Morgunblaðið - 06.01.2007, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BORGARYFIRVÖLD vilja að
sami aðilinn taki að sér rekstur
ferjusiglinga og veitingasölu í
Viðey og geta þeir sem áhuga
hafa gert tilboð í reksturinn
fram til 30. janúar næstkomandi,
að sögn Örvars Birkis Eiríks-
sonar, verkefnastjóra Viðeyjar.
Hann segir að borgin vilji með
þessu efla starfsemi í Viðey í
samvinnu við hugmyndaríkan og
kraftmikinn einkaaðila. Hugur
standi til þess að samþætta
reksturinn, en þetta sé meðal
annars hugsað til hagræðingar
fyrir gesti. Þeir geti þá fengið
allar upplýsingar varðandi veit-
ingar og þjónustu í eyjunni á
einum stað.
„Við erum líka að leita eftir
því að rekstraraðili sýni ákveðið
frumkvæði og komi með hug-
myndir að valkostum á eyjunni,
um hvað hann sjái fyrir sér að
væri hægt að bjóða upp á til
þess að auka afþreyingarmögu-
leika fólks í Viðey.“
Örvar segir vonir standa til
þess margir verði áhugasamir
um reksturinn í Viðey.
Reynt að vinna
málið hratt
Hann segir að farin verði svo-
kölluð samningskaupaleið þar
sem matsnefnd muni fara yfir
þau tilboð sem berist og velja
einn til þrjá aðila til frekari við-
ræðna. Einn til tveir aðilar geri
svo endanlegt tilboð í verkefnið
og verði valið út frá þeim. Þessi
leið gefi tækifæri til þróunar til-
boðanna áður en ákvörðun er
tekin.
Spurður hvenær nýr rekstr-
araðili taki við ferju- og veit-
ingarekstri í Viðey segir Örvar
að samningar við núverandi
rekstraraðila renni út 30. apríl
og þessari vinnu ljúki fyrir þann
tíma. „Við ætlum að reyna að
vinna þetta hratt, en ef mikill
fjöldi tilboða berst tekur tíma að
fara í gegnum þau,“ segir hann.
Reki ferju og veitingasölu í Viðey
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Rekstur í Viðey Borgin vill að sami aðilinn sjái um veitingasölu í Viðey
og siglingar til eyjunnar en þetta sé m.a. til hagræðingar fyrir gesti.
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
„ÞETTA eru skelfilegar fréttir og
vekur ugg í brjósti að í umferðinni
séu menn á ferli sem eru tilbúnir að
stefna ekki aðeins eigin lífi og lim-
um í hættu heldur einnig annarra
með þessum hætti,“ segir Marinó
Tryggvason, öryggisstjóri Spalar,
sem rekur Hvalfjarðargöngin, en
ökumaður sem grunaður er um ölv-
unarakstur ók með ofsahraða gegn-
um Hvalfjarðargöngin aðfaranótt
föstudags.
Mældur á hátt í 200 km hraða
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Reykjavík tóku lögreglu-
menn, sem voru að koma úr eftir-
litsferð um Hvalfjörð, eftir
manninum þar sem hann ók upp úr
Hvalfjarðargöngunum á ofsahraða
og veittu bifreið hans eftirför. Öku-
maðurinn mældist á hátt í tvö
hundruð kílómetra hraða á Vestur-
landsvegi. Þegar lögreglumennirnir
voru á 150 kílómetra hraða höfðu
þeir hvergi nærri við ökumanninum
og dró enn í sundur með bifreiðun-
um. Ákváðu lögreglumennirnir þá
að draga úr hraða og kalla eftir að-
stoð úr bænum. Lögreglubílar
komu á móti úr Reykjavík og var
maðurinn á endanum stöðvaður við
Álfsnes og færður á lögreglustöð til
skýrslutöku.
Þegar á stöðina kom reyndist
maðurinn, sem er tæplega fertugur,
í of annarlegu ástandi, til að hægt
væri að taka af honum skýrslu og
fékk hann því að gista fanga-
geymslur eftir að blóðsýni höfðu
verið tekin úr honum.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni var maðurinn yfirheyrður í
gærdag og að því loknu sleppt. Hef-
ur hann verið kærður fyrir ölvunar-
akstur, fyrir of hraðan akstur, fyrir
að hlýða ekki stöðvunarmerkjum
lögreglu og fyrir að vera ekki með
ökuréttindi í lagi. Ekki fengust upp-
lýsingar um það hvort ökuleyfi
mannsins hefði verið útrunnið eða
hann þegar verið sviptur leyfinu.
