Morgunblaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 45
Hann var á hinum ýmsu skipum og togurum sem háseti, vélstjóri, stýri- maður og skipstjóri og reri síðast einn á sínum eigin bát. Eftir að hann hætti sjósókn, hafði látið kvótann og lagt bátnum í hinsta sinn ákvað hann að báturinn færi á brennu nú á gaml- árskvöld – já, þeir kvöddu sama dag- inn Doddi mágur minn og báturinn hans. Doddi var mikill gæfumaður í sínu einkalífi. Hann kvæntist sinni góðu konu, Önnu Gunnlaugsdóttur, mikilli myndar- og hagleikskonu sem lifir mann sinn. Börnin þeirra sex bera foreldrum sínum gott vitni, öll mikið fyrirmyndarfólk. Já, hópurinn þeirra er orðinn stór, þegar talin eru börn, barna- og barnabarnabörn, alls um fimmtíu manns með tengda- börnum. Doddi var einstakur fjölskyldufað- ir, kærleiksríkur og hlýr og bar fjöl- skylduna mjög fyrir brjósti. Margar góðar samverustundi höf- um við hjónin átt með þessum góðu hjónum, bæði heima og heiman. Allt- af var jafn vel tekið á móti okkur, af myndarskap og rausn og við þökkum hverja stund sem gefin var og vott- um fjölskyldunni allri okkar dýpstu samúð. Ástvinir höfði halla, af hvörmum falla tár. Guð mun styrkja ykkur alla, öll hann græðir sár. (Höf. ók.) Jóhanna María Pálmadóttir. Elsku hjartans frændi. Fallega brosið þitt tók ávallt á móti mér þegar ég snaraði mér út úr bílnum þegar ég kom með ömmu og afa í heimsókn til þín og Önnu á Ólafsfjörð þegar ég var lítil snudda. Ég gleymi ekki stóru höndunum þín- um sem tóku á móti mér þegar þú tókst mig í fangið, þéttingsfast af væntumþykju. Ég man að við sátum ófáar stundir saman á stéttinni við húsið og töluðum saman á meðan afi og amma drukku kaffið inni hjá Önnu. Hjá þér og Önnu leið mér allt- af vel. Svo er nú svo skrítið eftir að ég varð eldri og flutti suður og afi og amma féllu frá, þá var eins og ég hefði ekkert að gera norður, þó svo að ég ætti marga ættingja og vini fyrir norðan, eins og þig og Önnu. Það er alveg furðulegt að fólk skuli þurfa að kveðja þetta líf til þess að fá mann til að setjast niður og hugsa um þann látna og rifja upp þessar yndislegu minningar sem maður átti um viðkomandi. Svo fer maður að hugsa, af hverju fór ég aldrei norður og heimsótti Dodda og Önnu eftir að ég varð eldri? Hef ég virkilega ekki tíma til að heimsækja ættingjana? Eða er nóg að hitta þá við ferm- ingar, skírnir og jarðarfarir? Guð minn almáttugur, hvað ég skammast mín. Elsku Doddi minn, ég bið þig að fyrirgefa mér heimsku mína. Elsku Anna og fjölskylda ég bið ykkur innilega afsökunar á fram- komu minni. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið og þín er liðin æviönn á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg, og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. Þín vinartryggð var traust og föst og tengd því sanna og góða, og djúpa hjartahlýju og ást þú hafðir fram að bjóða. Og hjá þér oft var heillastund, við hryggð varst aldrei kenndur. Þú komst með gleðigull í mund og gafst á báðar hendur. Svo, vinur kæri, vertu sæll, nú vegir skilja að sinni. Þín geta máttug verndarvöld á vegferð nýrri þinni. Með heitu, bljúgu þeli þér ég þakka kynninguna, um göfugan og góðan dreng ég geymi minninguna. (Höf. ók.) Hvíl í friði. Elsku Anna og fjölskylda, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Friðrika Jóhanna. