Morgunblaðið - 14.08.2006, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 14.08.2006, Blaðsíða 29
móður minni heitinni, betri en nokkur sonur. Hann bar hana á höndum sér og varð bókstaflega miður sín, ef ekki pínulítið „foj“, ef einhver annar í fjöl- skyldunni ók henni til læknis eða í búðir, þá sárasjaldan hún fór af bæ, enda var gaman að erindast með móð- ur minni, svo falleg, greind, kát og skemmtileg sem hún var. Og vissu- lega kunni hún að meta tengdason sinn, hvílíkur afbragðsmaður hann var. Og veit ég að honum fannst hið sama um hana. Hann var einnig sem annar faðir dóttur minnar, svo und- urgóður var hann henni. Eiríkur var í einu og öllu klettur fjölskyldu okkar. Minning hans mun ylja okkur um hjartarætur um ókomin ár. Ég kveð Eirík, þann mannkosta- mann, með söknuði og þakka honum allt. Ég votta systur minni, börnum hans fjórum og fjölskyldu allri og að- standendum mína dýpstu samúð. Blessuð sé minning Eiríks Magn- ússonar. Ragnhildur Bragadóttir Eiríkur Magnússon var samstarfs- maður föður míns um árabil og mikill vinur foreldra minna og sérstakur vinur minn og áhrifavaldur frá þeim degi sem ég fæddist. Ég man ekki eft- ir lífinu án hans. Eiríkur var ekki stórvaxinn en hafði mikið kolsvart hár og stórt nef og líktist afa sínum. Hæfi- leika hafði hann ríkulega og tilfinn- ingamaður var hann. Skopskynið var í lagi og hann var alltaf brosandi og syngjandi. Á góðum stundum var hann flottur með hatt og hvítan vasa- klút í brjóstvasanum. Honum fylgdi alltaf heitur gustur er hann birtist: Hann opnaði fyrst dyrnar, talaði svo tungum eins og skáld er hann til- kynnti komu sína í forstofunni, og þá loksins gall bjallan, þegar allir vissu fyrir löngu hver kominn var. Ætíð varð mikill fögnuður er hann birtist og fyrr en varði hófst gítarsláttur og söngur. Stundum hafði hann einnig með sér þær græjur og tól sem góðir rafvirkjar bera með sér. Slík var hrifning mín af þessum manni, að ég rak þriggja ára höndina beint inn í opna rafmagnsdós og sagði: „Ég er Eiríkur rafmagnsmaður.“ Komst ég þá fyrst í almennilegt „stuð“ og man enn strenginn upp handlegginn. Eiríkur festist í Danmörku í stríð- inu en þar var hann að læra rafvéla- fræði. Á kvöldin spilaði hann í dans- hljómsveit, en var með riffil í gítartöskunni því hann var í dönsku andspyrnuhreyfingunni gegn her- setuliði nasista. Var hann þó því fegn- astur að vera aldrei sendur út að beina því instrúmenti á Þjóðverja. Grunar mig að Danir hafi viljað halda honum sem lengst í hljómsveitinni. Svo fjörugur var hann, að hann fékk viðurnefnið „Eiríkur rafmagnaði“ þótt ekki léki hann á rafgítar. Ég var byrjaður að hlusta á Bítlana snemma og varð þess seinna áskynja að faðir minn og Eiríkur voru laumu- aðdáendur er þeir sátu heilt kvöld og sungu og trölluðu „Yellow Subm- arine“ í miklu stuði. Eiríkur sló gít- arinn með allt öðrum hætti en Bítlar eða aðrir gítaristar íslenskir, eigin- lega með spænsk-mexíkönskum hætti og kalypsó, enda var Harry Belafonte hans maður sem og Mani- tas de Plata, Narciso Yepes og André Segovia. Eiríkur var fyrsti íslenski „latin“-gítaristinn á sinn veg, hafði skemmtilega tilfinningu fyrir takti. Hann togaði taktinn og skaut inn aukaslögum án þess að missa nokk- urn tíma