Fréttablaðið - 06.04.2009, Síða 46

Fréttablaðið - 06.04.2009, Síða 46
34 6. apríl 2009 MÁNUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 HVAÐ SEGIR MAMMA? LÁRÉTT 2. þjaka, 6. þys, 8. sunna, 9. atvikast, 11. tveir eins, 12. skjálfa, 14. steintegund, 16. tónlistarmaður, 17. aska, 18. stansa, 20. bókstafur, 21. gort. LÓÐRÉTT 1. löngun, 3. í röð, 4. planta, 5. fiskur, 7. möttull, 10. skammstöfun, 13. fljótfærni, 15. baklaf á flík, 16. hug- fólginn, 19. tvíhljóði. LAUSN LÁRÉTT: 2. hrjá, 6. ys, 8. sól, 9. ske, 11. ll, 12. titra, 14. kvars, 16. kk, 17. sót, 18. æja, 20. sé, 21. raup. LÓÐRÉTT: 1. lyst, 3. rs, 4. jólarós, 5. áll, 7. skikkja, 10. etv, 13. ras, 15. stél, 16. kær, 19. au. Nýjasta tískulögga landsins, Karl Berndsen, getur verið nokkuð sátt þessa dagana. Samkvæmt nýjustu mælingu Capacent Gallup er þátt- urinn hans, Nýtt útlit, sá vinsælasti á Skjáeinum. Ekki nema von að Snorri Ásmundsson hafi vísað til Karls í aprílgabbi sínu eins og frægt er orðið. Það sem vekur einnig nokkra athygli er að viðtals- þáttur Sölva Tryggvason- ar, Spjallið, virðist ekki hafa hlotið náð fyrir augum áhorfenda Skjá- seins þrátt fyrir að gestir hans hafi verið athyglisverðir að undanförnu. Og ögn meira af fjölmiðlum. Sigrún Stefánsdóttir, dagskrár- stjóri Rásar 1 og 2, sagði í samtali við Fréttablaðið á laugardaginn að vegna fjölda áskorana, meðal annars á Facebook, hefði hún end- urskoðað ákvörðun sína um að slá af spurningakeppni fjölmiðlanna. Þetta vakti óneitanlega athygli því samkvæmt þessari ágætu samskiptabók höfðu rúmlega sex hundruð skrifað undir slíka áskor- un. Þetta er „aðeins“ minna en hjá þeirri síðu sem vildi söngkeppni Fram- haldsskólanna á RÚV því þeir voru orðnir, samkvæmt síðustu mælingum, rúmlega níu þúsund. Erpur Eyvindarson slær ekki slöku við og hefur sent frá sér myndband við nýtt lag sem ber hið skemmti- lega heiti Lýríski jónumangarinn. Aðalleikari myndbandsins er eng- inn annar en Amitabh Buchanan, indverska stórstjarnan. Reyndar er myndbandið brot úr kvikmynd kappans sem heitir Coolio og þar er Amitabh í hlut- verki marxísks stéttleysingja, sem hefur aug- ljóslega kveikt í hinum pólitíska Erpi. - fgg FRÉTTIR AF FÓLKI „Fyrir jól voru tæplega 500 manns í Prjónajónu, en um tvö þúsund hafa bæst við síðan þá,“ segir Jóna Svava Sigurðardóttir um prjóna- klúbbinn Prjónajónu sem hún stofnaði á Facebook fyrir um einu ári. Ríflega 2.600 félagar eru nú í hópnum sem deila sameiginlegum áhuga sínum á prjónaskap í máli og myndum. „Það er rosalegur áhugi á prjónaskap og það var mikið talað um það í fréttum þegar kreppan kom. Ég held að það sé mjög hollt fyrir mann að prjóna, það er svo gott fyrir sálina. Ég ólst upp við þetta því mamma var einu sinni að prjóna fyrir Álafoss svo hún fékk ekki frið fyrr en ég fékk prjóna, fimm ára gömul. Amma og lang- amma voru líka rosalegar hann- yrðakonur svo þetta er mér í blóð borið,“ segir Jóna Svava, sem er heimavinnandi um þessar mund- ir og segist því hafa nægan tíma fyrir prjónaskapinn. Sjálf hefur hún prjónað heimferðarsett fyrir ungabörn um árabil eftir pöntunum. „Þetta er svo skemmtilegt form því á síðunni geta allir sýnt hvað þeir eru að gera. Það hrúgast inn myndir frá fólki af því sem það hefur gert og það er gaman að sjá fjölbreytileikann,“ segir Jóna, sem þýddi nýverið enska uppskrift af svokallaðri Pinwheel-peysu, eða hringpeysu, sem hefur slegið í gegn. Aðspurð segist Jóna hafa tekið eftir því að garn hafi hækkað í kjölfar kreppunnar. „Vissar teg- undir af garni hafa hækkað mikið, svo sem Lanett-garn og einband. Það fer samt mikið eftir búðum og það fer eftir tegund af garni hvort þú sparar með því að prjóna flík sjálfur.“ - ag Prjónaæði í kreppunni GOTT FYRIR SÁLINA Jóna Svava Sigurð- ardóttir er stofnandi Facebook-hópsins Prjónajónu þar sem ríflega 2.600 félagar deila áhuga sínum á prjónaskap. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN GLÆSILEGUR AFRAKSTUR Handverk Jónu Svövu er ekki amalegt. „Við vildum nostra aðeins meira við hana og erum því hættir við að frumsýna á Cannes-hátíðinni. Þeir vildu fá okkur en við ætlum að vera með allt á hreinu,“ segir Ingvar Þórðarson, framleiðandi kvik- myndarinnar Reykjavik Whale Watching Massacre. Eins og kom fram í fjölmiðlum undir lok síðasta árs stóð til að þessi bátahrollvekja yrði frumsýnd með mikilli við- höfn undan ströndum Mið- jarðarhafsins á frönsku Rivíerunni. Ingvar segir fag- mannlegar ástæður liggja að baki þessari ástæðu, myndin eigi ekki að vera nein hrákasmíð held- ur ætli þeir að huga að hverju smáatriði. Leik- stjóri myndarinnar er Júlíus Kemp en með helstu hlutverk fara Helgi Björnsson, Gunnar Hansson og fleiri. Og til þess að allt sé nú örugglega pottþétt hefur félögunum borist góður liðstyrkur. Valdís Óskarsdóttir, verðlauna- klippari með meiru, hefur samþykkt að renna yfir lokaeintak myndarinnar. „Hún er í Danmörku núna og við erum bara að bíða eftir að hún komi heim svo hún geti kíkt á þetta fyrir okkur,“ segir Ingvar en Valdís er að klippa kvikmynd danska leikstjórans Thomasar Winterberg. R.W.W.M fjallar um hóp erlendra ferðamanna sem halda í hvalaskoðun. Sú ferð á eftir að reynast örlagarík því skipstjórinn deyr og eng- inn getur komið til bjargar nema hópur fólks sem er fremur illa við hvalaskoð- unarferðir. - fgg Hættu við að frumsýna í Cannes VALDÍS HJÁLPAR Ingvar Þórðarson hefur feng- ið Valdísi Óskarsdótt- ur verðlaunaklippara til að renna yfir mynd sína. „Fólk þarf oftast ráðgjöf vegna vandræða með samband sitt og annarra fjölskyldumeðlima við fuglinn. Við förum þá í gegnum æfingar og ég reyni að styrkja tengsl milli páfagauksins og heimilisfólks. „Í þessari viku fer ég til að mynda á heimili þar sem fuglinn er afar hrifinn af stelpu á heimilinu en vill ekki sjá kær- astann hennar,“ segir Díana Lind Monzon páfagaukaráðgjafi en hún hefur síðastliðin ár aðstoðað fólk með stærri og smærri páfa- gauka. Algengara er þó að hún fari í vitjanir vegna stærri fuglanna. „Þetta byrjaði með því að í kringum árið 2000 var ég komin með ofnæmi fyrir þeim dýrum sem ég var vön að eiga, köttum, og fékk mér því fugla. Ég fór að lesa mér til og var smám saman orðin mjög flink með þá. Áður en ég vissi af var ég því farin að skrifa greinar og ráðleggja öðrum fuglaeigend- um. Ég varð mér úti um Certified Avian Specialist-námskeið sem ég gat tekið á netinu og ég fór svo til Flórída og fékk að fylgjast með á stofu hjá dýralækni sem sérhæfir sig í fuglum.“ Díana Lind segir að símtöl og vitjanabeiðnir komi í bylgj- um. Vandamálin geta verið af ýmsum toga þótt samskiptavand- inn sé algengastur. „Fuglarnir eru mjög næmir á líkamstjáningu og skynja um leið ef fólk er hrætt eða óöruggt. Einnig skiptir máli hvar búrið er staðsett, þeir eru kannski hafðir í búri frammi á gangi og fjölskyldan er mest inni í stofu. Þá geturðu setið uppi með fugl sem er að garga og kalla á fólk og enginn skilur í þessum látum. Þá er hann bara að reyna að ná sambandi,“ segir Díana en hún ráðleggur einn- ig með mataræði og snyrtir jafn- vel fugla. „Oft eru þeir uppþembd- ir og árásargjarnir vegna þess að þeir eru á of orkuríku fóðri og geta ekki brennt matnum. Þá eru þeir eins og börn í sykursjokki í barna- afmælum.“ juliam@frettabladid.is DÍANA LIND MONZON: HJÁLPAR FÓLKI AÐ MYNDA TENGSL VIÐ PÁFAGAUKA ALGENGT AÐ PÁFAGAUKAR GERI UPP Á MILLI FÓLKS „Mér fannst erfitt að sjá á eftir henni sextán ára gamalli en ég er mjög stolt af henni og finnst hún eiga þetta svo sannarlega skilið. Þetta kom mér ekkert á óvart, og aðallega af því að hún er svo mikill vinnuþjarkur og ofboðslega sjálfstæð.“ Harpa Helgadóttir, móðir Lilju Rúriksdótt- ur dansara sem komst inn í Juilliard-lista- háskólann í New York. PÁFAGAUKARÁÐGJAFI Í NJARÐVÍK Díana Lind býr í Njarðvík og á sjálf fimm fugla. Hún er með sérstakt fuglaherbergi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Faxafeni 12 (2. hæð), 108 Reykjavík LAGERSALA 3 dagar eftir KRAKKAR: Pollajakkar Pollabuxur Flíspeysur 1.500 - Bolir 2 fyrir 500 kr. DÖMUR & HERRAR: Öndunarjakkar 6.000-10.000 kr. Öndunarbuxur Flíspeysur 4.000- Buxur Stuttbuxur Vindstakkur Regnkápur/jakkar 2.000 kr. Opnunartímar: Mán til mið: 9-18 íslensk hönnun og handverk Strandgötu 43 | Hafnarfirði Sími 565 5454 | www.fridaskart.is VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8 1 1949. 2 Margeir Pétursson. 3 1949.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.