Morgunblaðið - 30.12.2006, Qupperneq 34
34 LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
Kópavogskirkja –
nýársnótt
EINS og mörg undanfarin ár verð-
ur boðið upp á tónlistar- og helgi-
stund í Kópavogskirkju á nýársnótt
kl. 00.30. Flautuleikararnir Guðrún
Sigríður Birgisdóttir og Martial
Nardeau annast tónlistarflutning
og leika hátíðlega tónlist. Það er
gott að ganga í guðshús í upphafi
nýs árs og eiga þar rólega stund,
hlusta á góða tónlist, íhuga lífið og
tilveruna og biðjast fyrir.
Stundirnar í kirkjunni á nýárs-
nótt hafa verið vel sóttar á und-
anförnum árum og margir hafa lýst
ánægju sinni yfir því að geta átt
stund þar á þeim miklu tímamótum
sem áramót eru. Þá leita gjarnan
ýmsar spurningar á hugann og við
finnum sterkar fyrir ýmsum tilfinn-
ingum en við gerum að jafnaði á
öðrum tímum ársins.
Allir eru velkomnir í Kópavogs-
kirkju á nýársnótt kl. 00.30 til helgi
og tónlistarstundar.
Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Áramót í Hallgríms-
kirkju
Á gamlársdag verða Hátíðahljómar
kl. 17, tónleikar á vegum Listvina-
félags Hallgrímskirkju. Kristinn
Sigmundsson, óperusöngvari, syng-
ur m.a. bassaaríur úr Messíasi og
Jólaóratóríunni. Hljóðfæraleikarar
verða: Ásgeir H. Steingrímsson,
trompet, Eiríkur Örn Pálsson,
trompet og Hörður Áskelsson, org-
el.
Aftansöngur kl. 18. Sr. Birgir Ás-
geirsson prédikar og þjónar fyrir
altari ásamt messuþjónum. Mót-
ettukór Hallgrímskirkju syngur
undir stjórn Harðar Áskelssonar.
Hljóðfæraleikarar Hátíðahljóma
leika einnig í messunni.
Hátíðarguðsþjónusta á nýársdag
kl. 14 Sr. María Ágústsdóttir pré-
dikar og sr. Jón Dalbú Hróbjarts-
son þjónar fyrir altari ásamt messu-
þjónum. Mótettukór
Hallgrímskirkju syngur undir
stjórn Harðar Áskelssonar kantors.
Helgihald í Bústaða-
kirkju um áramót
ÞAÐ er notaleg stund að mega
ganga til kirkju og þakka liðna tíð.
Við kveðjum árið með aftansöng á
gamlársdag kl. 18. Í tali og tónum
er litið um öxl og horft í gengin
spor. Einsöngvari verður Hjálmar
P. Pétursson. Kór Bústaðakirkju
syngur. Organisti og kórstjóri er
Guðmundur Sigurðsson, prestur sr.
Pálmi Matthíasson.
Á nýarsdegi er hátíðarguðsþjón-
usta kl. 14 og nýju ári heilsað.
Ræðumaður verður sr. Ólafur
Skúlason biskup og fyrrum sókn-
arprestur í Bústaðakirkju.
Hjörleifur Valsson leikur á marg-
fræga Stradivarius-fiðlu og kór Bú-
staðakirkju syngur undir stjórn
Guðmundar Sigurðssonar, prestur
sr. Pálmi Matthíasson.
Messurnar verða sendar út á Net-
inu og er slóðin kirkja.is, tonlist.is,
jolin.is.
Helgihald um áramót í
Grafarvogskirkju
Á liðnum árum hefur þátttaka í
guðsþjónustum um áramót vaxið
mjög mikið.
Gamlársdagur: Stund er fyrir
börnin kl. 15 í Grafarvogskirkju.
Hátíðarguðsþjónustur og aftan-
söngur er svo sérstakur um margt.
Hátíðarsöngvar sem séra Bjarni
Þorsteinsson samdi norður á Siglu-
firði, sérstaklega fyrir gamlárs-
kvöld og nýársdag koma okkur í
hátíðarskap, að ekki sé talað um
sálminn góða „Nú árið er liðið“ og
„Hvað boðar nýárs blessuð sól?“
Aftansöngur er kl. 18, tónlist-
arflutningur verður frá kl. 17.30,
séra Vigfús Þór Árnason prédikar
og þjónar fyrir altari ásamt séra
Bjarna Þór Bjarnasyni. Einsöngv-
ari: Arnþrúður Ösp Karlsdóttir og
Ragnar Bjarnason. Organisti er
Hörður Bragason. Kór Grafarvogs-
kirkju syngur.