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 45 ✝ Anna Þorbjarn-ardóttir fæddist á Eyrarbakka 26. ágúst 1914. Hún lést á Dval- arheimilinu Ási í Hveragerði 31. des- ember síðastliðinn. Foreldrar Önnu voru Andrea Elín Páls- dóttir, f. 24. sept- ember 1872, d. 28. janúar 1950, og Þor- björn Hjartarson, f. 5. október 1879, d. 22. september 1956. Systkini Önnu voru Hjörtur Þorbjörnsson, f. 6. ágúst 1905, d. 3. júní 1932, Geirlaug Þor- bjarnardóttir, f. 19. september 1907, d. 13. mars 1996, Sigurður Þorbjörnsson, f. 14. ágúst 1911, d. 6. október 1978, Pálína Björgólfs- dóttir, f. 29. desember 1896, d. 2. des. 1962, og Björg Björgólfs- dóttir, f. 12. maí 1899, d. 9. mars 1964. Anna ólst upp á Eyrarbakka og eftir barnaskóla fór hún til Hafnarfjarðar, stund- aði nám við Flens- borgarskóla og lauk þaðan gagnfræða- prófi. Starfaði síðan við verslunarstörf o.fl. Árið 1957 flutti hún til Hveragerðis og bjó þar með Teiti Eyjólfssyni þar til hann lést 1966, þá hóf hún störf hjá Ostagerðinni og síð- ar hjá Kjörís. Árið 1979 flutti hún á Selfoss, þar sem hún bjó síðan. Síðustu árin dvaldi hún á Dval- arheimilinu Ási í Hveragerði. Anna verður jarðsungin frá Eyrarbakkakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 10.30. Elsku föðursystir mín, Anna Þorbjarnardóttir, hefur nú kvatt okkur 92ja ára að aldri, síðust systkina sinna frá Akbraut á Eyr- arbakka. Fyrstu bernskuminningar mínar eru frá Akbraut, amma að prjóna í stólnum sínum í horninu í baðstof- unni, afi að drekka kaffi í eldhús- horninu og ég að fara í fjósið með Önnu og Laugu og drakk volga mjólk á meðan þær mjólkuðu. Þótt þær sinntu öllum þessum bústörf- um fannst mér þær alltaf jafn fínar og flottar og ég er viss um, eftir að hafa gengið með þeim hluta lífs míns, að þær hafa ekki farið í fjósið með ómálaðar varir. Mikil og góð vinátta var með þeim systrum alla tíð, en Lauga lést á Sólvangi í Hafnarfirði hinn 13. mars 1996. Þegar Anna var að alast upp á Eyrarbakka var þar mikil leiklist- ar-, söng- og dansmenning. Hún tók virkan þátt í öllu þessu, söng í kirkjukór Eyrarbakkakirkju um árabil og lék með Leikfélagi Eyr- arbakka. Ég man eftir hvað hún fékk góða dóma og þótti glæsileg í hlutverki í Lénharði fógeta. Ein lítil telpa í fjölskyldunni var að segja okkur frá sinni framtíð- aráætlun og sagði, „þegar ég verð stór ætla ég að verða fegurðar- drottning“, þá var mér hugsað til minnar barnæsku þegar ég óskaði þess að verða eins og Anna frænka, svo góð og svo falleg. Það var ekki algengt á þessum tíma, unglingsárum Önnu, að stúlk- ur fengju svokallaða framhalds- menntun. Anna fluttist tímabundið til systur sinnar Bjargar, sem bú- sett var í Hafnarfirði og lauk námi frá Flensborgarskóla. Frá þessum árum átti hún góðar og skemmti- legar minningar, bæði frá skólan- um og frá því hún var með frænd- fólki okkar í Hafnarfirði. Anna var ekki heil heilsu frá því hún fékk berkla ung að árum og dvaldist þá á Vífilsstöðum um margra mánaða skeið. Alltaf hélt hún þó reisn sinni, alltaf jafn glæsi- leg, vel tilhöfð og fallega klædd. Þó vissum við, sem næst henni voru, að hún var oft sárþjáð. Þegar Anna flutti á Selfoss bjó hún í tæpt ár hjá okkur fjölskyld- unni á Ártúni 15. Þá kom best í ljós hin einstaka skapgerð hennar, heiðarleiki á allan hátt, hlýja og væntumþykja til allra. Allt hið góða og fallega höfðaði sterkt til hennar og á sama hátt miðlaði hún kær- leika og fegurð til annarra. Þá átt- um við frænkurnar margar skemmtilegar og ógleymanlegar samverustundir, spjallandi um lífið og tilveruna, uppvaxtarárin