Morgunblaðið - 31.12.2006, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 31.12.2006, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2006 27 Morgunblaðið/G.Rúnar Innleiðingarferlið varðandi nýskipan lög-reglumála er Sveini Ingiberg Magn-ússyni formanni Landssambands lög-reglumanna efst í huga við áramót. „Það ferli hefur það markmið að efla og styrkja lög- regluna í landinu m.a. með því að sameina lög- reglulið og auka samvinnu milli lögregluemb- ætta með sérstakri áherslu á skilvirkari rannsóknir sakamála.“ Hann vonar innilega að þessar breytingar skili sér hratt og örugglega og lögreglan verði sterkari á eftir. Sveinn nefnir líka starfsumhverfi lögreglu sem verið hefur í brennidepli á árinu. „Það um- hverfi hefur þurft að bæta og nú glittir í árang- ur en dómsmálaráðherra er með í burðarliðnum frumvarp til breytingar á hegningarlögum þar sem gert er ráð fyrir harðari refsingum fyrir of- beldi gegn lögreglu. Eins á að setja á laggirnar sálgæslu fyrir lögreglumenn sem vinna að erf- iðum verkefnum. Því ber að fagna.“ Sveinn segir að brotum gegn lögreglu hafi ekki endilega fjölgað en svo virðist sem menn séu í auknum mæli tilbúnir að mæta henni af hörku, jafnvel vopnaðir. „Við lifum í harðari heimi en áður og starf lögreglumanna er orðið hættulegra en það var.“ Þá þykir Sveini áhyggjuefni hve alvarlegum umferðarslysum hefur fjölgað mikið á líðandi ári. „Það er eðlilegt að stjórnvöld velti því fyrir sér hvaða úrræði séu best til þess fallin að ná ár- angri á þessu sviði. Með fullri virðingu fyrir öll- um áróðursherferðum tel ég að aukin sýnileg löggæsla úti á þjóðvegunum sé áhrifaríkasta leiðin til að draga úr ökuhraða.“ Sveinn segir að brotthvarf varnarliðsins séu mikil tíðindi og geti m.a. haft þær afleiðingar að lögreglu verði í framtíðinni ætlað stærra hlut- verk varðandi innra öryggi ríkisins. „Það verður fróðlegt að sjá hvernig þau mál þróast.“ Á leið í nám hjá FBI Sveinn fékk nýverið inngöngu í akademíu bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, og segir hann það standa upp úr hvað hann sjálfan varð- ar á árinu. Hann fer utan í mars næstkomandi og mun nema þar í þrjá mánuði. „Þetta verður mjög spennandi.“ Þegar horft er til heimsmála segir Sveinn áframhaldandi stríðsrekstur bera hæst. „Átökin í miðausturlöndum eru manni ofarlega í huga eins og undanfarin ár og því miður sér maður enga lausn í sjónmáli.“ Í huga Sveins átti eftirminnilegasti atburður ársins 2006 sér stað í úrslitaleik Ítala og Frakka á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í Þýska- landi. „Það var þegar Zinédine Zidane skallaði Marco Materazzi í brjóstið. Þetta er kannski léttvægt í hinu stóra samhengi hlutanna en breytir því ekki að þessu atviki munu menn seint gleyma.“ Sveinn kveðst líta björtum augum fram á veginn og vonar að spennandi hlutir bíði ís- lensku þjóðarinnar á árinu 2007. Sveinn Ingiberg Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna Starf lögreglu hættulegra en áður Framtíðarlandið, félag áhugafólks umframtíð Íslands var stofnað í sumarsem hugmyndaveita og þrýstiafl umnýja framtíðarsýn og nauðsyn þess að efla lýðræðislega umræðu og grundvall- arþætti samfélagsins: réttlæti, menntun og skapandi atvinnustefnu. „Okkur fannst sem skapandi og bjartsýnu fólki að það væri mik- ilvægt að umræðan um framtíðan væri jákvæð og þar væru skoðaðir ótæmandi möguleikar sem felast hér í mannuði og verðmætum hug- myndum fólks,“ segir María Ellingsen, stjórn- armaður í samtökunum Framtíðarlandinu. „Og ná okkur út úr hræðsluáróðrinum sem hefur verið rekinn hér síðustu ár þar sem Ís- lendingum er talin trú um að úlfarnir séu við dyrnar og ef við bregðumst ekki skjótt við og grípum einhæfa afarkosti muni landið leggjast í eyði, fólk ganga um atvinnulaust og hungrið sverfa að. Ég veit ekki hversvegna ríkistjórnin er svona hrædd en það er dapurlegt að hún skuli ekki hafa meiri trú á einni ríkustu, best menntuðu og heilbrigðustu þjóð í heimi. Og svo tekur náttúrlega steininn úr þegar ráðherrar keppast við að lýsa því yfir hvað þeim þykir landið sjálft ljótt.