Morgunblaðið - 30.12.2006, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006 17
SUÐURNES
569 7200 www.isprent.is
um gleðilega hátíð og gæfuríkt komandi ár.
litrík samskipti á árinu sem er að líða.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Grindavík | „Við erum að stórauka
þjónustuna við þennan hóp sjúk-
linga,“ sagði Siv Friðleifsdóttir,
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra, eftir undirritun samnings
ríkisins og Bláa Lónsins hf. um
þjónustu við psoriasis- og exem-
sjúklinga næstu sex árin. Jafnframt
veitir ríkið Bláa Lóninu rannsókn-
arstyrk.
Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytið greiðir tæpar 45 millj-
ónir króna á ári samkvæmt samn-
ingnum. Þar af eru rúmar 34
milljónir fyrir meðferð, tæpar 10
vegna daggjalda og tæp 400 þúsund
vegna fylgdarmanna þegar í hlut
eiga börn eða alvarlega fatlaðir ein-
staklingar. Ríkið greiðir því samtals
um 270 milljónir á sex árum fyrir
þessa þjónustu.
Heilbrigðisráðherra segir að
mikil eftirspurn sé eftir þjónust-
unni. Talið sé að 6 til 9 þúsund
manns séu með psoriasis, misjafn-
lega mikil einkenni, og hafi 250 til
300 fengið meðferð hjá Bláa Lóninu
á hverju ári samkvæmt fyrri samn-
ingum. Greitt hafi verið fyrir 5.100
meðferðir á ári og nú verði þær
6.500.
Meðferðin er veitt í heilsulindinni
sem Bláa Lónið kom upp fyrir þessa
starfsemi og var opnuð um mitt ár
2005. Áður hafði þjónustan verið í
bráðabirgðahúsnæði á athafna-
svæði fyrirtækisins. Grímur Sæ-
mundsen, forstjóri Bláa Lónsins hf.,
segir að með þessum samningi sé
verið að laga samninga og þjónustu
að þeirri aðstöðu sem komið hafi
verið upp en uppbygging heilsulind-
arinnar hafi verið forsenda þess að
ná árangri á alþjóðlegum vettvangi.
Þá segir hann mikilvægt fyrir Bláa
Lónið og markaðssetningu þessar-
ar þjónustu erlendis að samstarfið
við íslensk heilbrigðisyfirvöld hafi
nú verið fest í sessi til margra ára.
Valgerður Auðunsdóttir, formað-
ur SPOEX – samtaka psoriasis-
sjúklinga, segir jákvætt að samn-
ingar um meðferð hafi náðst. Hún
segir að það brenni mjög á fé-
lagsmönnum á landsbyggðinni að fá
ferðakostnað endurgreiddan og
muni félagið vinna áfram að lausn á
því máli.
Rannsóknastyrkur veittur
Við sama tækifæri var samið um
stuðning ríkisins við rannsóknir og
alþjóðlega markaðssetningu húð-
meðferða í Bláa Lóninu. Nemur
hann 25 milljónum króna á ári í
fjögur ár, alls 100 milljónum króna.
Grímur segir að styrkurinn verði
notaður til að staðfesta niðurstöður
rannsókna sem gerðar voru fyrir
tólf árum og sýndu fram á lækn-
ingamátt jarðsjávarins. Einnig
verði hafnar nýjar rannsóknir. Von-
ast hann til að mikilvægur áfangi
náist á næsta ári í alþjóðlegu vís-
indasamstarfi.
Þjónusta við sjúklinga aukin
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Samið Ráðherrarnir Árni Mathiesen og Siv Friðleifsdóttir og Grímur
Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins, sömdu um aukna þjónustu.
Í HNOTSKURN
»Ríkið greiðir fyrir 6.500húðmeðferðir á ári, í stað
5.100 til þessa. Kostnaður er 45
milljónir á ári, samtals um 270
milljónir króna á sex árum.
»Bláa Lónið hf. fær 25 millj-óna króna styrk á ári til
rannsókna á lækningamætti
Bláa lónsins og markaðs-
setningar á húðmeðferðum er-
lendis, samtals 100 milljónir.
