Fréttablaðið


Fréttablaðið - 06.04.2009, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 06.04.2009, Qupperneq 16
16 6. apríl 2009 MÁNUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRI: Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is og Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. RITSTJÓRAR: Jón Kaldal jk@frettabladid.is og Þorsteinn Pálsson thorsteinn@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Ví heftú kill somþíng!“ sagði hann kátur við sænska sjón- varpsmanninn í þættinum um makrílveiðar og rányrkju Íslend- inga á þeim fiski. Svo skaut hann svífandi fugl og hamfletti hann á staðnum með fumlausum hand- tökum – mikið að hann stýfði fuglinn ekki úr hnefa líka. Þetta kom víst ekki alveg nógu vel út. Samt var hann bara þarna á bátnum sínum að sýna útlend- ingnum austfirsku dýrðina – fjöllin, himininn, hafið, fuglana og manninn: einingu þessa alls. Hann var að sýna útlendingnum að þetta væri Lífið; hér væri allt sem einn karlmaður þyrfti – hér væri hann kóngur. „Ví heftú kill somþíng,“ sagði hann kampakátur því nú átti að kóróna þessa dýrðar- stund og sýna hvernig maður þyrfti ekki nema lyfta byssunni og miða vel og þá væri komin björg í bú. Hann var að sýna sig: sýna útlendingnum veiðimann í sínu náttúrulega umhverfi – íslenskt náttúrubarn, frum- Íslendinginn sem lifir á landsins gæðum, nýtir gjafir náttúrunnar. Hann var að leika Íslending. Það örlaði á ofleik en þó fór ekki á milli mála að hann ímynd- aði sér að hann væri öfundsverð- ur; gott ef ekki sjálfur draumur allra karlmanna, hann væri frjáls og lífið væri samfelldur veiði- skapur sem líður trallala frá einni bráð til annarrar. Sænski sjónvarpsmaðurinn sá hins vegar aðra sögu. Hann sá bara verksmiðjustjórann í fiski- mjölsverksmiðjunni. Hann sá holdgerving óskynsamlegrar stundarnýtingar – þeirrar iðju að moka upp ólöglega dýrmætum matfiski og búa til úr honum ódýrt hráefni handa eldislaxi. Hann sá rányrkjugreifa sem getur ekki ódrepandi verið – getur ekki farið á fögrum degi út á sjó án þess að þurfa að plaffa á saklaust fuglsgrey, friðlaus af drápsfýsn. Hann sá Íslendinginn eins og þjóðir Evrópu gera. Hann sá íslenska karlmanninn sem hálf- sturlaður óð frá einni bráð til annarrar, eins og fullur kall á balli. Allt er hér í samhengi: Icesave-reikningarnir voru rán- yrkja á sparifé almennings í Evrópu. Kaupin á grónum fyrir- tækjum annarra samfélaga – fjármögnuð með glórulausum lánum sem íslenska þjóðin þarf að greiða – voru rányrkja á verð- mætum. Hömlulaust athæfi hálfsturlaðra manna. Ví heftú kill somþíng: Makríl – sparifé – múkka. (Eða bara Jöklu: Kárahnjúka- virkjun var reist með því að veita svo miklu af henni í Lagarfljót að báðar árnar stórspillast og framburður Jöklu hættir að fara til hafs með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir okkar gjöfulu fiskimið, svo fyllist lónið um síðir og landinu er spillt til einskis. ) Frá einni bráð til annarrar. Kannski er ofmælt að kalla Ísland veiðimannasamfélag, því að slík samfélög byggjast á sjálfbærri nýtingu á náttúrunni. Íslendingar hafa hins vegar ýmis einkenni hirðingjasamfélaga sem setja niður búðir sínar með búsmala sinn á gróna staði til bráðabirgða, beita skepnum sínum á landið uns þrautnagað er, halda svo af stað á nýjar lendur. Sumt í búsetuháttum Íslendinga bendir til að þeir séu alltaf á leiðinni eitthvert annað. En á meðan verður að drepa eitthvað – bara eitthvað. Allavega „ðe fokking veils,“ eins og maður- inn í myndinni sagði: hvalir eru orðnir tákn þess sem bara hrein- lega verður að drepa. Stundum gæti maður haldið að hvalir séu erfðafjendur Íslendinga, og frá- sagnir af gegndarlausu fiskáti þeirra eru slíkar að maður skilur eiginlega ekki hvernig þorskur- inn – sem er ekki skepna skýr – fór eiginlega að því að lifa öll þessi árþúsund þegar engar hval- veiðar voru hér við land. Og nú er tekist á um langreyð- ar og hrefnur. Á að halda áfram rányrkjunni og hneyksla þjóðir heims – eða nýta þekkinguna á þeim með túrisma? Því miður virðist stjórnkerfið ætla að leysa málin með því að leyfa öllum allt. Það er ekki hægt. Hvalaskoðun hefur á undanförnum árum gjörbreytt ásýnd þeirra staða þar sem hún er stunduð: það er magnað að koma til Húsavíkur og sjá uppbygginguna sem orðið hefur við höfnina kringum þenn- an geðfellda atvinnuveg – fyrir utan hitt, að slíkur leiðangur er ógleymanleg upplifun. Hval- veiðar gegna hins vegar fyrst og fremst táknrænu hlutverki. Eru partur af því að leika hinn þver- móðskufulla Íslending: heyra má ég erkibiskups boðskap en ráðinn er ég í að hafa hann að engu – og allt það. Þó að til séu karlmenn sem af einbeittri hugsjón og karl- mennsku þræla í sig þessu þurra og óspennandi kjöti þá verður slíkt át ævinlega jaðarsport en þó varðar hitt mestu að hvalveið- ar eru eitt megintákn þeirrar íslensku rányrkju sem Evrópa vill aldrei aftur sjá. Okkur ber nefnilega engin skylda til að drepa neitt. Við hvetjum þig til að standa vörð um viðbótarlífeyrissparnaðinn þinn. Kynningarfundur mánudaginn 6. apríl kl 17:15 í fundarsal Maður lifandi, Borgartúni 24. Hvar er þinn Auður? 585-6500 audur.is Allir velkomnir Ó hætt er að segja að Barack Obama, hinn nýi forseti Bandaríkjanna, hafi staðizt mikilvæga prófraun á þeim fjölþjóðlegu leiðtogafundum sem hann hefur sótt í Evrópu undanfarna daga. Einkum og sér í lagi á þetta við um 60 ára afmælisleiðtogafund Atlants- hafsbandalagsins, sem haldinn var við Rínarfljót á landamærum Frakklands og Þýzkalands. Leiðtogar evrópsku NATO-ríkjanna – þar á meðal Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra sem var staðgengill Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra – tóku fagn- andi nýrri stefnu Bandaríkjaforseta í málefnum bandalagsins, þar með talið varðandi stríðsreksturinn í Afganistan. Sá nýi tónn sem Obama hefur fært samstarfinu yfir Atlants- haf glæðir NATO nýju lífi. Það er ekki hægt að neita því að í valdatíð fyrirrennara Obama, George W. Bush, hafi samstarfið milli bandamanna sínu hvoru megin Atlantsála látið mjög á sjá. Evrópumenn bundu því miklar vonir við stjórnarskiptin vestra, en þeir óttuðust jafnframt að hinn tiltölulega reynslulitli Obama gæti ekki staðið undir þeim gríðarmiklu væntingum sem til hans væru gerðar. Þess vegna var leiðtogafundurinn í Strassborg mikil prófraun – sem Obama virðist hafa staðizt með glans. Ekki svo að skilja að hann hafi fengið allt sitt fram – áskorun hans til evrópsku banda- mannanna um að fara að fordæmi Bandaríkjamanna og stórfjölga í NATO-herliðinu í Afganistan fékk ekki mikið betri móttökur í raun en slíkar áskoranir frá ráðamönnum í Washington hafa feng- ið hingað til. En burtséð frá þeim óútkljáða grundvallarágreiningi virðist samráðið yfir Atlantshaf vera komið í samt lag eftir það tjón sem „einleiksæfingar“ Bush-stjórnarinnar ollu því. Meira að segja Frakkar eru gengnir aftur að fullu til liðs við hernaðar- stjórnkerfi bandalagsins, sem þeir yfirgáfu fyrir 43 árum þar sem þeir vildu ekki lúta forystu Bandaríkjamanna í því kerfi. Þetta vekur vonir um að Atlantshafsbandalagið finni aftur takt- inn og verði á ný sá öflugi vettvangur vestræns samstarfs sem metnaður þess stendur til og er fær um að stuðla að stöðugleika og friði í heiminum. Því að það blasir við að sé NATO ekki fært um að gegna slíku hlutverki nú þegar kalda stríðið er löngu að baki þá tapar það tilvistartilgangi sínum. Ísland, sem herlaust stofnríki þessa bandalags, á mikið undir því að NATO viðhaldist sem slíkur vettvangur samstarfs, sam- ráðs og stöðugleika. Að danskur stjórnmálamaður sem þekkir mjög vel til Íslands og íslenzkra öryggismála skuli á þessum tíma- mótum taka við hinu áhrifamikla embætti framkvæmdastjóra bandalagsins eykur á vonina um að svo megi verða. Atlantshafsbandalagið sextugt: Bætt NATO með Obama og Fogh AUÐUNN ARNÓRSSON SKRIFAR Ísland, sem herlaust stofnríki þessa bandalags, á mikið undir því að NATO viðhaldist sem slíkur vettvangur samstarfs, samráðs og stöðugleika. GUÐMUNDUR ANDRI THORSSON Í DAG | Veiðar Íslendinga „Ví heftú kill somþíng!