Morgunblaðið - 30.12.2006, Side 20

Morgunblaðið - 30.12.2006, Side 20
áramót 20 LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Lengi vel var árvisstáramótaheit hjáIlmi Kristjáns- dóttur leikkonu að lesa fleiri bækur. „Mér fannst gott markmið að lesa eina bók á mánuði,“ segir hún. „Svo ákvað ég að setja ekki þessa pressu á sjálfa mig því ég fékk alltaf kvíðahnút í magann yfir jólabókaflóðinu. Þegar nýju bækurnar fóru að koma fór ég að hugsa um allar bækurnar sem ég las ekki í fyrra og hittifyrra og listinn lengdist enda- laust. Loks ákvað ég að slaka á með þetta og lesa bara þegar ég hefði tíma og hafa þá gaman af því.“ Hún segir heitið ekki hafa orðið til þess að hún læsi meira. „Þetta byrjaði oftast vel með því að ég las tvær, þrjár bækur í des- ember og janúar. Þá fannst mér ég eiga inni í febrúar og þar með var það búið.“ Aðspurð segist hún ekki vita hvers vegna henni finnist bóklestur svona mikilvægur. „Kannski er þetta eitthvað úr uppeld- inu. Svo eru líka bækur sem maður verður að lesa, allur Laxness og aðrar klassískar bókmenntir, bæði innlendar og útlend- ar. Þetta hleðst alltaf upp og verður meira og meira með hverju jólabókaflóði.“ Nýlega datt Ilmur þó niður á lausnina á þessu vandamáli. „Ég áttaði mig á því um daginn að ég gæti kannski bara gert þetta á elliheimilinu. Þá verður líka komið í ljós hvaða bækur urðu að klassík og hverjar dóu af sjálfum sér. Þá get ég bara lesið það besta og sleppt ruslinu.“ Bóklestur er því ekki lengur ofarlega í hennar huga um áramót. „Í stað- inn fer ég á svona „væmið einlægnistig“ með sjálfri mér og velti því fyrir mér hverju ég áorkaði á árinu, hvað hefði mátt betur fara og hverju ég vil áorka á komandi ári, bæði per- sónulega og í vinnu. Þá er ég að hugsa um hin hug- lægu efni þannig að það gengur ekki út á að missa kíló, heldur frekar að vera glaðari eða eitthvað slíkt.“ Morgunblaðið/Sverrir Ekki lestrarhestur „Ég fékk alltaf kvíðahnút í magann yfir jólabókaflóðinu,“ segir Ilmur Kristjánsdóttir leikkona sem nú les bara þegar hana langar til. Bækurnar hlaðast upp Snorri Wium tenórsöngvari strengirgjarnan áramótaheit og segir reyndarekki þurfa nein áramót til. „Það er síðan upp og ofan hvernig gengur að standa við þau,“ segir hann. „Í gamla daga, þegar ég reykti, var nokkuð árvisst heit hjá mér að hætta og það tókst svo að lokum. Reynd- ar lofaði ég mér því hátíðlega að ég myndi byrja aftur þegar ég yrði fimmtugur og þótti það nokkur huggun. Núna lít ég hins vegar til þess með skelfingu.“ Smám saman hefur Snorri orðið uppi- skroppa með hugmyndir að heitum. „Mig langaði nú að strengja áramótaheit í ár en hef ekki enn „fattað upp á neinu“ eins og krakkarnir segja. Ég þarf ekki að fara í megrun og ekki að hætta að reykja. En ég gæti kannski reynt að hreyfa mig meira. Reyndar strengi ég það heit yfirleitt á hverju kvöldi en svo fennir oftast svolítið yfir það um nóttina.“ Hann segir þó enga léttúð að baki heit- unum. „Það getur verið full alvara á bak við það, maður ætlar oftast að taka sig á. Und- anfarið hefur þetta verið nokkuð bundið við hreyfinguna og þrátt fyrir allt hefur hún nú aukist ár frá ári hjá mér. Kannski kemur það með aldrinum, því þá er ekki um að neitt að velja ef maður vill að sér líði sæmi- lega.