Morgunblaðið - 14.08.2006, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 2006 33
DAGBÓK
JCI á Íslandi hefur staðið fyrir fjölbreyttridagskrá á Menningarnótt síðan 2002. ÁMenningarnótt í ár verður nóg um aðvera í höfuðstöðvum JCI að Hellusundi 3,
gegnt sendiráðum Þýskalands og Bretlands.
Arna Björk Gunnarsdóttir er landsforseti JCI
á Íslandi: „Við byrjum kl. 14 með svokölluðu
Hlaupi skrifstofumannsins sem hefur verið fastur
viðburður hjá okkur allt síðan við tókum fyrst
þátt í dagskrá Menningarnætur. Hlaupið fer
þannig fram að keppendur klæðast sannkölluðum
skrifstofubúningi: eru í jakkafötum og halda á
skjalatösku og síma, og hlaupa hring um hverfið
frá höfuðstöðvum JCI og aftur til baka. Öllum er
frjálst að taka þátt og í ár ætla nokkrir kepp-
endur að safna áheitum í leiðinni, til styrktar fé-
lögum okkar sem búsettir eru í Líbanon,“ út-
skýrir Arna.
„Um kl. 16 hefst tónleikdagskrá þar sem meðal
annars koma fram Friðrik Ómar og Regína Ósk.
Einnig fá að spreyta sig ýmsar ungar og ferskar
hljómsveitir sem eru margar að stíga sín fyrstu
skref, og verður andrúmsloftið létt og poppað,“
segir Arna. „Tónleikadagskráin heldur áfram
meira og minna sleitulaust til um 22 um kvöldið,
en um kl. 17 hefst árleg rökræðukeppni þar sem
tveir afbragðsræðumenn munu rökræða ákveðið
umræðuefni. Dómarar og áhorfendur munu síðan
fá að skera úr um hver hefur rökstutt mál sitt
betur. Loks má geta þess að við kynnum úrslit
ljósmyndasamkeppni sem JCI hefur staðið fyrir á
heimasíðu sinni, og er Reykjavík þema keppn-
innar. Við höfum fengið sendar margar sérlega
skemmtilegar myndir sem hafðar verða til sýnis
fyrir gesti og gangandi.“
JCI á Íslandi á rætur sínar að rekja til St. Lou-
is í Bandaríkjunum þar sem hópur ungra manna
stofnaði fyrir um 90 árum klúbb sem þeir kölluðu
Junior Chamber of Commerce: „Þeim þótti rödd
sín ekki fá að hljóma nógu sterkt í samfélaginu og
settu á laggirnar þennan félagsskap til að ráða
bót á því. Hópur ungra frammámanna setti síðan
á laggirnar íslandsdeild árið 1960 og hefur JCI
allar götur síðan verið félagsskapur fólks á aldr-
inum 18 til 40 ára sem vill efla stjórnunarhæfi-
leika sína og bæta sjálft sig, og bæta umhverfi
sitt um leið,“ segir Arna. „JCI stendur fyrir öfl-
ugu námskeiðahaldi á hinum ýmsu sviðum og eru
þar þekktust ræðunámskeiðin okkar, námskeið í
fundarstjórn og fundarritun. Við kennum fólki að
temja sér skipulögð vinnubrögð í hópi og bæta sig
í mannlegum samskiptum ýmiskonar. Um leið fá
meðlimir JCI mikla þjálfun í öllum þeim þáttum
sem þeir læra á námskeiðunum með því að taka
þátt í starfi félagsins. JCI á Íslandi tekur einnig
mikinn þátt í alþjóðastarfi og tekur þátt í Evrópu-
og heimsþingum á ári hverju þar sem meðlimir
JCI hreyfinga í 120 þjóðlöndum kynnast og
skiptast á skoðunum.“
Nánar má lesa um starfsemi JCI á Íslandi á
heimasíðunni www.JCI.is
Samtök | JCI á Íslandi er fyrir 18 til 40 ára fólk sem vill efla stjórnunarhæfileika sína
Líf og fjör hjá JCI á Menningarnótt
Arna Björk Gunn-
arsdóttir fæddist í
Reykjavík 1969. Hún
lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í
Hamrahlíð 1990 og
lagði stund á nám í sál-
fræði við Háskóla Ís-
lands. Arna hefur frá
árinu 2003 starfað hjá
Birtingahúsinu, en hef-
ur frá 2005 einnig
starfrækt eigið fyrirtæki. Hún var kosin í
landsstjórn JCI árið 2002 og hefur verið for-
maður frá ársbyrjun 2006. Árið 2004 var
Arna valin JCI félagi ársins í Evrópu.
Árnaðheilla
ritstjorn@mbl.is
60 ára brúðkaupsafmæli. Í dag eiga hjónin Þorbjörg og Halldór S. Rafnar 60ára brúðkaupsafmæli. Séra Friðrik J. Rafnar vígslubiskup gaf þau saman
14. ágúst 1946.
Í biðstöðu.
Norður
♠ÁK8
♥76
♦ÁK42
♣K932
Vestur Austur
♠-- ♠9543
♥1098 ♥DG5432
♦DG105 ♦6
♣ÁD8765 ♣G4
Suður
♠DG10762
♥ÁK
♦9873
♣10
Í þættinum í gær sáum við harða
slemmu frá Evrópumótinu í Málmey
2004, sem Þorlákur Jónsson vann
með þvingun eftir hagstætt útspil.