“ Elliðaánum engin virðing sýnd UMRÆÐAN Sverrir Örn Gunnarsson skrifar um umhverfismál Með þessari grein vill undirritaður vekja athygli á ákvörðun borgarráðs um deiliskipulag við Elliðaárnar. Ákvörð- un borgarstjóra og borgarráðs fólst í því að fara eftir „sérfræðingum borgarinn- ar“ við að samþykkja deiliskipulag fyrir hesthúsabyggð fyrir allt að 600 hross á árbökkum í einu tæru laxveiðiánni í heiminum sem staðsett er í miðri höf- uðborg. Þessi ákvörðun er í besta falli óskiljanleg, það þarf ekki sérfræðinga til að sjá að þetta getur ekki talist góð ákvörðun fyrir vatnasvæði Elliðaánna, eða hvað? Ýmsir aðilar gerðu athugasemdir við breytingu skipulagsins, meðal annars umhverfis- og sam- göngusvið Reykjavíkurborgar, Veiðimálastofnun og SVFR. Þegar aðili innan borgarkerfisins, umhverf- issvið, gerir athugasemdir við ákvörðunina, hverj- ir eru þá sérfræðingarnir sem mæla með þessari ákvörðun? Svona stórt mál þarf að vera vel kynnt og uppi á borðum. Hvernig væri að borg- arstjóri gerði grein fyrir helstu niður- stöðum sérfræðinganna, til dæmis með einfaldri SVÓT (styrkleikar, veikleikar, ógnanir og tækifæri) greiningu fyrir okkur Íslendinga, sem myndi sýna með óyggjandi hætti hvað var tekið til greina við þessa ákvörðun? Til að setja málið í samhengi er áætl- aður fjöldi hesta svipaður á þessu nýja svæði og allt hesthúsahverfið á Akra- nesi, um 500 hross. Einnig er undarlegt hversu lítið hefur farið fyrir náttúruverndarsinnum þegar um jafn stórt umhverfismál og þetta er að ræða. Borgarstjórinn í Reykjavík, sem er kraftmikill og öflugur leiðtogi, hlýtur að geta gert betur grein fyrir þessu máli. Það væri farsælast fyrir alla aðila. Höfundur er áhugamaður um umhverfismál. SVERRIR ÖRN GUNNARSSON Gísling Frjálslyndra Guðrún María Óskarsdóttir, sem bauð sig fram til formennsku í Frjáls- lynda flokknum fyrr á árinu en dró framboð sitt síðan til baka, er gengin úr flokknum. Hún fetar þar með í fót- spor nánasta pólitíska samherja síns, Ásgerðar Jónu Flosadóttur, sem hætti sem varafor- maður flokksins fyrir skemmstu eftir afar stutta dvöl í embætti. Í viðtali við dv.is segir Guðrún María ólýðræðislegum vinnubrögð- um um að kenna. Hún hefði hætt fyrr, en verið í þriggja vikna gíslingu þess að vera í framboði fyrir flokkinn. Gísling málþófs Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, er óánægður með málgleði sjálfstæðis- manna á Alþingi. Í fréttum Útvarps á laugardag sagði hann að stæði minnihlutanum ógn af því að ráðast ætti í lýðræðisumbætur á Íslandi skyldi hann takast á við það í kosningum í stað þess að halda þinginu í gíslingu með málþófi. Gísling Kaupþings Margeir Pétursson, stjórnarformaður MP Banka, skrifar grein í Morgun- blað gærdags- ins þar sem hann gagnrýnir Nýja Kaupþing fyrir að standa í vegi fyrir kaupum MP Banka á útibúaneti SPRON. Hann segir Kaupþingsmenn brjóta leikregl- ur á samkeppnismarkaði með því að reyna að „halda gömlum viðskipta- vinum SPRON í einhvers konar gíslingu“. Líklega er hins vegar ekki óvarlegt að tala um að íslensku þjóðinni sé um þessar mundir haldið í einhvers konar gíslingu ófrumlegs líkingamáls. stigur@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.