Morgunblaðið - 31.12.2006, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 31.12.2006, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2006 29 Þrennt bar hæst á árinu 2006.Í fyrsta lagi var sameig-inleg forsjá lögfest frá Al-þingi sem meginregla við skilnað foreldra. Það er afskaplega mikilvægt skref á langri leið. Þá vil ég sérstaklega nefna að Feðradag- urinn var haldinn hátíðlegur hér á landi í fyrsta sinn 12. nóvember sl., með glæsilegri ráðstefnu félagsins. Loks vil ég svo nefna útgáfuna á blaðinu okkar, Ábyrgir feður, sem er trúlega fyrsta jafnréttisblað karla á Íslandi,“ segir Gísli Gíslason, for- maður Félags ábyrgra feðra. Félag ábyrgra feðra var stofnað fyrir tæpum tíu árum. Það er áhuga- félag um foreldrajafnrétti og til- gangur þess er að veita feðrum, for- sjárlausum foreldrum og börnum þeirra stuðning. Félagið hefur haldið nokkur málþing, t.d. Eru pabbar óþarfir árið 1999, Jafnrétti til for- eldra í apríl 2002 og Feður og börn á nýrri öld í maí 2004. Á ráðstefnu félagsins á Feðradag- inn í nóvember voru flutt erindi, meðal annars um stöðu feðra og barna og hamingju foreldra og barna, félagsmálaráðherra ávarpaði ráðstefnuna og sérstakur gestur, Tom Beardshaw, kom frá enskum feðrasamtökum. Gísli segir að málstaður félagsins njóti nú aukins skilnings. „Nú er það sjónarmið að öðlast viðurkenningu að börn eigi rétt á að njóta umgengni við báða foreldra sína, óháð hjúskap- arstöðu foreldranna. Það sjónarmið átti undir högg að sækja þegar félag- ið var stofnað, fyrir tíu árum. „Fé- lagið varð til vegna þess að menn voru ósáttir við stöðu sína. Núna hef- ur félagið sterka málefnalega stöðu og við njótum vaxandi skilnings, jafnt hjá almenningi sem stjórn- málamönnum.“ Forsjármál snerta marga Gísli segir eðlilegt að félagið hafi náð að hasla sér völl, þegar litið sé til þess hve forsjármál snerti marga. „Hér á landi eru um 12 þúsund með- lagsgreiðendur og um 14 þúsund meðlagsþegar og samskipti þeirra snerta 20 þúsund börn. Sú þróun, að feður sækjast æ meira eftir sam- skiptum við börn sín, líka eftir skiln- að við barnsmóðurina, er mjög ánægjuleg. Við feður viljum vera uppalendur, óháð hjúskaparstöðu okkar.“ Gísli segir að ýmis verkefni bíði Félags ábyrgra feðra. „Ég get nefnt þar sem dæmi, að réttindi og skyldur sem tengjast börnum eru mjög bundin við lögheimili barnanna. Hins vegar eiga mörg börn tvö heim- ili, hjá móður og föður og næsta skref hlýtur að vera opinber við- urkenning á þeirri stöðu. Við þurfum líka að skoða skattareglur og fleira af því tagi. Við eigum alltaf að hafa hagsmuni barnanna okkar í fyr- irrúmi og ég er sannfærður um að foreldrajafnrétti kemur börnum okkar best.“ Jól með börnunum Gísli er ánægður með árangurinn í starfi Félags ábyrgra feðra á árinu sem er að líða. Þegar talið berst að einkalífinu er hann heldur ekki í vafa um hvað er minnisstæðast. „Á að- fangadag voru börnin mín, 8 og 10 ára, hjá mér í fyrsta sinn frá því að við móðir þeirra skildum árið 2001. Það var yndislegt að njóta jólanna með þeim og ég er móður þeirra af- skaplega þakklátur fyrir að gefa okkur þá samverustund,“ segir Gísli Gíslason, formaður Félags ábyrgra feðra. Gísli Gíslason, formaður Félags ábyrgra feðra Sameiginleg forsjá mikilvægt skref Morgunblaðið/Árni Sæberg Talsverðar sviptingar hafaverið í flugmálum Íslend-inga á árinu sem er að líða,Icelandair, flaggskip ís- lenska flugflotans, hefur ekki farið varhluta af þeirri ókyrrð sem verið hefur í loftinu í þessum efnum. Jón Karl Ólafsson tók við for- stjórastarfi Icelandair fyrir um einu og hálfu ári er Sigurður Helgason lét af störfum. Hvað er Jóni Karli eft- irminnilegast frá árinu 2006: „Eftirminnilegast er söluferlið sem hófst í byrjun árs og tók mestan hluta ársins og gekk mjög vel. Fyrirtækið komst á markað á ný og er nú skráð í Kauphöll Íslands,“ segir Jón Karl. Voru miklir sviptivindar áður en þetta ferli hófst? „Í sjálfu sér ekki. Þetta var til- tölulega eðlilegt framhald. FL-Group var fyrri eigandi en hafði skipt um stefnu og alfarið breytt sér í fjárfest- ingarfélag sem einbeitir sér að um- breytingum í rekstri félaga. Það þótti því eðlilegt að Icelandair færi á markað þannig að áhugasamir fjár- festar gætu komið að rekstrinum á ný.“ Hvernig hefur gengið eftir breyt- ingarnar? „Það má segja að það sé mjög ánægjulegt hve vel reksturinn hefur gengið þrátt fyrir að söluferlið hafi verið í gangi meirihluta ársins, því slíkt ferli getur oft tekið mikið þrek og vinnuafl úr fyrirtækjum. Samstarf við nýja eigendur hefur gengið mjög vel.“ Hvað með hina auknu samkeppni? „Samkeppni hefur verið vaxandi undanfarin ár og áratugi og við höf- um staðið okkur ágætlega í henni fram til þessa. Vöxtur í ferðaþjónustu hefur verið það mikill hér á landi að fleiri aðilar hafa getað komið að á hagkvæman hátt. Við höfum haldið okkar hlut og vel það. En það hefur kostað mikla vinnu, þegar ég lít til baka þá stendur árið 2006 kannski upp úr sem ár mikillar vinnu og mik- ils annríkis.“ Hvað með umhverfið í samfélag- inu? „Umrót og skiptingar á stjórn- málasviðinu eru mér eftirminnilegar. Mikilvægt er að mínu mati að við- halda þeim stöðugleika sem skapast hefur hér undanfarin ár. Það hefur líka verið ánægjulegt að fylgjast með hvað Íslendingar hafa gert það gott erlendis í menningu, listum og íþróttum.“ Hvað með einkalífið? „Það hefur gengið mjög vel, meðan allir eru heilbrigðir og líður vel þá er allt í góðu gengi. Ég og fjölskylda mín höfum verið heppin þetta ár hvað það snertir og það skiptir á endanum mestu máli.“ Hvað sérðu fyrir þér á næstunni? „Næsta ár er kosningaár og verður ábyggilega mikið um að vera. Við hjá Icelandair erum bjartsýn á gott ár í ferðaþjónustu, bókanir byrja vel og nýir áfangastaðir koma vel út. Við lít- um því björtum augum til framtíðar.“ Jón Karl Ólafsson forstjóri Icelandair Ár annríkis! Morgunblaðið/ÞÖK                                              !     " # $  % &    '() *     +  *   *     ',++-.  ' /       0        1  2   2    3-&    24  "   5  6&    $ '() *  . 7 ' , +   ' 8*  $  6     

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.