Fréttablaðið - 06.04.2009, Blaðsíða 4
4 6. apríl 2009 MÁNUDAGUR
SMÁLÚÐA, LAXAFLÖK OG
FULLT AF ÖÐRU GÓMSÆTU
FYRIR PÁSKA
SELJUM EINNIG FISK Í MÖTUNEYTI
ATH ERUM ALDREI FISKLAUSIR
GLÆNÝ
STÓRLÚÐA
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
21°
18°
22°
18°
13°
20°
21°
20°
10°
12°
21°
16°
13°
27°
14°
20°
21°
15°
4
6
6
2
1
13
8
3
5
3
3
5
8
5
5
8
2
4
Á MORGUN
10-20 m/s á Vestfjörðum,
annars mun hægari.
MIÐVIKUDAGUR
Hvasst á Vestfjörðum og
NV-til, annars mun hægari.
-2
1
1
2
4
6
-2
66
-4 1
6
65
VERSNANDI HORFUR
FYRIR VESTFIRÐI
Í dag og næstu daga
geta veðurhorfurnar
fyrir Vestfi rði vart talist
spennandi. Vindur vex
þar eftir því sem líður
á vikuna með snjó-
komu og skafrenningi.
Viðloðandi norð-
austlægar áttir verða
með frosti. Mun betra
veður verður víðast
annars staðar enda
þótt nokkuð skorti
almennt á þurrk á
landinu. Í dag verður
úrkomuminnst SV-til.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
ÖRYGGISMÁL Landhelgisgæslan
(LHG) hefur þurft að treysta ein-
göngu á minnstu björgunarþyrlu
sína í níu daga á þessu ári. Treysta
verður á aðstoð danska sjóhersins
þegar þessi staða kemur upp. For-
svarsmenn sjómanna gagnrýna nið-
urskurð til LHG hart og segja sjó-
menn lifa við fullkomið óöryggi við
sín störf.
Tvisvar á þessu ári hefur komið
upp sú staða að TF-GNÁ og TF-LÍF,
stóru Super Pumu björgunarþyrl-
ur LHG, hafa verið óflughæfar á
sama tíma. LÍF hefur undirgengist
skylduskoðun frá 5. janúar en GNÁ
hefur á þeim tíma bilað tvisvar: í
sex daga í janúar og þrjá daga í lok
mars. Við þessi skilyrði hefur LHG
því aðeins haft minnstu þyrluna,
TF-EIR, klára til að sinna útköllum.
Sú þyrla hefur takmarkaða flug- og
burðargetu miðað við þær stærri,
en hún getur tekið átta farþega
auk fimm manna áhafnar. Algengt
er að þrettán til fimmtán sjómenn
séu í áhöfn minni togskipa. Áhafn-
ir frystiskipa, sem eru að veiðum í
öllum veðrum langt frá landi, telja
tæplega þrjátíu menn.
Samkvæmt upplýsingum frá LHG
er TF-EIR, sem ein var til taks í níu
daga, bilanagjörn og erfið í viðhaldi.
Hún er elst af þyrlunum þremur,
flogin 11.000 flugtíma. TF-LÍF er
flogin 4.100 tíma og GNÁ 2.700.
Georg Lárusson, forstjóri LHG,
segir þessa stöðu mjög bagalega. „Sá
mikli niðurskurður sem við verðum
fyrir hefur þau áhrif að þjónustan
verður alveg klárlega ekki eins og
við vildum hafa hana, en við teljum
okkur þó hafa mætt þessu eins vel
og kostur er. Við erum í samstarfi
við danska sjóherinn sem eru með
skip við Færeyjar og Grænland og á
þessu níu daga tímabili höfðum við
lengst af stuðning frá þeim.“
Árni Bjarnason, forseti Far-
manna- og fiskimannasambands-
ins, gagnrýnir niðurskurðinn til
Gæslunnar afar hart og segir stöð-
una fullkomlega óásættanlega.