og samfélagið á þessum tíma í hennar sveita- og sjávarplássi. Anna var mjög trúuð og áttum við þar samleið eins og í mörgu öðru. Biblían hennar var lesin og er hún orðin mjög slitin eftir margra ára notkun, biblíumyndir frá barn- æsku sinni notaði hún sem bóka- merki. Anna var „barn ljóssins“ svo hlý og kærleiksrík og vönduð var hún sem tær perla. Hún hafði allt til að bera sem prýðir sanna trú- fasta konu og þá kemur upp í hug- ann vers úr Biblíunni Lúkas 11:36 Sé því líkami þinn allur bjartur og hvergi myrkur í honum, verður hann allur í birtu, eins og þegar lampi lýsir á þig með loga sínum. Nú er komið að kveðjustund og elsku frænka mín sest við Guðs dýrðarstól þar sem sólin hnígur aldrei til viðar. Hún kveið ekki vistaskiptunum því hún vissi að himnarnir eru hásæti en jörðin fót- skör og á efsta degi reisir Guð okk- ur upp til eilífs lífs og endurfunda. Við fjölskyldan erum svo þakklát fyrir samfylgdina í gegnum árin. Þakklát fyrir hvað hún gaf okkur af sínu andlega ríkidæmi og það ásamt minningum um yndislega frænku mun auðvelda okkur lífs- leiðina. Síðustu árin dvaldi hún á Dval- arheimilinu Ási í Hveragerði og viljum við senda stjórnendum og starfsfólki bestu kveðjur og þakk- læti fyrir hlýhug og frábæra umönnun. Guð blessi minningu góðrar konu. Elín Sigurðardóttir. Anna nú máttu gefa mér ís! Þetta er það fyrsta sem kemur upp í hugann, þegar ég sit hér á nýárs- dag og horfi um öxl. Ég var ekki gamall þegar ég man eftir mér í eldhúsinu hjá Önnu í Hveragerði, þá vann hún hjá Kjörís og átti allt- af ís í frystinum. Mér hefur verið sagt að einu sinni hafi ég setið heima og verið að tala við hana í leikfangasímann minn, þá hafi þessi setning komið fram: „Anna nú máttu gefa mér ís.“ Eftir að hún flutti frá Hvera- gerði til Selfoss vorum við fjöl- skyldan svo lánsöm að hafa hana búsetta hjá okkur um skeið, eða á meðan hún beið eftir að fá íbúðina sína í Vallholtinu. Eftir að hún var flutt og mamma var við nám í Fóstruskólanum kom hún á hverj- um degi og sá um heimilið og þá naut ég góðs af því hvað hún var góð í stærðfræði og dönsku. Við fjölskyldan áttum eftir að fara víða, en alltaf þegar ég kom á Selfoss var farið í smáspjall og þeginn ís. Einnig var hún dugleg að heim- sækja okkur, sérstaklega til Ísa- fjarðar. Á jólunum voru þær systurnar Anna og Lauga alltaf hjá okkur eða við vorum öll í Vík, hjá afa og ömmu. Aðfangadagur hófst með kortaútburði og síðan var farið að huga að hvenær ætti að sækja syst- urnar. Þetta var viss þáttur í hátíð- inni og mér er alltaf minnisstætt að í hvert skipti sem Anna var sótt, hvort það var á jólum eða í annan tíma, þá lét hún aldrei bíða eftir sér, alltaf tilbúin og beið á stiga- pallinum upppuntuð og flott og á sama stað stóð hún og vinkaði þeg- ar henni var ekið heim. Allar stundir með Önnu frænku voru skemmtilegar. Hún var sér- staklega léttlynd og gat hlegið dátt. Aldrei kíkti ég inn til hennar smá- stund, það var alltaf löng stund, því hún hafði sérstakt lag á því að gera umhverfið afslappað og þægilegt. Minningarnar mun ég geyma í hjarta mínu. Hjálpsemi, viðhorfum hennar og umhyggju fyrir öðrum mun ég aldrei gleyma. Takk fyrir allt. Jón Þór Birgisson. Elsku föðursystir mín, Anna Þorbjarnardóttir, hefur nú kvatt okkur 92ja ára að aldri, síðust systkina sinna frá Akbraut á Eyr- arbakka. Fyrstu bernskuminningar mínar eru frá Akbraut, amma að prjóna í stólnum sínum í horninu í baðstof- unni, afi