bítið. Gat brugðið fyrir sig flamenco-eftirlíkingu ef mikið lá við. Ekki varð hjá því komist að læra á gítarinn af honum, hljómana og ásláttartæknina – og fyrir tilstilli hans lá leið mín í framhaldinu til vinar hans, Eyþórs Þorlákssonar, til frek- ara gítarnáms þegar ég fékk allt í einu nafnlausa sendingu frá Spáni; Metodo de Guitarra eftir Dionisio Aguado. Ég á þessa bók enn og þótt ekki hafi gítarleikur orðið ævistarfið hefur reynst mér erfitt að leggja hljóðfærið frá mér síðan. Eiríkur var því örlagavaldur í mínu tilviki auk þess að lita lífið með stórskemmtileg- um karakter sínum og vináttu. Far vel, vinur og kennari. Þín verð- ur ætíð minnst. Páll Torfi Önundarson. MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 2006 29 MINNINGAR ✝ Þorvaður A Guð-mundsson fædd- ist 31. ágúst 1928. Foreldrar hans voru Aðalbjörg Þorvarð- ardóttir húsfrú og Guðmundur Einars- son kaupmaður. Systkini hans Ein- ar Björgvin, sem er látinn, Helgi, sem er látinn, Kristín Sigur- björg, sem er látin og Erla Lára búsett í Keflavík. Þorvarður var fæddur í Stykkishólmi og ólst þar upp. Hann nam skipasmíði og lauk meistarabréfi í greininni 1953. Hann var formaður Iðnaðarmanna- borgar og byggingareftirlitsmaður hjá byggingardeild borgarverk- fræðings frá 1985 til starfsloka 1998. Sat í trúnaðarráði Starfs- mannafélags Reykjavíkurborgar í tvö kjörtímabil og var í stjórn sam- taka aldraðra í 6 ár. Hann kvæntist Lillian Annelise 17. júní 1955, en hún andaðist 10. júlí síðastliðinn. Börn þeirra eru: 1) Súsanna, fædd 1956, gift Atla S. Grétarssyni og eiga þau 4 börn. 2) Björgvin, fæddur 1957. 3) Guðmundur Aðalsteinn, fædd- ur 1960, giftur Vilhjálmi J. Guð- jónssyni sem á eina dóttur. 4) Aðalbjörg, fædd 1963, í sam- búð með Sigurði Gíslasyni og þau eiga 3 börn. 5) Bylgja, fædd 1968 í sambúð með Sveini Þorsteinssyni og þau eiga 6 börn. Þorvaður verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. félags Stykkishólms í mörg ár og sat í hreppsnefnd Stykkis- hólms í eitt kjörtíma- bil. Hann starfaði við nýsmíði skipa í Dan- mörku þar sem hann kynntist Lillian An- nelise eiginkonu sinni. Hann stofnaði Skipavík í Stykkis- hólmi, ásamt fleirum, þar sem hann starfaði í fjölmörg ár. Var einn af stofnaðilum Rækjuness árið 1974. Hann lauk stálskipasmíðanámi árið 1980. Var verkstjóri í Stálvík í Garðabæ 1977–1981. Eftirlitsverk- stjóri hjá trésmiðju Reykjavíkur- Elsku pabbi minn, þegar mamma dó fyrir nokkrum vikum síðan horfði ég á hluta af þér deyja með henni. En að ég ætti eftir að sitja og skrifa minn- ingar um þig áður en ég væri búin að takast á við sorgina vegna fráfalls mömmu var óhugsandi, þrátt fyrir veikindi þín. Síðustu dagar hafa verið mjög erfiðir fyrir okkur vegna veik- inda og þjáninga sem þú þurftir að líða, en þú hlýtur að vera hvíldinni feginn eftir allt erfiðið. Ég er þakklát fyrir allar bænirnar sem þú kenndir mér í æsku því þar finn ég styrk til að takast á við sorgina og sjá ljósið á ný. Vitandi að þið mamma eruð sameinuð á ný eftir stuttan aðskilnað er líka styrkur. Elsku pabbi, takk fyrir alla ástina, umhyggjuna og hlýjuna sem þú gafst okkur alltaf. Takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig, Atla og börnin okkar. Elsku pabbi, ég kveð þig nú en minning þín mun lifa í hjörtum okkar. Hvíl í friði elsku pabbi. Þín dóttir, Súsanna „Elsku pabbi, Guð gefi þér styrk til að mæta þeirri framtíð sem nú bíður þín án mömmu.