Morgunblaðið - 30.12.2006, Síða 22
lifun
22 LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Þetta eru fyrstu áramótinokkar hér,“ segir StefaníaGunnarsdóttir, ein eigendaverslunarinnar Duka í
Kringlunni, en fyrr á árinu fluttu þau
hjónin í Sjálandshverfið í Garðabæ.
Þau eru ánægð á nýja staðnum og út-
sýnið út um stofugluggann eins og
málverk, sem breytist í takt við sér-
lundað veðurfarið. Hún segist eiga
mikið af alls kyns borðbúnaði og
skrauti, það hvernig hún leggi á borð
hverju sinni fari eftir því hvað andinn
blási henni í brjóst. Að þessu sinni er
einfaldleikinn allsráðandi og greini-
legt að hér er smekkmanneskja á
ferðinni. Stefanía segist vera mikið
fyrir lifandi blóm og skreyti gjarnan
með þeim.
Á áramótaborðinu í Garðabænum
nýtur falleg blómaskreyting sín vel
með svarthvítu matarstellinu. Að-
spurð hvort hefðir séu í mat á þessu
ákveðna kvöldi segir hún svo ekki
vera. „Við erum mjög róleg yfir þessu
og ákveðum þetta hverju sinni. Velj-
um einfaldlega eitthvað sem okkur
langar í. Þetta árið verður kalkúnn á
borðum og ís með jarðarberjum í eft-
irrétt. Eitthvað þægilegt og klass-
ískt.“ segja þau og eru lítið að stressa
sig á matarhefðum. Verslunina Duka
stofnuðu Stefanía og tvær systur
hennar fyrir sex árum og hún segir
það forréttindi að fá að vinna með
þeim við rekstur búðarinnar „Annars
værum við allar hver í sinni vinnunni
og sæjumst aldrei!“
Síðasta kvöldmáltíð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sérlega fallegt borð Blómaskreytingin var útbúin af Sigurði Sigurðssyni í Blómavali og hún nýtur sín vel á ára-
mótaborðinu hjá Stefaníu Gunnarsdóttur og fjölskyldu í Garðabænum.
Einfalt og smart Þessi áramót vel-
ur Stefanía að dekka upp með
svart hvítum borðbúnaði.
Blómaskreyting Það er virki-
lega smart að setja lifandi
blóm á áramótaborðið.
Hjá mörgum nær hátíð-
leikinn hámarki kvöldið
sem gamla árið er kvatt.
Veisluborð svigna undan
kræsingum og á meðan
dýrindis matur er snædd-
ur skrafar fólk saman og
fer yfir hápunkta ársins
sem senn er á enda.
Katrín Brynja Her-
mannsdóttir kíkti í heim-
sókn til valinkunnra fag-
urkera og fékk að sjá
fagurbúin áramótaborð.
Hjónin Hanna Birna Jóhann-esdóttir og Ingi Þór Jak-obsson, eigendur versl-
unarinnar Exó, eru annálað
smekkfólk. Meðal annars þekkt fyr-
ir skemmtilega og í margra huga
ómissandi veislu á gamlársdag. „Þá
koma vinir og ættingjar við hjá okk-
ur, þiggja veitingar og eiga saman
góða stund yfir daginn. Okkur
finnst þetta ómissandi partur af
gamlársdegi og í fyrra komu rúm-
lega 130 manns til okkar.“
Þau Hanna Birna og Ingi Þór
festu fyrr á árinu kaup á fallegu
húsi í Hafnarfirði og eru nýlega flutt
inn eftir gagngerar breytingar.
Beiðninni um að fá að kíkja í heim-
sókn og fá að sjá áramótaborð fjöl-
skyldunnar var vel tekið og borðið
ber húsráðendum sannarlega fagurt
vitni, stílhreint og glæsilegt í senn.
Matseðill kvöldsins er ekki af verri
endanum. Á meðan fjölskyldan bíð-
ur eftir aðalréttinum er boðið upp á
spænska jamon-skinku sem Ingi Þór
sker af mikilli natni og ískaldan
bjór. Með steikinni af hreindýrinu
sem húsbóndinn veiddi er boðið upp
á epla-rjómasalat, sykurbrúnaðar
kartöflur og himneska villibráðar-
sósu. Rauðvínið er Muga Rioja re-
serva 2002, valið af mikill kostgæfni.
Eftirrétturinn er frönsk súkkulaði-
kaka með heimatilbúnum vanilluís
og Crystal kampavín 1993 sem er í
miklu uppáhaldi hjá þeim.
Hanna Birna segist hafa gaman af
að fá fólk í mat, bæði þar sem allt er
planlagt í ystu æsar og líka hvers-
dags. Hún segir það synd hvað fólk
mikli fyrir sér að bjóða í mat því
skemmtileg samvera með vinum og
fjölskyldu sé ómetanleg. Ekki sé
nauðsynlegt að hafa alltaf gala-
kvöldverð, heldur sniðugt að bæta
bara aðeins við matinn og hóa í
skemmtilegt fólk. Oft verði
skemmtilegustu stundirnar til með
lítilli fyrirhöfn. Gamlárskvöld er þó
þannig að fyrirhöfnin gerir hlutina
bara skemmtilegri og hátíðlegri.
Gaman að bjóða fólki í mat
Stemmning Við hátíðleg tækifæri klæðist Ingi Þór
skoskum búningi. Hér er hann að skera jamon skinkuna.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flott Modiss Swarowski kristalsljósakrónan er stórglæsileg og því velja þau að hafa borðskreytingarnar einfaldar
og stílhreinar. Allur borðbúnaður er frá Armani en Exó hóf sölu á heimilisvöru Armani á þessu ári.
Armani stell Allur borðbúnaðurinn er frá Armani og
fæst í Exó. Glösin eru óvenjuleg og flott.
www.nowfoods.com
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
Gleðilegt ár
Þökkum viðskiptin
á árinu sem er að líða