Morgunblaðið - 28.10.2006, Blaðsíða 59
arinn á c3 er í vanda staddur og einn-
ig drottningin.)
16. … Hfe8+ 17. Kf1 Be6!!
Stöðumynd 2
(Magnaður leikur. Fyrir utan að
geta tekið drottninguna á hvítur tvo
kosti: 18. Dxc3 Dxc5! með vinnings-
stöðu eða 18. Bxe6 Db5+ 19. Kg1
Re2́ 20. Kf1 Rg3+ 21. Kg1 Df1+ 22.
Hxf1 Re2 mát.)
18. Bxb6 Bxc4++ 19. Kg1 Re2+
20. Kf1 Rxd4+ 21. Kg1 Re2+ 22. Kf1
Rc3+ 23. Kg1 axb6 24. Db4 Ha4!
(Lokahnykkurinn. Hrókurinn á d1
fellur óbættur og svartur hefur tvo
létta og hrók fyrir drottninguna sem
er meira en nóg. Úrvinnsla hins unga
Bobbys Fischers er algerlega óað-
finnanleg.)
25. Dxb6 Rxd1 26. h3 Hxa2 27.
HINN 17. október sl. voru 50 ár
liðin frá því að Bobby Fischer vann
Donald nokkur Byrne í viðureign sem
dálkahöfundur Chess Review, Hans
Kmoch, kallaði „Skák aldarinnar“.
Rosenwald-mótið, sterkasta lokaða
mót þess árs í Bandaríkjunum, var
haldið í New York og dró til sín
marga bestu skákmenn þjóðarinnar,
þ.á m. Samuel Reshevsky, sem sigr-
aði örugglega. En úrslit mótsins viku
algerlega fyrir athyglinni sem þessi
viðureign hlaut. Hinn 13 ára gamli
Bobby Fischer var unglingameistari
Bandaríkjanna og hafði náð eftirtekt-
arverðum árangri á fjölmörgum opn-
um mótum en var boðið til leiks sem
efnilegum skákmanni. Hann hafði
ekki mikla reynslu í keppni við þá
bestu en nýtti sér tækifærið vel, að-
eins ári síðar, 14 ára gamall, varð
hann efstur á meistaramóti Banda-
ríkjanna og vann mótið í hvert skipti
sem hann tók þátt í því, átta sinnum
alls.
Bandaríkjamenn áttu á þessum ár-
um fjölmarga öfluga meistara með
Samuel Reshevsky í broddi fylkingar.
Á millistríðsárunum unnu þeir ól-
ympíumótið reglulega en í stríðslok
1945 vöknuðu þeir upp við þann
vonda draum að Sovétmenn voru
orðnir miklu fremri.
Blásið var til útvarpseinvígis risa-
veldanna á 10 borðum sem lauk með
stórsigri Sovétmanna, 15½:4½. Res-
hevsky var afskrifaður sem mögu-
legur heimsmeistari: þú verst ekki
rauða storminum bak við sólhlíf á
ströndinni, var þekkt slagorð þess
tíma.
Á næstu árum staðfestu Sov-
étmenn styrk sinn hvar sem þeir
tefldu. Stórmeistarar þeirra: Botv-
innik, Smyslov, Bronstein, Keres,
Kotov og Boleslavskij og svo nokkrir
þeirra yngri, Petrosjan, Geller og
Spasskij, virtust búa yfir þekkingu
sem var öðrum ekki tiltæk.
Fáir vissu að um götur New York
gekk unglingur sem hafði sett sér það
einfalda markmið að rústa veldi Sov-
étmanna.
Fyrirsagnir í blöðum sem varða
„skák aldarinnar“ gefa til kynna að
eitthvað nýtt og spennandi sé í aðsigi;
einhver „loksins, loksins-tónn“.
„Við þurfum sennilega að fylgjast
með þessum dreng,“ er haft eftir
heimsmeistaranum Mikhael Botv-
innik þegar honum var sýnd skákin.
Hvernig virkar svo þessi skák á
mann í dag? Stendur hún undir þess-
ari nafngift? Sennilega! Hans Kmoch
var virtur fræðimaður og hafði góða
yfirsýn yfir helstu viðureignir ald-
arinnar. Byrjunin myndi teljast
ágætlega nútímaleg, Fischer var
greinilega búinn að kynna sér einvígi
Botvinniks og Smyslovs frá 1954 og
hann skynjar undireins að tök hvíts á
stöðunni eru fulllosaraleg og setur
allt í bál og brand með snilld-
arleiknum 11. … Ra4. Eftir því sem
hallar á Donald Byrne er eins og Paul
Morphy gægist fram, kæfingarmátið
sem blasir við eftir 17. … Be6 var fyr-
irferðarmikið í nokkrum skáka hans.
