Morgunblaðið - 30.12.2006, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006 39
menning
FÉLAGARNIR í
Baggalúti áttu
mest seldu plöt-
una um jólin að
þessu sinni, en
jólaplatan Jól og
blíða situr nú á
toppi Tónlistans.
Á Jólum og blíðu
má finna ellefu
vinsæl aðventu-
og hátíðarlög í út-
færslu Bagga-
lúts, t.d. lögin Kósíheit par exelans, Sagan af
Jesús, Rjúpur og Föndurstund sem eflaust
margir hafa rokkað við um leið og þeir föndruðu
jólakortin. Baggalútur situr líka neðar á Tónlist-
anum með diskinn Aparnir í Eden sem er öld-
ungur listans. Platan hefur verið á lista í 21
viku og situr nú í 21. sæti og hækkar sig um
þrjú sæti frá því í síðustu viku.
Sigurvegarar!
SÓPRANSÖNGKONAN Björg Þórhallsdóttir er í
25. sæti Tónlistans með plötu sína Himnarnir
opnast: Jólaperlur. Á plötunni syngur hún jóla-
lög úr ýmsum átt-
um ásamt Drengja-
kór Reykjavíkur og
fjögurra manna
karlakór. Lagavalið
er blanda af hefð-
bundnum jólalög-
um, íslenskum og
erlendum. Platan
hlaut mjög góða
dóma hér í Morg-
unblaðinu og sagði
meðal annars í
dómi Bergþóru
Jónsdóttur: „Um
söng Bjargar þarf ekki að fjölyrða. Hann er ein-
faldlega yndislegur, hlýr og tær. Björg hefur
mikla rödd og beitir henni af smekkvísi og til-
finningu fyrir hverju viðfangsefni.“
SÁLIN hans Jóns
míns og Gospelkór
Reykjavíkur sitja í
öðru sæti Tónlistans
að þessu sinni með
plötuna Sálin og
Gospel. Um er að
ræða upptöku frá
stórtónleikum sem
haldnir voru í Laug-
ardalshöll þann 15.
september síðastlið-
inn. Svo skemmtilega
vill til að tónleikarnir verða endurteknir í Laug-
ardalshöllinni í kvöld, og má því ef til vill segja
að um hálfgerða útgáfutónleika sé að ræða.
Tónleikarnir í kvöld verða þó enn veglegri en
fyrri tónleikarnir þar sem Sálverjar hafa ákveð-
ið að bæta nokkrum lögum við dagskrána. Lík-
legt er að ákveðinn hátíðarljómi muni svífa yfir
vötnum á tónleikunum í kvöld, því bæði bíður
tímasetningin upp á það, sem og þátttaka hins
hátíðlega kórs.
SÖNGHÓPURINN Brooklyn Fæv situr í 29. sæti
Tónlistans með jólaplötuna Góð jól. Hópurinn
var stofnaður í Menntaskólanum við Hamrahlíð
og sigraði í söngkeppni framhaldsskólanna ár-
ið 1998 með laginu „Óralanga leið“, sem er
betur þekkt sem „For the Longest Time“ í með-
förum Billy Joel. Síðan þá hefur þá félaga alltaf
dreymt um að gefa út jólaplötu og nú loks hafa
þeir látið verða af því. Raggi Bjarna er sérlegur
gestur á plötunni, en hann syngur með söng-
hópnum í laginu „Góða ósk um gleðilega há-
tíð“ sem er útgáfa af hinu þekkta lagi „Have yo-
urself a merry little christmas“.
!
" "
""# $%"
&
' (&)"*+,%"-".
"
&"
"/- %"
"0'%
"+ %" -1)
%",( "2".
%"#"3 .2%"" !"2"34'
#
#
#
%%0
A3
8"
+ 5
/(
"2"62' ! "7
+)
"0 ! 2
8 " 29
71
& "6 )
:.
:.
&
";"<"=! "8(
+>>
?".!
"!
+
2
@ "#A 2
B!1"
&
"C
:.
D
,"/-
6& 5"6"<"
&
"@
B
"
.>
E.'2'
+ 5
+22.
" 2
F "-
/>>
"2"3
+) "=! 1 !
/
G"* .
!."7"3
2
+ 22 " H
I
B! "2"> -&
/(
"2"62'
+)
%"/
!"2"
# "2J"0",
=!& )
"- "! )
#2KA" ? "2")
?".!
"! "-"
"(
82
2
? ! L8)"6 "=! &
B!1"
&
"2"
/! "
"
"/
,"/-" ",
6!&"..
4M822
/
"2"1".22
E'
"-"3
,2"!
2 !
L+" )
2 "2 "(>
&
0
.
"2'N"B! '
"+"O
E"P1 "Q'
72.." 2.." 2..
6!&"!
#
."Q2 R
2
/
/
/
QP",
R
"!
/
/
/
/
?,/
3,*
+
",
R
/
2
/
D
+
/
/2 M+,6
/
6
.
/!
