttunni lokið eftir stutt og hatrammt stríð, enda staðan ójöfn frá upphafi. Það var þó engin uppgjöf hjá henni, þegar hún heimsótti mig fyrir stuttu og sýndi mér splunkunýja sandala, sem hún ætlaði að ganga í inn í sumarið. Þann- ig var hún, aldrei nein uppgjöf í sjón- máli en lífinu lifað frá degi til dags og veikindin virt að vettugi eftir megni. Eðli hennar var að njóta lífsins og þess sem það hafði upp á að bjóða. Svo átti hún líka vonina. Sigurlaug var fædd og uppalin í Reykjavík, nánar tiltekið í Laugar- nesinu, og sagði hún skemmtilega frá uppvexti sínum í námunda við Klepps- spítalann í útvarpsþætti fyrr í sumar. Hún var jafnvel farin að leiða hugann að því að flytja í það hverfi á ný, enda hlýtt til æskuhverfisins. Hún fór fljótt að vinna fyrir sér og hafði mikla reynslu á atvinnumark- aðnum. Það var ekki upp á annað boð- ið því hún varð snemma ein með þrjú börn á framfæri eftir skilnað við fyrri mann sinn. Hún reyndi bæði fyrir sér sem sjálfstæður atvinnurekandi og vann við margvísleg störf hjá öðrum. Hún rak sína eigin verzlun um tíma, en það mun hafa verið gamall draum- ur hennar, eins og fram kom í fyrr- nefndu útvarpsviðtali. Þá vann hún einnig hjá stórum verzlunum s.s. Hag- kaupum og Miklagarði og gegndi þar trúnaðarstörfum. Sigurlaug kom til starfa hjá Reykjavíkurborg árið 1993 þegar hún réð sig hjá Húsnæðisnefnd Reykjavíkur og hefur hún verið starfsmaður borgarinnar æ síðan, nú síðast sem þjónustufulltrúi hjá Þjón- ustumiðstöð Miðborgar og Hlíða. Starfsandinn hjá Húsnæðisnefnd Reykjavíkur, sem oft gekk undir nafninu Verkamannabústaðir, var einstakur og þar hætti ekki nokkur maður störfum fengi hann við það ráð- ið. Mikil samheldni ríkti meðal starfs- fólks og einnig stjórnarmanna og helzt sú samheldni ennþá þótt stofn- unin hafi verið lögð niður fyrir nokkr- um árum. Sigurlaug sagði gjarnan, að þessi ár hefðu verið sín beztu starfsár og átti það einnig við marga aðra. Það var ekki sízt henni að þakka, að hóp- urinn heldur enn sambandi og á sam- an góðar og glaðar stundir. Nú situr þessi hópur hnípinn – sem svo margir aðrir – og finnur fyrir tómarúminu og söknuðinum, en engan grunaði að tím- inn væri svo naumt skammtaður. Þrátt fyrir einstaka mótvind var Sigurlaug sannarlega gæfumann- eskja. Hún á þrjú mannvænleg börn og skara barnabarna, náinn frænd- garð, sem hún ræktaði af kappi enda með afbrigðum ættrækin og náði sú ættrækni út til annarra landa og heimsálfa. Fannst manni stundum eins og hún væri sérlegur sendiherra fjölskyldunnar við að halda liðinu saman, en hún var líka sjálfsagður skipuleggjandi og siðameistari allra samkvæma og sá til þess að öllum liði vel og er það ekki lítil náðargáfa. Þá varð Sigurlaug þeirrar gæfu aðnjót- andi að kynnast Jens Guðmundssyni, sem átti eftir að verða lífsförunautur hennar unz yfir lauk. Skemmtilegri hjón var vart að finna og voru þau eft- irsótt í allan mannfagnað. Stundir með þeim áttu það til að breytast í lítil ævintýri. Það er svo sannarlega eft- irsóknarvert að vera slíkum kostum búinn. Sigurlaug var glaðvær, glæsileg kona, með mikla útgeislun og setti