Morgunblaðið - 31.12.2006, Síða 12

Morgunblaðið - 31.12.2006, Síða 12
12 SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Það hefur verið í nógu að snúast hjá kvikmyndagerðarmanninum Baltasar Kormáki á árinu sem er að líða. „Ég var í raun með tvær bíómyndir á árinu, frumsýndi A Little Trip to Heaven rétt eftir síð- ustu jól og svo fór Mýrin af stað í haust, mest sótta bíómynd sem ég hef gert á Íslandi,“ segir Baltasar og heldur áfram: „Svo frumsýndum við Pétur Gaut í Þjóðleikhúsinu og hann er að fara á fjalirnar í London og Póllandi eftir áramót.“ Að- spurður hverju þessi miklu afköst sæti segir Baltasar að um eins kon- ar uppskeruár undanfarinna ára hafi verið að ræða og hann við- urkennir fúslega að uppskeran hafi verið óvenjugóð, bæði hvað varðar leikhús og kvikmyndagerð. Á nýju ári heldur Baltasar áfram þar sem frá var horfið og hyggst kynna Mýrina og Pétur Gaut á al- þjóðlegum vettvangi auk þess sem hann er með ýmislegt nýtt á prjón- unum. Annars segir Baltasar að það sé aldrei hægt að spá fyrir um hvað ókomin ár beri í skauti sér. „Ég var til dæmis ekkert viss um að 2006 yrði eins og það varð, það héldu til að mynda margir að ég hefði engan tíma til að gera Pétur Gaut þar sem ég var á kafi í öðrum verkefnum, en raunin varð önnur,“ segir Baltasar og bætir við að oft sé það svo að þau verkefni sem maður hafi hvað minnstar áhyggjur af heppnist hvað best á meðan hlut- irnir gangi ekki eins vel þegar mað- ur ætli sér um of. „Ég hef lært það í gegnum tíðina að maður stjórnar þessu ekki alveg sjálfur. Móttök- urnar og það hversu langt verk manns ná er undir öðrum komið,“ segir Baltasar. Sveitasæla í Skagafirðinum Baltasar lét sér ekki nægja að standa í stórræðum í starfi sínu í ár heldur ákvað hann að yfirgefa miðbæinn og setjast að í Skagafirð- inum ásamt konu sinni, Lilju Pálmadóttur. „Það er kannski það markverðasta sem gerst hefur á árinu og hefur haft hvað mest áhrif á líf mitt,“ segir Baltasar. Þegar Skagfirðingurinn er inntur eftir því hvort fjarlægðin frá höfuðborginni skapi ekki ákveðin vandamál varð- andi kvikmyndagerðina segir hann svo ekki vera og greinir frá því að hann hafi bæði skrifað handrit Mýrarinnar og klippt hana í Skaga- firðinum. „Þar fyrir utan er það engin nýlunda að maður þurfi að ferðast í tengslum við þetta starf. Þegar ég bjó í Reykjavík tók ég til dæmis upp á Neskaupstað.“ Búferlaflutningarnir hafa að sögn Baltasars haft mjög jákvæð áhrif á líf hans og fjölskyldu, enda sé allt sem víkki reynsluheim fólks af hinu góða. „Stemningin hérna er svolítið róandi og maður er farinn að líta sér nær,“ segir Baltasar og er ekki frá því að hinn mjúki armur sveita- sælunnar hafi mótað störf hans að einhverju leyti. „Það má greina skagfirsk áhrif í Mýrinni. Hérna upplifir maður alvörusveitastemn- ingu, gamla tímann sem maður þarf að hafa meira fyrir að finna í bæn- um,“ segir Baltasar og kveðst ekki sakna skarkalans í höfuðborginni sérstaklega. „Það er alveg á hreinu að nafli alheimsins er víðar en í 101 Reykjavík.