Morgunblaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 52
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
Tvær sýningar verða opn-aðar í Listasafni ASÍ viðFreyjugötu klukkan 15 ídag. Annars vegar er um
að ræða sýningu Jóhanns Ludwigs
Torfasonar, Ný leikföng, og hins
vegar sýningu Hlyns Helgasonar, 64
dyr Landspítala við Hringbraut.
Pólitísk leikföng
Á sýningu Jóhanns eru tölvugerð
málverk af skálduðum leikföngum
fyrir hina meðvituðu yngstu kyn-
slóð. „Þau sýna ákveðnar ímyndir
sem eru dúkkur, eða leikföng, sem
eru kannski af töluvert pólitískari
toga heldur en gengur og gerist,“
segir Jóhann. „Þetta eru alveg ný-
uppfundin leikföng af minni hálfu
sem byggjast að miklu leyti á kunn-
uglegu útliti leikfanga í umbúðum
sínum. Þetta gengur út á að það er
ákveðinn rammi sem sýnir leik-
fangið og umhverfis eru ýmsar upp-
lýsingar og börn sem mæla með
innihaldinu,“ segir Jóhann. „Þetta er
svona hið hefðbundna útlit leik-
fanga, en leikföngin sjálf eru öllu
óhefðbundnari.“
Barnvæn sýning
Aðspurður segir Jóhann sýn-
inguna höfða bæði til barna og full-
orðinna, enda leikföngin í aðal-
hlutverki. „Ég tel þetta hikstalaust
vera barnvæna sýningu,“ segir
hann. „Auðvitað eru skilaboð í
myndunum sem eru kannski dálítið
drungaleg og illskiljanleg ungum
börnum, og auðvitað pólitískari líka,
enda er slíkt langt fyrir neðan þeirra
virðingu, en leikföng eru samt alltaf
leikföng.“
Jóhann segir að á sýningunni sé
brugðið upp ákveðnum spéspegli af
samtímanum, hvort sem er hér á
landi eða erlendis. „Til að mynda er
ég ekkert feiminn við að fjalla um
málefni sem koma Íslendingum
mjög takmarkað við, eins og dauða-
refsingar. Eitt leikfangið er dauða-
dæmdur fangi og krakkarnir geta
sett niður á sérhannaðan bekk sem
fylgir með og dælt í hann eitri,“ seg-
ir Jóhann og bætir við að í pakk-
anum fylgi líka sprauta, biblía og
meira að segja síðasta máltíðin. „Svo
er líka boðið upp á að safna öllu
genginu, þá er hægt að safna fleiri
óbótamönnum og taka af lífi ef mað-
ur vill,“ segir hann.
„Hinum megin er svo málverk af
Arnold Schwarzenegger þegar hann
er svona 13 ára gamall og segir
„endurskilgreinum takmörk um-
burðarlyndis.“ Þetta er myndlist
sem tekst á við mjög stórar spurn-
ingar.“
Pabba kné ehf.
Dúkkurnar í verkum Jóhanns eru
ekki allar dauðadæmdar heldur eru
þær einnig gæddar ýmsum öðrum
eiginleikum.
„Ein dúkkan heitir Alfa og það er
engin tilviljun. Hún er þannig úr
garði gerð að um leið og barnið losar
hana úr kassanum eldist hún og á sjö
dögum breytist hún í gamla konu
sem deyr úr elli. Fötin fylgja með
þannig að það er hægt að skipta um
föt á hverjum degi, svo þau hæfi
aldrinum,“ segir Jóhann. „Þetta
fjallar auðvitað bara um lífið okkar
sem flestum finnst líða of hratt.“
Hluti sýningar Jóhanns er fólginn
í kynningu á fyrirtæki sem nefnist
Pabba kné ehf. og Jóhann hefur ný-
verið gert samning við um fram-
leiðslu á verkunum. „Þetta er fyr-
irtæki í menningargeiranum. Ég er
náttúrlega að fjalla um markaðs-
vörur í þessum verkum og það er
hægt að fara með það lengra, yfir í
beina framleiðslu þar sem ég er bara
í skugganum sem óbreyttur verka-
maður fyrirtækisins,“ segir hann.
Þeir hafa sett upp fyrirmynd-
arskrifstofuaðstöðu sem mögulega
má líta á sem innsetningu. Það eru
höfuðstöðvar fyrirtækisins á meðan
á sýningunni stendur.
Tilfinningahlaðin stofnun
Sýning Hlyns Helgasonar nefnist
64 dyr Landspítala við Hringbraut,
en á sýningunni má sjá ljósmyndir af
hurðum Landspítalans, auk kvik-
myndar, málverks og teikningar.
„Þetta er tilfinningalega hlaðin
stofnun fyrir áhorfendur þannig að
það sem mér finnst voða spennandi
er að áhorfendur horfi á þessar
myndir sem eru túlkun á Landspít-
alanum, og túlkun á sögu hans,“ seg-
ir Hlynur. „Landspítalinn er auðvit-
að með þessa 80 ára sögu sem
heilbrigðisstofnun, það hafa allir far-
ið þarna inn og út í gegnum tíðina og
oft með kvíða á leiðinni inn, og sorg
eða gleði á leiðinni út. Það eru þær
tilfinningar sem mér finnst spenn-
andi við Landspítalann,“ segir Hlyn-
ur og bætir því við að þar að auki
hafi gríðarlegur fjöldi fólks einnig
unnið á stofnuninni.
Hlynur tók myndir af nokkurn
veginn öllum hurðum Landspítalans
við Hringbraut, að minnsta kosti öll-
um þeim sem einhverju máli skipta,
eins og hann orðar það. „Þetta var
algjör rútína í framkvæmd, mynd-
irnar eru allar teknar 25 skrefum frá
hverri hurð. Svo eru þær allar í
miðju rammans sem skapar vissa
reglu í myndunum sem útilokar eitt-
hvert fagurfræðilegt val við gerð
myndanna. Myndirnar verða fal-
legar bara af því að þetta er svo fjöl-
breytt og fjölþætt umhverfi sem er
þarna til staðar, en það er ekkert við
myndatökuna sem gerir þær fal-
legar,“ segir Hlynur sem undanfarin
ár hefur verið nokkuð upptekinn við
tilraunir til að túlka á listrænan hátt
áherslur og áferð borgarinnar. Á
síðasta ári nýtti hann sér kvik-
myndamiðilinn og skrásetti annars
vegar fábreytilegan garð í miðborg-
inni og hins vegar dæmigerða stofu í
íbúð í Prag.
64 dyr og
dauðadæmdar
dúkkur
Pólistískt Jóhann Ludwig Torfason tekst á við umdeild mál í verkum sínum, svo sem dauðarefsinguna.
Morgunblaðið/Kristinn
Ólíkir Þeir Jóhann og Hlynur opna hvor sína sýninguna á mjög ólíkum verkum í Listasafni ASÍ í dag
Jóhann Ludwig Torfason og Hlynur
Helgason opna í Listasafni ASÍ
Tilfinningar Jóhann segir flesta tengja Landspítalann við gleði eða sorg.
www.homepage.mac.com/
johanntorfason
www.tacticalart.net
www.asi.is
staðurstund
Birta Björnsdóttir gagnrýnir
fjölda auglýsinga sem fylgja
með mynddiskum fyrir börn í Af
listum. » 53
af listum
Breski söngvarinn Mika er besti
nýliðinn í bresku tónlistarlífi að
mati hlustenda breska rík-
isútvarpsins. » 53
tónlist
Ort verður um réttarfar nú-
tímans í útvarpsþættinum Orð
skulu standa á Rás 1 í dag
klukkan 16.10. » 54
útvarp
Hljómsveitirnar Dikta og Our
Lives halda upp á þrettándann
með tónleikum á Grand Rokki í
kvöld. » 57
tónlist
Útgefendur Britney Spears eru
að sögn orðnir langþreyttir á
bramboltinu í poppdívunni sem
lofar bót og betrun. » 61
fólk
|laugardagur|6. 1. 2007| mbl.is