Lesbók Morgunblaðsins - 15.12.2007, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2007 7
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@gmail.com
Það var fyrir löngu orðið tíma-bært að hin eina sanna sál-
ardrottning samtímans, Erykah
Badu, sem er ósnertanleg í sval-
heitum, snaraði út nýrri plötu.
Fjórða breiðskífa hennar kemur út
í lok febrúar á
næsta ári undir
merkjum Univer-
sal Motown og
hefur hlotið heit-
ið Nu AmEry-
kah, en vinnu-
heiti plötunnar
var á tímabili
Kabbah. Badu
lék efni af plöt-
unni fyrir valinn
hóp aðdáenda í Electric Lady-
hljóðverinu í New York í síðustu
viku.
Badu sagði við það tækifæri að
hún væri að takast á við breytta
tíma í samfélaginu á plötunni.
„Ég er að mæla fyrir munn kyn-
þáttar míns og jarðarinnar,“ sagði
hún. „Útgáfan fær eflaust sína pen-
inga út úr þessari plötu og þeir
hafa í staðinn gefið mér tíma til að
klára þetta.“
Síðasta plata Badu, Worldwide
Underground, kom út 2003. Hún
hefur verið kölluð EP-plata eða
stuttskífa þótt hún sé tíu laga. Sú
skilgreining vísar meira í þann hátt
sem hafður var á við upptökurnar,
en allt ferlið tók frekar fljótt af og
plötunni var lætt út án alls lúðra-
blásturs. Badu viðurkennir að hún
hafi líka verið upptekin við annað,
enda nýorðin móðir. Nu AmErykah
verður átján laga og dreifist á tvær
plötur sem verða seldar sér, sam-
kvæmt fréttum Billboard. Und-
arlegt ef satt reynist.
Margir voru ekki par hrifnir afsíðustu plötu Outkast, Idle-
wild (2006), sem var gefin út sam-
hliða kvikmynd með sama heiti, og
tónlistin dró nokkurn dám af tónlist
fjórða áratugarins. Talað var um að
þeir Outkast-félagar, Big Boi og
Andre 3000, væru komnir með mik-
ilmennskubrjálæði í kjölfar Spea-
kerboxxx/The Love Below (2003)
og héldu að þeir kæmust upp með
hvað sem er. Speakerboxxx/The
Love Below sló í gegn er hún kom
út, þá sérstaklega síðari platan sem
var runnin undan rifjum Andre
3000 en þar sleppti hann svo gott
sem öllu rappi og söng sig í gegn-
um ómótstæðileg, Prince-skotin
popplög eins og hann hefði aldrei
gert annað.
Æ síðan Idlewild kom út hefur
verið hvíslað um að sveitin sé að
leggja upp laupana. Nýleg frétt um
að Big Boi sé að fara að gefa út
sólóplötu verður líkast til ekki til að
slá á þann orðróm en hann sjálfur
þvertekur reyndar fyrir að slíkt
standi til og segir að ný Outkast-
plata sé einnig í spilunum. Outkast-
platan gengur undir nafninu 10 The
Hard Way og slúðrað hefur verið
um hana í um tvö ár núna. Sóló-
plötuna, sem gengur undir nafninu
Sir Luscious Left Foot, er hins
vegar áætlað að gefa út snemma á
næsta ári og fyrsta lagið fer í loftið
um áramótin. Lítið er að frétta af
tónlistarstússi André, sem er mikið
að sýsla í kvikmyndum um þessar
mundir, en hann þvertekur, líkt og
félagi hans, fyrir að hið góða sam-
starf þeirra sé að líða undir lok.
TÓNLIST
Erica Badu
Outcast
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
Íbítið þann 19. mars 1982 hlekktist Beech-craft Bonanza-flugvél á í glæfraflugi í Lees-burg í Flórída, með þeim afleiðingum að húnrakst á rútubifreið og brotlenti á framhlið
höfðingjaseturs nokkurs. Þrennt var um borð og
létust þau samstundis, rútubílstjórinn Andrew Ay-
cock, sem flaug vélinni, hárgreiðslukonan Rachel
Youngblood og gítarleikarinn Randy Rhoads.