Donald Byrne – Bobby Fischer
Grunfelds-vörn
1. Rf3 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. d4
0–0 5. Bf4 d5
(Fischer tefldi nær eingöngu
kóngsindverska á þessum árum en
hún kemur upp eftir 5. … d6.)
6. Db3 dxc4 7. Dxc4 c6 8. e4 Rbd7
9. Hd1 Rb6 10. Dc5 Bg4 11. Bg5?
(Traustara var 11. Be3. Þetta eru
einu mistök Byrnes í skákinni.)
Stöðumynd 1
11. … Ra4!!
(Þessi riddaraleikur er auðvitað
hrein snilld. það er ekki oft að svartur
á slíka þrumuleiki svo snemma tafls.
Eftir 12. Rxa4 Rxe4 13. Dc1 Da5+
14. Rc3 Bxf3 vinnur svartur manninn
til baka með yfirburðastöðu.)
12. Da3 Rxc3 13. bxc3 Rxe4!
(Annar snilldarleikur. Svartur varð
að hafa séð fyrir hinn kynngimagn-
aða 17. leik.)
14. Bxe7 Db6 15. Bc4
(Hvítur sá fram á að eftir 15. Bxf8
Bxf8 16. Db3 kemur 16. … Rxc3! með
hugmyndinni 17. Dxc3 Bb4 og drottn-
ingin fellur.)
15. … Rxc3! 16. Bc5
(Hvítur gat reynt 16. Dxc3 en
svartur vinnur manninn til baka með
16. … Hfe8 og 17. Bxf7+ stoðar lítt
17. … Kxf7 18. Rg5 Kxe7 og vinnur.
16. leikur hvíts lítur vel út því ridd-
Kh2 Rxf2 28. He1 Hxe1 29. Dd8+
Bf8 30. Rxe1 Bd5 31. Rf3 Re4 32.
Db8 b5 33. h4 h5 34. Re5 Kg7 35.
Kg1 Bc5+ 36. Kf1 Rg3+ 37. Ke1
Bb4+ 38. Kd1 Bb3+ 39. Kc1 Re2+
40. Kb1 Rc3+ 41. Kc1 Hc2 mát.
Það er heilmikill æskuþróttur í
þessari taflmennsku; stíll Fischers
var í mótun. Fórnir í anda gömlu
meistaranna voru ekki endilega fyr-
irferðarmiklar í skákum hans síðar á
ferlinum. Allar fórnir hans í þessari
skák stóðust.
Eftir stendur spurning sem margir
veltu fyrir sér síðar: Af hverju er
þessi skák í bókinni „My 60 memo-
rable games“? Það er ekki nema einn
maður sem getur svarað því og hann
býr í Reykjavík.
„Skák aldarinnar“ 50 ára
helol@simnet.is
Helgi Ólafsson
Stöðumynd 1
Úrklippa úr bandarísku dagblaði sem greinir frá sigri Bobby Fischer.
SKÁK
Stöðumynd 2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 2006 59
Bílar
VW Passat árg. '02, ek. 53 þús.
km. V. 1.500 þús. Áhv. 1.150 þús.
Vantar bíl á milli. Uppl. í s. 866
1441.
Toyota árg. '97, ek. 160 km. Ný-
skoðaður og yfirfarinn Corolla til
sölu, beinsk. 4WD. Rúmgóður
fjölskyldubíll sem kemst allt. Kom
á götuna 98. Tilboð óskast. Hjalli
693 7128.
Subaru Legacy 1.8 GL árg. '90,
ek. 161 þ. km. Skoðaður 2007.
Bensín knúinn. 4 dyra, sjálfskipt-
ur, sídrif+samlæsigar og fjarstart,
geislasplari. Verð 160.000. Sími
896 1189.
Opel Vectra CD 2000cc. Kosta-
kaup 300.000 kr., lán 225 þús. og
75 þús. í pen., ekkert prútt. Árg.
1998, ek. 156 þús. 2000cc, sjálfsk.
m. sóllúgu, á álfelgum, sumar- og
vetrardekk. Gsm 824 5775.
Mercedes Benz Sprinter 316
CDI sk. 06/2006. Ekinn 800 km.
Sjálfskiptur, rafmagn í rúðum og
speglum. Hraðastillir, fjarst. sam-
læsingar ESP, ASR, ABS loftkæl.
Með öllu. Sendibíll skráður 5-6
manna.
