Morgunblaðið - 14.08.2006, Page 44
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 MÁNUDAGUR 14. ÁGÚST 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
endurskoðun
reikningsskil
skattar / ráðgjöf
www.ey.is
Á HÁTÍÐARSAMKOMU í reiðhöllinni á Hólum í
gær lýsti Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra
því yfir að hann hygðist leggja fram frumvarp á
haustþingi um að Hólaskóli yrði sjálfstæður há-
skóli.
„Ég tilkynni ykkur hér, ágætu Hólamenn, að
ríkisstjórnin ákvað […] í þessari viku að leggja
fyrir Alþingi frumvarp um að landbúnaðarskól-
inn hér verði með lögum frá hinu háa Alþingi frá
næstu áramótum háskóli, og beri það fallega
nafn Hólaskóli – háskólinn á Hólum,“ sagði
Guðni.
Hann sagði í samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi að skólinn hafi nú tækifæri til að dafna og
eflast og verða lyftistöng fyrir Hóla í framtíð-
inni. „Það er mikil aðsókn að skólanum í dag og
komast færri að en vilja. Þetta mun auðvitað efla
skólann enn meir.“ | Miðopna
Morgunblaðið/jt
Hólaskóli verði háskóli frá og með næstu áramótum
vinnu sem verður kynnt á seinni hluta flokks-
þingsins í febrúar næstkomandi. Afar mikilvægt
fyrir flokkinn sé að horfa til framtíðar.
Hún telur ekki liggja á að sækja um aðild að
Evrópusambandinu og telur það ólíklega nið-
urstöðu að Evrópumálin verði sett á oddinn á
næstunni, þótt mikilvægt sé að fylgjast með þeirri
þróun sem eigi sér stað innan sambandsins um
þessar mundir í tengslum við stækkun þess.
Ákveðnir kostir séu þó við að bíða með aðild, t.d. í
viðskiptalegu tilliti.
Siv segist telja umræðu um virkjanamál á
nokkrum villigötum, sérstaklega hvað Kára-
hnjúka varðar og bendir á að mikill pólitískur
stuðningur hafi verið við þetta verkefni á Alþingi
á sínum tíma. Hvað framtíðina varðar sé mik-
ilvægt að ljúka rammaáætlun um nýtingu vatns-
afls og jarðvarma, enda sé hún að mörgu leyti
grundvallarvinna og upplýsi um kosti og galla við
hverja framkvæmd. „En að vissu leyti skil ég um-
ræðuna, því margir hafa á tilfinningunni að það
standi til að gera meira en rök eru fyrir. Það er
FRAMSÓKNARFLOKKURINN þarf að upp-
lýsa almenning betur um árangur sinn og horfa til
framtíðar, að sögn Sivjar Friðleifsdóttur, heil-
brigðis- og tryggingaráðherra, sem tilkynnti um
framboð sitt til formanns Framsóknarflokksins sl.
fimmtudag og boðar kynslóðaskipti í forystunni.
Flokksþing framsóknarmanna hefst á föstudag-
inn og í viðtali við Morgunblaðið í dag segir Siv að
ástæða þess að hún hafi beðið jafnlengi og raun
bar vitni með að tilkynna um framboð sitt hafi
verið að hún vildi skapa ró og frið í flokknum og
gefa flokksmönnum tíma til að íhuga þá stöðu sem
er uppi. Þá hafi hún viljað fara vel yfir stöðuna
með sjálfri sér og fjölskyldu sinni en niðurstaða
hennar hafi verið sú að hún væri algerlega
reiðubúin til að takast á við það verkefni að leiða
Framsóknarflokkinn.
Siv segir brýnasta verkefni nýs formanns vera
að skýra grunngildi flokksins og fara út í málefna-
ekki búið að ramma nógu vel inn hvaða fram-
kvæmdir eigi að fara í og hverjar ekki,“ segir Siv.
Hún segist vera bjartsýn fyrir formannsslaginn
en á von á tvísýnu kjöri. Framsóknarmenn verði
að gera upp við sig hvaða forystu þeir telji líkleg-
asta til að sækja fram og efla fylgi flokksins.
Boðar kynslóðaskipti
Morgunblaðið/Eyþór
Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og trygginga-
ráðherra, er bjartsýn fyrir formannsslaginm.
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is
Framsókn | 18–19
Eftir Jóhann Magnús Jóhannsson
johaj@mbl.is
FJÖLDI þinglýstra samninga á höf-
uðborgarsvæðinu vegna kaupa á
fasteignum var í síðustu viku sá
minnsti síðan vikuna milli jóla og ný-
árs árið 2003.
Samningarnir voru 67 talsins á
svæðinu í liðinni viku en til saman-
burðar má nefna að meðaltalsfjöldi
slíkra samninga síðustu tólf vikur er
126 og í sömu viku seinasta árs var
174 samningum þinglýst.
Frá því upplýsingar um fjölda
þinglýstra kaupsamninga um fast-
eignir voru fyrst birtar í febrúar
2001 á heimasíðu Fasteignamats rík-
isins hafa aðeins tvisvar áður verið
seldar færri fasteignir á einni viku.
Þær voru fimmtíu talsins dagana 27.
desember 2002 til 2. janúar 2002 og
fjörutíu dagana 26. desember til 1.
janúar 2003.
