Morgunblaðið - 30.12.2006, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BARÁTTAN fyrir hálendi Íslands
heldur áfram og er þegar byrjað að
skipuleggja alþjóðlegar mótmæla-
búðir hérlendis fyrir næsta sumar.
Stefnt er að því að búðirnar verði
reistar 6. júní og standi fram eftir
sumri 2007.
Þetta kemur fram á vef náttúru-
verndarsinna á slóðinni: www.sa-
vingiceland.org. Ekki kemur fram
hvar búðirnar verða en tekið fram að
það verði kynnt síðar.
Á vefnum er minnt á að Saving
Iceland-hópurinn hafi verið með
samskonar alþjóðlegar mótmæl-
endabúðir, fyrst sumarið 2005 og aft-
ur sl. sumar. Markmið búðanna þá
var að mótmæla byggingu Kára-
hnjúkavirkjunar og álveri ALCOA.
Fram kemur að markmiðið með
búðunum á komanda sumri sé að
stöðva iðnvæðingu Íslands. „Koma
þarf í veg fyrir að nýjar hugmyndir
um virkjanir, rafmagnsverksmiðjur,
málmbræðslur og annan þungaiðnað
verði að veruleika,“ segir m.a. í frétt
félagsins á vefnum og tekið fram að
fyrirtækin sem baráttan beinist
gegn séu m.a. ALCOA, ALCAN,
Hydro, Rusal, Bechtel, Barclays og
Mott McDonal. Bent er á að sökum
þess hve Ísland er auðugt af jarð-
varma sé landið orðið vinsælt hjá
fyrirtækjum í orkuiðnaði en til mik-
ils sé að vinna að vernda síðasta
óspillta landið á Vesturlöndum.
Boða mótmælabúðir
á sumri komanda
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
AFLI íslenskra skipa á árinu 2006
er áætlaður 1.324 þúsund lestir. Það
er minnsti afli síðan 1991 þegar afl-
inn var 1.044 þúsund lestir. Mestur
var aflinn 1997 eða 2.199 þúsund
lestir. Samdrátturinn er að heita
má eingöngu í loðnu. Þrátt fyrir
þetta er búizt við að aflaverðmæti á
árinu verði meira en í fyrra og
verðmæti útfluttra sjávarafurða
sömuleiðis.
Þorskaflinn 2006 var 13 þúsund
lestum minni en 2005. Ufsaafli og
afli úthafskarfa var talsvert meiri
en árið áður. Botnfisksafli jókst um
9 þúsund lestir milli ára.
Afli uppsjávartegunda var 790
þúsund lestir 2006 sem er 345 þús-
und lestum minni afli en 2005. Mun-
ar þar mest um að loðnuafli var 421
þúsund lestum minni en 2005. Síld-
ar- og kolmunnaafli var nokkru
meiri en 2005.
Aukin aflaverðmæti
Rækjuaflinn 2006 var aðeins 3
þúsund lestir og hefur ekki verið
minni í tæplega 40 ár. Hörpudisks-
veiðar voru engar á árinu. Hum-
arafli var um 2 þúsund lestir.
Miðað við fast verð dróst afla-
verðmæti nokkuð saman frá árinu
2005. Hátt afurðaverð og lægra
gengi krónu vó hins vegar á móti
rýrari afla. Fyrir vikið var aflaverð-
mæti fyrstu níu mánuði ársins um
58 milljarðar króna, sem er 10,6%
aukning miðað við sama tíma í
fyrra. Því er gert ráð fyrir að afla-
verðmæti geti orðið meira á þessu
ári þrátt fyrir hinn mikla samdrátt.
Loks má gera ráð fyrir því að verð-
mæti útfluttra sjávarafurða geti náð
125 milljörðum króna sem er um 15
milljörðum hærra en í fyrra.
Fiskaflinn hefur dregist
saman en verðmætið aukist
Aflinn í ár áætlaður 1,3 millj. lesta eða sá minnsti frá 1991
!"#$% &
"&
' %
(&
)&
* +
$ &%
, &
&%
*+"
-
) !
(../0&
*% 12%"3
SIGFÚS Ingi Sigfússon hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri Fram-
sóknarflokksins, og tekur hann við
starfinu um áramótin. Sigfús hefur
undanfarið verið aðstoðarmaður
Valgerðar Sverrisdóttur utanríkis-
ráðherra og starfaði áður m.a. í
iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu.
Fráfarandi framkvæmdastjóri
flokksins, Sigurður Eyþórsson, hef-
ur gegnt starfinu frá árinu 2003 og
starfað á skrifstofu hans frá árinu
1994. Hann lætur af störfum að eig-
in ósk, samkvæmt tilkynningu frá
Framsóknarflokknum. Sigurður
mun starfa hjá flokknum fyrst um
sinn og aðstoða nýjan fram-
kvæmdastjóra.
Aðalheiður Sigursveinsdóttir
hefur verið ráðin nýr aðstoð-
armaður utanríkisráðherra. Hún er
33 ára og útskrifaðist með BA-
gráðu í heimspeki frá Háskóla Ís-
lands og með MBA-gráðu frá Há-
skólanum í Reykjavík, með sér-
stakri áherslu á stjórnun í
alþjóðlegu umhverfi og rafræna
viðskiptahætti. Hún hefur starfað
sl. sjö ár hjá KB banka og þar áður
hjá Landslæknisembættinu.
