Morgunblaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 42
42 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Elín MargrétSigurjónsdóttir fæddist í Reykjavík 27. maí 1947. Hún lést 28. desember síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Guðbjörg Eiríks- dóttir, f. 1.11. 1922, d. 10.4. 2004, og Sigurjón Bjarnason, f. 20.5. 1922, d. 28.2. 1995. Systkini hennar eru Eiríkur, Sólveig Sigrún, Bjarni og Erla Sig- ríður. Hinn 6. mars 1965 giftist Elín Birgi Sveinbjörnssyni, f. 23.5. 1937, d. 4.3. 2000. Eignuðust þau sex börn sem eru: 1) Sigríður Birna, f. 4.12. 1964, gift Marteini Arilíussyni. 2) Ingi- björg, f. 9.4. 1966, barnsfaðir hennar er Davíð Krist- jánsson. 3) Svein- björn, f. 17.9. 1968. 4) Sigurjón Halldór, f. 22.3. 1971, kvænt- ur Maríu Sjöfn Árnadóttur. 5) Sæv- ar, f. 21.7. 1973, barnsmóðir hans er Jórunn Arna Þórs- dóttir. 6) Rúnar, f. 17.2. 1976, barns- móðir hans er Hólmfríður Björg Þorvaldsdóttir. Barnabörn Elínar eru tólf og barnabarnabörnin tvö. Útför Elínar verður gerð frá Eyrarbakkakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Elsku mamma mín. Ég veit varla hvar ég á að byrja því ég á svo erfitt með að trúa því að þú sért farin. Ég hef verið hálfdofinn síðustu daga eft- ir að þú fórst. Síminn hringir og það ert ekki þú sem hringir. En svona er þetta blessaða hverfula líf, það gefur og það tekur. Oft tekur það án þess að gefa frá sér nokkra viðvörun. Allt í einu ertu farin jafn snöggt og pabbi fór á sínum tíma. Mér verður hugsað til þeirra stunda þegar ég var lítill í Merkisteini. Þegar ég fékk að leika mér inni í eldhúsinu hjá þér við bíla- leik í hveiti á gólfinu. Mér verður einnig hugsað til þeirra stunda sem þú áttir með mér og Antoni. Hvernig þú lékst við Anton og áttir alltaf til kókómjólkina inni í ísskáp fyrir hann. Ég minnist að lokum yndis- legrar stundar sem þú áttir með mér, Jórunni, Bjössa, Antoni og Júl- íusi á aðfangadagskvöld og annan í jólum. Þú varst svo róleg og yfirveg- uð yfir jólahátíðina. Þú brást mér ekki í móðurhlutverkinu þrátt fyrir erfið veikindi þín, því þú gafst mér það dýrmætasta sem þú áttir sem var ást og umhyggja. Hana fann ég alltaf hjá þér. Allar þínar aðgerðir og hugsanir snerust um börnin þín. Þakka þér, mamma mín, fyrir allar stundirnar sem við áttum saman. Þakka þér fyrir að vera mamma mín. Þinn sonur Sævar. Elsku mamma, í dag verður þú jarðsett á Eyrarbakka þar sem þú átt þér stað við hlið pabba í kirkju- garðinum. Í lífinu eru ákveðin þátta- skil sem snerta meira við okkur en önnur en það eru fæðing og dauði. Fæðing er tákn upphafs en dauðinn oft endir. Þú fagnaðir með okkur börnunum þínum, tengdabörnum, barnabörnum og langömmubörnum nú um jólin og áttir þeirri gæfu að fagna að sjá og gleðjast yfir ný- fæddu langömmubarni þínu. Við vit- um öll hve þú elskaðir öll þín börn og afkomendur. Þú gladdist, hrósaðir og studdir hvert okkar eftir bestu getu alla tíð. Það var gott að vera barn hjá þér því þú sást það besta í hverju okkar. Dauðinn birtist mér svo óvænt þegar þú kvaddir. Eins ótrúlegt og það er því það á víst fyrir okkur öllum að liggja að deyja. Elsku mamma, ég trúi því að lík- ami þinn hafi kvatt okkur í dag en það sem eftir lifir er ástin sem þú barst til okkar, minningar um hlýjar hendur og faðmlag, ómur af fallegu danslögunum þínum og endalausri umhyggju. Allt þetta nær út yfir líf og dauða. Því mun minning þín og ást lifa með okkur. Líkaminn þinn var þreyttur og þú varst búin að taka út þín veikindi. Nú sé ég þig fyrir