“ „Nafli alheimsins er víðar en í 101 Reykjavík“ Baltasar Kormákur Eftir Friðrik Ársælsson fridrik@mbl.is Ljósmynd/Árni Gunnarsson „Hérna upplifir maður alvöru sveitastemmningu“ segir Baltasar. Fólk og fréttir á liðnu ári Árið 2006 er liðið í aldanna skaut. Það verður vafalaus landsmönnum mismunandi minnisstætt og af ólíkum ástæðum. Morgunblaðið ræddi við nokkra þeirra sem tengdust atburðum eða komu við sögu í fréttum blaðsins á árinu. „Það skiptir ekki máli hversu árin eru mörg heldur er það lífið í árunum sem gildir og þetta ár hefur jafnast á við mörg og skilið eftir fjölda ógleymanlegra augnablika,“ segir Freyja Haraldsdóttir er hlaut við- urkenningu Þroskahjálpar, Múr- brjótinn, fyrir framlag sitt í þágu fatlaðra á alþjóðlegum degi fatlaðra, þann 3. desember síðastliðinn. Freyja hefur frá því í október haldið fyrirlestra í framhaldsskólum landsins undir yfirskriftinni „Það eru forréttindi að lifa með fötlun“ þar sem hún viðrar viðhorf sín til lífs- ins, fjallar opinskátt um fötlun sína og bendir á það sem betur má fara hvað viðhorf fólks, aðbúnað og fleira í þeim dúr varðar. „Móttökurnar hafa verið virkilega góðar og það sem kemur mest á óvart er hversu mikill áhugi er til staðar, ég finn fyrir einlægri hlustun,“ segir Freyja og kveður gott að finna fyrir auknum áhuga almennings á málefnum fatl- aðs fólks, sem bendi aftur til þess að málaflokkurinn geti náð miklu lengra en hann hefur náð í dag. Freyja segir einnig hafa verið ánægjulegt hvernig áheyrendur hefðu viðurkennt sína lesti í hennar návist. „Á meðan ég braut mína múra brutu þau sína og viðurkenndu fordóma sína og fáfræði með það fyr- ir augum að bæta úr þeim og verða betri manneskjur fyrir vikið,“ segir Freyja. Öðlaðist tveggja heima sýn Árið var þó ekki eintómur dans á rósum hjá Freyju. Í ársbyrjun segist hún hafa tekið þá ákvörðun að hefja fullt starf við leikskóla en mörg ljón hafi verið á veginum. Langan tíma hafi tekið að útvega fjármagn til að borga laun aðstoðarmanns Freyju og því hafi hún verið ein á báti fyrstu fjóra mánuði ársins og fyrir þær sak- ir aðeins getað sinnt starfinu með takmörkuðum hætti og lítið komist í sjúkraþjálfun. „Þetta bitnaði svo sannarlega á mér og fjölskyldu minni, vinnulaunum mínum og and- legri líðan,“ segir Freyja. Eftir að tekist hafði að útvega Freyju aðstoð- armann komst líf hennar í eðlilegar horfur og hún vann fullum fetum sem leiðbeinandi og stuðningsfulltrúi langveiks barns fram í ágúst. Freyja segist lengi munu búa að þeirri reynslu sem hún öðlaðist á leikskól- anum sem eigi eflaust eftir að nýtast henni vel í leik og starfi. „Það var al- veg mögnuð tilfinning fyrir mig sem hef þegið mikla aðstoð í gegnum tíð- ina að geta loksins veitt hana,“ segir Freyja og heldur áfram. „Ég var í raun báðum megin við borðið og öðl- aðist tveggja heima sýn.“ En hvað skyldi taka við hjá Freyju að svo viðburðaríku ári liðnu? „Ég held áfram með fyrirlestraverkefnið fram í apríl og öðlast vonandi enn meiri reynslu á því sviði. Jafnvel þótt verkefninu sé lokið þá er ég hvergi nærri hætt í málaflokknum, heldur þvert á móti rétt að byrja,“ segir Freyja. Aðspurð á hvaða vettvangi hún muni starfa í þágu fatlaðra ein- staklinga segir Freyja að fyrirlestra- formið sé mjög skemmtilegt og hún geti jafnvel hugsað sér að halda áfram á þeirri braut og víkka áheyr- endahópinn. „Margir hafa spurt mig hvort ég ætli ekki að fara í grunn- skólana og ég hef heyrt að eineltið og fáfræðin sé mikil innan þeirra. Þótt ég sé ekki viss um hvort ég muni taka slíkt verkefni að mér vona ég svo sannarlega að einhver geri það,“ segir Freyja og heldur áfram. „Það þurfa allir að kynnast okkar heimi, hvort sem þeir eru sex ára eða átt- ræðir.