hún svip á umhverfi sitt. Að sama skapi var hún einstaklega hreinskilin og lá aldrei á skoðunum sínum, sama hver átti í hlut eða við hvern var talað. Hún hafði hugrekki til að treysta eigin skoðunum og dómgreind. Það, ásamt hreinskilninni gerði hana, að mínu mati, einstaka. Maður vissi alltaf hvar maður hafði hana, en slíkan eiginleika lærir maður að meta í fari þeirra sem maður umgengst og á samskipti við. Óheilindi eða uppgerð var ekki að finna í fari hennar, trúlega hefur henni fundist það tímasóun. Það er erfitt að kveðja góða vin- konu, sem eftir á að hyggja er einn sá bezti vinnufélagi sem ég hef kynnst, en um leið og ég geri það vil ég senda Jens, börnum og öðrum ættingjum samúðarkveðjur frá okkur Óla. Ég þakka fyrir öll skemmtilegheit- in, góðu stundirnar, tilgerðarleysið, glaðværðina og umfram allt vinátt- una. Sú stund kemur aldrei aftur, sem einu sinni var. (Halldór Laxness) Guðrún Árnadóttir. Það er svo margs að minnast. Það var kátur hópur sem var að vinna í Austurstræti 10 sem var ein fyrsta sjálfsafgreiðsluverslun í bænum. Það var fyrir hálfri öld. Við vorum sjö stelpurnar sem mest héldum saman, allar þá í matvörudeildinni. Fórum saman í bíó og böll enda bjart yfir öllu. Svo tvístraðist hópurinn og við tóku eiginmenn og barneignir. En það var svo gaman að vera svona saman að við ákváðum að halda hópinn, ekki í saumaklúbb, heldur hittast eftir af- mæli hverrar því það hafði skapast mikil vinátta okkar á milli. Það var svo gott að hittast og tala saman um eitt og annað. Stundum var farið í orlofs- hús, þar sem var borðað, sungið og hlegið. Líka var farið í ferðir til ann- arra landa, það var eins, trallað og hlegið. Seinni árin var gott að heimsækja Sigurlaugu og Jenna í sumarbústað- inn þeirra í Grímsnesinu og fá þau í heimsókn. Þar kenndi hún mér að laga Irish-coffee og fengum við okkur það oft þegar kalt var úti. Mennirnir okkar skildu nú ekkert í þessu stússi í okkur. Sigurlaug var mikill unnandi alls gróðurs, var búin að gróðursetja tré og blóm við bústaðinn sinn og þeg- ar haustaði gerði hún kransa og stórar skreytingar úr þurrkuðum blómum og lyngi. Alltaf hafa eiginmenn okkar tekið öllu vel sem við vorum að gera svo við sæmdum þá orðu sem á stóð „Minn maður“ enda finnst okkur við eiga þá, hvern og einn. Ein úr hópnum kvaddi fyrir nokkrum árum, það var Sigur- laug Jónsdóttir, núna kveður Sigur- laug Marinósdóttir. Sárt er vinar að sakna. Sorgin er djúp og hljóð. Minningar mætar vakna. Margar úr gleymsku rakna. Svo var þín samfylgd góð. Daprast hugur og hjarta. Húmskuggi féll á brá. Lifir þó ljósið bjarta, lýsir upp myrkrið svarta vinur þó félli frá. (Höf. ók.) Börnum Sigurlaugar og fjölskyld- um þeirra sendum við innilegar sam- úðarkveðjur. Elsku Jenni, megi góður guð sefa ykkar sorg. Sigurlaugu þökkum við áralanga vináttu og margar samverustundir. Gréta, Guðrún, Kristjana, Hekla og Helga Kær vinkona er fallin frá. Hinum illa vágesti, krabbanum, hefur enn einu sinni tekist að hrifsa til sín góða, sterka konu, sem barðist hetjulega, en var ofurliði borin. Sigurlaug var dugleg kona, skyn- söm, rökföst, vinur