Fréttablaðið - 06.04.2009, Page 36

Fréttablaðið - 06.04.2009, Page 36
24 6. apríl 2009 MÁNUDAGUR folk@frettabladid.is > ÓSÁTT KYNTÁKN Megan Fox segist ekki þola að vera álitin kyntákn. Leikkonan, sem er reglulega kosin kynþokka- fyllsta kona heims, vill vera þekkt fyrir leik sinn frekar en útlit sitt. Í við- tali við tímaritið Empire segir hún að það sé ómögulegt að vera kyntákn allan sólahringinn. Hún segist ekki vilja vera á forsíðu hvers einasta tímarits heldur taka skynsamlegar ákvarðanir á ferli sínum og þroskast sem leikkona. Jóhann Jóhannsson er á leiðinni í sína fyrstu tónleikaferð um Bandaríkin í júní undir eigin nafni. Á meðal viðkomustaða er safn listamannsins fræga Andy Warhol í Pittsburgh. „Þetta er spennandi. Þetta er búið að standa lengi til og það er frábært að þetta hafi allt smollið saman svona tímalega og gengið upp,“ segir Jóhann, sem hefur áður ferðast um Bandaríkin með Apparat Organ Kvartett og öðrum sveitum. Með honum í för verða Matthías Hemstock og strengjakvartett frá New York. Tónleik- arnir verða sex talsins, aðallega í leikhúsum, kirkjum og söfnum, þar á meðal í Andy War- hol-safninu í Pittsburgh, heimaborg lista- mannsins fræga. „Ég held að þetta séu hans Kjarvalsstaðir. Þetta er virt stofnun,“ segir hann um Warhol-safnið. Mestmegnis verða spiluð lög af nýjustu plötu Jóhanns, Fordlandia, sem var kjörin plata ársins í flokki sígildrar og nútímatónlistar á Íslensku tónlistar verðlaununum. Fimm tón- leikar eru einnig fyrirhugaðir í Evrópu í apríl og maí og verða þeir fyrstu á Domino-hátíðinni í Brussel 8. apríl. Einnig spilar Jóhann á Dur- ham-brasshátíðinni í Englandi 14. júlí ásamt tuttugu manna brasssveit frá Englandi. „Þeir báðu mig um að semja verk fyrir festivalið sem er reyndar líka bíómynd. Það er samstarf milli mín og amerísks kvikmyndagerðar- manns, Bill Morrison,“ segir Jóhann. „Hann sérhæfir sig í að vinna með gömul myndasöfn og notar gjarnan gamla filmubúta sem eru að detta í sundur.“ Fleiri verk eru í vinnslu hjá Jóhanni og má þar nefna tónlist við mexíkósku bíómyndina By Day and by Night eftir leikstjórann Alej- andro Molina og tónlist við dönsku heimildar- myndina Dage i København eftir Max Kest- ner. „Þetta er ljóðræn sýn á Kaupmannahöfn með áherslu á byggingarnar og arkitektúrinn,“ segir hann um myndina. „Kestner hefur mjög ljóðrænan og heimspekilegan stíl og er einn af þessum mest spennandi ungu leikstjórum í Danmörku.“ Það er því ljóst að þessi fjölhæfi tónlistar- maður mun hafa í nógu að snúast á næstunni við tónlistarsköpun sína. freyr@frettabladid.is SPILAR Í ANDY WARHOL-SAFNI JÓHANN JÓHANNSSON Tónlistarmaðurinn Jóhann Jóhannsson er á leið í sína fyrstu tónleikaferð um Bandaríkin undir eigin nafni. Leona Lewis hefur nú fengið Timbaland til liðs við sig við upptökur á nýrri plötu. Samkvæmt vef- miðlum vestan- hafs er Timba- land sagður eiga að breyta tónlistarstefnu söngkonunnar, en hann er einn eftirsóttasti upptökustjóri heims. Hann er sagður vilja gefa