EM í Varsjá hófst í gær og mun
þess sjá stað í þættinum á næstu
dögum.
En á meðan beðið er frétta frá
Póllandi er við hæfi að rifja upp ann-
að spil frá síðasta Evrópumóti, þar
sem Magnús E. Magnússon og Matt-
hías Þorvaldsson fóru fullgeyst í
sögnum og keyrðu alla leið í sex
spaða, sem Matthías stýrði úr suður-
áttinni.
Vestur hafði komið inn á laufsögn
og ef hann lyftir laufás í upphafi, er
tiltölulega einfalt mál að ná í úr-
slitaslaginn með láglitaþvingun.
Sagnhafi trompar eitt lauf (í örygg-
isskyni, ef austur skyldi eiga þrílit),
en hirðir svo toppslagina og þvingar
vestur til að gefa upp tígulvaldið.
Ítalinn Alfreco Versace vann slemm-
una þannig í öðrum leik.
En Matthías fékk þyngra verkefni,
því vestur kom út með tíguldrottn-
ingu. Nú þýðir ekkert að „leiðrétta
talninguna“ með því að spila laufi að
kóngnum, því þá rýfur vestur sam-
ganginn með því að spila aftur tígli.
Matthías tók því einfaldlega öll
trompin og ÁK í hjarta.
Vestur kaus að fara niður á ÁD í
laufi og G10 í tígli, en þá gat Matt-
hías sótt sér tvo slagi á lauf á K9 (í
lokastöðunni átti blindur tígulkóng
og K9x í laufi).
Það má velta fyrir sér varn-
armöguleikum vesturs, en við ná-
kvæma skoðun sést að sagnhafi hef-
ur alltaf vinninginn, hvernig sem
vestur hendir af sér.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. g3 Ba6
5. Dc2 Bb7 6. Bg2 c5 7. d5 exd5 8.
cxd5 Bxd5 9. Rc3 Bc6 10. e4 Be7 11.
Bf4 O-O 12. O-O-O Ra6 13. De2 Rb4
14. a3 Dc8 15. Kb1 a5 16. Re5 He8
17. Hhe1 Bf8 18. g4 g6 19. Bg3 He6
20. f4 d6 21. Rxc6 Rxc6 22. Rb5 Re8
23. e5 dxe5 24. Bd5 a4 25. fxe5 Rg7
26. Df3 Hb8 27. Rd6 Bxd6 28. exd6
Rd4
Staðan kom upp á ofurskákmóti
sem lauk fyrir skömmu í Dortmund.
Ísraelski stórmeistarinn Boris Gelf-
and (2729) hafði hvítt gegn armenska
kollega sínum Levon Aronjan (2761).
29. Hxd4! Hxe1+ svartur hefði verið
með gjörtapað tafl eftir 29... cxd4 30.
Bxe6 fxe6 31. d7 þar sem þá myndi
hrókurinn á b8 falla í valin. 30. Bxe1
cxd4 31. Dxf7+ Kh8 32. d7 Dc5 hvít-
ur hefði einnig unnið eftir 32... Df8
33. Bh4. 33. Bb4 og svartur gafst upp
enda fokið í flest skjól eftir t.d. 33...
Db5 34. Bf8.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik
Lúpínan og sauðkindin
31. júlí sl. skrifar Margrét Jóns-
dóttir á Akranesi um lúpínuna í
Morgunblaðið. Hún dásamar grein
Hjörleifs Guttormssonar, Morg-
unbl. 20. júlí. Þau harma bæði að
lúpínan skyldi ekki vera valin
þjóðarblómið.
Aftur á móti mundi ég gleðjast
ef lúpínan breiddist út því þetta er
sælgæti fyrir blessaða sauð-
kindina. Einnig vex lúpínan svo
þétt að hún rífur straum á rafgirð-
ingum. Sauðkindin sem étur þjóð-
arblómið er þá komin með þjóð-
arkjötið allt til heilla fyrir íslenska
þjóð.
Magnús Kristjánsson
Hrafna
Stuðmenn hljóðlátir
Við vorum tvö á tónleikum með
Stuðmönnum í Laugardalum.
Hljóðið var lélegt og við sáum
ekki vel einnig var ekki ör-
yrkjaafsláttur.
Gulli
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Hlutavelta | Þessir duglegu safnarar, Elías Henrik, Orri Matthías og Jón
Gunnar, héldu hlutaveltu fyrir utan ísbúðina í Álfheimum um daginn. Þeir
söfnuðu 3.516 krónum til styrktar Rauða krossi Íslands.
Morgunblaðið/Einar Falur
Hlutavelta | Elva Rún Árnadóttir Kjalasíðu 14 f og Melkorka Ír Ólafsdóttir
Stapasíðu 22 söfnuðu á tombólu á Akureyri um daginn 1.712 krónum sem
þær gáfu til Rauða kross Íslands.
Hlutavelta | Vinkonurnar Ragnheiður Fjóla Grundargerði 4 a og Ólöf Rún
Grundargerði 4 e héldu tombólu og söfnuðu 2.400 krónum sem þær gáfu til
Rauða kross Íslands.