Fréttablaðið - 06.04.2009, Page 13
MÁNUDAGUR 6. apríl 2009
GENF, AP Sameinuðu þjóðirnar
hafa ákveðið að dómari frá
Suður-Afríku, sem er gyðingur,
muni leiða
umfangsmikla
rannsókn á
meintum stríðs-
glæpum Ísraela
á Gasaströnd-
inni.
Dómarinn,
sem heitir
Richard Gold-
stone, hefur
rannsakað
stríðsglæpi í löndum á borð við
gömlu Júgóslavíu og Rúanda.
Rannsakendur munu eingöngu
beina sjónum sínum að palest-
ínskum fórnarlömbum í þriggja
vikna stríði sem geisaði á milli
Ísraela og Hamasliða fyrr á
þessu ári. Ísraelar hafa neitað að
starfa með rannsóknarhópnum.
Auk Goldstones mun breskur
mannréttindaprófessor, pakist-
anskur lögfræðingur og fyrrver-
andi yfirmaður í írska hernum
skipa rannsóknarhópinn. - kh
Rannsókn á vegum SÞ:
Gyðingur rann-
saki stríðsglæpi
á Gasasvæðinu
RICHARD J.
GOLDSTONE
SVEITARSTJÓRNIR Bæjarfulltrúar
Álftaneslistans hafa ákveðið að
samgönguráðuneytið muni skera
úr um hvort Kristján Sveinbjörns-
son, fyrrverandi forseti bæjar-
stjórnar, megi taka sæti sitt í
bæjarstjórn aftur.
Kristján, sem í desember sagði
af sér embætti forseta bæjar-
stjórnar og dró sig í hlé sem bæjar-
fulltrúi, tilkynnti um miðjan mars
að hann hygðist gerast bæjarfull-
trúi aftur enda hefði brotthvarf
hans ekki skapað þann frið í
bæjarstjórn sem hann hefði von-
ast eftir. Kristján samþykkti
ákvörðun félaga sinna um að láta
ráðuneytið skera úr um málið. - gar
Bæjarfulltrúi sem dró sig í hlé:
Ráðuneyti meti
endurkomuna
JERÚSALEM, AP Ísraelska dagblaðið
Yated Neeman, sem birti ljós-
mynd af nýrri ríkisstjórn Ísra-
els í gær, fjarlægði kvenkyns
meðlimi ríkisstjórnarinnar af
myndinni með aðstoð tölvu-
tækni. Lesendahópur blaðsins
samanstendur að mestu af bók-
stafstrúargyðingum.
Þær Limor Livnat og Sofa
Landver eru einu kvenkyns ráð-
herrarnir í nýrri ríkisstjórn
landsins. Bókstafstrúuð dagblöð
í Ísrael telja ósiðlegt að birta
ljósmyndir af konum. Talsmenn
blaðsins hafa ekki viljað tjá sig
um málið. - kg
Ljósmynd af ríkisstjórn Ísraels:
Konur fá ekki
að vera með
4
10
4
0
0
0
|
l
an
ds
ba
nk
in
n.
is
152 / SELFOSS