“ Það var til að bregðast við þessu sem Fram- tíðarlandið var stofnað „Við vildum styðja stjórnvöld til góðra verka, telja í þau kjark, benda á að við sitjum á eldfjalli verðmætra hug- mynda, og blésum til stofnfundar 17. júní,“ segir María. „Við vildum nota þann táknræna dag til að sýna sjálfstæði, því öll umræðan hefur snúist um að erlendir auðhringar eigi að bjarga okkur því við getum það ekki sjálf. 2.500 manns hlýddu þessu kalli, skráðu sig samdægurs og troðfylltu Austurbæjarbíó. Þessi stofnfundur hafði strax áhrif á umræðu innan flokkana og var það mjög jákvætt. Næst héldum við svo haustþing. Við nefndum það Ís- land á teikniborðinu, og skoðuðum fyrst það sem núverandi stjórnvöld eru með á teikniborð- inu, sem virðist fátt annað en stóriðja langt fram yfir orkugetu landsins. Til viðmiðunar settum við á teikniborð Framtíðarlandsins alla hina möguleikana. Segjum að stóriðjulandið sé það eina sem er núna á teikniborðinu, þá vildum við skoða það í samanburði við heilsulandið, menntalandið, menningarlandið, ferðamanna- landið, frumkvöðlalandið, matvælalandið og náttúruperluna.“ María segir að niðurstaðan hafi verið að sú að á teikniborðum Framtíðarlandsins hafi verið margir verðmætir möguleikar sem hver styðji annan. „Hér gætu lifað margar þjóðir í þeirri velsæld allri á meðan stóriðjulandið grefur und- an öðrum möguleikum, spillir ímynd landsins og hefur afgerandi neikvæð áhrif á sjálfsmynd okkar.“ Og hún segist hafa orðið vör við hugarfars- breytingu. „Mér finnst fólkið í landinu ekki eins hrætt og það var. Ég held að Draumalandið bók Andra Snæs Magnasonar hafi hjálpað mikið til við að reka þessa tilbúnu Grýlu út í horn. En margir stjórnmálamenn virðast ennþá fastir í sama farinu og jafn hugmyndasnauðir og áður.“ Það sem tekur nú við hjá Framtíðarlandinu er að opna öfluga vefsíðu eftir áramót og eru vinnuhópar að vinna að framgangi hugmynda Framtíðarlandsins. Þá hefur framboð komið til tals en ekkert verið ákveðið um það ennþá. Að- spurð um hvað kosningarnar komi til með að snúast í vor segir María: „Ef ég er bjartsýn, þá sé ég fyrir mér að ekki bara einn flokkur heldur allir standi í lappirnar, sýni sjálfstæði, þor og hugmyndaauðgi, treysti á frumkvæði fólksins, og standi vörð um náttúruna sem er okkar fjör- egg. Ef ef ég er svartsýn, þá verður haldið áfram á sömu braut, reynt að hræða fólk slá ryki í augun á þeim með geisladiskum, skattaí- vilnunum og loforðum langt upp í ermarnar Þá kemur að okkur sjálfum. Ætlum við að fljóta sofandi að feigðarósi? Látum við múta okkur? Látum við hræða okkur? Eða tökum við framtíð Íslands í okkar hendur.“ María Ellingsen stjórnarmaður Framtíðarlandsins Fólkið í landinu ekki eins hrætt og áður Unicef virðist hafa grafiðsig dýpra inn í vitund Ís-lendinga á árinu sem erað líða eins og Hólm- fríður Anna Baldursdóttir, upplýs- ingafulltrúi Barnahjálpar Samein- uðu þjóðanna á Íslandi, vottar um. „Eitt af þeim verkefnum sem varð að veruleika í ár varðaði bólusetn- ingu. Fyrirtæki í skreiðarútflutn- ingi, Lýsi hf., Hreinn Loftsson og Frímúrarareglan á Íslandi, ásamt íslenska ríkinu styrktu bólusetning- arverkefni í Nígeríu. Nam framlagið kostnaði við að bólusetja 300.000 börn. Okkur fannst það mjög við hæfi því á svipuðum tíma fæddist 300.000 Íslendingurinn. Bólusetn- ingin var gegn mænusótt en flest til- felli í heiminum eru í Nígeríu. Það þarf lokaátak á heimsvísu til að út- rýma þessum sjúkdómi alfarið.