ballöð- um hennar nýtt yfirbragð. Sak- leysislegt yfirbragð Leonu mun því að öllum líkindum fá að víkja fyrir djarfari dívu í líkingu við Rihönnu og Beyoncé. Auk þessa hafa rapparinn Jay- Z og söngvarinn Justin Tim- berlake sóst eftir að vinna með henni. Vinnur með Timbaland LEONA LEWIS Efnahagsvandi íslenskra heimila hlýtur að teljast alvarlegur, þegar 42% heimila eru með neikvæða eða afar takmarkaða eiginfjárstöðu (tekið er mið af fasteignamati um síðustu áramót). Verði ekki gripið til fyrirbyggjandi aðgerða er líklegt að heimilum með neikvæða eiginfjárstöðu fjölgi verulega. Um 80% heimila eru með gengis- eða verðtryggð veðlán vegna fasteigna og eru því meirihluti kjósenda. Heimilin eiga rétt á skýrum svörum um afstöðu fl okkanna til lánamála þegar þau ákveða hvernig þau verja atkvæðum sínum á kjördag þann 25. apríl nk. falla með heimilunum? Heimild: Áhrif fjármálakreppu á efnahag heimila - bráðabirgðaniðurstöður starfshóps Seðlabanka Íslands 11. mars 2009 Hvað ætlar þinn fl okkur að gera til að: Leiðrétta gengis- og verðtryggð veðlán heimilanna? Hvernig ætlar hann að gera það og hvenær? Leysa brýnan vanda vegna gengistryggðra veðlána? Hvernig ætlar hann að gera það og hvenær? Leysa ört vaxandi vanda vegna verðtryggðra veðlána? Hvernig ætlar hann að gera það og hvenær? Jafna stöðu og ábyrgð milli lántakenda og lánveitenda veðlána? Hvernig ætlar hann að gera það og hvenær? Svör við þessum spurningum verða birt hér í blaðinu 20. apríl n.k. Hagsmunasamtök Heimilanna Skráðu þig strax í dag í samtökin á heimasíðunni www.heimilin.is Lætur þú atkvæði þitt Forsendur gengis- og verðtryggðra lánasamninga eru brostnar. Ýmislegt bendir til þess að lánastofnanir hafi á undanförnum árum stuðlað með beinum hætti að óeðlilegum hækkunum á höfuðstóli gengis- og verðtryggðra lána. Slíkt hefur gerst í gegnum gengishrun krónunnar með tilheyrandi verðbólguskoti. Stjórnvöldum ber að leiðrétta tafarlaust þá eignaupptöku sem þar á sér stað. 2 3 4 1 Úrslit réðust í Músíktilraunum í Hafnar- húsinu á laugardagskvöld. Besta hljóm- sveitin þetta árið var valin skagfirska rokkrappsveitin Bróðir Svartúlfs. Í öðru sæti varð einsmannsveitin Ljósvaki og í því þriðja hljómsveitin The Vintage. Hljómsveitin Blanco var kjörin hljómsveit fólksins. Að vanda voru einnig veitt einstaklings- verðlaun á Músíktilraunum. Að þessu sinni var Óskar Logi Ágústson úr The Vintage kjörinn besti gítarleikarinn, Jón Atli Magn- ússon í Bróður Svartúlfs var besti bassa- leikarinn og Bergur Einar Dagbjartsson úr Flawless Error besti trommarinn. Almar Freyr Fannarsson úr Earendel var valinn besti söngvarinn og Leifur Eiríksson úr Ljósvaka besti forritarinn. Þá fékk Arnar Freyr Frostason úr Bróður Svartúlfs viðurkenningu fyrir textagerð á íslensku. Bróðir Svartúlfs vann Músíktilraunir STOLTIR SIGURVEGARAR Strákarnir í Bróður Svartúlfs eru sigurvegarar Músíktilrauna árið 2009. Þeir eru úr Skagafirði og spila rokkrapp. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.