Kaldasel ehf.,
Dalvegi 16b, 201 Kópavogi,
s. 544 4333 og 820 1070.
MMC Pajaro. Til sölu Pajero Glx
3200 dísel, ssk., árg. '01, ek.
102.000, vetrar- og sumardekk á
álfelgum, vel með farinn. Verð
2.790. Ath. skipti á ódýrari. Sími
898 2556.
Honda Civic árg. '87, ek. 112
þús. km. Toppbíll í góðu standi
óskar eftir góðu heimili. Á sama
stað Opel Vectra '98, ekinn
105.000, fæst gegn yfirtöku á láni
290.000. Uppl. í síma 695 8615.
Góður bíll til sölu. Subaru Leg-
acy 2.0 GL árg. 2001, ek. 86 þ. km.
Sjálfsk. Krókur, álfelgur, filmur.
Verð 1.200 þ. Áhv. 700 þ. Uppl. í
síma 897 5645.
Ford Econoline 350 til sölu. 15
manna 7,3 dísel. Óskoðaður en
í góðu lagi. Tilboð óskast. Upplýs-
ingar í síma 660 4007.
DODGE ÚTSALA Í DAG! Dísel
eða benzínbílar frá kr. 2.065.000.
Lækkun dollars, útsölur bílafram-
leiðenda og heildsöluverð island-
us.com orsakar verðhrun!
Íslensk ábyrgð. Bílalán. Fáðu bet-
ra tilboð í s. 552 2000 eða á
www.islandus.com.
Corolla 4WD til sölu árg. '96, 1,8
l, 5 gíra, ekinn 195 þús., sk. '07.
Sumardekk á álfelgum, CD/MP3,
ný tímareim, smurbók. Fínn bíll
í góðu standi. Verð 295.000. Uppl.
í síma 820 9080.
Jeppar
KIA Sorento EX Luxury. Til sölu
Kia Sorento EX Luxury árg. 2006,
ekinn 11 þús. km. Dísel, sjálfsk.,
dráttarkrókur, leður o.fl. Verð
3.350 þús. Uppl. í síma 897 0880.
Hjólbarðar
Tilboð til 29.10. 195/65 R 15 nagla-
dekk 4 stk. + vinna 27.900 kr.
Kaldasel ehf.,
Dalvegi 16b, 201 Kópavogi,
s. 544 4333.
Tilboð til 29.10. 175/65 R 14 nagla-
dekk 4 stk. + vinna 25.900 kr.
Kaldasel ehf.,
Dalvegi 16b, 201 Kópavogi,
s. 544 4333.
Til sölu vetrardekk, loftbólu-
dekkin Bridestone Blizzak 185/65/
15=4, ný. Verð 31.000 og 2 nýleg,
verð 11.000 og 4 Bridgestone
sumardekk 185/65/15. Verð
22.000. S. 896 1189.
Camac jeppadekk - tilboð 4
stk. 235/75 R 15 + vinna 49.000 kr.
Kaldasel ehf.,
Dalvegi 16b, 201 Kópavogi,
s. 544 4333.
31" álfelgur og heilsársdekk. Til
sölu heill gangur af heilsárs-
dekkjum á 6 gata álfelgum
31x10.5x15. Uppl. í síma 898 4791.
Ökukennsla
Ökukennsla Reykjavíkur ehf.
Ökukennsla - akstursmat.
Snorri Bjarnason
BMW 116i,
892 1451/557 4975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '06
892 4449/557 2940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '02,
863 7493/557 2493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '06,
696 0042/566 6442.
Gylfi K. Sigurðsson
Suzuki Grand Vitara,
892 0002/568 9898.
Glæsileg kennslubifreið,
Subaru Impreza 2006, 4 wd.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 696 0042.
Hjólhýsi
Til sölu notað hjólhýsi/
bústaður, skiptist í 3 svefnher-
bergi, stofu, eldhús og bað.
Stærð hússins er 10x34 fet (ca 34
fermetrar). Húsið er útlitsgallað
eftir flutning. Verð aðeins 1.100
þús. Uppl. í síma 893 6020.
Húsbílar
Frábrært eintak af húsbíl. Ford
Econoline árgerð 1995, ekinn 80
þús. km. Búið er að innrétta bílinn
að hluta, tvöfalt rúm, vaskur o.fl.
Nánari upplýs. í síma 862 6242.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Vélar & tæki
Umfelgunarvélar vörubíla og
vinnuvéla. Til sölu umfelgunarvél-
ar fyrir vörubíla og vinnuvélar.
Verð frá 580 þús. kr. m. vsk. Uppl.
í síma 899 2854.