Morgunblaðið - 31.12.2006, Page 20

Morgunblaðið - 31.12.2006, Page 20
20 SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Hvað segja þau um áramót? Morgunblaðið leitaði til hóps kvenna og karla, sem hafa látið að sé kveða á ýmsum sviðum þjóðlífsins, og spurði hvað þeim þætti bera hæst á árinu og hvers þau væntu á nýja árinu. Árið 2006 hefur að ýmsu leyti veriðgott fyrir launafólk á íslenskumvinnumarkaði, að sögn GrétarsÞorsteinssonar, forseta Alþýðu- sambands Íslands. „Við höfum komið í höfn ýmsum verkefnum og kröfum sem við höfum unnið að um langt skeið innan verkalýðs- hreyfingarinnar,“ segir hann. Í lok árs 2005 var endurskoðun á launalið kjarasamninganna og gert var ráð fyrir að til samskonar endurskoðunar kæmi nú í nóv- ember. „Vegna ójafnvægis í efnahagslífinu, þenslu og verðbólgu, var ákveðið að flýta endurskoðun fram til júnímánaðar og freista þess að að koma böndum á verðbólguna. Hún bitnar harðast á þeim sem búa við lökust kjör, ekki síst ungu fólki. Þann 22. júní náð- ist samkomulag ASÍ, Samtaka atvinnulífsins og ríkisstjórnarinnar um framangreind markmið og styrkingu vinnumarkaðarins. Samkomulagið fól í sér 15.000 kr. hækkun handa þeim sem fá greitt samkvæmt töxtum, auk þess sem aðrir fengu ákveðna launaþró- unartryggingu.“ Aldraðir og öryrkjar njóti hækkana Grétar segir að í yfirlýsingu ríkisstjórn- arinnar sé að finna ýmsa landvinninga sem treysta bæði vinnumarkaðinn og kjör launa- fólks. „Þar er fyrst til að taka að skattleys- ismörkin hækka í 90 þúsund um áramótin og persónuafslátturinn verður aftur verð- tryggður. Jafnframt fólst í yfirlýsingu rík- isstjórnarinnar skuldbinding um að aldraðir og öryrkjar nytu einnig þessara hækkana. Gefin var yfirlýsing um endurskoðun vaxtabótakerfisins. Sú endurskoðun gekk hins vegar ekki fram samkvæmt þeim skiln- ingi sem við lögðum í efni yfirlýsingarinnar. Það eru mikil vonbrigði.“ Barnabætur verða greiddar til 18 ára ald- urs frá áramótum. Framlög til fullorðins- fræðslu og starfsmenntamála hækka um 120 milljónir á árinu 2007. „Jafnframt fólust í yf- irlýsingu ríkisstjórnarinnar skuldbindingar um að treysta réttindi útlendinga á íslensk- um vinnumarkaði og setja ramma um starf- semi erlendra þjónustufyrirtækja sem starf- að hafa hér á landi.“ Grétar nefnir ennfremur að á árinu 2006 hafi komið til framkvæmda verulegar breyt- ingar á atvinnuleysisbótakerfinu, með tekju- tengingu og hækkun bóta. „Jafnframt voru samþykkt ný lög um vinnumarkaðsaðgerðir sem byggja á samkomulagi aðila vinnumark- aðarins og stjórnvalda. Markmið laganna er að treysta stöðu fólks á vinnumarkaði, eink- um þeirra sem standa höllum fæti og hafa skerta starfsorku.“ Þær breytingar sem hafa orðið á vinnu- markaðnum eru í rauninni birtingarmynd á hnattvæðingunni, að dómi Grétars. „Mikið af okkar vinnu snýr að því með hvaða hætti við getum tryggt að launafólk njóti þeirra kosta sem fylgja hnattvæðingunni. Við höfum að sönnu aðallega þurft að fást við neikvæðar afleiðingar hnattvæðingarinnar, en hún á sér líka jákvæðar hliðar. Við höfum sett okkur það markmið að launafólk njóti jákvæðu áhrifanna. Við sjáum í hnattvæðingunni tækifæri til að efla það velferðarsamfélag sem við höfum byggt upp og þar gegna bætt menntun og aukinn aðgangur að fullorðins- fræðslu og símenntun lykilhlutverki.“ Grétar segir að hnattvæðingin krefjist aukinnar samábyrgðar, því við verðum í auknum mæli háðari því sem aðrir ákveða og gera. „Þetta felur það ekki síst í sér að það verður að setja skýrari reglur á alþjóðlegum vettvangi og um leið að skilgreind verði refsiákvæði gagnvart löndum og fyrir- tækjum sem ekki fylgja þessum alþjóðlegu reglum.“ Hann segir að glímuna við afleiðingar hnattvæðingarinnar leysum við ekki í eitt skipti fyrir öll og ekki bara heima fyrir. Úr- lausnarefnin krefjist samvinnu og samráðs sem gengur þvert á landamæri. „Undanfarin ár hefur dregið úr jöfnuði og það hefur verið vaxandi ójafnvægi og ólga á vinnumarkaði og í efnahagskerfinu. Við viljum snúa þessari þróun við og stefna þess í stað á þá braut sem nágrannar okkar á Norðurlöndunum eru á. Þar búa menn við mun betra velferð- arkerfi– en á sama tíma er samkeppnis- og aðlögunarhæfni atvinnulífsins þar meiri en annars staðar í heiminum. Því er ljóst, að sveigjanleiki og öryggi fara vel saman.