“ Þessi hvatningarorð skrifaði ég til pabba í minningargrein minni um mömmu, sem var jarðsung- in 21. júlí síðastliðinn. Á örskömmum tíma kveðjum við systkinin báða for- eldra okkar. Foreldra sem voru tengdir í ást, kærleika og nánd sem náði yfir móðuna miklu. Missirinn er sársaukafullur, ekki bara fyrir okkur, heldur líka vini og nágranna mömmu og pabba. Atburðarásin var hröð og eftir stöndum við með arfleifð þeirra, kærleika, auðmýkt og þakklæti í hjarta. Pabbi var fallegur maður bæði í útliti og innræti og ég var alltaf mjög stoltur af honum. Þegar ég rifja upp ævi hans dettur mér helst í hug að pabbi var á undan samtíð sinni í svo æði mörgu. Kraftur, sköpunargáfa og framsýni lýsa honum best. Hann stofnaði fyrirtæki sem enn skipa mik- ilvægan sess í atvinnulífi Stykkis- hólms. Hann lagaði sig að breyttum tímum með símenntun, bæði í sinni iðn og síðar ótengdum störfum. Pabbi var líka léttur í lund og bjart- sýnn. Styrk sinn sýndi hann okkur öllum, ekki minnst við óvænt andlát mömmu, það átti að fara til S-Afríku, austur til Aðalbjargar, nota tímann með Súsönnu, Bylgju og fjölskyldum þeirra til að lina sorgina. Fullur bjart- sýni fór hann í aðgerð áður en mamma var jörðuð. Síðan útskrifaði hann sjálfan sig til að vera viðstaddur útför hennar. Þar stóð hann keikur og beinn í baki og heilsaði hátt í 300 manns sem vottuðu mömmu virðingu sína. Rúmlega hálfum mánuði síðan var hann allur. Þessi fallega og trúaða sál hefur fundið frið og hvíld í ljósinu og fundið ástina sína aftur. Á þessum tímamótum finn ég til auðmýktar gagnvart lífinu og þakklæti fyrir að hafa átt yndislega foreldra. Elsku Súsanna, Aðalbjörg og Bylgja, með sömu hvatningarorðum og til pabba bið ég Guð um að gefa ykkur styrk til að mæta þeirri framtíð sem nú bíður ykkar án foreldranna. Elsku Inger og Kristján, Guð launi ykkur vináttuna og tryggðina við okkur. Elsku Erla, Gilli og fjölskyldur, tíminn læknar öll sár. Allir vinir og nágrannar pabba og mömmu, enginn fyllir skarð foreldra minna. Megi almættið fylgja ykkur í blessun um ókomna tíð. Kærar þakkir til starfsfólks deildar 11E á Landspít- alanum fyrir einstaka alúð og umönn- un. Hugur okkar Villa er hjá ykkur öllum. Guðmundur Aðalsteinn. Elsku Varði minn. Það verða ekki mörg orð sem ég skrifa í þessari minningargrein um þig, því það væri svo margt sem ég gæti skrifað um hvað varðar góðvild þína, traust og dugnað. Þú vildir allt fyrir alla gera. Máttir ekkert aumt sjá því réttlæt- iskennd þín var svo sterk. Þú reyndist mér og minni fjölskyldu afar vel. Það hefur mikið tómarúm skapast við fráfall þitt og er ekki langt síðan við kvöddum konuna þína, tengda- móður mína. Það voru yndislegar stundir, sem ég og fjölskylda mín átt- um með þér í veiðiferð ekki fyrir svo ýkja löngu. En þá leyndi sér ekki hvað þú varst orðinn veikur og fór þá konan mín, yngsta dóttir þín, með þig seinni part sunnudagsins 30. júlí upp á spítala og varð ekki aftur snúið, þar sem þú andaðist 7. ágúst. Þú varst hetja í mínum augum, sem og hjá minni fjölskyldu. Megi algóður guð blessa og