mér heilbrigða og káta. Ég enda þetta á broti af textanum Ra- mónu en svona sé ég þína nýju til- veru fyrir mér elsku mamma: Fjallanna vordrottning, það ert þú, kát og frísk og fríð, eins og fjóla’ í hlíð. Fegursta stúlkan sem til er nú, blóm á hverjum stig brosa’ í kringum þig. Þín Sigríður Birna. Elsku mamma mín, nú ertu farin til pabba. Þú varst mér og mínum dætrum alltaf góð. Man ég sem krakki á Merkisteini bernskuheimili okkar hvað alltaf var glatt á hjalla og gestkvæmt. Já, mamma mín, þú varst mikil húsmóðir og góð móðir. Ég sakna þín sárt. Guð geymi þig. Þú sæla heimsins svalalind, ó, silfurskæra tár, er allri svalar ýtakind og ótal læknar sár. Æ, hverf þú ei af auga mér, þú ástablíða tár, er sorgir heims í burtu ber, þótt blæði hjartans sár. Mér himneskt ljós í hjarta skín í hvert sinn, er ég græt, því drottinn telur tárin mín, – ég trúi og huggast læt. (Kristján Jónsson) Þín dóttir, Ingibjörg. Elsku mamma, ég sá þig síðast á jóladag, þú virtist hamingjusöm og róleg. Þú varst á þeim stað þar sem þér leið alltaf best, innan um börnin þín, með barnabörnunum og barna- barnabörnunum. Margur hefur átt auðveldari ævi en þú, en þrátt fyrir veikindi þín voru börnin þín og barnabörn alltaf númer eitt. Þrátt fyrir að þú værir oft mikið veik, þá gleymdirðu okkur aldrei og lést okk- ur alltaf vita hvað þér þótti vænt um okkur og hvað þú værir stolt af okk- ur, stundum um of fannst manni. Aldrei hef ég getað sætt mig við sjúkdóminn þinn, sjúkdóminn sem tók þig frá heimilinu alltof snemma. Og loksins þegar maður telur sig vera að ná þeim þroska að geta sætt sig við hann, a.m.k. að reyna, þá ertu kölluð burt. Það hryggir mig meir en orð fá lýst. En ég veit að þér líður vel núna, pabbi bíður, tilbúinn með dansskóna og saman getið þið dans- að eins og þið voruð vön í Merki- steini, laus við allar áhyggjur og erf- iðleika. Elsku mamma, hvíl í friði. Þinn Sigurjón Halldór. Ég vonaði að ég þyrfti ekki að upplifa þennan dag svona snemma. Mamma og pabbi farin á nokkrum árum. Þvílíkur tilfinningastraumur sem brýst fram eins og stórfljót og ég fæ ekki neitt við ráðið. Ég er máttlaus, alveg máttlaus. Þú varst svo góð, mamma mín. Alltaf hrósaðir þú mér og lést skýrt í ljós hversu stolt þú værir af mér, þótt ég ætti það ekki alltaf skilið. Ég vildi að ég hefði sinnt þér betur, heimsótt þig oftar og gert meira með þér. Ég vona að þér líði vel hvar sem þú ert og vonandi ertu hjá pabba, vonandi ertu heilbrigð eða eins og hún Mán- ey litla mín spurði mig: „Er amma nokkuð veik á himnum?“ Þú átt skil- ið hvíld, mamma mín. Ég elska þig og mun alltaf sakna þín. Þinn sonur Rúnar (Rú). Amma Ella, eða amma í Gula eins og ég kallaði hana er dáin. Fyrsta minning mín um ömmu er úr eldhús- inu hennar á Eyrarbakka. Ég hafði varla tekið mín fyrstu skref þegar ég var byrjaður að hjálpa ömmu við baksturinn og eldamennskuna. Þeg- ar hún sá ekki til átti ég það til að setja e-ð aukalega í deigið eða sós- una og trúði því að ömmu grunaði ekki neitt, þar til annað kom í ljós. Nokkrum dögum fyrir andlátið sat ég í stofunni hjá ömmu þegar hún fór að hlæja og rifja upp hvað hún hefði haft gaman af því að leyfa mér að prakkarast í eldhúsinu. Amma var með stálminni og fannst fátt skemmtilegra en að minnast liðins tíma, og þá sérstak- lega þess sem hún átti með Bigga afa á Eyrarbakka. Hún hafði ein- stakt lag á að segja sögur af fólki og í þær blandaðist stundum söngur og vísur sem hún kunni. Eftir að ég kom hóf nám við MR haustið 2003 urðu samverustundir okkar