Rhoads heyrði til hljómsveit Ozzy Osbournes
sem var á tónleikaferðalagi og hafði áð næturlangt
við téð setur sem var í eigu Jerrys Calhouns, eig-
anda rútubifreiðastöðvarinnar sem Aycock starfaði
hjá. Hugmyndin með fluginu var að hræða aðra
meðlimi og starfsmenn hljómsveitarinnar, sem
sváfu værum blundi í rútunni. Engan þeirra sakaði
við áreksturinn.
Randy Rhoads, sem var aðeins 25 ára, var rokk-
elsku fólki harmdauði, ekki síst Osbourne sjálfum
sem hafði mikið dálæti á samstarfsmanni sínum.
„Það var eins og almættið hefði komið inn í líf mitt,“
sagði hann löngu síðar um kynni sín af hinum
göldrótta gítarleikara.
Ozzy hafði sökkt sér í fen þunglyndis og fíkniefna
eftir viðskilnaðinn við Black Sabbath seint á átt-
unda áratugnum og ljóst var að kraftaverk þurfti til
að fá hann aftur að hljóðnemanum. Rhoads var það
kraftaverk. Árið 1979 kom hann í áheyrnarprufu
fyrir nýja hljómsveit sem Ozzy hugðist setja saman
fyrir sína fyrstu einherjaplötu og var ráðinn á
staðnum. „Þetta var stórfurðulegt. Ég stillti bara
gítarinn og lék nokkur stef og hann sagði: „Þú færð
giggið“. Þetta kom mér í opna skjöldu því hann
hafði varla heyrt mig leika,“ rifjaði Rhoads upp síð-
ar. En hann lét ekki segja sér það tvisvar og sagði
skilið við sína gömlu sveit, Quiet Riot, sem hann
stofnaði á sínum tíma.
Já, Ozzy hafði heyrt nóg. Skyldi engan undra.
Rhoads var tækniundur, framsækinn rokkgít-
arleikari undir þungum áhrifum frá klassískri tón-
list. Honum voru allir vegir færir.
Ozzy beið heldur ekki boðanna, heldur dreif
Rhoads í hljóðverið. Afraksturinn var platan Blizz-
ard of Ozz sem kom út í Bretlandi í september 1980
og í Bandaríkjunum í janúar 1981.
Blizzard of Ozz féll í frjóa jörð og er enn þann
dag í dag söluhæsta plata Ozzys, hefur selst í meira
en fjórum milljónum eintaka í Bandaríkjunum ein-
um og sér. Á henni er að finna frægasta lagið frá
einherjaferli kappans, Crazy Train, sem síðar átti
eftir að verða upphafslagið í veruleikaþættinum um
Ozzy og hans nánasta kyn á MTV-sjónvarpsstöð-
inni – í silkimjúkri sveifluútsetningu.
Á plötunni eru líka lög á borð við I Don’t Know,
Goodbye to Romance, No Bone Movies og Mr
Crowley, að ekki sé talað um hið umdeilda Suicide
Solution. Ýmsum þótti Ozzy þar hvetja til sjálfsvíga
og náði sú umræða hámarki fyrir dómstólum þegar
foreldrar fjórtán ára drengs, John McCollum að
nafni, stefndu söngvaranum og útgáfufélagi hans,
CBS Records, í kjölfar þess að McCollum svipti sig
lífi meðan hann var að hlusta á tónlist Ozzys árið
1984.
Fyrir dómi fullyrti Ozzy að texti lagsins fjallaði
um ótímabært fráfall Bons Scotts, söngvara AC/
DC, skömmu áður en Blizzard of Ozz kom út. Bob
Daisley, bassaleikari í sveit Ozzys, hafnaði hins
vegar þessari skýringu og kvaðst sjálfur hafa samið
textann um misnotkun Ozzys sjálfs á áfengi og
fíkniefnum.
