Morgunblaðið - 31.12.2006, Page 38

Morgunblaðið - 31.12.2006, Page 38
38 SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Ghostigital - In Cod We Trust Ghostigital, samvinnuverk- efni þeirra Einars Arnar Bene- diktssonar og Curvers Thor- oddsens, blómstaði sem aldrei fyrr á árinu. Platan In Cod We Trust kom út í lok febrúar og vakti athygli hér á landi og erlendis. Þeir félagar fóru og ótroðnar slóðir að vanda við kynningu á plöt- unni, myndbandagerð og tón- leikahald víða um heim. Magga Stína - Syngur Megas Það er kúnst að syngja lög sem aðrir hafa gert fræg og eina leiðin að gera þau að sínum, laga að eigin persónu í stað þess að herma eftir upprunalegum flytjanda. Margrét Kristín Blöndal syng- ur hér Megasarlög sem þau væru samin fyrir hana, túlkar þau af svo mikilli smekkvísi að maður gleymir því að ann- ar hafi sungið þau áður. Jóhann Jóhannsson - IBM 1401 ... Hugmyndin virðist kannski galin við fyrstu sýn, að semja tónverk uppúr tónlistarflutn- ingi stórtölvu sem gaf upp öndina fyrir mörgum árum. Jóhann Jóhannsson sannar aftur á móti að hann er því magnaðri sem tónskáld eftir því sem hugmyndirnar eru fjarstæðukenndari sem hann vinnur með. Hrífandi tónlist sem gæðir hið vélræna hlýju. Ragnheiður Gröndal - Þjóðlög Hér er ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur, al- þekkt þjóðlög færð í smekk- legan búning og að auki sálmar sem maður hefur eig- inlega aldrei heyrt utan kirkju. Mér er til efs að Ragn- heiður hafi sungið betur og útsetningar Hauks snilld- arlegar hvort sem það er á þjóðlögum og sálmum eða lögunum hennar Ragnheiðar. KK - Blús Blúsinn er vandmeðfarið tón- listarform og margur farið flatt á því að setja sig í stell- ingar til að spila hann. Krist- ján Kristjánsson og félagar sýna hér hvernig á að spila blús; hann verður ekki ekta nema hann komi frá hjartanu, einlægur og laus við alla til- gerð. Fínir textar kippa blús- unum svo inn í íslenskan veruleika. Barði Jóhannsson - Häxan Barði Jóhannsson sýndi að honum er flest til lista lagt þegar hann samdi tónlist við gamla hryllingsmynd og náði að skapa drauga og drunga- legt andrúmsloft með mjúk- um strengjakliði. Hann gaf síðan hefðbundinni flokkun í æðri tónlist og óæðri langt nef með því að útsetja sjálfur hluta verksins fyrir sinfón- íuhljómsveit. Forgotten Lores - Frá heimsenda Besta íslenska rappsveitin verður bara betri. Frábærlega fjölbreytt og fjörug plata, því líkast sem maður líti inn á æf- ingu þar sem þeir félagar eru að skemmta sjálfum sér fyrst og fremst og okkur um leið. Léttara yfir mönnum en á síð- ustu skífu og taktarnir nú- tímalegri, en þó mikið sé rappað um fjör og fyllerí þá er broddurinn á sínum stað. Innlendar plötur Segja má að þetta hafi verið ár endurtekningarinnar, safn- plötur og endurunnar hugmyndir í aðalhlutverki; segir sitt að söluhæsta plata ársins er safnplata með gamalli tónlist. Þeir listamenn sem fylgja þar á eftir eru og helst að gera gamla hlutI, jafnvel endurgera plötu frá því í fyrra. Öðrum þræði hefur árið líka verið Megasarár, þrjár plötur endurútgefnar með aukaefni, gamlir tónleikar loks komnir á plast, Passíusálmarnir frá síðustu páskum útgefnir og tvær plötur með Megasarlögum, önnur klén en hin afbragð. Þetta var líka ár Sigur Rósar, hljómsveitin fór um landið og hélt ókeypis tónleika sem lyktaði með tugþúsundatónleikum á Klambratúni - ekki hefur íslensk hljómsveit eða tónlist- armaður leikið annan eins leik og erfitt að sjá fyrir sér að það verði endurtekið í bráð. Plötur ársins 2006 Endurnýjun í íslenskri tónlist er með minnsta móti að mati Árna Matthíassonar, sem nefnir þær plötur sem honum þykir þó hafa skarað framúr á árinu. Morgunblaðið/Ásdís Plata ársins Curver Thoroddsen og Einar Örn Benediktsson binda ekki bagga sína sömu hnútum og samferðamennirnir. Skakkamanage - Lab of Love Skakkamanage er hljómsveit sem leynir á sér, spila- mennskan virkar losaraleg og skröltandi við fyrstu hlustun, en svo gægjast út úr óreiðunni snilldar laglínur og bráðs- mellnir textar. Sum laganna á plötunni eru með bestu popp- lögum sem heyrst hafa á ís- lenskri skífu lengi, ekki síst fyrir það hve smekklega er út- sett. Skúli Sverrisson - Sería Síðustu ár hefur Skúli Sverr- isson dvalist erlendis og leik- ið þar með mörgum af fremstu framúrstefnumús- íkmönnum Bandaríkjanna og iðulega leikið á tónleikum hér. Hann hefur líka fengist við rokk og óhljóð, en lang- þráð sólóskífa hans er þó hvorki óhljóð né rokk heldur draumfögur tónlist með frá- bærum söng Ólafar Arnalds. Gavin Portland - Views of Distant Towns Það er ekki öllum lagið að spila þunga rokkmúsík og það sem einum finnst þunnt er lap í eyrum annarra. Um þessa plötu verður þó varla deilt - hér er komin hin ís- lenska rokkplata, rífandi keyrsla allt í gegn en um leið engin taktblinda, heldur fullt af hugmyndum og spennandi pælingum, meira að segja til- raunakennt á köflum. Erlendar plötur Joanna Newsom - Ys Einir eftirminnilegustu tónleikar ársins voru þegar Joanna Newsom lék í Fríkirkjunni og gaf okkur nasasjón af væntanlegri plötu. Menn sátu dolfallnir undir lögum sem fóru um víðan völl, laglínur langt undan en textinn allsráðandi. Hún fékk svo Van Dyke Parks til að færa lögin í sinfón- ískan búning. Comets on Fire - Avatar Sagan segir að Ben Chasny og félagar slái þá aðeins í plötu sem Comets on Fire þegar þá langi til að vaða í tryllingsspuna. Það mátti heyra á Blue Cathedral sem kom út 2004. Á Avatar ber svo við að þeir eru ekki með allt í botni eins og forðum, vissulega jafn villtir, en fráleitt eins trylltir. Under byen - Af samme stof som stof Danska hljómsveitin Under byen breytti nokkuð um áherslur og stefnu á þriðju breið- skífu sinni, bætti óhljóðum og þyngri takti við fínlegar hljómavefnaðinn. Segir sitt að á tónleika- ferðalagi er hún með tvo trommuleikara, en aðal sveitarinnar er þó enn frábær söngur Henriettu Sennenvaldt. Midlake - The Trials of Van Occupanther Rokksveitin banda- ríska Midlake fer gjarn- an ótroðnar slóðir og gerði einmitt svo með þessa breiðskífu sem gerist í hugarheimi ein- setumanns á nítjándu öld. Þó söguþráðurinn nái aftur í aldir er tón- list nútímaleg, poppað rokk, útsetningar einkar hugmyndaríkar og flutningur allur með ágætum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.