ömmu fleiri og var það orðinn fastur liður að kíkja í heimsókn í Há- túnið. Þar beið amma alltaf spennt eftir að ég kæmi. Amma hlustaði mikið á íslenska dægurtónlist og oft setti hún fallega tónlist í litla geislaspilarann sinn, þá jafnaðist ekkert á við það að leggja sig á beddann sem var í stofunni hennar og hlusta á prjónana smella saman, enda amma mikil prjóna- kona. Undantekningarlaust hafði hún eitthvað gómsætt á boðstólum, og var kjötsúpan hennar í miklu uppáhaldi hjá mér, sem og mörgum öðrum. Í dag þakka ég fyrir það að hafa átt allar þessar stundir í seinni tíð með ömmu minni í Gula, sem alltaf var til staðar fyrir mig og ég vona að ég hafi verið til staðar fyrir hana. Amma var mikið veik en við höfðum haft það á orði hve vel hún hafði bor- ið sig undanfarið og kom andlát hennar öllum í opna skjöldu. Ég gæti sagt frá svo mörgu fleira en læt það ógert, sumt var bara á milli mín og ömmu og mun svo áfram verða. Nú er amma laus úr viðjum erfiðs sjúkdóms og þó að ég hefði viljað hafa ömmu svo miklu lengur hjá okkur trúi ég að nú sé hún loks frjáls og fari nú á betri stað þar sem vel verður tekið á móti henni. Birgir Marteinsson. Elsku amma, mig langaði að kveðja þig með nokkrum orðum. Þú varst alltaf svo góð við mig, amma mín, og núna þegar þú kveður þenn- an heim þá sé ég hvað mér þótti endalaust vænt um þig. Ég man hvað það var gaman að fara í heim- sókn til þín og afa þegar þið bjugguð á Eyrarbakka og síðan á Stokkseyri. Ég held að ég hafi nú næstum verið meira hjá ykkur en heima hjá mér þegar ég var lítill. Ég á svo margar góðar minningar um þig, amma mín, og þær ætla ég að varðveita vel. Núna ferðu aftur til afa sem þú tal- aðir oft um við mig eftir að hann dó og ég veit þú verður svo glöð að hitta aftur. Í lokin þá langaði mig að þakka þér amma mín fyrir að hafa verið svona góð við mig. Þú sagðir svo oft fallega hluti við mig og ég mun aldr- ei gleyma því. Takk fyrir allt, elsku amma. Þitt barnabarn Arilíus. Við fráfall elsku Ellu systur ætla ég að skrifa nokkrar línur í hennar minningu. Minningarnar sem ég á um okkur systurnar kem ég til með að orna mér við þegar söknuður sækir að. Ég man þegar hún Ella mín fædd- ist hvað mér fannst hún falleg þá og alltaf síðan. Hins vegar fannst mér það óþarfi þegar hún eltist hvað hún lék sér mikið með dúkkur því ég vildi fá hana með mér út í strákaleiki. Við systurnar vorum góðar vinkonur allt okkar líf og þá sjaldan sem okkur varð sundurorða sættumst við allaf áður en við sofnuðum á koddanum. Mamma sagði það líka að ósáttar mættum við ekki vera. Ella átti fallegt heimili sem hún elskaði og sinnti af alúð, sex börn og góðan mann sem var hann Birgir. Ella og Birgir áttu vel saman því þau elskuðu börn, útilegur, dans, tónlist og dýr. Það var unun að sjá þau dansa saman og var þeirra helsta skemmtun að fara á gömlu dansana í Ártúni og á tímabili voru þau með danskennslu á heimili sínu. Ella veiktist af geðsjúkdómi sem var henni þungbær og ekki fyrir okkur þau heilbrigðu að skilja þær raunir sem því fylgdu. Síðustu árin bjó hún í Hátúni 10 þar sem henni leið vel, ég vil koma þakklæti til starfsfólksins þar og þá sérstaklega Guðrúnar Blöndal. Við andlátsfregn þína, allt stöðvast í tímans ranni. Og sorgin mig grípur, en segja ég vil með sanni, að ósk mín um bata þinn, tjáð var í bænunum mínum, en Guð vildi fá þig, og hafa með englunum sínum. Við getum ei breytt því sem frelsarinn hefur að segja um hver fær að lifa, og hver á svo næstur að deyja. Þau örlög sem við höfum