„Það er hreint út sagt ömurlegt til
þess að vita að þessi staða sé komin
upp. Átján milljarðar í tónlistarhús á
sama tíma og ekki er hægt að halda
úti lágmarksöryggi fyrir sjómenn-
ina okkar er nöturlegt.“
„Það er áhyggjumál að við getum
ekki haldið úti 100 prósent þyrlu-
þjónustu og ég tek fullkomlega
undir með Árna Bjarnasyni með
það. En þetta ástand núna, sem var
fullkomlega fyrirsjáanlegt miðað
við að hafa bara þrjár þyrlur, verð-
ur ekkert betra á næstu mánuðum.
Staðreyndin er sú að björgunarflugi
fjölgar á næstu mánuðum og topp-
ar yfir sumarið. Þetta er því ekkert
sérstaklega slæmt mál núna og það
er pólitískt mál hvernig þessi mál
munu þróast.“
svavar@frettabladid.is
Ein þyrla til taks í
níu daga á þessu ári
Stóru björgunarþyrlur Landhelgisgæslunnar hafa í tvígang verið óflughæfar á
sama tíma á þessu ári. Forstjóri Gæslunnar segir skerta björgunargetu áhyggju-
efni. Forsvarsmenn sjómanna segja ástandið fullkomlega óásættanlegt.
SKEMMTUN Menntaskólinn í
Reykja vík bar sigurorð af
Menntaskólanum við Hamrahlíð
í úrslitum Gettu betur á laugar-
dagskvöld. Keppnin var æsi-
spennandi og úrslit réðust ekki
fyrr en í síðustu spurningu, þar
sem spurt var um þrjá þjóð-
þekkta rithöfunda og heimkynni
þeirra.
Menntaskólinn í Reykjavík
vann keppnina einnig í fyrra og
hefur nú unnið verðlaunagripinn
Hljóðnemann alls fjórtán sinnum.
Sigurlið MR skipuðu Björn
Reynir Halldórsson, Elías Karl
Guðmundsson og Vignir Már
Lýðsson. - sh
Úrslit réðust í blálokin:
MR sigraði MH
í Gettu betur
SIGURVEGARAR Vignir Már, Björn Reynir
og Elías Karl glöddust mjög þegar úrslit-
in voru ljós. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
VIÐBRAGÐSSTAÐA BJÖRGUNARÞYRLA LHG
14.-19. jan. EIR eina þyrlan v/ brotn-
aði rúða í GNÁ.
23.-25. mars EIR eina þyrlan v/skipt
um gírkassa í GNÁ.
Frá áramótum:
GNÁ 99% í viðbragðsstöðu, 5 dagar,
þar af 2 að hluta til stopp.
EIR 83% í viðbragðsstöðu, 11 dagar
stopp
LIF 6% í viðbragðsstöðu, stopp frá
5. janúar.
Útköll í marsmánuði voru 14 og eru
útköll orðin alls 37 talsins á þessu ári.
Árið 2008:
GNÁ 64% í viðbragðsstöðu, 131
dagar stopp
EIR 67% í viðbragðsstöðu, 121 dagar
stopp
LÍF 92% í viðbragðsstöðu, 28 dagar
stopp
BJÖRGUNAR-
FLUG TF-LÍF,
sem er af Super
Puma gerð, við
togarann Þerney
RE árið 2003.
Myndin er tekin
úr flugvélinni TF-
SÝN sem fylgdi
LÍF í útkallið.
MYND/LHG
MALAVÍ, AP Söngkonan Madonna
yfirgaf Malaví í gær í einkaþotu
sinni eftir að hafa verið neitað
um að ættleiða þriggja ára
stúlku, Chifundo Mercy James.
Yfirvöld í Malaví, sem er eitt
fátækasta land Afríku, fara fram
á að tilvonandi kjörforeldrar
dvelji í landinu í 18 til 24 mánuði
svo hægt sé að meta hæfni þeirra.
Madonna flaug til landsins ein-
ungis nokkrum dögum áður en
mál hennar var tekið fyrir og var
synjað af þeim sökum.
Árið 2006 ættleiddi söngkonan
dreng frá Malaví og fékk hún að
fara með hann til London án tafa.
