Morgunblaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 51 Atvinnuauglýsingar 569 1100 Afgreiðsla í kjötborði Laust starf er við afgreiðslu í kjötborði verslunar Nóatúns Furugrund, vinnutími virka daga frá 9-17. Afgreiðslustörf Laus störf í afgreiðslu á kassa í verslun Nóatúns Nóatúni 17, vinnutími virka daga frá 9-17 og 12-17. Laus störf í afgreiðslu á kassa í verslun Nóatúns Smáralind, vinnutími virka daga frá 11-19 Starfsmaður í ávaxta- og grænmetisdeild Óskum eftir starfsmanni í ávaxta- og grænmetisdeild verslunar Nóatúns Furugrund, vinnutími frá 8-16 virka daga. Sækið um á vefnum www.noatun.is eða sendið í pósti á Kaupás hf. Bíldshöfða 20, 10 Reykjavík, b.t. rekstrarstjóri Nóatúns. Spennandi störf í boði! Í Nóatúni vinnur mikið af hæfileikaríku fólki sem myndar samheldinn hóp og leggur sig fram við að veita viðskiptavinum Nóatúns fyrsta flokks þjónustu. Fjölbreytt störf eru í boði þar sem metnaður, fagmennska og framúrskarandi þjónusta eru höfð að leiðarljósi. Þú finnur starf við þitt hæfi hjá okkur! í hópinn Við bjóðum ykkur velkomin Stýrimann/Skipstjóra Vantar stýrimann sem getur leyst af sem skip- stjóri á 180 t. bát í Norðursjó. Um er að ræða vaktskip sem er skráð sem fiskiskip. Farmanna- eða fiskimannaréttindi eða réttindi sem gilda fyrir Norðursjó. Aldur skiptir ekki máli en einhver reynsla sem skipstjóri nauð- synleg ásamt góðri enskukunnáttu og ein- hverju hrafli í Norðurlandamáli. Uppl. á netfangi agvalberg@internet.is eða í síma 481 1046. Vaktskip ehf. Fundir/Mannfagnaðir Sjálfstæðisfélagið Garður Opinn stjórnmálafundur í Garðinum Opinn stjórnmálafundur verður haldinn mánudaginn 8. janúar kl. 20 í Samkomuhúsinu Garði í Garðinum. Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra og Guðjón Hjörleifsson, alþingismaður flytja framsögur og sitja fyrir svörum. Allir velkomnir - heitt á könnunni! Óska eftir Frímerki - Mynt - Seðlar Uppboðsaðili “Nesfrim” kaupi frímerki, umslög, mynt, seðla, póstkort, minnispeninga, orður, gömul skjöl og margt fleira. Staðgreiðsla strax. Opið daglega Mán. - Fim. 10:30 - 15:00 að Austurströnd 8, Seltjarnarnesi, sími 694 5871 og 561 5871. Sumarhús/Lóðir Orlofshús RSÍ Spánn og Kaupmannahöfn sumar 2007 Umsóknarfrestur um dvöl í orlofshúsum félagsins erlendis stendur til og með 7. janúar. Hægt er að sækja um á orlofsvef RSÍ á veffangi okkar www.rafis.is eða í síma 580 5200. Orlofsnefnd. Félagslíf Regluhátíð er 13. janúar. 7.1. Áramóta- og kirkjuferð að Úlfljótsvatni Brottf. frá BSÍ kl. 10:30. Fyrsta dagsferð ársins er að venju í kirkju. Að þessu sinni verður kirkjan við Úlfljótsvatn sótt heim. Vegalengd 9 km. Hækkun óveruleg. Göngutími 3- 4 klst. Fararstj. Pétur J. Jónas- son. V. 3.400/3.900 kr. 19. - 21.1. Langjökull - jeppa- deild Brottf. kl. 19:00. V. 6.900/7.900 kr. 26. - 28.1. Þorrablót Brottf. frá BSÍ kl. 19:00. Skráningar í ferðir á skrif- stofu Útivistar í síma 562 1000 eða utivist@utivist.is . Sjá nánar á www.utivist.is Upplifðu Toscana Dani sem býr í Lucca, Toscana, hefur milligöngu um leigu og kaup á frábærum orlofsíbúðum. Elisabeth HJorth www.danitalia.com - info@danitalia.com Sími 0039 0583 332066 Húsnæði erlendis Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn Raðauglýsingar sími 569 1100 FRÉTTIR MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Lands- samtökunum Þroskahjálp vegna sjónvarpsfréttar 4. janúar 2007: „Fréttir síðustu daga af fatlaðri bandarískri stúlku sem farið hefur í aðgerðir og fengið hormónameð- ferðir til að hefta