hlotið, það verður að skilja. Svo auðmjúk og hljóð, við lútum að frelsarans vilja. Þó sorgin sé sár og erfitt sé við hana að una, við verðum að skilja og alltaf við verðum að muna, að guð, hann er góður og veit hvað er best fyrir sína. Því treysti ég nú að hann geymi vel sálina þína. Þótt farinn þú sért og horfinn burt þessum heimi, ég minningu þína þá ávallt í hjarta mér geymi. Ástvini þína ég bið síðan Guð minn að styðja, og þerra burt tárin, ég ætíð skal fyrir þeim biðja. (Bryndís Halldóra Jónsdóttir) Sólveig. Með fáeinum fátæklegum orðum vil ég minnast vinkonu minnar, El- ínar Margrétar Sigurjónsdóttur. Leiðir okkar lágu saman þegar son- ur hennar Sævar og dóttir mín Jór- unn byrjuðu sambúð og eignuðust soninn Anton Þór. Ella tók á móti mér með elsku og kærleik og fylgdi það viðmót til allra sem hún um- gekkst. Í hennar huga voru allir jafnir. Ella hafði ekki veraldlega hluti til að útbýta, en þeim mun meiri hlýju, aldrei heyrði ég Ellu hallmæla nokkurri manneskju, við- horf hennar var að við mannfólkið værum ólík. Ella kenndi mér mikið með því heimspekilega viðhorfi sem hún hafði gagnvart lífinu. Ella var ekki borin á gullstól í gegnum lífið. Á yngri árum veiktist hún af geðsjúkdómi sem tafði för hennar, aldrei heyrði ég hana kvarta yfir vanlíðan sinni, en hún bar það í hljóði. Hún var sannkölluð hvunn- dagshetja. Ella var gift Birgi Sveinbjörns- syni, sem er látinn. Eignuðust þau sex börn, þau Sigríði Birnu, Ingu, Sveinbjörn, Sigurjón, Sævar og Rúnar, sem öll eru fyrirmyndar- manneskjur og bera af hvert sem þau koma. Elsku Ella, þakka þér allt. Guð blessi sálu þína og varðveiti minningu þína. Hvíldu í friði. Börnum, barnabörnum, lang- ömmubörnum og tengdabörnum votta ég samúð mína. Friður sé með ykkur. „Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli.“ (Æðruleysisbænin) Hafalda Breiðfjörð. Elsku Ella mín. Um mig fór und- arleg tilfinning er ég frétti af andláti þínu í dag. Það er hálfóraunverulegt að hugsa til þess að við fáum ekki að sjá þig aftur, heyra hlátur þinn aftur né enduróm minninga þinna. Við áttum með þér yndisleg jól og það var svo sannarlega gaman að hafa þig hjá okkur, elsku Ella mín. Við snæddum góðan mat og opnuð- um gjafirnar í rólegheitum langt fram á kvöld. Eflaust eftir á að líta ein bestu jólin sem hugsast getur Elín Margrét Sigurjónsdóttir ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalang- ömmu, ÁGÚSTU JÓNASDÓTTUR, Lindargötu 5, Sauðárkróki. Sérstakar þakkir til starfsfólks Dvalarheimils aldraðra á Sauðárkróki fyrir einstaka hlýju og góða umönnun. Með ósk um farsæld á nýju ári. Einar Sigtryggsson, Guðrún Gunnarsdóttir, Marta Sigríður Sigtryggsdóttir, Jón Ósmann Magnússon, Ingibjörg Hólm Vigfúsdóttir, Ólöf Helga Pálmadóttir, Margrét H. Pálmadóttir, Jenný Inga Eiðsdóttir, Ágúst Brynjar Eiðsson, Svanhildur D. Einarsdóttir, Gunnar S. Einarsson, Ásgeir B. Einarsson, Ágústa J. Stoltenberg, Hólmfríður Ósmann Jónsdóttir, langömmubörn og langalangömmubörn. ✝ Ástkær sonur okkar, bróðir, barnabarn og vinur, SÆVAR SIGURÐSSON, Staðarhrauni 31, Grindavík, lést á heimili sínu sunnudaginn 31. desember. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju föstudaginn 12. janúar kl. 14.00. Laufey Vilmundardóttir, Eiríkur Leifsson, Sigurður Sævarsson, Sigríður Jónasdóttir, Andri Páll Sigurðsson, Ólöf Sigurðardóttir, Óliver Berg Sigurðsson, Kolbrún Einarsdóttir, Svava Jónsdóttir, Sævar Sigurðsson, Anna Egilsdóttir, Sesar Aron Þorbergsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.