“ 90 ára afmæli Alþýðusambands Íslands 12. mars voru liðin 90 ár frá því að sjö verkalýðsfélög í Reykjavík og Hafnarfirði stofnuðu Alþýðusamband Íslands. „Þessi 90 ár ná yfir mestu umbrotatímana í sögu ís- lensku þjóðarinnar. Á þessu tímaskeiði hefur íslenska þjóðin náð þeim árangri að verða í hópi þeirra auðugustu í heimi. Ég fullyrði að þessi saga væri öðruvísi og lífskjör launa- fólks á Íslandi væru ekki jafn góð og raun ber vitni ef verkalýðshreyfingarinnar hefði ekki notið við.“ ASÍ hefur minnst afmælisins með ýmsum hætti. „Í mínum huga rís þar hæst ákvörðun um að ráðast í útgáfu á sögu hreyfingarinnar og undirritun samnings þar að lútandi.“ Sjálfur hefur Grétar átt góðar og eftir- minnilegar stundir með ættingjum, félögum og vinum í leik og starfi á árinu. „Þær standa upp úr þegar maður gerir upp árið.“ Að endingu vil Grétar fyrir hönd Alþýðu- sambandsins óska öllu launafólki og lands- mönnum öllum gæfu og gleði á árinu sem nú gengur í garð, um leið og hann þakkar sam- starfið á árinu sem er að líða. Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ Birtingarmynd hnattvæðingar Samningarnir, sem tókust við verka-lýðsfélögin 22. júní sl., eru mér efst íhuga um áramótin. Þar tóku aðilarvinnumarkaðarins á þeim vanda sem við blasti og leystu hann með þeim hætti að tryggja gildi kjarasamninga út árið 2007,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Annað er Vilhjálmi ofarlega í huga, en það er hversu hratt verðbólgan lækkaði á árinu, í kjölfar samninganna. „Sú lækkun var mun meiri en við gerðum ráð fyrir. Nú sjáum við fram á að árshækkun verðbólgunnar, miðað við þriggja mánaða tímabil, er vel undir verð- bólgumarkmiðum Seðlabanka Íslands og nálgast það líka miðað við sex mánaða tíma- bil. Árangurinn er þannig miklu betri en við þorðum að vona.“ Vilhjálmur er sannfærður um að nýtt ár verði gott. „Ég held að nú séum við að ganga í gegnum niðursveiflu í efnahagslífinu án þess að taka eftir því. Þeirri niðursveiflu lýkur á fyrri hluta næsta árs og ég tel að 2007 í heild verði mun betra en hagspár gera ráð fyrir. Mér kæmi ekki á óvart þótt hagvöxturinn á næsta ári næmi um 3%.“ Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins sér heldur engar blikur á lofti í verðbólgu- málum á næsta ári. „Þvert á móti, mér sýnist allt benda til þess að verðbólgan verði í góðu horfi út allt næsta ár.“ Helstu umskiptin í einkalífi Vilhjálms á árinu voru þau, að hann skipti um starf, lét af embætti ráðuneytisstjóra í sjávarútvegsráðu- neytinu og tók við starfi framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins 15. mars. „Ég hafði vissulega gaman af að starfa í sjávarútvegs- ráðuneytinu, en núna er ég kominn á minn gamla heimavöll,“ segir Vilhjálmur, sem fyrr á starfsævinni starfaði bæði hjá VSÍ og Versl- unarráði. „Ég hef rifjað upp kynni við marga gamla félaga og um leið kynnst nýju fólki.“ Vilhjálmur sat á þingi í tæp 12 ár, en þótt kosningaár sé framundan eru engin merki þess að þingið heilli á ný. „Nei, ég geri ekki ráð fyrir að fara aftur í stjórnmálin. Tólf ár eru ágætur tími og ég læt þar við sitja.“ Þjóð í fremstu röð Bjartsýnin ræður ein ríkjum hjá Vilhjálmi við áramót. „Mér finnst skipta miklu máli að við gerum okkur grein fyrir að við erum þjóð í fremstu röð, hvort sem litið er til lífskjara, velferðar eða annarra samfélagslegra þátta, sem oft eru hafðir að viðmiði við samanburð þjóða. Við verðum að sýna metnað til að halda þessari stöðu, en megum ekki falla í þá gryfju að líta á það sem úrskeiðis fer sem vandamál. Við eigum fremur að líta á það sem áminn- ingu um að staða okkar á toppnum er sam- fellt viðfangsefni. Og það viðfangsefni hlýtur að vera jákvætt, hvort sem það lýtur að vinnumarkaðnum eða öðrum þáttum sam- félagsins.“ Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA Vandi leystur með samningum Morgunblaðið/Kristinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.