Morgunblaðið - 31.12.2006, Side 36
36 SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
1. Munich – München
Steven Spielberg, Bandaríkin
2005.
Spielberg spyr leiðtoga gyðinga
og araba í mynd um fjöldamorðin í
München og eftirhreytur þeirra:
Hvaða gagn hefur endalaust blóð-
bað og djöfulskapur gert annað en
að ala á linnulausri hringrás of-
beldisverka í 30 ár? Tilgangsleysi
hefndarinnar er brennipunkturinn
í einni hans mikilvægustu mynd.
Leikstjórn, klipping, leikur – allt
eins og best verður á kosið.
2. Breiðufjöll – Brokeback
Mountain
Ang Lee, Bandaríkin 2005.
Lee er óvenjuvíðsýnn og vitur
listamaður sem er lagið að fást við
litróf mannlegra samskipta.
Brokeback Mountain er ein eft-
irminnilegasta mynd sem gerð
hefur verið um ástir í meinum, það
að persónurnar eru samkyn-
hneigðir karlar gerir hana að
tímamótaverki í kvikmyndasög-
unni. Magnaður leikur og leik-
araval.
3. Takk fyrir að reykja –
Thank you for smoking
Jason Reitman, Bandaríkin
2006.
Meinfyndið og frumlegt handrit,
algjörlega á mörkunum, og frábær
leikur gerir satíruna yndislega
óforskammaða og óvenjulega
skemmtun. Það er afreksverk að
skapa vel lukkað grín um efni sem
er í sjálfu sér dauðans alvara og
það verður æ sjaldgæfara síðan
Monty Python var og hét.
4. Flug United 93 – United 93
Paul Greengrass, Frakkland/
Bretland/Bandaríkin 2005.
Leikstjóranum tekst meistara-
lega að sviðsetja sögu flugs 93 og
fyrstu viðbrögð Bandaríkjamanna
eftir voðaverkin kennd við 11.
september, laust við væmni, með
fullri reisn og virðingu fyrir afrek-
um hversdagsfólks sem varð að
hetjum á örlagastund.
5. Endurkoma – Volver
Pedro Almodóvar, Spánn
2006.
Ástin nær langt út yfir landa-
mæri lífs og dauða í firnavel leik-
inni mynd þar sem konur ráðskast
með karlaulana, að hætti leikstjór-
ans.
Cruz er stórfengleg í farar-
broddi stórbrotinna kvennanna
þar sem Carmen Maura siglir aft-
ur seglum þöndum.
6. Borat í Ameríku – Borat:
Cultural Learnings of Am-
erica for Make Benefit Glorio-
us Nation of Kazakhstan
Larry Charles, Bandaríkin
2006.
Háðfuglinn skopast að öllu og
öllum, ekki síst spilltum stjórn-
málamönnum, femínistum og íbú-
um hins dásamlega Kazakstan.
Aðferðirnar eru oftar en ekki
handan áður kunnra velsæmis-
marka en Baróninn er ekkert
venjulegur og fær flesta til að
gráta úr hlátri yfir óborganlegum
atriðum. Við eigum ekki eftir að
sjá neitt þessu líkt í framtíðinni.
7. Drottningin – The Queen
Stephen Frears, Bretland/
Frakkland/Ítalía 2006.
Enn ein háðsádeilan. Höfundum
og leikurum hefur tekist ætlunar-
verkið; að skopast að afbrigðilegu
ástandi og samfélagslegum van-
þroska fjölskyldunnar í Bucking-
ham-höll og halda Díönu smekk-
lega utan við myndina.
Mirren er þegar komin langt
með að tryggja sér öll helstu leik-
listarverðlaun ársins.
8. Góða nótt og gangi ykkur
vel – Good Night, and Good
Luck
George Clooney, Bandaríkin
2005.
David Strathairn leikur Edward
R. Murrow, sem þeir Clooney gera
að fágaðri og háleitri mynd af hug-
rekki blaðamannsins og frétta-
teymisins á CBS sem stóð uppi í
hárinu á öldungadeildarþingmann-
inum Joseph McCarthy á myrkum
tímum í sögu Bandaríkjanna.
9. Grbavica
Jasmila Zbanic, Bosnía og
Herzegóvína 2005.
Lýsir á raunsæjan hátt fjölþætt-
um vandamálum sem veraldlega
og ekki síður tilfinningalega illa
farnir íbúarnir eiga við að glíma
eftir borgarastríðið í fyrrum ríkj-
um Júgóslavíu. Zbanic, sem einnig
er handritshöfundur, sneiðir hjá
væmni og segir tæpitungulaust frá
og hittir áhorfandann í hjartastað.
10. Þrjár útfarir Melquiades
Estrada – The Three Burials
of Melquiades Estrada
Tommy Lee Jones, Bandarík-
in 2005.
Snilldarvestri, gerður af einum
fárra sem bera hag kvikmynda-
greinarinnar fyrir brjósti. Klass-
ískur með áhrifaríkum vísunum í
The Searchers.
10 bestu kvikmyndi
Sæbjörn Valdimarsson
Reuters
Drottninginn Helen Mirren fer á kostum sem Elísabet Englandsdrottning
og er komin langt með að tryggja sér helstu leiklistarverðlaun ársins.
Reuters
Endurkoma Penelope Cruz og Carmen Maura eru í fararbroddi kvenna,
sem ráðskast með karlaula í Volver eftir spænska leikstjórann Almodóvar.
München Tilgangsleysi hefndarinnar er brennipunkturinn í mynd Spielbergs um gísltökuna í München 1972.
ReutersBreiðufjöll Í kvikmyndinni Brokeback Mountain fjallar leikstjórinn Ang Lee um ástir samkynhneigðra karla í fordómafullu samfélagi.
Reuters
Borat Grínistinn Sacha Baron Cohen sem Borat frá Kazakstan skopast að öllu og öllum. saebjorn@heimsnet.is