Má maðurinn búast við ökuleyfis-
sviptingu og háum fjársektum.
Eins og flestum ætti að vera
kunnugt er hámarksökuhraði í
Hvalfjarðargöngum 70 km/klst og
er það að sögn Marinós ekki að
ástæðulausu. Bendir hann á að mun
hættulegra sé að aka hratt í göng-
um en á vegum úti því að frákastið,
sem hlýst af höggi við árekstur, er
mun öflugra innan um steinsteypta
veggi heldur en á vegum úti. Að-
spurður segir Marinó bestu for-
vörnina gegn hraðakstri og ofsa-
akstri vera aukið sýnilegt eftirlit á
þjóðvegum landsins.
Öryggisstjóri Spalar segir aukið sýnilegt eftirlit bestu vörnina gegn hraðakstri
Ók ölvaður og á ofsahraða
gegnum Hvalfjarðargöngin
Í HNOTSKURN
»Samkvæmt yfirliti lög-reglunnar í Reykjavík
voru um 1.600 ökumenn
kærðir fyrir of hraðan akst-
ur í Hvalfjarðargöngunum á
síðasta rekstrarári Spalar,
þ.e. frá 1. október 2005 til
septemberloka 2006.
»Á þessu sama tólf mán-aða tímabili fóru 1,8–1,9
milljónir bíla í gegnum Hval-
fjarðargöngin.
VIÐSKIPTAVINIR
Landsbankans voru
minntir á það um ára-
mótin að þeir þurfa að
framvísa persónuskil-
ríkjum þegar þeir stofna
til bankaviðskipta og
jafnframt voru núver-
andi viðskiptavinir
beðnir um að koma í
bankaútibú til þess að
hægt væri að uppfæra upplýsingar um þá.
Þessi regla er samkvæmt fyrirmælum í
lögum frá 2006 um aðgerðir gegn pen-
ingaþvætti og varnir gegn hryðjuverkum
en þar er m.a. kveðið á um að nýir við-
skiptavinir verði að framvísa persónuskil-
ríkjum sem gefin eru út af opinberum að-
ilum. Ökuskírteini, nafnskírteini og
vegabréf duga því bönkunum en ekki nægir
að veifa debet- eða kreditkorti.
Jafnframt kemur fram í lögunum að
bankastofnanir skuli uppfæra upplýsingar
um viðskiptamenn sína og er það á grund-
velli þess ákvæðis sem viðskiptavinir
Landsbankans voru hvattir til þess að koma
með persónuskilríki í næsta útibú sem fyrst
til að hægt sé að afrita þau, samkvæmt upp-
lýsingum frá bankanum.
Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri
Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja
(SBV), sagði að skammur fyrirvari hefði
verið að gildistöku laganna og bankar og
sparisjóðir því fengið svigrúm meðan nýir
verkferlar voru innleiddir. Sumir við-
skiptavinir hafi verið pirraðir á þessari
breytingu en lögin væru skýr og það væri
því lögbrot af hálfu bankanna að krefjast
ekki skilríkja af nýjum viðskiptavinum. Í
fyrra gáfu SBV út bækling til að vekja at-
hygli á breytingunni og var titill hans: „Ert
þú örugglega þú?“ Bæklinginn má nálgast
á vefnum www.sbv.is.
Ert þú alveg
örugglega þú?
Guðjón Rúnarsson
HREINSUN olíu úr flutningaskipinu
Wilson Muuga er lokið og hefur allur bún-
aður til dælingar nú verið fluttur í land.
Síðasti hreinsunardagur var á fimmtudag
og náðust þá um 40 tonn af olíu úr skipinu
en það er mun meira en búist var við. Alls
hafa ríflega 130 tonn af svartolíu, smur-
olíu og glussa verið fjarlægð úr skipinu
frá því aðgerðir Umhverfisstofnunar hóf-
ust, að því er fram kemur í tilkynningu frá
stofnuninni.
Að mati UST er hætta á bráðamengun
hafs og stranda ekki mikil og bíður það
eiganda skipsins að fjarlægja flakið.
Lokið við hreinsun
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA hefur skipað
nýja Íbúðalánasjóðs til næstu fjögurra ára.