“ Strengir heit um aukna hreyfingu á hverju kvöldi Morgunblaðið/ÞÖK Aukin hreyfing Snorri Wium óperusöngvari ætlar að strengja áramótaheit um að styrkja sig. Ég held ég hafi bara aldrei strengt áramótaheit svo ég munieftir,“ segir Bragi Valdimar Skúlason Baggalútur.„Reyndar gæti verið að ég hefði einhvern tíma gert það þegar ég var ungur og vitlausari en ef svo er hef ég örugglega ekki staðið við það.“ Hann segir áramótaheit oft á tíðum dálítið vanhugsuð. „Menn ætla sér alltaf að hætta einhverju eins og að reykja eða borða eða þá byrja á einhverju – að hoppa eða hreyfa sig. En þeir sem strengja heit strengja yfirleitt sama heitið að ári þannig að ég held að vergur árangur nýársheita á ársgrundvelli sé frekar lítill.“ Bragi segir því ekkert nýársheit í pípunum. „Almennt langar mig bara að komast í gegnum árið nokkuð klakklaust og reyna að vera temmilega almennilegur við annað fólk. Ég er ekkert fyrir að lofa upp í ermina á mér og ef ég yrði að strengja nýársheit væri það þá helst að strengja ekki nýársheit.“ Morgunblaðið/Kristinn Engin loforð „Almennt langar mig bara að komast í gegn um árið nokkuð klakklaust,“ segir Bragi Valdimar Skúlason. Vergur árangur áramótaheita lítill Tími til að taka sig á Áramót eru tími loforða og fagurs ásetnings um að bæta ráð sitt. Reykleysi, megrun og hreyfing eru sennilega meðal vinsælustu nýárs- heita landans. Aðrir huga að sínum innri manni eða samskiptum við sína nánustu um áramót, hvernig sem svo gengur að fylgja góðum ásetningnum eftir. Bergþóra Njála Guðmundsdóttir ræddi við þrjá þekkta Íslendinga um það fyrirbrigði að strengja nýársheit. tíska Hárskraut í haddinn Morgunblaðið/Ásdís 1 Kambur Litlir prinsessukambar eins og þessir hafa verið vinsælir, 599 kr. Ice in a bucket. 4 Klemma Hátíð- leg fiðrilda- hárklemma, 599 kr. Acessorize. 3 Teygjur Per- luskreyttar hár- teygjur í tagl eða hnút, 799 kr. stk. Accessorize. Tískumeðvitaðir hafa augu í hnakkanum, bókstaflega. Þeir sjá smáatriðin og vita að þau skipta máli. Eins og hárskraut. Reglan er samt sú að hið smáa má ekki verða of stórt eða of áberandi. Það á að falla áreynslulaust inn í heildarmyndina, eins og laufin á trjánum. Án fylgihluta er kona í fallegum kjól eins og nakið tré, en ef þeir eru of frekir á athyglina getur útkoman orðið eins og ofskreytt tré. Minna er oftast meira. Áramótahárgreiðslan tekur vitaskuld mið af kjólnum og þar eru engar reglur. Uppsett hár er vinsælt hjá mörgum konum og í það má setja fallegar spennur eða kamba sem eru í stíl við kjól eða skartgripi. Sumar kjósa að hafa hadd- inn sleginn eða bregða hárinu í smart tagl eða hnút með glæsilegri teygju. Það er til mikið úrval af fallegu hár- skrauti sem er líka þeirrar náttúru að hjálpa óvönum að gera einfaldar en glæsilegar áramótagreiðslur á eigin kolli. 2 Spenna Glæsi- leg hárspenna frá Evita Peroni, 3.990 kr. Isis   

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.