“ Búin að velja sér starfsvettvang þótt starfsheitið sé óráðið Háskólinn heillar Freyju einnig og segist hún hafa skoðað ýmsa mögu- leika í þeim efnum að undanförnu og svo geti farið að hún hefji há- skólanám næsta haust. Hún hefur þó ekki tekið endanlega afstöðu til þess hvaða námsbraut hún velur sér en segir að hún muni tengjast mál- efnum fatlaðra á einn eða annan hátt. „Það má segja að ég sé búin að velja mér starfsvettvang þótt starfsheitið sé ekki enn komið,“ segir þessi ötula baráttukona fyrir málefnum fatlaðra að lokum. „Það þurfa allir að kynnast okkar heimi“ Morgunblaðið/Ásdís Freyja glímir við sjúkdóminn osteogenisis imperfecta, beinagenagalla sem veldur því að beinin eru stökk og brotna af minnsta tilefni. Eftir Friðrik Ársælsson fridrik@mbl.is Freyja Haraldsdóttir „Mér hefur vegnað ágætlega en það hefur tekið mig langan tíma að jafna mig,“ segir Guðmundur Guðmunds- son rallökumaður sem lenti í alvar- legu slysi á Eyvindarstaðaheiði í Skagafirði þann 8. júlí. Bifreið Guð- mundar og Sigurðar Braga Guð- mundssonar, félaga hans, lenti utan vegar með þeim afleiðingum að Guð- mundur hryggbrotnaði og Sigurður slasaðist nokkuð, þó ekki jafn- alvarlega og Guðmundur. Guðmundur kveður endurhæfingu ekki hafna þar sem enn sé verið að bíða eftir því að beinið á milli hryggjaliðanna grói. „Ég á því tals- vert í land og líður ennþá eins og hálfum manni,“ segir Guðmundur en hann bindur þó vonir við að end- urhæfing geti hafist skömmu eftir áramót. Ekki tilbúinn til þess að sleppa takinu alveg Daglegt líf hefur verið með ró- legra móti hjá Guðmundi eftir að slysið átti sér stað enda hefur hann meira og minna verið heima við og ekkert getað unnið þar sem starf hans krefst líkamlegrar áreynslu. Guðmundur segir það vissulega erf- itt fyrir mann, sem í mesta lagi hefur tekið sér sumarfrí í tvær til þrjár vikur í senn, að þurfa að draga sig í hlé í fimm mánuði en fjölskylda hans og vinir hafi með stuðningi sínum gert hléið bærilegt. „Það er krafta- verk út af fyrir sig að maður hafi haldið geði í allan þennan tíma og ég þakka það fyrst og fremst ómet- anlegum stuðningi fjölskyldu minn- ar og vinafólks,“ segir Guðmundur. Guðmundur hefur verið viðloðinn rallíþróttina síðan 1985 og þegar hann er inntur eftir því hvort hann hyggist hætta í sportinu kveður hann meiðslin þess eðlis að hann verði einfaldlega að draga sig í hlé. „Eins og staðan er í dag fæ ég mik- inn sting í bakið þegar ég sit í bíl sem fer yfir hraðahindrun, þannig að þú getur ímyndað þér hvernig það væri fyrir mig að sitja í rallbíl á blússandi siglingu.“ Þrátt fyrir að Guðmundur þurfi að stíga af sviðinu segist hann ekki geta hugsað sér að hætta öllum af- skiptum af mótorsportinu. Draumur hans sé að vera með bíl og kenna ungum strákum listina og þannig láta gott af sér leiða. „Þetta er eitt af því sem maður hefur haft gaman af í lífinu og ég er ekki tilbúinn til þess að sleppa takinu alveg,“ segir Guð- mundur að lokum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Guðmundur segir stuðning fjöl- skyldu og vina ómetanlegan Líður ennþá eins og hálfum manni Guðmundur Eftir Friðrik Ársælsson fridrik@mbl.is Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.