vina sinna og svo var hún alltaf skemmtileg og gat hleg- ið næstum að hverju sem var. Svo var hún svo hlý. Heimili hennar var alltaf opið fyrir vini og frændur, eins þó að þeir kæmu erlendis frá. Þá var hún alltaf tilbúin að annast þá eins og alla aðra. Börnin hennar og barnabörnin voru hennar líf og yndi ásamt eigin- manninum, honum Jens. Og við sem ætluðum að skella okkur til Kaup- mannahafnar saman í desember og „fíla“ jólin. Öll sitja þau eftir harmi slegin. Engan óraði fyrir því að vá- gesturinn næði henni svona fljótt. Sigurlaug var afburðagóð heim að sækja. Ekki má gleyma sumarbú- staðnum þeirra „Músakoti“ í Gríms- nesi. Þangað var gott að koma. Síðast- liðið sumar áttum við þrenn vinahjón saman ógleymanlegar unaðsstundir hjá Sigurlaugu og Jens, og ætlunin var að endurtaka þetta í sumar. En svona er lífið fallvalt, á örskots- stund breytist allt, heimurinn hrynur og við spyrjum: „Af hverju?“ Engin svör fást við því, en lífið heldur áfram og eitt er víst að minningarnar um yndislega móður, eiginkonu og vin- konu munu lifa og ylja okkur um ókomna tíð. Megi góður guð taka á móti Sig- urlaugu og blessa ástvini hennar hér á jörð. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson) Guðfinna Lilja Gröndal. Kær vinkona, Sigurlaug Marinós- dóttir, er fallin frá eftir stutt en erfið veikindi. Sigurlaugu kynntist ég, þegar ég hóf að vinna með henni á Húsnæðis- skrifstofu Reykjavíkur. Við unnum saman í ein fjögur ár eða þar til stofn- uninni var lokað árið 2001. Hún var sérlega góður vinnufélagi, sem hafði til að bera einstaka lagni í umgengni við fólk. Hún var ráðagóð, raunsæ og frá henni stafaði einstök hlýja og góð- vild í garð þeirra, sem áttu við okkur erindi. Við áttum margar góðar samveru- stundir bæði þau ár sem við unnum saman sem og eftir það. Ég mun eiga í framtíðinni minningar um skemmti- legar og ógleymanlegar stundir hvort sem um er að ræða árshátíðir, ferða- lög, kaffihúsaferðir eða aðrar tilfall- andi stundir. Slíkt er ómetanlegt og verður ekki frá manni tekið. Síðasta ferðalagið, sem við fórum saman snemma árs, var vel heppnað og hún kát og glöð þrátt fyrir erfiða læknismeðferð sem hún þá var í. Það var Sigurlaug sjálf sem hvatti til þeirrar ferðar, gaf ekkert eftir og hafnaði því að veikindi tækju yfir- höndina og réðu hennar för. Sigurlaug og Jens maður hennar áttu fallegt heimili, voru gestrisin, höfðingjar og góð heim að sækja. Um leið og ég þakka okkar góðu kynni sendi ég mínar innilegustu samúðar- kveðjur til Jenna, barna, tengda- barna og barnabarna. Megi Guð varðveita þig. Hvíldu í friði. Anna Margrét. Með nokkrum orðum langar okk- ur, samstarfsfólk Sigurlaugar Mar- inósdóttur, að kveðja hana í hinsta sinn. Hún hóf störf sem þjónustufulltrúi hjá Félagsþjónustunni í Reykjavík í ársbyrjun árið 2000. Sigurlaug var glaðvær kona, brosmild og lét sér annt um samstarfsmenn sína. Hún hafði mikinn áhuga á umhverfi sínu og ber vinnustaðurinn þess merki, einkum í fíngerðum skreytingum og hlutum sem hún oftast nær gerði sjálf. Varð það til þess að ávallt var leitað til hennar þegar leggja þurfti áherslu á umhverfið, s.s. um jól og páska. Oftar en ekki hafði hún þó sjálf frumkvæðið. Störfum sínum sem þjónustufulltrúi sinnti Sigurlaug af kostgæfni og samviskusemi. Við þökkum Sigurlaugu samfylgd- ina í sex ár og vottum eiginmanni hennar og fjölskyldu einlæga samúð. Samstarfsfólk á Þjón- ustumiðstöð Miðborgar og Hlíða, Skúlagötu 21. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja, vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka, guði sér lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna, guð þerri tregatáin stríð. Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóða skalt. (V. Briem) Við kveðjum hér með söknuði sam- starfskonu okkar Sigurlaugu Mar- inósdóttur. Sigurlaug var miklum kostum gædd og er mikill sjónarsviptir að henni. Hún var ákveðin, hreinskilin, víðsýn og alltaf var stutt í hláturinn og brosið góða. Til hennar var einstaklega gott að leita, hún var góður hlustandi, skiln- ingsrík og hafði stórt hjarta. Við vottum eiginmanni og fjöl- skyldu hennar okkar dýpstu samúð. Hvíldu í friði, elsku Sigurlaug. Anna og Fanney. ✝ Albert Jónssonfæddist á Sól- bakka á Stokkseyri 4. nóvember 1919. Hann andaðist á Landspítalanum við Hringbraut hinn 6. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru Jón Þórir Ingimund- arson, f. 12. október 1888, d. 24. maí 1967, og Viktoría Halldórsdóttir, f. 1889, d. 29. apríl 1972. Systkini Al- berts eru: Jóna Margrét, f. 5. sept- ember 1910, d. 15. september 1990, Sigríður Fanney, f. 17. sept- ember 1912, Inga Rakel, f. 21. des- ember 1914, d. 19. febrúar 2002, Þóra, f. 25. janúar 1917, d. 10. júlí 1997, Sigríður Dóra, f. 26. septem- ber 1921, Njóla, f. 24. ágúst 1922, d. 30. janúar 2000, Dagrún, f. 24. ágúst 1922, d. 16. desember 1922, og Dagbjartur, f. 16. ágúst 1924. Albert kvæntist 20. janúar 1951 Sigurlaugu Guðmundsdóttur, f. 16. júní 1926. Foreldrar hennar voru Guðmundur Finnbogason og Lilja Magnúsdóttir. Börn Alberts og Sigurlaugar eru: 1) Arndís Lilja, f. 22. febrúar 1949, gift Agli Jóni Sigurðssyni, börn þeirra eru: a) Hallur, f. 1974, í sambúð með Þórhildi Gísladóttur. b) Albert, f. 1976, í sambúð með Sigyn Huld Odds- dóttur, þau eiga tvö börn. c) Víkingur, f. 1979. d) Hrönn, f. 1981, í sambúð með Garðari Steingríms- syni, þau eiga þrjú börn. Fyrir átti Egill Harald Þór, f. 1972, kvæntur Sædísi Gunnarsdóttur, þau eiga tvær dætur. 2) Hallur, f. 16. júlí 1950, kvæntur Svan- hildi Guðmundsdótt- ur, dóttir þeirra er Harpa, f. 1973. 3) Viktor Þórir, f. 15. ágúst 1953, kvæntur Leoncie Mariu Martin. 4) Sólrún, f. 27. júní 1958, dætur hennar eru: a) Sigurlaug Viktoría Pettypiece, f. 1977, í sambúð með Hrafnkeli Erlendssyni, þau eiga þrjú börn. b) Dagrún Antoinette Pettypiece, f. 1982, í sambúð með Trausta Traustasyni og eiga þau tvo syni. Albert og Sigurlaug hófu bú- skap á Feyjugötu 37, byggðu síðan hús á Borgarholtsbraut 16 í Kópa- vogi og bjuggu þar síðan. Albert stundaði ýmis störf á yngri árum en lengst af starfaði hann við gull- smíðar. Útför Alberts verður gerð frá Kópavogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Albert