Morgunblaðið - 30.12.2006, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. DESEMBER 2006 45
/ KRINGLUNNI
THE CHILDREN OF MEN kl. 8:10 - 10:30 B.i. 16
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 1:20 - 3:40 - 5:30 - 6 LEYFÐ DIGITAL
HAPPY FEET m/ensku tali kl. 3:20 - 5:30 LEYFÐ DIGITAL
DÉJÁ VU kl. 8 - 10:30 B.i. 12 DIGITAL
THE HOLIDAY kl. 8 - 10:40 LEYFÐ
SKOLAÐ Í BURTU m/ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 LEYFÐ DIGITAL
BÆJARHLAÐIÐ m/ísl. tali kl. 2 LEYFÐ
/ ÁLFABAKKA
FLAGS OF OUR FATHERS kl. 2 - 5 - 8 - 10:50 B.i.16 .ára.
FLAGS OF OUR FATHERS VIP kl. 8 - 10:50
THE CHILDREN OF MEN kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 16.ára.
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 1 - 3:20 - 5:40 LEYFÐ
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali VIP kl. 1 - 3:20 - 5:40
HAPPY FEET m/ensku tali kl. 5:40 - 8 - 10:20 LEYFÐ
DÉJÁ VU kl. 8 - 10:50 B.i.12 .ára.
THE DEPARTED kl. 8 B.i. 16.ára.
DOA kl. 6 B.i.12 .ára.
SAW 3 kl. 10:50 B.i.16 .ára.
SKOLAÐ Í BURTU m/ísl. tali kl. 1:20 - 3:30 LEYFÐ
SANTA CLAUSE 3 kl. 1:20 - 3:30 LEYFÐ
JÓNAS : SAGA UM GRÆNMETI m/ísl. tali kl. 2 LEYFÐ
BÆJARHLAÐIÐ m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ
m öllum gleðilegra jóla
FRÁBÆRT GRIN
OG SKEMMTUN
FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
TILNEFND TIL GOLDEN GLOBE SEM BESTA TEIKNIMYND ÁRSINS
eeee
KVIKMYNDIR.IS
eee
H.J. MBL.
eee
L.I.B. TOPP5.IS
EKKI MISSA AF MEST SLÁANDI
OG EINNI ÁHRIFAMESTU
KVIKMYND ÁRSINS.
MEÐ CLIVE OWEN (“CLOSER”),
ÓSKARSVERÐLAUNAHAFANUM
MICHAEL CAINE OG JULIANNE MORRE.
Sími 575 8900 • www.sambioin.is
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Úrlausn erfiðra aðstæðna leiðir bæði
til léttis og vonbrigða. Hvað á hrút-
urinn nú að gera við umframorkuna
sem hann býr yfir? Hann finnur eitt-
hvað von bráðar.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Sumir velja að ríghalda í dramatíkina í
lífi sínu og halda að erfiðleikar þeirra
geri þá sérdeilis áhugaverða. Nautið
temur sér hins vegar að láta sorgina
lönd og leið og endurnýja sig.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Hindranir verða á vegi tvíburans og
hann hugsar með sér, hvert er málið?
Alltaf finnast aðrar leiðir til að leysa
málin. Hann þarf kannski að toga í
spotta bak við tjöldin en fer ekki yfir
strikið í siðferðilegum skilningi.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Móðir Teresa á að hafa sagt að auð-
veldara sé að gefa bolla af hrísgrjónum
en draga úr einmanaleika einhvers
sem býr við ástleysi á okkar eigin
heimili. Nú er rétti tíminn til þess að
uppfylla þarfir sinna nánustu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljónið kýs að fá meðmæli frá ein-
hverjum sem það þekkir áður en það
kýs að skuldbinda sig. Það er engin
ástæða til þess að rasa um ráð fram.
Slakaðu á og bíddu þar til þú ert 100%
viss.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Hvers vegna skyldi maður ekki nálgast
afþreyingu á sama hátt og vinnuna?
Veldu bestu skemmtunina sem þú get-
ur hugsað þér og einbeittu þér síðan að
henni án þess að hvika. Þú sérð ekki
eftir því.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Viðhorf vogarinnar og yfirbragð ber
keim af rólyndi og sjálfstrausti, sem
merkir að þetta er rétti tíminn til þess
að spila póker eða eitthvað sem krefst
þess að maður þykist.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Veröldin kann að meta hvað sporð-
drekinn er laus við látalæti og fals.
Fólk sem hann hittir hikar ekki við að
opna sig. Ekki er allt sem það segir
jafnánægjulegt en þú kannt að meta
sannleikann.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Dagurinn gengur að óskum ef bogmað-
urinn gætir þess að tjá sig skil-
merkilega. Gættu þess að heyra og
skilja það sem ástvinirnir segja svo þú
þurfir ekki að eyða tíma í að leita að
þeim eða bíða.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Leikurinn gengur ekki út á það að ná
forskoti og halda því. Heldur að njóta
sérhverrar mínútu. Það þýðir að stein-
geitin þarf að lagfæra eitthvað í sam-
bandi sínu við ótilgreinda manneskju.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Með smávegis skipulagningu getur
vatnsberinn gengið úr skugga um að
aðrir sjái hann í hagstæðu ljósi. Þess
vegna á hann ekki að spila eftir eyranu
núna. Vertu traustur leiðtogi, fólk vill
fylgja einhverjum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Hver manneskja geymir nokkra per-
sónuleika sem er ástæða þess að full-
orðnir haga sér stundum eins og þeir
séu tveggja ára. Vitandi það sýnirðu
ástvini í æðiskasti umburðarlyndi og
gæsku.