Kæru McCollum-hjónanna var vísað frá með
þeim rökum að stjórnarskrá Bandaríkjanna verði
frelsi til listrænnar tjáningar.
Með Randy Rhoads sér við hlið fór Ozzy Osbour-
ne á flug og önnur breiðskífa, Diary of a Madman,
leit dagsins ljós í nóvember 1981. Hana voru þeir að
kynna þegar Rhoads týndi lífi. Fimm árum eftir
andlát Rhoads sendi Ozzy svo frá sér minningar-
skífuna Tribute, sem hljóðrituð var á tónleikum ár-
ið 1981. Þar má glöggt heyra hvílíkur yfirburða-
maður Rhoads var á hljóðfæri sitt. Það er engin
tilviljun að fjölmargir rokkgítarleikarar hafa nefnt
hann sem einn af sínum helstu áhrifavöldum, þeirra
á meðal Zakk Wylde, Dweezil Zappa, Dan Spitz,
Tony MacAlpine, Jake E. Lee og Yngwie Malm-
steen.
Enginn veit hvaða brautir Randy Rhoads hefði
fetað hefði honum orðið fleiri lífdaga auðið. Raunar
hefur Ozzy upplýst að hann hefði að líkindum ekki
enst lengi í hljómsveit sinni en Rhoads hafði lýst
vilja sínum til að mennta sig betur í klassískum gít-
arleik. Aðrir segja óhugsandi að hann hefði sagt
endanlega skilið við rokkið. En allt eru þetta vanga-
veltur. Rhoads var hrifinn burt í blóma lífsins og við
verðum að gera okkur ylinn af minningunni að góðu
– og óborganlegar upptökur.
Galdrakarlinn hans Oz
POPPKLASSÍK
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@gmail.com
H
ELSTI keppinautur Kylie í
gegnum tíðina um poppdívukr-
únuna, a.m.k. hin síðustu ár,
hefur verið Madonna. Aðkoma
þeirra að bransanum er þó gjör-
ólík, Madonna var kyntákn frá
og með fyrstu smáskífu á meðan Kylie byrjaði
sinn feril sem vinalega, sakleysislega stúlkan í
næsta húsi í sjónvarpsþáttaröðinni Neighbours.
Ferill Minogue hefur verið æði skrykkjóttur, líkt
og hjá stöllu hennar, og hafa hin ýmsu blæbrigði
markaðspoppsins flotið um misvel heppnaðar
plötur hennar. Hún byrjaði ferilinn með sykur-
sætu unglingapoppi, á tíma var hún að reyna fyrir
sér sem nokkurs konar gáfumannapoppari og
sportaði spekingslegum gleraugum á umslaginu
til að undirstrika það áður en hún umturnaði sér í
ofurþokkafulla danspoppdívu og á því hefur verið
keyrt undanfarin ár.
Þróun
Sú þróun hefst raunverulega árið 1997 er platan
Impossible Princess kemur út (hún kom út í Jap-
an í október það ár en ekki fyrr en í mars 1998 í
Bretlandi). Umslagið er vísindaskáldsögulegt og
Kylie líkt og dularfullur poppsendiboði utan úr
geimi. Þið takið eftir því hversu mikilvægur þátt-
ur ímyndarvinna er í öllum hennar ferli; eins og
reyndar hjá öðrum sambærilegum ofurstjörnum.
Hvernig stjörnunni er stillt upp í tengslum við út-
gáfurnar – að maður tali ekki um í meðfylgjandi
tónleikaferðalagi – hefur afskaplega mikið að
segja um það hvernig henni á eftir að farnast.
