Fréttablaðið - 06.04.2009, Page 10

Fréttablaðið - 06.04.2009, Page 10
 6. apríl 2009 MÁNUDAGUR Samfylkingin í Kópavogi Vinna og velferð í Kraganum Atvinnumálin, velferðarmálin, Evrópumálin og allt hitt. Um hvað er kosið? Hver er framtíðin? Hittumst í kvöld 6. apríl og ræðum málin í Hamraborg 11, 3. hæð kl. 20:30. Allir velkomnir! Árni Páll, Katrín, Þórunn, Magnús Orri og Lúðvík Málþing um stóriðjustefnu stjórnvalda í ljósi náttúruverndar, hnattvæðingar og efnahagslegs sjálfstæðis. Mánudaginn 6. apríl, kl. 17–19, á Háskólatorgi, Sæmundargötu 4, stofu 102. Dagskrá: 17.00 Kynning 17.10 John Perkins, höfundur bókarinnar Confessions of an Economic Hitman Economic crisis: Hitmen hit Iceland and the world 18.00 Sigurður Jóhannesson, hagfræðingur What is Iceland´s benefit when dealing with foreign investors? 18.15 Hjálmar Gíslason, framkvæmdastjóri Data Market What does the data tell us? 18.30 Pallborðsumræður 19.00 Fundarlok Fundarstjóri er Kristín Vala Ragnarsdóttir, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs. ALLIR VELKOMNIR VERKFRÆÐI- OG NÁTTÚRUVÍSINDASVIÐ VINNUMARKAÐUR Atvinnulausir geta ekki verið á atvinnuleysisbót- um meðan þeir eru í fullu námi ef námið er lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna, LÍN. Þetta gildir bæði um fjarnám og nám með vinnu eins og hefur til dæmis verið auglýst hjá Bifröst. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir að þegar fólk fari á atvinnuleysisbæt- ur sæki það um vinnu áður en það sækir um bætur. Ef það sé í virkri vinnuleit séu starfsmenn stofnun- arinnar sáttir. Ef þeir séu í námi séu þeir ekki að uppfylla skilyrð- in fyrir bótunum og geti því ekki verið á atvinnuleysisbótum. „Við höfum gert fjöldann allan af náms- samningum, yfir 400, við fólk sem er í einhvers konar námi sem telst hluti af vinnu- leitinni,“ segir Gissur. „Þetta getur verið hluti af starfsnáms- brautum í framhaldsskólanámi eða háskólanámi.“ Ekki er hægt að ljúka stúdents- prófi og vera á atvinnuleysisbótum eða fá námslán. Gissur segir þó að þetta sé einstaklingsbundið mat. „Fólk getur ekki verið í hefð- bundnu bóknámi til stúdentsprófs á atvinnuleysisbótum og held- ur ekki fengið námslán. En nám af þessu tagi getur samt verið að einhverju leyti liður í vinnuleit eða efnisuppbyggingu. Það er þá bara metið með viðtali og yfir- ferð hjá hverjum einstaklingi. Það gæti komið til greina að leyfa við- komandi að klára ef hann ætti til dæmis mjög lítið eftir til að ljúka náminu,“ segir hann. Starfsnám á framhaldsskólastigi er hins vegar lánshæft, þó ekki fyrsti veturinn meðan grunnfögin eru tekin. - ghs GISSUR PÉTURSSON Nemendur í bóklegu framhaldsskólanámi fá hvorki bætur né námslán: Lánshæft nám útilokar bætur SAMGÖNGUR Formaður Evr- ópusamtaka um öryggi vega, John Dawson, gagn- rýndi stjórnvöld í október fyrir að ætla sér að leggja 2 plús 2 veg til Selfoss frá Reykjavík. Nær væri að leggja 2 plús 1 veg, enda væru slíkir vegir þeir öruggustu sem þekkt- ust. Þá væri sú leið miklu ódýrari. Sú leið sem samgönguráðherra kynnti fyrir skömmu að yrði farin verður ýmist 2+2, þar sem tvær akreinar eru í hvora átt, eða 2+1, þar sem ein akrein er í hvora átt og ein aukarein sem nýtist umferðinni sitt á hvað, eftir því í hvora átt er ekið. Þá er mismunandi hve langt er á milli reinanna í hvora átt. Dawson talaði á Umferðarþingi í haust og sagði umferðina um Suð- urlandsveginn þurfa að tvöfaldast til að réttlæta 2+2 veg. Í skýrslu sem Línuhönnun vann áður en ákveðið var að tvöfalda Reykja- nesbraut kom fram að 2+1 vegur hentaði vel fyrir umferðarmagn á bilinu 8 til 22 þúsund bílar á dag. Erlendar rannsóknir sýni að óhappatíðni væri jafnvel lægri en á 2+2 vegi. Umferð um Sandskeið er um 10 þúsund bílar á sólarhring. Hreinn Haraldsson vegamála- stjóri segir að vegtengingar á milli Selfoss og Hveragerðis geri það að verkum að þar sé nauðsynlegt að hafa 2+2 veg. Málið snúist því um hve langt út frá Reykja- vík 2+1 vegurinn mundi ná. Í fyrstu hafi verið gert ráð fyrir að hann næði að Hólmsá, en nú nái hann að Litlu kaffistofunni. Samkvæmt upplýsing- um frá Vegagerðinni er 580 millj- ónum króna dýrara að leggja 2+2 veg frá Hólmsá að Litlu kaffi- stofunni. Þá er ótalinn viðhalds- kostnaður sem liggur ekki fyrir. Vegagerðin telur að 80 milljónum króna dýrara sé að halda við 2+2 vegi yfir Hellisheiði en 2+1 veg. Á það ber þó að líta að meira við- hald er á heiðinni en annars staðar á leiðinni. Hreinn segir það minni kostnaðarmun á leiðunum en gert var ráð fyrir og því hafi verið lagt til að leggja 2+2 veg. Kristján Möller samgönguráð- herra segir að við ákvörðun um tilhögun vegarins hafi verið horft til þess að spara peninga en hafa umferðaröryggi í heiðri. Verið sé að fara ódýrari leið en hingað til hafi verið rætt um. Það sé til marks um hve vel heppnuð leiðin sé hve fulltrúar sveitarfélaga á svæðinu séu ánægðir. kolbeinn@frettabladid.is Mun dýrara að leggja 2+2 veg en 2+1 veg Mun ódýrara er að leggja 2+1 veg en 2+2 líkt og sam- gönguráðherra ráðgerir á Suðurlandsvegi. Evrópsk- ur sérfræðingur mælti með 2+1 vegi enda væru þeir öruggastir. Breikkun mun kosta 15,9 milljarða. JOHN DAWSON SUÐURLANDSVEGUR Gert er ráð fyrir að Suðurlandsvegur verði ýmist 2+2 eða 2+1 vegur. Þá er misjafnt hve langt verður á milli akreinanna. 2+2 vegur er dýrari í lagn- ingu en 2+1 og formaður evrópskra umferðaröryggissamtaka segir 2+1 veg öruggari.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.