Árið er senn á enda og
tunglið er í nauti í síðasta
skipti árið 2006. Þá er við-
eigandi að gaumgæfa lang-
anir sínar og þrár og skrifa
niður á blað fimm hluti
sem maður girnist. Að nokkrum árum
liðnum getum við lesið listann á ný og
endurupplifað tímabilið sem nú stendur
yfir.
stjörnuspá
Holiday Mathis
VALGERÐUR Þóra hefur sent
frá sér fáeinar bækur, hina fyrstu
fyrir aldarfjórðungi. Þessi er hennar
sjöunda. En titillinn? Hver er þessi
Hann – með stórum staf? Það er
frelsarinn, Jesús Kristur. Þetta eru
stuttir og gagnorðir textar, frá einni
línu upp í hálfa til eina síðu að lengd,
helgisögur að meirihluta; nokkurs
konar prósaljóð ef maður vill heldur
hafa það svo. Skáldkonan beinir
sjónum að bernskunni og trúnni. Þó
er ekki að sjá að hún sé að skrifa fyr-
ir börn. Þetta er draumkenndur
skáldskapur með afstæða lífssýn að
leiðarljósi en einsemd í sinni. Víða er
lagt út af barnslegum hversdagslífs-
lýsingum. En
skáldkonan leit-
ast ekki beinlínis
við að setja sig í
spor barna. Hún
er þvert á móti
dul og spaklega
þenkjandi; ekk-
ert tiltakanlega
innileg þótt svo
kunni að virðast
fljótt á litið. Einn
af stuttu þáttunum ber yfirskriftina
Sólin. Þar leitast skáldkonan við að
laga eilífðartrúna að vísindahyggju
nútímans. Síðasta þáttinn nefnir
skáldkonan Jól. Hann felur í sér stíl-
færða dæmisögu. Markmið Val-
gerðar Þóru má öðru fremur hafa
verið að finna hugkvæmni sinni far-
veg í rituðu máli og setja saman góð-
an texta. Hvort tveggja hefur henni
jú tekist, og þar að auki að koma á
framfæri skemmtilegum barna-
myndum. Þetta er að hálfu leyti
myndabók, vel að merkja. Teikn-
ingar barnanna hafa vægi til jafns
við textann. Þær eru ungæðislegar
sem geta má nærri. En börn hafa
jafnan sterka tjáningarþörf. Þau
geta því sagt hug sinn á myndmáli,
allt eins – og jafnvel ekki síður – þótt
handbragðið sé frumstætt. Því betur
njóta sín myndirnar að brot bók-
arinnar er stórt.
Frágangurinn er að öðru leyti um-
deilanlegur, útlitið sömuleiðis. Káp-
an er allt of sviplaus þrátt fyrir dá-
litla myndskreytingu. Fölblái
liturinn er einum of kaldur. Titilsíða
er frómt frá sagt engin. Þar með eru
blaðsíðurnar tölusettar frá kápunni
að telja. Ekki er þó verið að spara
pappírinn því eyður á textasíðunum
eru margar og miklar. Skynsamlegri
hönnun hefði gert bók þessa geð-
þekkari fyrir augað og þægilegri í
hendi.
Bernskan og trúin
BÆKUR
Prósaljóð
Eftir Valgerði Þóru. Myndir eftir Stein-
unni, Unni Svölu, Irmu Þóru og Ólaf Örn.
50 bls.
HANN
Erlendur Jónsson
Valgerður Þóra
Benediktsson
Á NÝÁRSDAG verður
kvikmyndin Stranger than
Fiction frumsýnd í Sam-
bíóunum og í Háskólabíói.
Myndin segir frá Harold
Crick, starfsmanni skatta-
yfirvalda sem verður fyrir
óþægindum þegar hann
heyrir stanslaust rödd
þekkts sögumanns sem er
að skrifa skáldsögu um hann. Rödd sögumannsins fer að hafa
áhrif á líf hans og lendir hann í hremmingum í einkalífinu sem og
í starfi. Með aðalhlutverk fara Will Farrell, Dustin Hoffman,
Queen Latifah, Emma Thompson, Tom Hulce og Maggie Gyl-
lenhaal en leikstjóri er Marc Forster sem gerði meðal annars
Finding Neverland og Monster’s Ball.
Frumsýning | Stranger than Fiction
Skáldskapur og veruleiki
Hremmingar Will Farrell sem Harold Crick.
ERLENDIR DÓMAR:
Metacritic.com 67/100
Roger Ebert 88/100
Empire 80/100
Variety 70/100
Hollywood Reporter 70/100
The New York Times 70/100
(allt skv. Metacritic)