“ Mörg menntaverkefni Fjársterkir einstaklingar hafa lát- ið mikið til sín taka á árinu. „Við fengum styrk frá hjónunum Ólafi Ólafssyni, stjórnarformanni Sam- skipa, og Ingibjörgu Kristjáns- dóttur til að byggja 50 skóla í Sierra Leone fyrir börn á aldrinum sex til níu ára. Mörg þúsund börn njóta góðs af þessu. Landið er eitt af fá- tækustu ríkjum heims. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra fór utan með okkur ásamt styrktaraðilunum í október og opnaði þar skóla en á sama tíma var tekið upp efni fyrir Dag rauða nefsins. Þetta verður svo áþreifanlegt þegar maður sér börn- in syngja og dansa fyrir utan skólana. Það er virkilega verið að breyta kynslóðum,“ segir hún en fleiri menntaverkefni eru áberandi í starfi UNICEF. „Fyrir styrk frá Baugi, FL Group og Fons erum við að byggja 135 skóla í Gíneu Bissá.“ Fyrir féð sem safnaðist á fullveld- ishátíð fyrir rúmu ári síðan, tæpar 90 milljónir króna, er m.a. verið að dreifa 180.000 malaríuflugnanetum. „Hvert net getur varið fjögur til fimm börn gegn malaríu. Ef barn smitast af malaríu getur það dáið innan fárra daga og því er verið að bjarga mörg þúsund mannslífum. Við fórum líka til Gíneu Bissá að taka upp sjónvarpsefni, sýna hvern- ig malaríunet getur breytt manns- lífi. Við sáum hvað hægt er að gera og hvernig þetta hefur áhrif.“ Vel heppnað rautt nef Hápunktur ársins var vel heppn- aður Dagur rauða nefsins með söfn- un og sjónvarpsútsendingu. „Þarna skilaði sér erfiði margra í marga mánuði. Við áttum frábært samstarf við alla sem komu að þessu, 365, Icelandair, Saga Film, Vodafone og ótrúlega mikið af góðu fólki og listamönnum. Við fórum alls í þrjár ferðir til að taka upp efni til að geta sýnt frá verkefnum okkar. Ég fór sjálf til Svasílands með Sigur Rós. Ferðin var mjög áhrifamikil en við vorum að skoða HIV-verkefni á staðnum. Sigur Rós hélt síðan fal- lega ljósmyndasýningu frá ferðinni. Við hefðum ekki getað náð betri árangri. Við skráðum næstum því 4.000 nýja heimsforeldra, sem var fjölgun upp á 60%. Við erum enn þá að vinna úr því.“ Sú spurning vaknar hvort það hafi ekki átt sér stað almenn vakn- ing í sambandi við mannúðarmál og þátttöku í hjálparstarfi. „Ég held þessi þróun hafi verið að eiga sér stað síðustu ár. Það er til fátækt á Íslandi en meginþorri þjóðarinnar býr við mjög góðar aðstæður og hef- ur efni á því að leggja sitt af mörk- um til þeirra sem minna mega sín í heiminum. Það er mikil þörf víða. Í gegnum árið höfum við notið mikils stuðnings frá fyrirtækjum og fjársterkum einstaklingum og Dag- ur rauða nefsins sló öll met. Í heild- ina hefur þetta ár verið gott hjá okkur í fjáröflun á öllum sviðum. Ég held það hafi orðið mikil vakn- ing hér og annars staðar á Vest- urlöndum varðandi hvað það er mik- il fátækt í heiminum og hversu mikil þörfin er víða. Forsendan er að fólk viti hvað er í gangi, þekki þörfina, og taki síðan það skref að leggja sitt af mörkum, sem er ofsalega mik- ilvægt og auðvitað val hvers og eins.“ Ferðalag síðasta sumar er henni einnig mjög minnisstætt. „Ég fór í langferðalag í sumar en ég ferðaðist til Kambódíu og Víetnams en þetta var eitt besta sumarfrí sem ég hef átt. Starfið hefur hvatt mig áfram til þess að fara og sjá heiminn og þegar maður gerir það hvetur það mann líka áfram í starfinu.“ Hólmfríður Anna Baldursdóttir, upplýsingafulltrúi UNICEF Íslandi Verið að breyta kynslóðum Morgunblaðið/Golli Síðumúla 3, sími 553 7355. Við óskum viðskiptavinum okkar gleðilegs árs og farsældar á komandi ári með þökk fyrir viðskiptin á liðnu ári

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.