Lögmaður söngkonunnar segir
þau munu áfrýja úrskurðinum. - rat
Madonna tómhent heim:
Fékk ekki að
ættleiða stúlku
TÓMHENT HEIM Madonna í Malaví. Hún
hyggst áfrýja úrskurðinum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STJÓRNMÁL Vinstrihreyfingin -
grænt framboð hefur birt lista
yfir fjárhag og hagsmunatengsl
frambjóðenda sinna á heimasíðu
flokksins, vg.is.
Um er að ræða upplýsingar um
frambjóðendur í efstu sætum á
framboðslistum flokksins í öllum
kjördæmum.
Alls nær úttektin til 24 fram-
bjóðenda þar sem fram koma
tekjur þeirra, eignir og skuldir,
hlunnindi og hagsmunatengsl við
fyrirtæki, félög eða stofnanir. - shá
VG birtir upplýsingar:
Hagsmunatengsl
birt á heimasíðu
Hjálparstarfsmönnum rænt
Kanadískum manni og franskri konu
var rænt í Darfúr-héraði í Súdan. Fólk-
ið starfaði fyrir Alþjóða læknahjálpina
(International Medical Aid). Engar
kröfur af hálfu mannræningjanna hafa
komið fram.
SÚDAN
DÓMSMÁL Tæplega tvítugur
maður hefur verið ákærður fyrir
brot í opinberu starfi þegar hann
starfaði sem bréfberi hjá Íslands-
pósti.
Manninum er gefið að sök að
hafa í janúar í fyrra skotið undan
bréfum og sendingum sem hann
átti að skila á áfangastað. Bréfin
voru stimpluð sem póstlögð frá 2.
til 15. janúar. Í stað þess að bera
bréfin og bögglana út eða skila
þeim aftur til fyrirtækisins farg-
aði hann þeim í ruslagámi í lok
ágúst sama ár, hálfum áttunda
mánuði síðar.
Málið var þingfest í Héraðs-
dómi Reykjavíkur á föstudag. - sh
Braut af sér í opinberu starfi:
Bréfberi henti
pósti í ruslið
MÓTMÆLI Sjö mótmælendur voru
handteknir við hús Hauks Guð-
mundssonar, forstjóra Útlend-
ingastofnunar, í gær. Þar höfðu
nálega þrjátíu mótmælendur safn-
ast saman til að mótmæla fyrir-
hugaðri brottvísun fimm hælis-
leitenda til Grikklands.
Lögregla hafði töluverðan við-
búnað á staðnum. Þangað mættu
á þriðja tug lögreglumanna,
vopnaðir kylfum og piparúða.
Sjömenningarnir voru handteknir
þegar þeir vildu ekki hlíta tilmæl-
um lögreglu um að yfirgefa svæð-
ið. Ekki kom til átaka svo nokkru
næmi.
Boðað var til mótmælanna á
vefnum. Fólk safnaðist saman
klukkan þrjú í Hamraborg og hélt
þaðan til heimilis Hauks Guð-
mundssonar.
„Við vorum ekki að gera neitt.
Við vorum bara að labba í kring-
um húsið hans,“ segir einn mót-
mælendanna, Hassan Akbri frá
Afganistan, um tildrög handtök-
unnar. Nokkrir mótmælendanna
fóru því næst að lögreglustöðinni
við Hverfisgötu en höfðu sig þar
lítið í frammi að sögn varðstjóra
lögreglu.
Ekki hafði fengist leyfi fyrir
mótmælunum, að sögn lögreglu.
Ekki sé unnt að líða umsátur um
heimili fólks. Málum fólksins var
lokið með sektargerð í gær og því
sleppt úr haldi að því loknu. - sh
Um þrjátíu manns gengu fylktu liði heim til forstjóra Útlendingastofnunar:
Mótmæltu heima hjá Hauki
BÍÐA FÉLAGANNA Nokkrir fóru síðan að
lögreglustöðinni við Hverfisgötu og biðu
þess að félögum þeirra yrði sleppt úr
haldi. FRÉTTABLAÐIÐ / ANTON
GENGIÐ 03.04.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
194,7375
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
118,77 119,33
175,34 176,2
159,52 160,42
21,416 21,542
18,056 18,162
14,734 14,82
1,1885 1,1955
178,1 179,16
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR