Fréttablaðið - 06.04.2009, Page 11
MÁNUDAGUR 6. apríl 2009
HEILBRIGÐISMÁL Hrafnista í
Reykjavík tók á föstudaginn
í notkun tuttugu skammtíma-
hvíldarrými með endurhæfingu
og þrjátíu dagvistarrými með
endurhæfingu. Rýmin eru ætluð
skjólstæðingum heimahjúkrunar
á öllu höfuðborgarsvæðinu og á
Landspítala.
Á Hrafnistu hefur herbergjum
verið fækkað og þau stækkuð
og gerð að einbýlum. Vegna
þessa geta faglegar stoðdeildir
Hrafnistu, svo sem iðjuþjálfun
og sjúkraþjálfun, tekið að sér
aðhlynningu þeirra sem nýta sér
þá þjónustu. Skammtímarými
með endurhæfingu og dagvist
með endurhæfingu hafa ekki
verið áður í boði hjá Hrafnistu í
Reykjavík. - shá
Hrafnista í Reykjavík:
Tvær nýjar
deildir opnaðar
HRAFNISTA Nú er boðið upp á aukna
þjónustu hjá Hrafnistu í Reykjavík.
MEXÍKÓ, AP Stjórnvöld í Bandaríkj-
unum og Mexíkó ætla að koma
upp sameiginlegri landamæra-
vörslu sem ætlað er að reyna að
stöðva ólöglegan eiturlyfja- og
vopnaflutning á milli landanna.
Meðal þeirra aðgerða sem stjórn-
völd grípa til er að gera leit í að
minnsta kosti einum tíunda allra
bíla sem fara yfir landamærin.
Að sögn mexíkóskra stjórn-
valda verður bílaleitin hluti af
áætlun í baráttunni gegn glæpa-
samtökum sem mun kosta mex-
íkóska ríkið um 1,4 milljarða
dollara. Á síðasta ári létust 6.300
manns í átökunum við eiturlyfja-
hringi í Mexíkó. - kh
Mexíkó og Bandaríkin:
Sameina eftirlit
í eiturlyfjastríði
PAKISTAN, AP Skæruliðar, vopnaðir
byssum og bensínsprengjum,
réðust á skipastöð á jaðri Per-
shawar-borgar í Pakistan fyrir
helgi. Fimm skipagámar, fullir
af vistum sem áttu að berast
herjum Sameinuðu þjóðanna og
NATO í Afganistan, skemmdust í
árásinni.
Alþjóðaherir í Afganistan
flytja allt að 75 prósent vista
sinna í gegnum Pakistan. - kg
Herir SÞ og NATO:
Skæruliðar réð-
ust á skipastöð
4
10
4
0
0
0
|
l
an
ds
ba
nk
in
n.
is
135 / BÆJARHRAUN