Morgunblaðið - 31.12.2006, Qupperneq 42
42 SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
1 Þessi maður hætti sem fram-kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna um áramótin.
Hvað heitir hann?
a) Tony Howard
b) Kofi Annan
c) Ray Eagle
d) Jacques Chirac
2 Söngvakeppni evrópskra sjón-varpsstöðva var handin með
pompi og prakt í Grikklandi í vor.
Sigurvegararnir voru grímuklæddur
flokkur sem söng lagið „Hard Rock
Halleluja“.
Hvað kallaði hljómsveitin sig?
a) Mordor
b) Lordi
c) Lord
d) Murder
3 Íslenskt félagslið varð Íslands-meistari í handknattleik karla í
fyrsta sinn í háa herrans tíð.
Hvaða lið er þetta og hver er þjálfari
þess?
a) Fram - Guðmundur Þórður
Guðmundsson
b) Valur - Óskar Bjarni Ósk-
arsson
c) Fram - Ólafur Lárusson
d) Valur - Sigurður Valur Sveins-
son
4 Herinn í Ísrael réðist inn í land ísumar til að stöðva árásir sem
skæruliðar gerðu þaðan.
Hvað heitir landið?
a) Jórdanía
b) Kína
c) Líbanon
d) Íran
5 Kvikmyndin Mýrin í leikstjórnBaltasars Kormáks var frum-
sýnd á árinu en myndin er gerð eftir
sögu Arnaldar Indriðasonar
Hver fara með hlutverk Erlendar,
Sigurðar Óla og Elínborgar í mynd-
inni?
a) Ingvar E. Sigurðsson, Hilmir
Snær Guðnason og Elva Ósk
Ólafsdóttir
b) Ólafur Darri Ólafsson, Gísli
Örn Garðarsson og Nína Dögg
Filipusdóttir
c) Þröstur Leó Gunnarsson,
Helgi Björnsson og Aníta
Briem
d) Ingvar E. Sigurðsson, Björn
Hlynur Haraldsson og Ólafía
Hrönn Jónsdóttir
6 Sundkonan Kristín Rós Há-konardóttir var valin íþrótta-
kona ársins úr röðum fatlaðra. Þetta
var ekki í fyrsta sinn sem hún varð
fyrir valinu.
Hversu oft hefur hún verið valin?
a) 10 sinnum
b) 11 sinnum
c) 12 sinnum
d) 13 sinnum
7 Ráðherra í Bandaríkjunumsagði af sér í haust. Honum hef-
ur m.a. verið kennt um hveru illa
Bandaríkjamönnum gengur í Írak.
Þessi maður var varnarmálaráð-
herra og þykir mikill töffari.
Hvað heitir hann?
a) Tony Snow
b) Colin Powell
c) James Baker
d) Donald Rumsfeld
8 Stór hluti þjóðarinnar fylgdistmeð framgöngu Magna Ás-
geirssonar í bandaríska sjónvarps-
þættinum Rock Star: Supernova.
Magni stóð sig heldur betur vel og
söng sig inn í úrslitaþáttinn. Það
var þó hinn kanadíski Lucas Rossi
sem sigraði að lokum og er hann
fyrir vikið aðalsöngvari rokksveit-
arinnar Rock Star Supernova í
dag.
Hvað heita hinir meðlimir sveit-
arinnar?
a) Storm, Toby og Tommy Lee
b) Gilby Clarke, Tommy Lee og
Jason Newsted
c) Tommy Lee, Dave Navarro og
Jason Newsted
d) Tommy Newsted, Dave Lee
og Gilby Storm
9 Fjölmargir íslenskir íþrótta-menn leika með erlendum fé-
lögum og í hinum ýmsu íþróttagrein-
um. Einn þeirra er
körfuknattleiksmaðurinn Jakob Sig-
urðsson sem leikur á Spáni.
Með hvaða lið spilar hann og í
hvaða deild er það?
a) Caja Rioja í 2. deildinni
b) Gestiberica Vigo í 2. deildinni
c) Axarquia í 2. deildinni
d) Calpe Aguas de Calpe í 2.
deildinni
10 Geimvísindastofnun Banda-ríkjanna ætlar að senda
geimfara árið 2020 til að reisa þar
bækistöð sem síðan á að nota til að
senda geimfara til fjarlægari hnatta.
Hvert er ætlunin að fara?
a) Til Mars
b) Til sólarinnar
c) Til tunglsins
d) Til Venusar
11 Sykurmolarnir héldu tón-leika í Laugardalshöllinni
þann 17. nóvember sl. Með tónleik-
unum minntust molarnir ákveðinna
tímamóta.
Hvaða tímamót voru það?
a) Tuttugu og fimm ára afmæli
sveitarinnar
b) Útgáfa fyrstu plötu sveit-
arinnar í fimmtán ár, Trem-
endus
c) Liðin eru tuttugu frá útkomu
smáskífunnar Ammælis
d) Johnny Triumph er gegninn
til liðs við sveitina
12 Eitt og sama liðið varð bæðiÍslands- og bikarmeistari í
kvennaknattspyrnunni í sumar.
Hvaða lið stóð sig svona vel?
a) KR
b) Breiðablik
c) Stjarnan
d) Valur
13 Líklegt þykir að HillaryClinton ætli að bjóða sig
fram í næstu forsetakosningum í
Bandaríkjunum. Hillary er auðvitað
kona Bills Clintons, fyrrum Banda-
ríkjaforseta.
Hvað gerir hún?
a) Hún rekur saumastofu í New
York
b) Hún er borgarstjóri í Boston
c) Hún er þingmaður
d) Hún er heimavinnandi hús-
móðir
14 Í hvaða sæti komst Lata-bæjar-lagið Bing Bang sína
fyrstu viku á breska smáskífulist-
anum?
a) Níunda sæti
b) Fjórða sæti
c) Annað sæti
d) Sjöunda sæti
15 Íslenskur handboltaþjálfarivarð Evrópumeistari með
8 5
1 13