Á nýársdag verður hátíðarguðs-
þjónusta kl. 14. Séra Lena Rós
Matthíasdóttir prédikar og þjónar
fyrir altari ásamt séra Önnu Sigríði
Pálsdóttur. Einsöngvari er Sig-
urður Skagfjörð. Kór Grafarvogs-
kirkju syngur. Organisti er Hörður
Bragason.
Grafarvogskirkja.
Beðið eftir ármótum –
barnastund í Graf-
arvogskirkju
SÉRSTÖK barnastund verður í
Grafarvogskirkju á morgun, gaml-
ársdag, kl. 15. Á þessum tíma bíða
börnin óþreyjufull eftir að gamlárs-
kvöld hefjist. Til þess að stytta bið-
ina verður boðið upp á sérstaka
stund í Grafarvogskirkju. Er það
nú gert í fyrsta sinn. Um er að ræða
sunnudagaskóla með áramótaívafi,
þar sem jóla- og áramótasöngvar
verða m.a. sungnir. Stundin er í
umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar
og Gróu Hreinsdóttur.
Tárin þrjú og
þjóðsöngur
ÞEGAR gamla árið kveður er
heilsusamlegt að staldra við og
gera upp ár og lífsgöngu. Hvernig
viljum við lifa á nýju ári?
Í aftansöng í Neskirkju á gaml-
ársdag mun sr. Sigurður Árni
Þórðarson tala um þjóðsöng Íslend-
inga, tárin þrjú í þeim söng og
stefnu á gleðiefni nýs árs. Stein-
grímur Þórhallsson, Áki Ásgeirs-
son og félagar úr kór Neskirkju sjá
um tónlistarflutning. Aftansöng-
urinn hefst kl. 18 og er opinn öllum
sem er umhugað um lífsgæði og
þverrandi tár.
Áramót í
Hafnarfjarðarkirkju
VANDAÐ verður vel til dagskrár
og tónlistarflutnings í Hafnarfjarð-
arkirkju við helgihald áramóta. Við
aftansöng á gamlárskvöldi 31. des-
ember kl.18 leikur Klarinettutríó
úr Tónlistarskóla Hafnarfjarðar en
góð tengsl og samstarf eru á milli
kirkjunnar og skólans.
Við hátíðarguðsþjónustu nýárs-
dag 2007 kl.14., ath. tímann, heldur
Rósa Guðbjartsdóttir bæjarfulltrúi
hátíðarræðu og Svava Kr. Ingólfs-
dóttir sópran syngur einsöng en
hún hefur verið söngstjóri kirkj-
unnar. Kór Hafnarfjarðarkirkju
leiðir söng við báðar þessar athafn-
ir en Antonía Hevesi leikur á orgel.
Prestur er sr. Gunnþór Þ. Ingason
sóknarprestur.
Þær Antonía og Svava hætta nú
störfum sínum við Hafnarfjarð-
arkirkju og er þeim þökkuð þýðing-
armikil þjónusta við kirkjuna og
óskað heilla veginn fram.
Áramótin
í Neskirkju
ÞEGAR gamla árið kveður er
heilsusamlegt að staldra við og
gera upp ár og lífsgöngu. Hvernig
viljum við lifa á nýju ári? Í aftan-
söng gamlársdags verður fjallað
um þjóðsöng Íslendinga, tárin þrjú í
þeim söng og gleðiefni nýs árs. Í lok
athafnarinnar verður árið kvatt
með táknrænum hætti og gengið
með fararblessun inn í nýtt ár.
Aftansöngurinn hefst kl. 18 og er
að sjálfsögðu öllum opinn, ekki síst
þeim sem er umhugað um lífsgæði
og þverrandi tár.
Nýársdagur heitir Áttidagur jóla
samkvæmt kirkjuhefð en þá er
íhugunarefnið umskurn Krists og
nafngjöf hans en Gyðingar um-
skera sveinbörn á áttunda degi eft-
ir fæðingu.