Færist í aukana með haustinu
„Við finnum fyrir þessu þrátt fyrir
að í venjulegu ári séu viðskipti minni
á þessum árstíma, svona yfir hásum-
arið,“ segir Jón Guðmundsson, lög-
giltur fasteignasali hjá Fasteigna-
markaðnum ehf. Viðskiptin færist
venjulega í aukana með haustinu.
„Sala fasteigna hefur verið
óhemjumikil síðustu tvö til þrjú árin
og það reiknar enginn með slíkum
viðskiptum í framhaldinu. Markað-
urinn nær sér vonandi á strik í þess-
um mánuði eða byrjun september þó
búast megi við því að samningar
verði færri en þeir hafa verið und-
anfarin ár.“
Býst Jón ekki við því að viðskiptin
fari almennilega af stað fyrr en vext-
ir lækki. Bankar virðist eiga erfitt
um vik að lána meðan Seðlabankinn
sverfi að aðstæðum þeirra með jafn-
háum stýrivöxtum og raun ber vitni.
„Á síðastliðnum tveimur vikum
hefur verið sýnilegt að seljendur,
sem hafa verið farnir að bíða eftir
sölu, séu farnir að gefa sig. Það er
fyrst núna að skapast, fyrir fullt og
fast, kaupendamarkaður,“ segir Jón
sem jafnframt sér ekkert annað í
spilunum en að það verði kaupenda-
markaður eins langt fram í tímann
og hægt sé að spá fyrir um.
Að sögn Jóns hefur þróunin verið
sú að ásett verð hafi lækkað og það
hafi kaupendur nýtt sér í tilboðs-
gerð.
„Margir seljendur sem hafa verið
með eignir í sölu í þrjá til fjóra mán-
uði hafa nú séð sæng sína uppreidda
og látið slag standa.“
Kaupendamarkaður nú og
í fyrirsjáanlegri framtíð
Rúm tvö ár síðan færri kaupsamn-
ingum hefur verið þinglýst á einni viku
Mývatnssveit | Hann stendur enn í
sólinni eftir 100 ár þessi símastaur
á Dalbörðum austan Mývatns-
sveitar. Að vísu
er búið að fjar-
lægja af honum
línuna þannig að
staurinn syngur
ekki lengur. En
svo sem kunnugt
er og kvæði vitna
um, þá sungu al-
vöru símastaurar
þannig að börn
höfðu af því yndi
að leggja eyra að
staur. Staurinn
sá hefur verið á
þessum stað síð-
an um veturinn
1906 þegar Mý-
vetningar fluttu
hann og ótalmarga aðra slíka með
hestum frá Húsavík og á línustæðið
frá Mývatni austur Fjöllin. Um
sumarið 1906 unnu síðan vinnu-
flokkar, mest Norðmenn, við að
koma staurum fyrir og aðrir við að
strengja á þá talsímaþræði. Þeir
eru nú örfáir staurarnir sem enn
standa og vitna um þessa mik-
ilvægu en þá umdeildu fram-
kvæmd, en enn finnur landinn sér
deiluefni og tilefni til mótmæla. Í
lok september 1906 var síma-
sambandi komið á frá Seyðisfirði til
Reykjavíkur.
Á Dalbörð-
um í 100 ár
Morgunblaðið/BFH
VALDÍS Þóra Jónsdóttir, 16 ára
kylfingur frá Akranesi, hefur náð
góðum tökum á golfíþróttinni með
skipulögðum æfingum og á dög-
unum jafnaði hún vallarmet Ragn-
hildar Sigurðardóttur úr GR á
Garðavelli – heimavelli Valdísar.
Fyrr í sumar lék Valdís með
stúlknalandsliði Íslands á Evr-
ópumeistaramóti sem fram fór í
Danmörku og skömmu síðar fór afi
hennar, Alfreð Viktorsson, í lands-
liðsverkefni með 70 ára karlalands-
liði Íslands. Það er því mikið rætt
um golf í fjölskylduboðunum hjá
þeim Alfreð og Valdísi en Skaga-
stúlkan hefur hug á því að verða
betri en afi sinn í stutta spilinu þeg-
ar fram líða stundir – áður en hún
verður arkitekt, flugmaður eða at-
vinnukylfingur. | 11
Afinn og barna-
barnið í lands-
liðsverkefnum
LÖGREGLAN í Borgarnesi stöðv-
aði ökumann jeppabifreiðar fyrir að
hafa um borð of marga farþega. Sæti
voru fyrir fjóra farþega í bifreiðinni
en sá fimmti, drengur á unglings-
aldri, lá innan um farangur í farang-
ursgeymslu bifreiðarinnar. Lög-
reglubifreið flutti piltinn til
Borgarness og verður athæfið kært.
Var bifreiðin stöðvuð um klukkan
hálfþrjú í gær þegar umferðin var
hvað mest í suðurátt en að sögn lög-
reglu í Borgarnesi var umferð um
umdæmið mjög mikil í gær. Var þar
mikið til um að ræða fjölskyldufólk á
leið suður frá Fiskideginum mikla á
Dalvík og Pæjumótinu á Siglufirði.
Fimmti
farþeginn
í skottinu
♦♦♦