að drekka kaffi í eldhús- horninu og ég að fara í fjósið með Önnu og Laugu og drakk volga mjólk á meðan þær mjólkuðu. Þótt þær sinntu öllum þessum bústörf- um fannst mér þær alltaf jafn fínar og flottar og ég er viss um, eftir að hafa gengið með þeim hluta lífs míns, að þær hafa ekki farið í fjósið með ómálaðar varir. Mikil og góð vinátta var með þeim systrum alla tíð, en Lauga lést á Sólvangi í Hafnarfirði hinn 13. mars 1996. Þegar Anna var að alast upp á Elsku Anna frænka. Það er svo sárt að sakna en ég er jafnframt svo þakklát fyrir að geta litið til baka á allar þær yndislegu stundir sem ég hef átt með þér. Fyrstu minningar mínar eru af ykkur systrum saman, þér og Laugu. Ég man eftir því þegar ég var ca 4 ára og þið voruð í heimsókn og ég var að reyna að muna hvor væri Anna og hvor væri Lauga. Minningarnar eru líka góðar um þegar ég var lítil að koma í heimsókn til þín í Hvera- gerði, þá vannst þú í Kjörís og áttir alltaf ís í frystinum. Mikið var nú gott að eiga þig að þegar ég stundaði nám við Fjöl- brautaskóla Suðurlands, en þá varst þú flutt í Vallholtið á Selfossi. Þá var gott að koma til þín þegar voru eyður í stundatöflunni og fá kakómalt og ristað brauð. Þú varst líka alltaf tilbúin að gefa þér tíma til að sitja og spjalla við mig (ung- linginn). Við áttum oft góðar stund- ir saman á þessum tíma. Mér er mjög minnisstætt þegar við bök- uðum saman smákökur einu sinni fyrir jólin. Einnig var mjög gaman að fá að upplifa þegar þið syst- urnar, þú og Lauga, voruð að und- irbúa jólin. Ekki má gleyma hvað þú varst glæsileg og flott. Lundarfarið þitt var einstakt, þú varst alltaf eins, al- veg sama á hverju gekk, og gerðir gott út öllu. Ljúfari manneskju hef ég ekki kynnst. Í dag kveð ég þig og vil þakka fyrir allar góðu samverustundirnar sem ég mun ávallt geyma vel í huga mínum. Þó í okkar feðrafold falli allt sem lifir enginn getur mokað mold minningarnar yfir. (Bjarni. Jónsson frá Gröf.) Jóhanna Þórhallsdóttir. Anna Þorbjarnardóttir  Fleiri minningargreinar um Önnu Þorbjarnardóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höfundar eru: Guðrún Hafsteinsdóttir, Sigrún Hann- esdóttir og Laufey S. Valdimars- dóttir ✝ Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓHÖNNU GUÐRÚNAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Laufásvegi 60, Reykjavík. Sophia H. Osvaldsdóttir, Einar Kristinsson, Davíð H. Osvaldsson, Anna Guðfinna Osvaldsdóttir, Guðrún Osvaldsdóttir, Guðmundur Osvaldsson, Rut Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalang- ömmu, ÁGÚSTU JÓNASDÓTTUR, Lindargötu 5, Sauðárkróki. Sérstakar þakkir til starfsfólks Dvalarheimils aldraðra á Sauðárkróki fyrir einstaka hlýju og góða umönnun. Með ósk um farsæld á nýju ári. Einar Sigtryggsson, Guðrún Gunnarsdóttir, Marta Sigríður Sigtryggsdóttir, Jón Ósmann Magnússon, Ingibjörg Hólm Vigfúsdóttir, Ólöf Helga Pálmadóttir, Margrét H. Pálmadóttir, Jenný Inga Eiðsdóttir, Ágúst Brynjar Eiðsson, Svanhildur D. Einarsdóttir, Gunnar S. Einarsson, Ásgeir B. Einarsson, Ágústa J. Stoltenberg, Hólmfríður Ósmann Jónsdóttir, langömmubörn og langalangömmubörn. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall elskulegs sonar okkar, bróður og frænda, VALTÝS GUÐMUNDSSONAR trésmíðanema, Árnatúni 5, Stykkishólmi. Guðmundur Valur Valtýsson, Steinunn Dóra Garðarsdóttir, Hafrún Bylgja Guðmundsdóttir, Haukur Páll Kristinsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.