afi er genginn til feðra sinna. Hann hafði ekki gengið heill til skógar um nokkurt skeið, en hann barðist við ágengan sjúkdóm sem að lokum hafði betur. Hann þurfti nokkrum sinnum að leggjast inn á sjúkrahús vegna veikinda sinna, en hafði alltaf haft betur. Hinsta sjúkrahúsdvölin varð þó óvænt og snörp. Þrátt fyrir háan aldur og veikindi afa, kom mjög óvænt að hinsta kveðjustundin skyldi vera svo skammt undan. Albert afi kynntist ömmu, Sig- urlaugu Guðmundsdóttur, ungur að árum og þau ákváðu að eigast. Saman eignuðust þau fjögur börn og byggðu sér fallegt heimili í Kópavogi. Ofar öllu settu þau heið- arleika, heilindi og umhyggjusemi við börnin sín, aðra ættingja og vini. Afi var mjög handlaginn og var alltaf eitthvað að aðhafast. Hann sinnti garðinum með stakri prýði, bjó til marga fallega hluti úr hinum ýmsu málmum en hann hafði sérlega gaman af því. Hann var náttúruunnandi mikill og hafði mjög gaman af því að fara í göngu- ferðir í náttúrunni og í ferðalög. Það voru ófáar ferðirnar sem þau hjónin fóru í. Bæði ein, með börn- um sínum og barnabörnum. Það var mjög gaman að ferðast með ömmu og afa um landið og þau þekktu nafnið á hverri þúfu sem varð á vegi þeirra. Albert afi var mikil barnagæla. Hann hafði sérlega gaman af því að umgangast og vera með börn- um. Við barnabörnin og síðar barnabarnabörn sóttu í að vera með afa. Hjálpa honum að vinna í garðinum eða fara í göngur. Mikill samgangur var í fjölskyldunni og á jólunum hittust allir heima hjá ömmu og afa. Þá var siður að ganga í kringum jólatré og syngja. Þar var afi ávallt í broddi fylk- ingar. Ég á yndislegar minningar um þennan góða mann. Albert Jónsson var sérlega glæsilegur maður og var honum oft líkt við enskan lord. Hann var hávaxinn, beinn í baki og með fág- aða framkomu. Hann var sérlega góður og hlýr maður með sterkt og vel gert hjarta. Afi Albert var ekki mjög málgefinn en hann var hnyttinn í tilsvörum og stutt var í húmorinn. Hann gat verið glettinn og gamansamur ef svo bar undir. Hann var hófsamur, trygglyndur og yfirvegaður einstaklingur sem bar tilfinningar sínar ekki á torg. Hann hafði góða nærveru, var þol- inmóður og öllum þótti vænt um hann. Austrið eilífa hefur kallað hann til sín. Megi hæsti höfuðsmiður blessa hann og leiða hann inn á veg ljóssins. Hans er sárt saknað, hafi hann þökk fyrir allt og allt. Harpa Hallsdóttir. Elsku afi. Mikið þykir mér sárt að kveðja þig. Ég veit að þér líður vel núna en eftir sitjum við með söknuðinn. Þú varst alltaf svo yfirvegaður og rólegur, hjálpsamur og klár, og oft með svo skemmtileg og skond- in tilsvör. Ég var, og verð alltaf ákaflega stolt af þér. Ég, eins og við öll barnabörnin, á svo margar minningar um Heið- merkurferðirnar okkar. Helst minnist ég þó þess, þegar þú, í einni af okkar göngum þar, skrif- aðir með krítarstein á stóru stein- ana nöfn þeirra álfa sem þar áttu heima. Þú skáldaðir sögur og leiddir okkur í ævintýraheima þína. Guð blessi þig, elsku afi minn. Þú verður alltaf í hjarta mínu. Þín dótturdóttir, Dagrún Antoinette. ALBERT JÓNSSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.