Morgunblaðið - 31.12.2006, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 31.12.2006, Blaðsíða 37
ir ársins 2006 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2006 37 Óskum samstarfsaðilum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða. 1. Breiðufjöll – Brokeback Mountain Ang Lee, Bandaríkin Kvikmynd Ang Lee um ástir tveggja karlmanna í fordómafullu samfélagi er í senn stórbrotið kvik- myndaverk og átakanleg harmsaga. Heath Ledger fer fremstur í flokki frábærra leikara myndarinnar. Þetta er kvikmynd sem maður skilur aldrei við sig eftir að hafa einu sinni séð hana. 2. Rauður vegur – Red Road Andrea Arnold, Bretland/ Danmörk Andrea Arnold tvinnar hér saman glæpasöguforminu og sögu um fólk í grámóskulegum hversdegi Glasgow- borgar sem glímir við sorgir lífsins. Áhugaverð hugleiðing um eftirlits- samfélag nútímans og margflókið til- finningalíf aðalsöguhetjunnar. 3. Í felum – Caché Michael Haneke, Frakkland Þessi spennuþrungna saga Mich- aels Haneke af ókennilegum við- burðum í lífi borgaralegra hjóna er ekki öll þar sem hún er séð. Auga myndavélarinnar leiðir áhorfendur hér í gegnum ferðalag sem afhjúpar grafnar minningar og áður vandlega falin leyndarmál. 4. Á sléttunni – A Prairie Home Companion Robert Altman, Bandaríkin Hinn merki leikstjóri Robert Alt- man, sem féll frá á árinu, kallar fram hreina töfra úr einfaldasta efniviði í þessari einstöku kvikmynd sem gerð er í samkrulli við útvarpsmanninn góðkunna Garrison Keillor. Hér koma fram allir helstu kostir Alt- mans sem leikstjóra, snjöll kvik- myndataka, næmi fyrir smáatrið- unum í mannlegum samskiptum og öguð en spunakennd sögusmíð. 5. Capote Bennett Miller, Kanada/ Bandaríkin Áhrifarík kvikmynd um undirbún- ingsvinnu Trumans Capote fyrir skrif sannsögulegu morðsögunnar Með köldu blóði. Brugðið er upp magnaðri mynd af persónu og bak- grunni rithöfundarins Trumans Capote sem Philip Seymour Hoff- mann túlkar af stakri snilld. 6. Óþægilegur sannleikur – An Inconvenient Truth Davis Guggenheim, Bandaríkin Áhugaverð hugleiðing um pólitík og umhverfismál, sem hverfist fyrst og fremst um myndskreyttan fyrir- lestur fyrrverandi forsetaframbjóð- anda Bandaríkjanna, Al Gore, um þær hættur sem steðja að lífríki jarð- ar vegna loftslagsbreytinga af manna völdum. Myndin fjallar í senn um áhugaverðan pólitíkus og hugsjóna- mál hans, og vekur áhorfendur til umhugsunar um það hvert við stefnum í umgengni okkar við nátt- úruna. 7. Flug United 93 – United 93 Paul Greengrass, Frakkland/ Bretland/Bandaríkin Paul Greengrass tekst hér á við hryðjuverkin 11. september 2001 á nærgætinn og gríðarlega agaðan máta. Kvikmyndin fjallar um harm- leik hryðjuverkanna á áhrifamikinn hátt um leið og hún forðast að falla í gryfju þeirrar hugmyndafræðilegu einföldunar og þjóðernisrembu sem einkennt hefur pólitíska orðræðu um öryggismál í Bandaríkjunum eftir 11. september. 8. Börn Ragnar Bragason, Ísland Ragnar Bragason fetar nýjar og tilraunakenndar slóðir í þessari nýj- ustu kvikmynd sinni, þar sem áhersla er lögð á samvinnu við leikara um að skapa persónurnar og söguheiminn sem þær byggja. Útkoman er frá- bærlega leikin kvikmynd, sem er dramatísk og kómísk í senn, en örlög- um persóna vindur fram í ein- staklega fáguðu sjónrænu umhverfi 9. Olnbogabörn – Shortbus John Cameron Mitchell, Banda- ríkin Þessi nýjasta kvikmynd John Cameron Mitchells, sem þekktur er sem höfundur söngleiksins um Hed- wig, er einstaklega einlæg og sönn. Mitchell skoðar tilfinningalíf og til- finningadeyfð nútímafólks með því að stinga sér beint inn að kjarnanum og fjalla um kynlíf þess og kynvitund. Sem fyrr fjallar Mitchell um olnboga- rýmið fyrir það sem er öðruvísi en sögusviðið er New York á árunum eftir 11. september. 10. Grbavica Jasmila Zbanic, Bosnía Ljúfsár og eftirminnileg kvikmynd um glímuna sem tekur við að stríðshörmungum loknum. Hér er sögð saga Esmu, sem var eitt af mörgum fórnarlömbum nauðg- unarbúðanna í stríðinu í Júgóslavíu, og stendur frammi fyrir því að þurfa að segja dóttur sinni sannleikann um föður hennar. Heiða Jóhannsdóttir Reuters Capote Með leik sínum dregur Philip Seymour Hoffman upp magnaða mynd af rithöfundinum Truman Capote. Börn Kvikmynd Ragnars Bragasonar er dramatísk og kómísk í senn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.