Nafnið Jesús er máttugt nafn og
gott er að hefja nýtt ár með það
góða nafn yfir sér og sínum. En
með hvaða hætti varpar nafnið Jes-
ús ljósi á athafnir okkar og afstöðu
til lífsins, til samferðafólks og um-
heims? Í prédikun á nýársdag verð-
ur leitast við að skoða málefni á
vettvangi stjórnmála hér heima og
úti í hinum stóra heimi í ljósi krist-
innar trúar. Höfum við gengið göt-
una til góðs? Hvert stefnum við?
Helgihaldið í Neskirkju um ára-
mótin verður sem hér segir: Gaml-
árskvöld: Aftansöngur kl. 18. Dr.
Sigurður Árni Þórðarson prédikar
og þjónar fyrir altari. Messusöngur
séra Bjarna Þorsteinssonar. Org-
anisti Steingrímur Þórhallsson.
Kór Neskirkju syngur. Áki Ásgeirs-
son leikur á trompet.
Nýársdagur: Hátíðarmessa kl.
14. Séra Örn Bárður Jónsson pré-
dikar og þjónar fyrir altari. Org-
anisti Steingrímur Þórhallsson.
Kór Neskirkju syngur. Einsöngvari
Hrólfur Sæmundsson.
Kópavogskirkja.
Raðauglýsingar 569 1100
Nauðungarsala
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Austurvegur 7, Reyðarfirði (217-7395), þingl. eig. Logi Steinn Karlsson,
gerðarbeiðendur Fjarðabyggð og Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn
2. janúar 2007 kl. 13:30.
Fossgata 3, Eskifirði (217-0210), þingl. eig. Þórarinn Árni Hafdal
Hávarðsson, gerðarbeiðandi Gildi - lífeyrissjóður, þriðjudaginn
2. janúar 2007 kl. 12:00.
Miðgarður 13, Neskaupstað (216-9142), þingl. eig. Þórunn P. Vilbergs-
dóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Sparisjóður Norðfjarðar,
þriðjudaginn 2. janúar 2007 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á Eskifirði,
29. desember 2006.
Tilkynningar
Mat á umhverfisáhrifum
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um
matsskyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að
eftirtalin framkvæmd skuli ekki háð mati á um-
hverfisáhrifum samkvæmt lögum um mat á
umhverfisáhrifum nr. 106/2000 m.s.br.
Tengibrautin Skeiðholt-Leirvogstunga í
Mosfellsbæ.
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulags-
stofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er
einnig að finna á heimasíðu Skipulagsstofnu-
nar: www.skipulag.is.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til um-
hverfisráðherra og er kærufrestur til
29. janúar 2007.
Skipulagsstofnun.
Dregið hefur verið í
símahappdrætti
Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra.
Vinningar komu á eftirtalin númer:
Toyota Avensis Sedan Sol 1.8 að verðmæti
kr. 2.770,000 komu á miða númer:
34038 • 37521
Toyota Yaris Terra 1.0 að verðmæti kr. 1.609.000
komu á miða númer:
6640 • 10123 • 10172 • 11518 • 15207 • 15857 •
17727 • 24417 • 33264 • 34135 • 43221 • 50522 •
53132 • 81547 • 92101 • 110913 • 115857 •
125436 • 134598 • 146171 • 153814 • 156992
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra þakkar
landsmönnum veittan stuðning og óskar
vinningshöfum til hamingju.
Handhafar vinningsmiða framvísi þeim á skrif-
stofu félagsins á Háaleitisbraut 13, Reykjavík,
sími 535 0900.
Athugið að skrifstofan er lokuð til 2. janúar
2007.
Félagsstarf
Í dag 30. des. kl. 16-18. Opið
hús með jóladagskrá.
Elín Kjaran flytur jólahugvekju.
Veitingar og ýmsar uppákomur.
Gamlárskvöld kl. 23.15.
Áramótasamkoma.
,,Gjörið óskir yðar kunnar Guði
með bæn og beiðni og þakkar-
gjörð.”
Nýársdag kl. 20.00.
Hátíðarsamkoma.
Ólafur Jóhannsson talar.
Umsjón: Harold Reinholdtsen.
Allir velkomnir.
Raðauglýsingar
sími 569 1100