"7
2
/2 1
.
/
D
D
+ (!
2
3,*
Ég var eitt sinn staddur inni ákarlaklósettinu á Gauki áStöng sumarið 2000. Þetta
var um miðjan dag, en erindi mitt
var ekki að sinna kalli náttúrunnar,
heldur að hengja upp veggspjöld
með auglýsingu á búðartónleikum í
plötuversluninni Japis, en yðar ein-
lægur sá þá um skipulagningu á
þeim. Á Gauknum voru fáir, en ein-
hver hljómsveit var frammi að
gaufa á sviðinu. Þar sem ég er að
festa upp spjald ofan við eina kló-
settskálina vindur sér inn á salernið
hress náungi. Eldhress. Hann fer að
spyrja mig út í veggspjaldið og
svona. Ég útskýri fyrir honum málið
og hann tekur fram að hljómsveit
hans sé meira en til í eitthvað svo-
leiðis sprell. Hann tekur svo þétt-
ingsfast í höndina á mér og brosir
ósviknu, íslensku orkubrosi. Seinna
komst ég að því að þarna fór Hrafn-
kell Pálmarsson, gítarleikari í
hljómsveitinni Í svörtum fötum. Og
sú átti nú eftir að sprella næstu árin.
Um næstu áramót ætlar hljóm-sveitin hins vegar að skella sér
í salt. Meðlimir ætla að taka sér
ótímabundið hlé, eða í það minnsta
draga verulega úr starfseminni. Eft-
ir um sjö ára óslitna vinnu, fimm
breiðskífur, sólóplötu frá Jónsa,
mynddisk og tónleika sem skipta
nokkrum hundruðum eru seglin rif-
uð. Eins og sjá má hefur ekki skort á
hina alíslensku vinnusemi hjá sveit-
inni.
„Hætta hljómsveitir einhvern tím-
ann?“ spurði Áki Sveinsson bassa-
leikari mig þegar ég spurði hann
um þessa breytingu hjá sveitinni.
„Þetta eru að minnsta kosti mikil
tímamót hjá okkur öllum,“ hélt
hann svo áfram. „Við erum að fara
að hvíla okkur á allri þessari op-
inberu spilamennsku, en tökum
kannski einhverja valda stærri tón-
leika. Þetta er búið að standa til í
eitt og hálft ár, en við ákváðum að
klára plötuna (Orð, sem út kom í
haust) og hrinda þessu í fram-
kvæmd á næsta ári. Við erum allir
komnir með tvö börn eða fleiri og
það var bara kominn tími á hvíld,
bæði fyrir okkur og ykkur.“
Það tók um tvö ár eða svo fyrir þásvörtu að spila sig til á sínum
tíma en svo slógu þeir tóninn fyrir
það sem koma skyldi haustið 2000,
nokkrum mánuðum eftir að Hrafn-
kell hafði tilkynnt mér að þeir væru
til í alls kyns sprell. Platan Verkefni
1 var samin, tekin upp og komið í
umslag á alls tíu dögum. Sveitin
vakti talsverða athygli fyrir þetta
„heimsmets“ framtak þó að inn-
haldið væri um margt vafasamt.
Lögin voru þó frumsamin og metn-
aðurinn því strax ljós, Bítlar ís-
lenska sveitaballapoppsins, Sálin
hans Jóns míns, voru hér teknir til
fyrirmyndar. Svartstakkar biðu
ekki boðanna og hófu að sanka sam-
an frumsömdu efni á plötur sem nú
streymdu fram. Árið 2002 kom út
plata samnefnd sveitinni, fyrsta
„alvöruplatan“, þar sem menn þreif-
uðu fyrir sér með stefnur og stíla,
en á þeirri þriðju, Tengslum (2003),
var grundvöllurinn orðinn traustur,
útkoman ansi frísk poppplata og
sveitin auðheyranlega komin á sigl-
ingu. Í svörtum fötum reis svo enn
hærra á plötunni Meðan ég sef frá
árinu 2004, sem er þemabundið og
metnaðarfullt poppverk sem til-
nefnt var til íslensku tónlistarverð-
launanna það árið. Meðfram þessu
var linnulaus spilamennska og fáir
skildu hvaðan allur krafturinn kom,
en Jónsi söngvari og Hrafnkell voru
eins og gangandi orkustöðvar; alltaf
hressir, alltaf til í sprell. Svona eiga
popparar að vera.
Með plötunni Orðum klárar Í
svörtum fötum samning sinn við
Senu/Skífuna og geta meðlimir því
unað sáttir við sitt – „dag sem
dimma nátt.“
Seglin rifuð
Morgunblaðið/Sverrir
Í svörtum fötum „Jónsi söngvari og Hrafnkell voru eins og gangandi orkustöðvar; alltaf hressir, alltaf til í sprell.“
AF LISTUM
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
» Svona eiga popp-arar að vera.
arnart@mbl.is
Hátíð í Höllinni!
Brooklyn-jól! Hlýtt og tært!