Morgunblaðið - 30.12.2006, Side 18
Eftir Unni H. Jóhannsdóttur
uhj@mbl.is
B
reski tískuhönnuðurinn
Vivienne Westwood
hefur sagt að fatnaður,
hárgreiðsla og förðun
gefi fólki óendanleg
tækifæri til að draga það besta fram í
fari sínu og persónuleika. Konur hafa
á þessu sviði forskot á karlmenn og
þær eiga að nýta sér það. Þetta for-
skot nefnist förðun og um áramótin
geta öll fljóð beitt þeim töfrasprota
og breytt sér í glitrandi glæsikvendi.
Sóley Ástudóttir förðunarmeistari
hjá Emm School of Make Up/Emm
segir að konur eigi að gefa sér góðan
tíma til þess að farða sig. „Fyrir há-
tíðleg tilefni eins og ball á gamlárs-
kvöld eða nýársfagnaði þá er ekkert
óeðlilegt að förðunin ein og sér taki
rúma klukkustund. Konur eiga að
setja góðan disk í geislaspilarann og
dúlla við smáatriðin í förðuninni.“
Glimmer á augnlokin
Smáatriðin eru nokkur eins og
mæðgurnar Ingunn Steina Erics-
dóttir og Fríða Tinna Jóhannsdóttir
komust að þegar Sóley farðaði þær
fyrir Morgunblaðið. „Það er að
mörgu að hyggja,“ segir Ingunn
Steina og brosir. „Ég er mjög hrifinn
af glimmerinu sem Sóley setti á
augnlokin. Það hefði mér ekki komið
til hugar en mér finnst það koma vel
út.“ Dökk skyggingin í kringum augu
féll líka í kramið hjá Fríðu Tinnu.
„Förðunin er tiltölulega einföld en
samt sterk og djúp. Mér finnst
plómurauði liturinn á augnskugg-
anum æðislegur og glossið mátulega
látlaust sem andstæða við augun,“
segir Fríða Tinna.
Augu eins og Audrey Heburn
Sóley notaði fremur hlutlausa liti í
förðuninni, svartan augnblýant,
plómurauða og brúna augnskugga og
húðbleikan kinnalit. „Förðun með
slíkum tónum gengur við hvaða liti
fatnaðar sem er. En það getur líka
verið fallegt að skyggja augnlokin
með augnskugga í sama litatón og
kjóllinn er í eða klæðnaðurinn.“
Hún segir förðunartískuna ekki
sveiflast mikið á milli áramóta. ,,Ára-
mótaförðunin er í grunninn lík sí-
gildri kvöldförðun nema að glimm-
erið má vera meira og glossið. Síðan
tekur hún auðvitað mið af stefnum og
straumum hverju sinni. Nú er förðun
í anda Audrey Heburn og kvik-
myndastjarna fimmta og sjötta ára-
tugarins áberandi. Augun eru þá
römmuð inn með dökkum augn-
blýanti, svörtum eða brúnum, og
flottri skyggingu. Glimmerið er síðan
borið síðast á augnlokin, ef vill, en
það fæst í glæru og fjölda lita í ýms-
um snyrtivörumerkjum.
Augabrúnirnar eiga að vera breið-
ar, formaðar og vel fylltar en best er
að gera það með brúnum augn-
skugga og skáskornum bursta eða
þar til gerðum blýanti. Kinnaliturinn
sem ég notaði er örlítið bleikari en
húðin, svona rétt til þess að gera
eplakinnar. Sólarpúðrið er líka
ómissandi en best er að dumpa því
létt á andlitið og bringuna þegar
förðun er lokið.“
Þá er bara fyrir töframeyjarnar að
láta reyna á aðdráttarafl förðunar-
innar og svo auðvitað persónuleikans.
Töff Augnförðunin er mött en varaliturinn gljáandi. Förðunin er skemmtilega dramatísk og hæfir vel áramótunum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Glit Falleg förðun þar sem augnskuggarnir eru glitrandi.
Töfrandi áramótaförðun
Nú er förðun í anda Audrey Heburn og kvikmynda-
stjarna fimmta og sjötta áratugarins áberandi.
Augun eru þá römmuð inn með dökkum augn-
blýanti, svörtum eða brúnum, og flottri skyggingu.
Glæstar Mæðgurnar Ingunn Steina og Fríða Tinna taka sig vel út.
Innrömmun Dökk skyggingin dregur fram skarpan augnlitinn.
|laugardagur|30. 12. 2006| mbl.is
daglegtlíf
Hjá mörgum nær hátíðleikinn
hámarki á gamlárskvöld þegar
veisluborðin svigna undan
kræsingunum. »22
hönnun
Bragi Valdimar Skúlason
strengir ekki nýársheit, en
reynir að vera sæmilega al-
mennilegur við annað fólk. »20
áramót
Gamlárskvöld snýst alltaf svo-
lítið um glit og glamúr og þeim
áhrifum er auðvelt að ná fram
með fallegu hárskrauti. 20
tíska