vöxt og eðlilegan líkamlegan þroska hefur vakið at- hygli og umræður um allan heim. Markmiðið er að sögn foreldra að auka lífsgæði stúlkunnar en einnig fylgir sögunni að umönnun stúlk- unnar verði auðveldari vegna minni vaxtar. Þetta mál hefur vakið hörð við- brögð víða um heim og vakið upp umræður um siðferðilegan grunn þeirrar meðferðar sem stúlkan hefur verið beitt og það viðhorf að vegna fötlunar megi brjóta gegn rétti hennar til eðlilegs þroska. Það mat að réttlætanlegt sé að beita slíkri meðferð með tilvísan til fötlunar felur í sér virðingarleysi við fatlað fólk, lítilsvirðingu við manngildi hvers manns og brot á mannréttindum einstaklingsins. Það er umhugsunarefni í nú- tímasamfélagi að hvers kyns frávik frá „fullkomnun“ í fari einstak- linga teljast til vandamáls og rétt- lætanlegt virðist vera að bregðast við með því að fyrirbyggja tilveru slíkra einstaklinga eða grípa inn í líf umræddra einstaklinga á óeðli- legan hátt. Mannkynssagan sýnir okkur ótal dæmi um aðgerðir þar sem einstaklingum sem ekki þóttu heppilegir var markvisst útrýmt. Við hryllum okkur yfir slíkum sög- um en mikilvægt er að við minnum okkur á að margbreytileiki mann- lífsins hefur ekki alltaf verið virtur og við þurfum öll að standa vörð um manngildi hvers manns óháð þroska, fötlun, kyni, kynþætti eða öðrum þáttum. Landssamtökin Þroskahjálp leggja áherslu á það grundvall- aratriði að manngildi hvers manns sé virt og að við sem samfélag við- urkennum tilverurétt ólíkra ein- staklinga með mismunandi þroska og þarfir sem eðlilegan þátt mann- lífsins. Samfélag fyrir alla, þar sem allir eru velkomnir á eigin forsendum, ætti að vera baráttumál okkar allra með hagsmuni samfélagsins alls að leiðarljósi. Nauðsynlegt er að við tökum upp umræðu um manngildi einstaklinga óháð fötlun og rétt ólíkra einstaklinga til eðli- legs lífs og þroska og höfnum al- farið allri afskræmingu og lítils- virðingu við fólk sem á einhvern hátt víkur frá hefðbundnum norm.“ Yfirlýsing Þroskahjálpar DREGIÐ var í ÞEGAR-happdrætti KB banka hinn 22. desember síðast- liðinn. Meðal vinningshafa var Sig- ríður Hulda Arnardóttir, Reyk- húsum 1, Eyjafjarðarsveit. Sigríður vann ferð fyrir tvo til einhvers af áfangastöðum Icelandair í Evrópu. Á myndinni tekur vinningshafinn Sigríður Hulda Arnardóttir við vinn- ingnum úr hendi Egils Snæs Þor- steinssonar, sölustjóra Kaupþings banka á Akureyri. Dregið í happdrætti KB banka Leiðbeinendur verða: Rósa Björg Helgadóttir, hreyf- ilistakennari og matgæðingur, Guðfinna Svavarsdóttir Ölduvinnukennari, Berglind Prunner, leiðsögukona og kynjafræðingur. Námskeiðið er haldið til minningar um Margréti Björgólfsdóttur, sem var frumkvöðull í hollu mataræði og breyttum lífsstíl. Hún stofnaði m.a. fyrirtæki sem framleiddu morgungull á 9. áratugnum og framreiddi hollusturétti á veitingastaðnum Mensan og Á næstu grösum, á þeim árum. NÁMSKEIÐ ætlað fólki sem vill breyta mataræði sínu og lífsstíl verður haldið í janúar í Heilsuhúsinu í Lág- múla. Minningarsjóður Margrétar Björgólfsdóttur hefur veitt styrk til námskeiðsins. Þátttökugjaldi verður því stillt í hóf. Í fréttatilkynningu segir m.a.: Á námskeiðinu, sem byggist á stuttum fyrirlestrum, sýnikennslu og umræðu, verður fjallað um einfaldar leiðir til þess að breyta og bæta mataræðið, lífræna ræktun og hvernig má gera ódýra og holla grænmetisrétti, svo eitthvað sé nefnt. Námskeið um hollt mataræði og skapandi lífsstíl í Heilsuhúsinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.