Impossible Princess rann reyndar rækilega á
rassinn sölulega séð og starfsfólk Minogue þurfti
að fara enn og aftur að teikniborðinu. Tveimur ár-
um síðar var Light Years snarað út og umbreyt-
ing Minogue yfir í ósnertanlega dívu orðin alger
(þetta ferli minnir dálítið á Elísabetu I Bretlands-
drottningu og umbreytingu hennar í Jómfrúar-
drottninguna. Þetta var ekki lengur stelpan í
næsta húsi í öllu falli). Sú plata gekk öllu betur en
forverinn en staða hennar sem poppprinsessa var
innsigluð með glans ári síðar þegar platan Fever
kom út, frábær skífa sem dró inn hlustendur sem
höfðu hingað til ekki tekið Minogue sérstaklega
alvarlega sem tónlistarmann. Spaðaásinn var hið
frábæra „Can’t Get You Out Of My Head“, mini-
malískt teknópopp sem var svo grípandi að titill-
inn var í sjálfu sér lýsing á áhrifum lagsins. Það er
eins og höfundarnir hafi vitað upp á hár hvað þeir
voru að gera og hafi nefnt lagið svo í einskonar
póstmódernískum hroka.
Tveimur árum síðar var það svo platan Body
Language og olli hún vonbrigðum. Umslagið felur
í sér tilvísun í Brigitte Bardot (ímyndin, þið skilj-
ið) en almennur slappleiki einkennir innihaldið.
Fyrsta smáskífan, hið ágæta „Slow“, gekk ekki
sem skyldi en einn höfunda er okkar eina og
sanna Emilíana Torrini.
Áfall
Minogue var stödd í Melbourne, fæðingarstað sín-
um, þegar hún fékk þær fréttir að hún væri með
brjóstakrabbamein. Túrnum sem hún var á
var þegar aflýst. Minogue fór í viðeigandi með-
ferð og samhliða því þurfti að halda aðgangs-
hörðum snápum frá. Það er lýsandi fyrir stöðu
söngkonunnar í heimalandinu að forsætisráð-
herrann, John Howard, lýsti yfir opinberum
stuðningi við hana í sjúkdómsbaráttunni. Um
mitt ár 2006 var Minogue búin að endurheimta
fyrri styrk og ilmvatn og barnabók var á meðal
þess sem hinn upprisna stjarna læddi þá frá
sér. Hún sneri aftur á svið um haustið og var
þá byrjuð að vinna að næstu plötu, X, sem var
hvatinn að þessum greinarskrifum. Plötunni
verður fylgt eftir með hljómleikaferðalagi um
Evrópu, KYLIEX2008, næsta sumar og seldist
upp á alla Bretlandstónleikana á hálftíma.
Staða hennar virðist því sæmilega trygg. En
talandi um ímyndina, í janúar á þessu ári var
Minogue steypt í vax í fjórða skipti af Madame
Tussaud-safninu í London, en aðeins Elísabet
II hefur verið hanteruð oftar á þann hátt.
Þetta færir pælinguna um ósnertanlega,
óraunverulega poppdívu upp á annað stig, eins
og sagt er.
Heimt úr helju
Kylie Minogue sneri aftur á leiksvið poppsins
með plötunni X í endaðan nóvember en barátta
hennar við brjóstakrabbamein hefur haldið
henni á varamannabekknum undanfarin tvö ár.
Ástralska ofurgyðjan hefur á síðustu árum náð
að höfða jafnt til froðusnakkara sem vilja sitt
einfalda, framleidda popp um leið og fram-
sæknir, djúpt þenkjandi dægurlagagrúskarar
hafa fengið sitt hvað fyrir sinn snúð. Það er
spurning hvað gerist nú en X er óræður titill og
vísar kannski í að ólíkir hópar eigi að geta sam-
einast um hreint og klárt poppið.
Minogue Ný plata hennar X er komin út en henni verður fylgt eftir með hljómleikaferðalagi um Evr-
ópu, KYLIEX2008, næsta sumar og seldist upp á alla Bretlandstónleikana á hálftíma.