Morgunblaðið - 31.12.2006, Page 14

Morgunblaðið - 31.12.2006, Page 14
14 SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ „GULLVERÐLAUNIN á Norð- urlandamótinu eru tvímælalaust toppurinn á ferlinum,“ segir hin 19 ára gamla Sif Pálsdóttir sem í apríl varð fyrst íslenskra kvenna Norð- urlandameistari í fjölþraut fimleika er Norðurlandamótið var haldið í Gerpluhúsinu í Kópavogi. Sif lét ekki þar við sitja heldur vann einnig gull- verðlaun fyrir æfingar á tvíslá og silf- ur í gólfæfingum og á jafnvægisslá. Sif hóf æfingar í fimleikum 6 ára að aldri og uppskar svo sannarlega laun margra ára erfiðis á Norðurlanda- mótinu. „Árið á svo sannarlega eftir að verða mér minnistætt,“ sagði Sif í samtali við Morgunblaðið á dögunum. „Ég veit ekki hvort draumur hefur ræst á Norðurlandamótinu, en því er ekki að neita að ég ætlaði að standa mig eins og ég gat á mótinu. Stefnan var sett á gullið í æfingum á tvíslá og það gekk eftir, en síðan var sigurinn í fjölþrautinni algjör bónus. Ég bjóst ekki við að vinna í fjölþrautinni – gerði mér vonir um annað eða þriðja sætið.“ Hún segir að þegar mest lét hafi æfingar staðið yfir í þrjá tíma á dag, nær alla daga vikunnar. „Ég hafði ósköp lítinn tíma til þess að gera nokkuð annað.“ Sif er nemi á náttúrufræðibraut við Fjölbrautaskólann við Ármúla. Hún hætti keppni í hefðbundnum fimleikum eftir að hafa tekið þátt í heimsmeistaramótinu og hafnað í 77. sæti af 220 keppendum í fjölþraut. „Ég ákvað eftir Norðurlandamótið í vor að láta staðar numið í áhaldafim- leikum að loknu heimsmeist- aramótinu. Það er gott að hætta á toppnum,“ sagði Sif sem hefur þó ekki alveg hætt fimleikum. Hún hefur snúið sér að hópfimleikum og komst ásamt félögum sínum í Gróttu í 7. sæti á Evrópumeistaramótinu í Tékk- landi í nóvember. Morgunblaðið/Árni Torfason Sif Pálsdóttir, Norðurlandameistari kvenna 2006 í áhaldafimleikum. Keppni fór fram í Versölum, fimleikahúsi Gerplu, helgina 8.- 9.apríl 2006. Stefnan var sett á gullverðlaun Eftir Ívar Benediktsson iben@mbl.is Sif Pálsdóttir Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is LÍF hjónanna og bændanna Valgerðar Auðunsdóttur og Guðjóns Vigfússonar á Húsatóftum I á Skeiðum í Árnes- sýslu tók dramatískum breytingum á einni nóttu í ágúst- mánuði. Valgerður vaknaði við mikla bresti og þótti sem hleypt hefði verið af byssu í fjarlægð. Þegar betur var að gáð stóð mikill reykjarmökkur upp úr fjósþakinu og und- an þakskegginu. Fjósið og hlaðan brunnu. Tæpum fimm mánuðum síðar segir Valgerður þessa fyrstu sýn hafa verið einna erfiðasta. „Ég vakti bóndann minn og dóttur okkar Vigdísi. Svo hljóp ég hringinn í kringum fjósið og tók frá grindur sem stóðu fyrir dyr- unum til að þeir gripir sem voru lausir kæmust út,“ segir Valgerður en á meðan hún stóð í þessu fóru Guðjón og Vigdís inn í fjósið og reyndu að losa sem flesta nautgripi. Í sameiningu náði heimilisfólkið að bjarga sex skepnum en þá greip Valgerður í taumana og sagði að nú færi enginn maður inn í húsin. Gólfið í fjósinu var farið að loga vegna gass sem kom upp úr haugnum. Guðjón reyndi að mót- mæla enda heyrðist enn baulið í gripunum sem urðu eftir inni en Valgerður var ákveðin. Annars gætu þau stefnt lífi sínu í hættu. Vön að taka sigrum og tapi Guðjón og Valgerður hafa verið gift í fjörutíu ár og eru bæði af þessum slóðum. 30 kýr og kvígur brunnu inni auk tuga landnámshænsna. 25 kvígur voru úti í haga svo alls bjargaðist 31 nautgripur. Skepnurnar sem lifðu hafa verið seldar enda engin aðstaða til kúabúskapar á bænum leng- ur. „Fjórir nautgripanna fóru til bræðra Guðjóns en hinir eru á Bryðjuholti í Hrunamannahreppi,“ segir Valgerður og bætir við að þau hjónin mjólki stundum þar í afleys- ingum. „Þetta er nú einu sinni það sem við kunnum.“ Valgerður og Guðjón eru fjarri því að ætla að leggja upp laupana. „Við kláruðum heyskapinn í sumar og seldum bæði heyið og kálið sem kúnum var ætlað. Við ætlum ekki að fá okkur annað fjós að svo stöddu enda myndi það þýða að við þyrftum að steypa okkur í stórskuldir og þá gætum við neyðst til að flytja ef við þurfum að hætta rekstri sök- um aldurs,“ útskýrir Valgerður en hún er orðin 59 ára og Guðjón sjötugur. Valgerður segir erfitt að missa skepnur enda hafi kýrn- ar verið persónur í þeirra augum, allar með sín nöfn. „Son- ardóttir okkar, sem býr hjá okkur núna, þekkti ekki aðeins nöfn kúnna heldur líka ættfræði þeirra. Það kom okkur dálítið á óvart þegar hún allt í einu fagnaði því að einhver ákveðin ætt hefði ekki dáið út í brunanum,“ segir Val- gerður og hlær. Valgerður segist hafa fundið mikið fyrir þeim hlýja hug sem fólk um allt land sendi þeim á þessum erfiða tíma. „Þetta hefur hjálpað okkur að standa í lappirnar. Ekki að- eins það sem er látið í ljós heldur líka það sem maður heyr- ir ekki en finnur,“ segir Valgerður og bætir við að allir fjöl- skyldumeðlimir séu vanir að takast á við sigra og tap enda mikið íþróttafólk þar á ferð. „Ég held að það hafi mikið að segja að vera vanur að takast á við óvænta hluti og taka áföllunum þegar þau koma.“ En hvaða augum horfir Valgerður fram á veginn? „Ég horfi bara björtum augum fram á við. Við erum at- vinnulaus en vonandi ekki framfærslulaus en við eigum enn eftir að sjá hversu mikið tryggingarnar greiða okkur endanlega til baka. Ég skil samt varla hvernig við höfðum tíma til að mjólka áður enda hefur verið heilmikið að gera undanfarið. Við ætlum að byggja hús yfir hesta og hænsn en hyggjumst ekki binda okkur alltof fast,“ segir Val- gerður og bætir því við að þau hjónin séu líkt og margir kúabændur ekki beinlínis vön að fara í frí. „En við hljótum að geta lært það eins og hvað annað.“ 30 skepnur brunnu inni og lífið breyttist á einni nóttu Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Hjónin Valgerður Auðunsdóttir og Guðjón Vigfússon hafa haft í nógu snúast frá brunanum í ágúst en ætla sér ekki að byggja nýtt fjós sem stendur. Valgerður Auðunsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.