varðveita minningu þína og vegsemd þína. Því nú hefur góður drengur kvatt og verður ávallt sárt saknað. Sveinn Þorsteinsson. Elsku afi og amma. Það er búið að segja okkur að þið séuð að hvíla ykkur og að afi sé kom- inn til ömmu. Við erum að læra í fyrsta sinn um sorg og söknuð og hvað það sé fallegt að þið elskuðuð hvort annað svo mikið að Guð leyfði ykkur að hittast svona fljótt aftur. Við erum bæði glöð og hrygg. Mamma segir að tárin hennar séu af gleði, en líka sorg af því að þið eruð farin og við sjáum ykkur ekki aftur. Frændi kenndi okkur að segja alltaf á kvöldin „Vaki Guðs englar yfir ykkur.“ Við söknum ykkar. Torfi, Rós og Karín. Elsku afi. Langafi minn, pabbi þinn orti þetta ljóð í minningu bróður þíns, sem dó árið 1919, og alnafni minn, sonur þinn, skrifaði þetta inn í Biblíuna mína: Drottinn, þú gafst mjer blóm eitt blítt. Broshýrt, fagurt og blómstrum prýtt; Hjarta mitt barðist ótt og fljótt, Um það hugsandi dag og nótt, Hvað verða mundi um vininn þann, sem faðir og móðir heitast ann. (Guðmundur Einarsson) Ég elska þig og ömmu, sem er líka nýdáin, og sakna ykkar svo sárt. Guðmundur Aðalsteinn Sveinsson Elsku besti afi, mikið er sárt að kveðja þig svona stuttu eftir að amma dó. Þið voruð alltaf svo góð við okkur og hún mamma okkar var svo tengd ykkur. Það er skrýtið að heimsókn- irnar verða ekki fleiri á Dalbrautina. Þú varst svo fallegur þegar við sáum þig nýdáinn á spítalanum, fallegur eins og þú varst líka góður. Elsku afi, megi Guð geyma þig og ömmu í ljósinu. Ykkar Davíð Freyr og Tómas Ingi. Mínir vinir fara fjöld, feigðin þessa heimtar köld. Síminn hringdi að morgni 7. ágúst. Okkur var tilkynnt, að vinur okkar Þorvarður hefði látist þá um morg- uninn. Sársaukinn var nístandi, en þó var viss léttir að vita, að stríðinu væri lokið. Baráttan við illvígan, ólæknandi sjúkdóm var tiltölulega stutt, en snörp. Eiginkona Þorvarðar til 50 ára, Lillian, stóð óhagganleg við hlið hans í baráttunni, en hún varð bráðkvödd á heimili þeirra hjóna 10. júlí. Eftir lát Lillian varð lífsvilji Þor- varðar veikur, þótt hann bæri sig af æðruleysi við útför hennar. Saman höfðu þau gengið lífsins veg í blíðu og stríðu. Sjálfur dauðinn gat ekki skilið þau að, nema um stundarsakir. Við kynntumst þessum ágætu hjónum í Stykkishólmi fyrir 36 árum, þegar við fluttum þangað frá Svíþjóð, ung læknishjón með fjögur börn. Fimmta barnið okkar fæddist svo í Hólminum. Lillian og Þorvarður áttu fimm börn á líkum aldri og okkar. Kynni milli fjölskyldnanna okkar urðu að órjúfanlegri vináttu, sem aldrei hefur borið skugga á. Vinur okkar, Þorvarður, var vel menntaður skipasmíðameistari og starfaði sem slíkur í Keflavík, Stykk- ishólmi og Garðabæ. Seinustu árin starfaði hann hjá Reykjavíkurborg. Hann var af þeirri gerð iðnaðar- manna sem allt lék í höndunum á. Nutum við oft góðs af því. Þorvarður var góður sögumaður með frábært skopskyn. Manni leið alltaf vel í fé- lagsskap hans á fleygri stund. Ótal minningar leita á hugann. Við höfum átt saman ótal gleði- og alvörustundir. Þorvarður og Lillian hafa verið sannir vinir í raun. Fyrir það erum við þakk- lát. Nú eru þessi heiðurshjón horfin yf- ir móðuna miklu. Við trúum því að þar muni þeim farnast vel og að við mun- um öll