Aðalheiður er gift Páli Magn-
ússyni, sem gegndi starfi aðstoð-
armanns Valgerðar Sverrisdóttur
um tíma þegar hún var iðnaðar- og
viðskiptaráðherra.
Aðstoðarmaður
verður fram-
kvæmdastjóri
Aðalheiður
Sigursveinsdóttir
Sigfús Ingi
Sigfússon
BJÖRN Bjarna-
son dóms- og
kirkjumálaráð-
herra hefur skip-
að Ingimund Ein-
arsson,
varalög-
reglustjóra í
Reykjavík, til
þess að gegna
stöðu héraðs-
dómara við Hér-
aðsdóm Reykjavíkur frá og með 1.
janúar 2007. Er skipað í laust emb-
ætti héraðsdómara við dómstólinn
þar sem Friðgeir Björnsson, hér-
aðsdómari og fyrrverandi dóm-
stjóri, lætur af störfum um áramót-
in.
Jafnframt hefur dómsmálaráð-
herra skipað Ásdísi Ármanns-
dóttur, héraðsdómslögmann á
Sauðárkróki, til þess að vera sýslu-
maður á Siglufirði frá og með 1.
febrúar 2007.
Skipaður í
embætti hér-
aðsdómara
Ingimundur
Einarsson
ÞAÐ hefur færst í vöxt að starfs-
menn söluturna og klukkubúða leiti
eftir ráðleggingum hjá VR því þeir
óttast um eigið öryggi á vinnustaðn-
um. Ránum hefur fjölgað og það er
algengara nú en áður að viðskipta-
vinir sýna ógnandi framkomu við
starfsfólk. Verslunareigendum ber,
samkvæmt lögum, að tryggja öryggi
sinna starfsmanna, en því virðist
víða ábótavant, segir fulltrúi á kjara-
sviði VR.
Starfsmenn klukkubúðanna og
söluturna eru yfirleitt ungir, mjög
margir um eða innan við tvítugt.
María Jónsdóttir, sérfræðingur á
kjarasviði VR, segir á vef VR, að það
hafi aukist að þeir séu einir á vakt á
kvöldin eða um helgar þegar hættan
á ránum eða ofbeldi er meiri.
Vinnuveitanda ber að veita starfs-
mönnum öruggt vinnuumhverfi sam-
kvæmt 13. grein laga um aðbúnað,
hollustuhætti og öryggi á vinnustöð-
um. Ef rökstuddur grunur leikur á
að öryggi starfsmanna geti verið
ógnað er það í hans verkahring að
draga úr hættunni.
Að sögn Maríu virðist hins vegar
vera einhver misbrestur á að þessum
lögum sé fylgt. Það sé mikilvægt að
brýna fyrir starfsfólki að það eigi
rétt á að finna til öryggis í vinnunni.
Óttast um
öryggi sitt
VÆN maríuhæna gerði sig heimakomna á heimili einu
í Kópavogi nú í vikunni og leikur ákveðinn grunur á að
hún hafi gerst laumufarþegi með lifandi jólatré sem
keypt var til heimilisins um þessi jól. Það var Einar
Logi Þorleifsson, 6 ára, sem fann maríuhænuna og kom
henni fyrir í krukku þar sem hann hefur stundað at-
huganir á henni af töluverðum áhuga. Maríuhæna er
rándýr, sem lifir til dæmis á blaðlúsum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Maríuhæna gerði sig heimakomna
♦♦♦
OLÍUVERSLUN Íslands, Olís, átti lægsta tilboð í
útboði á eldsneyti fyrir bifreiðir í eigu Reykjavík-
urborgar. Tilboð voru opnuð á fimmtudag. Um er
að ræða samning til eins árs, með möguleika á
framlengingu til allt að eins árs í tvígang, og áætl-
uð ársnotkun fyrir um 60 bíla er 150 þúsund lítrar.
Andvirði slíkra viðskipta er um 15 milljónir króna.
Þetta er fyrsta útboðið hjá borginni í nokkur ár,
eða frá því olíusamráðsmálið kom upp, en stóru ol-
íufélögin þrjú voru nýlega dæmd í Héraðsdómi
Reykjavíkur til að greiða borginni og Strætó bs.
nærri 80 milljónir króna í bætur vegna verðsam-
ráðs í júní árið 1996.
Að sögn Helga Bogasonar hjá Innkaupa- og
rekstrarskrifstofu Reykjavíkurborgar er verið að
fara yfir tilboðin og niðurstöðu að vænta í byrjun
nýs árs.
Olís bauð 12,5% afslátt frá listaverði, sem var
112,7 krónur á lítra af 95 oktana bensíni, og 113,5
krónur lítrinn af dísilolíu. Nettóverð á bensínlítr-
ann er því 98,6 krónur en sjálfsafgreiðsluverð á
stöðvum Olís í dag er 112,5 krónur að meðaltali.
Olíufélagið (Esso) og Skeljungur voru með
sama listaverð en mismunandi afslátt; Olíufélagið
með 8,2% af báðum tegundum eldsneytis og Skelj-
ungur með 9,3% af bensínverði og 9,24% af dísil-
olíunni.
Listaverð hjá Atlantsolíu og ÓB var hið sama,
111,2 krónur á bensíni og 112 krónur á dísilolíu, en
ÓB bauð 7,6% afslátt og Atlantsolía rúm 8%.
Olís bauð lægst í útboði borgarinnar