Gengið frá samn-
ingi um meðferð
húðsjúkdóma
Keflavíkurflugvöllur | Tvær milljónir far-
þega fóru um Flugstöð Leifs Eiríkssonar á
árinu 2006, fleiri en nokkru sinni fyrr á
einu ári. Farþeginn sem fyllti töluna tvær
milljónir reyndist vera um borð í Ice-
landair-vél sem kom frá Kaupmannahöfn í
fyrradag. Hann heitir Ingólfur Guð-
mundsson. Fulltrúar Flugstöðvar Leifs Ei-
ríkssonar hf. tóku á móti farþeganum og
afhentu blóm í tilefni dagsins og áfangans.
Farþegum um Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar fjölgar ár frá ári og gert er ráð fyrir
að svo verði áfram. Árið 1996 voru farþeg-
ar rétt rúmlega ein milljón, árið 2004 fóru
þar um yfir 1,6 milljónir farþega, árið
2005 ríflega 1,8 milljónir og nú hefur
tveggja milljóna múrinn verið rofinn.
Spáð er um 6% fjölgun árið 2007 og að ár-
ið 2015 verði farþegafjöldinn kominn vel
yfir þrjár milljónir, sem jafngildir tvöföld-
un á einum áratug.
Tvær milljónir
gesta í Leifsstöð
Áfangi Elín Árnadóttir, staðgengill for-
stjóra, tók á móti Ingólfi Guðmundssyni.
Mýrdalur | Pálmi Andrésson bóndi
í Kerlingardal í Mýrdal var að gefa
gæsunum jólamatinn þegar frétta-
ritari Morgunblaðsins hitti á hann.
Það var greinilegt að fuglarnir
þekktu bóndann því að þeir komu
allir kjagandi til að fá brauðmola.
Að sögn Pálma eru gæsirnar
ungar, síðan síðastliðið vor og eru í
eigu Jóhanns sonar hans. Pálmi
fær brauðafganga í versluninni
Kjarval í Vík og gefur þeim nokkuð
reglulega en að öðru leyti eru þær
frjálsar og ná sér í æti. Eftir að
umræðan um fuglaflensuna kom
upp er erfitt að selja lifandi fugla.
Myndin var tekin þegar Pálmi
var að sýna hvernig best væri að
taka gæsirnar upp svo að þeim lík-
aði vel.
Svona á að ná gæsunum
á þægilegan hátt
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
LANDIÐ
Húsavík | Röntgendeild Heilbrigðis-
stofnunar Þingeyinga var nýlega tek-
in formlega í notkun eftir algjöra end-
urnýjun á tækjakosti og endurbótum
á húsnæði.
Að sögn Friðfinns Hermannsson-
ar, framkvæmdastjóra HÞ, var
tækjakostur deildarinnar orðinn
gamall og úr sér genginn og því brýn
þörf á endurnýjun. Friðfinnur sagði
að nýju tækin væru greidd af Heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneyt-
inu en endurbæturnar á húsnæðinu
voru greiddar með hluta af arfi frá
Kristjáni Jónssyni frá Hlíðargerði í
Kelduhverfi.
Guðrún K. Aðalsteinsdóttir yfir-
geislafræðingur segir að í stað rönt-
gentækjanna og framköllunarvélar
hafi verið tekin inn stafræn tækni við
myndgerð og þar með hætt að mynda
á og framkalla röntgenfilmur. „Þessi
aðferð breytir miklu og gerir okkur
kleift að skoða myndirnar á allt annan
hátt. Þessar stafrænu myndir eru svo
geymdar í tölvu sem tengd er mynd-
greiningardeild Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri þannig að sér-
fræðingar þar geta skoðað myndirnar
sé þess óskað,“ segir Guðrún.
Strax að loknum sumarfríum var
hafist handa við að taka niður tæki og
innréttingar og setja upp nýju rönt-
gentækin ásamt innréttingum og hús-
næðið endurnýjað í hólf og gólf. Þessu
var að mestu lokið um miðjan október
og þá var byrjað að mynda með nýju
tækjunum.
Stafræn tækni við
röntgenmyndatökur
Morgunblaðiðd/Hafþór Hreiðarsson
Ný tæki Ingimar Hjálmarsson röntgenlæknir, geislafræðingarnir Soffía
Sverrisdóttir og Guðrún K. Aðalsteinsdóttir og Friðfinnur Hermannsson.