hittast heil einhvern tímann í framtíðinni. Blessuð sé minning þeirra. Inger Hallsdóttir, Kristján Baldvinsson. Í minningu míns kæra vinar. Komið er að kveðjustund. Fyrir þrjátíu árum lágu leiðir okkar saman þegar við urðum samstarfsmenn á byggingardeild borgarverkfræðings, ásamt fleiri góðum mönnum, svo sem Bergsteini Sig- urðssyni, sem nú er fallinn frá. Við áttum langt og ánægjulegt samstarf og með okkur tókst traust og góð vin- átta. Fyrir kom að við glöddumst saman utan vinnutíma og aldrei bar skugga á samskipti okkar. Um það bil 12 ár eru liðin síðan ég hætti störfum, en alltaf héldum við góðu sambandi og var það ómetanlegt. Nú mörg síðustu ár, eftir að báðir höfðu hætt störfum, hittumst við flesta þriðjudaga í hádeginu í Grensáskirkju. Þetta voru góðar og yndislegar stundir, sem gáfu okkur báðum mikið og efldu vináttu okkar. Það eru ekki nema fjórar vikur síð- an þú, fárveikur, þurftir óvænt að sjá á eftir lífsförunaut þínum, Lillian. Það kemur því ekki mikið á óvart að þú þyrftir að flýta þér á eftir henni. Hafðu þökk fyrir óeigingjarna vináttu þína og gleði sem þú gafst mér á lífs- leið okkar. Hvíl í friði, góði vinur. Við hjónin samhryggjumst innilega börnum og öðrum aðstandendum þessara mætu hjóna, Þorvarðar og Lillian. Guð geymi ykkur og létti sorg ykk- ar. Helgi Hersveinsson og Hrafnhildur Kristjáns- dóttir. Elsku Varði. Það er með mikilli sorg í hjarta að við kveðjum þig. Það var ekki fyrir svo löngu að við vorum heima á Íslandi að kveðja ástkæra eiginkonu þína, hana Lillian okkar. Við munum aldrei gleyma þeirri yndislegu góðmennsku, sem þið sýnd- uð okkur. Alltaf höfðuð þið tíma til að kíkja til okkar þegar við bjuggum fyr- ir norðan. Alltaf komuð þið með opna arma þegar við komum heim frá Dan- mörku. Að eiga ykkur að var fyrir okkur eins og að eiga aukapar af foreldrum og tengdaforeldrum. Elsku Varði, með þinni hjálp mun ég standa við það sem ég lofaði þér varðandi Elías. Í fyrsta skipti á ævi okkar tengjum við eitthvað sorglegt við Varða. Við minnumst lágvaxins, en um leið andlegs risa, með óborganlega kímni- gáfu og einstakan lífsvilja. Sannarlega er höggvið stórt skarð í raðir Íslendinga. Varði gat einn á báti breytt skammdegi í bjartan sumar- dag. Það er svo margt að þakka og margs að minnast að það þyrfti heila bók. Fallegur vinur er farinn mér frá, Eina sumarnótt fagra. Englarnir komu himninum frá, Og sóttu sál þína bjarta. Aldrei ég þér gleymi, Og alltaf mun minnast. Með tár á hvörmum, en bros í hjarta. (Dísa.) Elsku fjölskylda, sem og mamma og pabbi, við samhryggjumst ykkur innilega. Megi englar alheimsins veita ykkur ljós og hlýju á þessum myrku dögum. Guð blessi Varða og Lillan. Ásdís og Elías, Holstebro, Danmörku. ÞORVARÐUR A. GUÐMUNDSSON Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN KRISTJÓNSDÓTTIR, sem lést á Vífilsstöðum mánudaginn 7. ágúst verður jarðsungin frá Áskirkju þriðjudaginn 15. ágúst klukkan 15. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir. Gerður Björnsdóttir, Guðrún Björnsdóttir, Jón G. Zoëga, Björn Zoëga, Harpa Árnadóttir, Birna Hallsdóttir, Sveinn Zoëga, Hildur Björk Hilmarsdóttir, Gunnar Zoëga, Valdís Guðlaugsdóttir og langömmubörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.