Morgunblaðið - 30.12.2006, Side 21

Morgunblaðið - 30.12.2006, Side 21
úr bæjarlífinu MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006 21 Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins Staðsetjið ekki kerti þar sem börn eða dýr geta auðveldlega rekið sig í þau og velt þeim um koll Munið að slökkva á kertunum i DRAUGAGANGUR UM ÁRAMÓTIN Mögnuðustu draugar landsins verða í ljósum logum um áramótin Glámur, Þorgeirsboli, Móri, Skotta og Djákninn á Myrká skapa réttu áramótastemminguna! Þú færð draugakökurnar hjá flugeldasölum íþróttafélaganna og víðar Þegar kemur að því að skrifa pistil frá Vestmannaeyjum er erfitt að komast hjá því að minnast á sam- göngumál. Enda skiptir fátt Eyja- menn meira máli. Á árinu sem senn er á enda hefur náðst veru- legur árangur í bættum sam- göngum. Flugfélag Íslands hefur aftur hafið áætlunarflug til Eyja, reyndar á ríkisstyrk, en við það hafa flugsamgöngur milli höf- uðborgarinnar og Heimaeyjar batnað til muna.    Þá hóf Herjólfur áætlunarsiglingar tvisvar á dag alla daga vikunnar í ársbyrjun og verður það að teljast til stærri skrefa í bættum sam- göngum síðustu ár. Þó hefur komið í ljós síðustu mánuði að erfitt verð- ur að halda þeirri áætlun gangandi. Skipstjórnarmenn á Herjólfi kvarta undan innsiglingunni í Þorlákshöfn og segja aðstæður þar langt frá því til fyrirmyndar. Þeim líður ekki vel að sigla skipinu inn í miklum öldu- gangi og myrkri þar sem alla lýs- ingu vantar á hafnargarðinn og eins versnuðu aðstæður nokkuð við breytingar á höfninni fyrir tveimur árum. Þetta þarf að laga.    Nokkuð hefur verið um bruna í Eyjum síðustu misseri og þar ber hæst brunann í Ísfélaginu fyrr í mánuðinum. Brá mörgum í brún þegar fréttist af brunanum enda var stóri bruninn í Ísfélaginu árið 2000 mönnum enn í fersku minni. Svo virðist sem kveikt hafi verið í og óttast menn að brennuvargur sé á ferð í Eyjum. Nú síðast kviknaði í gámi rétt við birgðageymslur olíu- félaganna.    Nú styttist í þrettándagleðina og þá verður að vanda mikið um að vera í Eyjum enda mikið í hana lagt. ÍBV sér um fjörið sem ár hvert dregur til sín fjölda fólks of- an af landi. Fáum skemmtunum hafa börnin meira gaman af en þegar Grýla og Leppalúði ásamt peyjunum sínum þrettán, jólasvein- unum, kveðja mannabyggðir og halda aftur til fjalla. VESTMANNAEYJAR Sigursveinn Þórðarson blaðamaður Ljósmynd/Sigursveinn Þórðarson Samgöngur Herjólfur hóf árið 2006 áætlunarsiglingar tvisvar á dag alla daga vikunnar. Hreiðar Karlsson yrkir í tilefniaf sendingu Alcan til íbúa í Hafnarfirði: Íslandspóstur glæstar gjafir ber góðu börnunum í Hafnarfirði. Svo þeim verði ljóst að Alcan er ótalmargra geisladiska virði. Músíkin er æðri en önnur list, afar brýnt að komist hún til skila. Því er harla gott að Rannveig Rist rétti fólki eitthvað til að spila. Þá Hólmfríður Bjartmarsdóttir, Sandi í Aðaldal: Nú er aðferð gegn og góð góðir menn svo telja að færa mútur frjálsri þjóð fleiri rétt, þá velja. Kristján Bersi Ólafsson býr í Hafnarfirði og kann Alcan litlar þakkir fyrir: Með frekjunni Alcan sér grefur gröf, gleymir að velsæmi að hyggja. Og þessa músík – mútugjöf mun ég ekki þiggja. pebl@mbl.is VÍSNAHORNIÐ Jólasending frá Alcan MEÐ sérstökum fituskanna er nú hægt að „spotta“ út það fólk sem er líklegt til að ala með sér hættulega fitusöfnun í kringum lífsnauðsynleg innvortis líffæri, að sögn sérfræð- inga. Hammersmith-sjúkrahúsið í vesturhluta London er enn sem komið er eini spítalinn í Evrópu sem mun vera að nýta sér þennan skanna, að því er netmiðill BBC greindi frá fyrir skömmu. Að sögn lækna þar er ekki óraunhæft að ætla að um 40% fólks sé að burðast með óæskilega fitu í kringum hjarta, lifur og bris þó margir af þeim, sem eru í áhættu, séu grannir á að líta. Grann- ir einstaklingar geta nefnilega líka átt það á hættu, eins og feitir, að fá sykursýki af völdum falinnar fitu. Vísbendingar eru um að staðsetn- ing fitunnar hafi meiri áhrif í heilsu- farslegu tilliti en yfirvigtin ein og sér. Til dæmis hefur verið bent á að fólk sem er eplalaga og með fitu um miðjuna er í meiri áhættu á að þróa með sér hjartasjúkdóma og sykur- sýki 2 heldur en þeir sem eru peru- vaxnir og með kílóin meira á mjöðm- unum. Fita er almennt góð en mjög slæm ef líkaminn fær of mikið af henni eða hún sest á ranga staði. Kjörþyngd er gjarnan reiknuð út með því að reikna út sk. BMI sem er þyngd deilt með hæð en ómögulegt er með þessari aðferð að sjá hvort fitusöfn- un á sér stað innvortis. Að mati sér- fræðinga gefur BMI-útreikning- urinn því ranga mynd af eiginlegri fitu því málið snúist fyrst og síðast um hvar á líkamanum fituna sé að finna. Með nýja fituskannanum má kíkja inn í líkamann og sjá hvort þar eigi sér stað óæskileg fitusöfnun um- hverfis innvortis líffæri. Í kjölfarið má setja saman æskilega samsetn- ingu líkamsræktar og næringar. „Við erum að reyna að skilja hvaða erfða- eða umhverfisþættir ýta undir fitusöfnun innvortis og hvað fólk þarf að gera til að losna við þessa fitu. En hreyfing er líklegri til að losa líkamann við „slæmu“ fituna en megrunin ein og sér,“ segir tals- maður sjúkrahússins. Fituskanni varar við slæmri fitusöfnun heilsa

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.