Hákon Hákonarson vélvirki er formaður
stjórnarinnar, Gunnar S. Björnsson húsa-
smíðameistari varaformaður en aðrir í
stjórn eru Elín R. Líndal framkvæmda-
stjóri, Jóhann Ársælsson alþingismaður, og
Kristján Pálsson, fyrrverandi alþing-
ismaður.
Elín og Jóhann eru ný í stjórninni en úr
henni fara Kristín Ástgeirsdóttir sagnfræð-
ingur, og Birkir Jón Jónsson alþingis-
maður.
Varamenn í stjórn Íbúðalánasjóðs eru
Dagný Jónsdóttir alþingismaður, Ingunn
Guðmundsdóttir, fyrrverandi sveitarstjóri,
Magnús B. Jónsson sveitarstjóri, Kristján
Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Keflavíkur, og Kristján Guð-
mundsson trésmiður. Dagný er ný í vara-
stjórninni og kemur hún í staðinn fyrir
Kristin H. Gunnarsson alþingismann.
Ný stjórn Íbúða-
lánasjóðs skipuð
ÞAU mistök urðu við gerð áramóta-
getraunar fyrir börn í gamlársblaði Morg-
unblaðsins að í fyrstu spurningu um sig-
urvegara í Stíl-keppni félagsmiðstöðva
vantaði sigurvegarann 2006 sem svar-
möguleika. Sigurvegarinn var fé-
lagsmiðstöðin á Sauðárkróki.
Um leið og beðist er afsökunar á þessum
mistökum er þessi spurning ógilt og kem-
ur hún ekki til með að hafa áhrif á nið-
urstöðu getraunarinnar heldur verður
horft fram hjá henni.
Mistök við gerð
barnagetraunar
ANDRI Snær Magnason rithöf-
undur hlaut frelsisverðlaun Sam-
bands ungra sjálfstæðismanna,
sem kennd eru við Kjartan Gunn-
arsson, fráfarandi framkvæmda-
stjóra Sjálfstæðisflokksins, og
Andríki hlaut verðlaunin í flokki
félagasamtaka.
„Andri Snær Magnason gaf á
nýliðnu ári út bókina Drauma-
landið þar sem hann beitir hug-
myndafræði frjálshyggjunnar í
þágu umhverfisverndar. Rök-
stuðningur og málflutningur
Andra Snæs undirstrikar að frum-
kvæði einstaklingsins er forsenda
framfara en ríkisafskipti til óheilla
í þessum málaflokki eins og öðr-
um. Að mati forystu ungra sjálf-
stæðismanna eru skrif Andra
Snæs vitnisburður um að frjáls-
hyggjan og hugsjónin um frelsi
einstaklingsins eigi fullt erindi á
öllum þjóðmálasviðum,“ segir í
rökstuðningi. Um verðlaunaveit-
ingu í flokki félagasamtaka segir:
„Félagsskapurinn Andríki hefur
Verðlaunin eru kennd við Kjartan
Gunnarsson, „til að heiðra það
mikla starf sem hann hefur skilað
til þess að auka frelsi á Íslandi og
bera út hugmyndir frjálshyggj-
unnar.“
svara í íslensku samfélagi á þessu
tímabili.“
Ætlunin er að veita frelsis-
verðlaunin árlega einstaklingi og
samtökum sem að mati SUS hafa
unnið frelsishugsjóninni gagn.
um tíu ára skeið haldið uppi öflugri
útgáfu þar sem frjálshyggju-
hugsjónin er í hávegum höfð. Full-
yrða má að frelsi einstaklingsins
og hugmyndin um lágmarksrík-
isafskipti hafi átt fáa öflugri mál-
Frelsisverðlaun SUS kennd við Kjartan Gunnarsson veitt í fyrsta skipti
Andri og
Andríki
verðlaunuð
Morgunblaðið/Sverrir
Frelsi Frelsisverðlaunin voru afhent í Valhöll í gær. Talið frá vinstri Kjartan Gunnarsson, fráfarandi fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, en verðlaunin eru kennd við hann, Andri Snær Magnason, sem hlaut ein-
staklingsverðlaunin, Hörður Helgi Helgason, sem tók við verðlaununum fyrir hönd félagsskaparins And-
ríkis, og Borgar Þór Einarsson, formaður SUS.