Morgunblaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 56
56 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ fólk Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn LA LA LA LA LA LA LA LALA LA LA LA LA LA LA GETTU HVER VAR AÐ LÆRA AÐ SAUMA HVAÐ HELDUR ÞÚ AÐ ÞAÐ SÉ LANGT Í AÐ HÚN BYRJI AÐ GANGA? HÚN ÞARF EKKERT AÐ DRÍFA SIG! LEYFÐU HENNI BARA AÐ SKRÍÐA AÐEINS. EKKI ÝTA Á EFTIR HENNI! HÚN HEFUR ALLAN ÞANN TÍMA SEM HÚN VILL UM LEIÐ OG ÞÚ BYRJAR AÐ LABBA, ÞÁ NEYÐIST ÞÚ TIL ÞESS AÐ HALDA ÞVÍ ÁFRAM ALLA ÆVI! ÚR HENGI- RÚMINU HVAÐ ÁTTU VIÐ? ÞÚ ÁTT EKKERT Í ÞVÍ! ÉG MÁ NÚNA! ÉG KOMHINGAÐ FYRST! ÉG RÆÐ HVENÆR ÉG ER BÚINN ÞÁ KLIFRA ÉG BARA UPP Í ÞAÐ TIL ÞÍN OG HENDI ÞÉR ÚR ÞVÍ ÉG HELD NÚ SÍÐUR! ÞESSI HENGIRÚM BYRJA ALLTAF AÐ SÍGA AF HVERJU BJÓÐUMST VIÐ EKKI BARA TIL ÞESS AÐ KAUPA HANDA ÞEIM DRYKK OG SJÁUM HVAÐ GERIST? VIÐ SKULUM BARA SEGJA AÐ LÖGREGLUBÍLLINN MINN SÉ EKKI LENGUR ÓMERKTUR ÉG HLAKKA TIL AÐ HITTA DODDA OG LINDU. ÞAÐ ER SVO LANGT SÍÐAN SÍÐAST ÉG VEIT ÞAÐ ER ORÐIÐ NÆSTUM ÁR. AF HVERJU TÓK ÞETTA SVONA LANGAN TÍMA? ÞAÐ VAR SVO ERFITT AÐ FINNA DAG ÞAR SEM VIÐ VORUM ÖLL LAUS ÆI ÞAÐ ER BARA EKKI ÖRUGGT AÐ RÆNA BÍL... VIÐ ERUM SLOPPNIR ...ÞEGAR KÓNGULÓAR- MAÐURINN ER NÁLÆGT ÉG SÉ EKKI NEITT! ÉG VERÐ AÐ BREMSA JÆJA, ÞAÐ LÍTUR ÚT FYRIR AÐ ÉG SÉ HETJAN EINU SINNI ENN KATTLIÐUGIR fjöllistamenn Cirque du Soleil á sýningu í Royal Albert Hall í London á fimmtudag. Þessi fransk-kanadíski sirkus er sá þekktasti í heiminum en rúmlega sjö milljónir manna hafa sótt sýningar hans. Reuters Eintóm liðlegheit Sendiráð Íslands í Peking opn-aði á dögunum nýja heima-síðu. Axel Arnar Nikulássoner þar sendiráðunautur og staðgengill sendiherra Íslands í Kína: „Það var orðið tímabært að end- urnýja heimasíðuna en sú gamla hafði verið í notkun allt frá árdögum heimasíðugerðar,“ segir Axel og kím- ir. „Búið er að vinna að því að end- urbæta útlit og uppsetningu vefsíðna allra sendiskrifstofa Íslands, með samræmdu útliti og með not- endavænt aðgengi að leiðarljósi.“ Stefnt er að því að heimasíða sendiráðsins í Kína verði lifandi mið- stöð upplýsinga: „Síðan er bæði ætl- uð til kynningar á Íslandi fyrir kín- verska ferðamenn og kínverskt viðskiptalíf, en ekki síður sem upplýs- ingaveita Íslendinga sem hyggja á ferðalög, nám eða viðskipti í Kína,“ segir Axel Arnar. „Meðal annars má finna á síðunni upplýsingar um vega- bréfsáritanir, tengla á upplýs- ingasíður opinberra stofnana í Kína, auk tengla á kínverska vefmiðla, til að auðvelda aðgengi að upplýsingum um daglegt líf í Kína. Ekki hvað síst er- um við með fréttir af viðburðum sem sendiráðið stendur fyrir, svo Íslend- ingar sem leið eiga um geta með auð- veldum hætti fengið upplýsingar um hvað er á döfinni hverju sinni, og von- andi tekið þátt í uppákomum þegar það á við.“ Sendiráð Íslands í Peking annast forsvar við Ástralíu, Nýja-Sjáland, S- Kóreu, Mongólíu og Víetnam, en stærstur hluti starfs sendiráðsins snýr þó að Kína þar sem umsvif Ís- lendinga aukast með hverju árinu: „Að mínu mati hefur sendiráðið leikið lykilhlutverk við að leiða saman ís- lenskt viðskiptalíf og kínverskt, eink- um við að minnka þá hindrun sem tungumálaörðugleikar og fjarlægð geta skapað,“ segir Axel. „Fyrir nokkrum árum var sett á laggirnar viðskiptaþjónusta við sendiráðið. Þar hefur skapast mikill þekkingarauður og hefur þjónustan margsannað sig.“ Íslendingum hefur farið fjölgandi í Peking, og var þar stofnað Íslend- ingafélag á síðasta ári. „Bæði náms- mönnum og viðskiptafólki fer fjölg- andi, en við áætlum að núna séu 29 Íslendingar búsettir í Peking, en margir eru búsettir hérna í skemmri tíma og því töluverðar sveiflur í fjölda Íslendinga hér,“ segir Axel. „Það er góð stemning í starfi Íslendinga- félagsins, og mjög góð mæting á alla viðburði.“ Árið hefur verið viðburðaríkt hjá sendiráðinu í Peking og fara umsvif sendiráðsins vaxandi: „Í desember fögnuðum við 35 ára afmæli stjórn- málasambands Íslands og Kína er ut- anríkisráðherra heimsótti landið. Ráðherra skrifaði þá m.a. undir yf- irlýsingu um upphaf fríversl- unarviðræna milli Kína og Íslands, en einnig var stofnaður samráðsvett- vangur íslenskra fyrirtækja í Kína undir forystu sendiráðsins í desem- ber,“ segir Axel. „Gangi allt að óskum verður Ísland fyrsta vestur-evrópska ríkið til að gera slíkan samning við Kína og munu samningaviðræður við kínversk stjórnvöld skipa stóran sess í starfi sendiráðsins á næsta ári.“ Heimasíða sendiráðsins í Peking er á slóðinni www.iceland.org/cn. Alþjóðasamskipti | Sendiráð Íslands í Pek- ing opnar nýja og endurbætta heimasíðu Lifandi upplýsingaveita  Axel Arnar Nikulásson fædd- ist á Akranesi 1962 en ólst upp í Keflavík. Hann lauk stúdents- prófi frá FS 1982, BA-gráðu í hagfræði frá East Strouds- burg University í BNA 1986 og MA- gráðu í stjórnmálafræði frá sama skóla 1988. Axel Arnar starfaði sem lögreglumaður og síðar versl- unarstjóri, starfaði hjá KKÍ og hóf störf utanríkisráðuneytinu 1995. Hann hefur verið sendiráðunautur við Sendiráð Íslands í Peking frá árinu 2005. Axel Arnar er kvæntur Guðnýju Reynisdóttur ráðgjafa og eiga þau þrjú börn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.