Morgunblaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 30
Ég veit ekki hvers vegnavið hjónin erum bæðisvona veik fyrir gömlumhúsum og gömlum hlut- um. Við ólumst hvorugt upp í gömlu húsi en aftur á móti áttum við heima í húsi sem er frá sautjándu öld þegar við bjuggum í Frakklandi,“ segir Kristín Cardew sem býr ásamt manni sínum og fjórum börnum í litlu gömlu húsi frá 1890 í Vesturbænum og þar andar gömlum tíma frá flestu því sem er innanstokks. „Þegar við fluttum heim frá Frakklandi fyrir nokkrum árum, þá settumst við að á Eyrarbakka í yndislegu gömlu húsi sem byggt var við upphaf tuttugustu aldar og við gerðum það upp. Okkur líður vel í gömlum húsum og okkur finnst líka gott að hafa gamla hluti í kringum okkur. Þess vegna eru húsgögnin okkar og margir hlutir hér inni mjög gamlir. Hjónarúmið okkar er til dæmis tvö hundruð ára, við keyptum það af ungverskri vin- konu minni sem er sjötug og býr í París. Rúm krakkanna okkar keyptum við í antikversluninni Fríðu frænku.“ Það er svolítið eins og að fara mörg ár aftur í tímann að líta inn í herbergi barnanna, þar sem gömul trérúm kúra undir súð og uppruna- legar fjalir eru á gólfinu. „Þetta er ekki mjög hornrétt hús og gólfin hérna hallast öll töluvert en við erum orðin vön því að hlutir rúlli sjálfkrafa eftir þeim,“ segir Kristín og hlær. Ekkert sjónvarp og helst ekki bíll Fjölskyldan er nægjusöm og ger- ir ekki miklar kröfur um pláss. Börnin fjögur deila tveimur litlum herbergjum og leikplássið er aðal- lega inni í hjónaherberginu. „Að búa svona þröngt krefst þess að nýta plássið vel. Hvert barn á sinn gamla kistil þar sem það geymir sína prívathluti sem það heldur mest upp á og vill hafa fyrir sig. Enginn má gramsa í kistli annars á þessu heimili og niðri við inngang- inn gerðum við einn lítinn skáp fyr- ir hvern fjölskyldumeðlim, svo hver og einn geti haft sína vettlinga, húf- ur og trefla á sínum stað.“ Fjölskyldan er ekki aðeins nægjusöm með pláss heldur líka þegar kemur að nútímaþægindum. Ekkert sjónvarp er á heimilinu og þau vilja losa sig við bílinn sem allra fyrst. „Þegar yngsta barnið nær þeim aldri að geta verið nokk- uð sjálfbjarga og tekið strætó, þá ætlum við að selja bílinn. Mér og manninum mínum finnst báðum hundleiðinlegt að vera á bíl en það verður ekki hjá því komist að vera á bíl þegar börnin eru svona lítil og við þurfum að skutla þeim á milli staða, í skóla, tómstundir og íþrótt- ir.“ Húsfreyjan steypti gólfið Kristín segir ótrúlega marga þekkja þetta hús af ýmsum ástæð- um. „Sumir hafa komið hingað í heimsókn til fólks sem bjó hér eða skoðað það þegar það var á sölu. Heiðar snyrtir átti heima hér og Þórunn Magnea leikkona og ein- hverjir aðrir þekktir einstaklingar.“ Húsið er þrjár hæðir og hver hæð um fjörutíu fermetrar. Það er einna líkast dúkkuhúsi sem leynir á sér og er á einhvern hátt stærra að innan en utan. Inn af eldhúsinu er til dæmis leyniherbergi þar sem krakkarnir mála og teikna og Krist- ín vinnur verkefnin sín í Háskól- anum en hún er að læra táknmáls- túlkun. „Ég steypti gólfið í þessu herbergi og eyðilagði tímabundið á mér puttana. Þessu húsi hafði verið lítið viðhaldið og það var ekki í sér- lega góðu standi þegar við keyptum það fyrir tveimur árum. Við þurft- um að taka allt í gegn og eigum núna aðeins eftir að taka þakið. Við breyttum líka innra skipulaginu, færðum eldhúsið niður í kjallara og bjuggum til baðherbergi á miðhæð- inni. Þetta er náttúrlega búin að vera brjálæðisleg vinna en við höf- Morgunblaðið/Kristinn Opnar hirslur Innréttingarnar í eldhúsinu í kjallarnum smíðaði maður Kristínar en hún lagði flísarnar á veggina. Allt leirtauið er ýmist handverk tengdaföður hennar, bróður hans og sonar, sem allir eru leirkerasmiðir í Frakklandi. Fyrir vikið er eingöngu borðað af leirdiskum á þessu heimili. Glösin lengst til hægri eru öll handblásin og keypt á markaði í Frakklandi. Sjónvarpslaust heimili Mæðgur Kristín og Lilja dóttir hennar inni á baðherberginu sem þau hjónin hönnuðu frá grunni. Hlaðinn veggur Heimilisfaðirinn hlóð fallegan vegg við húsið. Lítil hús eiga það til að vera stærri að innan en að utan. Kristín Heiða Kristinsdóttir kíkti inn í eitt slíkt og undraðist. lifun 30 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.