Morgunblaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 28
daglegt líf 28 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ Útimálning Viðarvörn Lakkmálning Þakmálning Gólfmálning Gluggamálning Innimálning Gljástig 3, 7, 20 Verð frá kr. 298 pr.ltr. Gæða málning á frábæru verði ÍSLANDS MÁLNING Allar Teknos vörur eru framleiddar skv. ISO 9001 gæðastaðli. Afsláttur af málningarvörum 20% Sætúni 4 Sími 517 1500 Sérhönnuð málning fyrir íslenskar aðstæður.Sérhönnuð málning fyrir íslenskar aðstæður Sætúni 4, S. 517 1500 - Skútuvogi 13, S. 517 101 við hliðina á Bónus T aka þarf á átfíkn og syk- urfíkn með öðrum hætti en megrun. Skyndilausn- ir heilla marga, en aðeins til skamms tíma. Við höf- um því fengið til okkar marga kúnna, sem eru búnir að fá sig fullsadda á öllum megrunarkúrunum og eru nú loks tilbúnir að prófa leið til langvar- andi árangurs. Mottóið okkar snýst nefnilega ekki um að ná sem flestum kílóum á sem stystum tíma, heldur snýst markmiðið fyrst og fremst um að umbreyta lífi fólks í smáum og við- ráðanlegum skrefum. Þetta á að vera veganesti, sem dugir fólki ævilangt. Við trúum því nefnilega að öll hegðun snúist fyrst og síðast um góðar eða slæmar venjur, sem alltaf má breyta til batnaðar,“ segja þær Helga Berg- steinsdóttir og Guðfinna Sigurð- ardóttir Hansen, sem hafa vakið at- hygli í Dubai fyrir vinsæl átta vikna heilsunámskeið, sem þær halda á Fa- irmont-hótelinu, fimm stjörnu glæsi- hóteli þar í landi. Fjögur ár eru liðin síðan þær sneru bökum saman í þessum efnum og hafa námskeiðin fengið jákvæða um- fjöllun í fjölmiðlum ytra. Þær stöllur hittust þó af tómri tilviljun á heilsu- ráðstefnu í Dubai því hvorug vissi af hinni ytra þótt þær væru skóla- félagar úr Garðabænum og hefðu út- skrifast á sama tíma sem stúdentar frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ. Leiðinleg hreyfing óboðleg Þær segja að námskeiðin séu þau fyrstu sinnar tegundar, en hvert námskeið skiptist í þrjá hluta. Guð- finna sér um líkamlegu þjálfunina, sem hún segir fyrst og fremst fjöl- breytta og skemmtilega enda sé fólk fljótt að láta sig hverfa sé það neytt til að stunda leiðinlega hreyfingu. „Eftir átta vikna námskeið á fólk að hafa kynnst fjölbreyttri hreyfingu og ætti þá að geta gert upp hug sinn um hvað því passar í framtíðinni,“ segir Guðfinna, sem búið hefur í Dubai í tæp fimm ár eftir að sænskur eigin- maður hennar var ráðinn sem flug- stjóri hjá Emirates Airlines. Kúnnarnir, sem greiða sem svarar sextíu þúsund krónum fyrir nám- skeiðið, eru fólk sem annaðhvort hef- ur aldrei stigið inn í líkamsræktarsal eða fólk sem er búið að prófa alla mögulega og ómögulega kúra, án ár- angurs, og kemur því á námskeiðin með vonleysisglampa í augum og lé- legt sjálfstraust, að sögn Guðfinnu, sem hefur margþætta reynslu af þjálfun. Eftir að hafa stundað nám í sálfræði við Háskóla Íslands sá Guð- finna gullið tækifæri í því að sameina sálfræðina og líkamsræktaráhugann. Hún rak líkamsræktarstöðvar hér á landi og flutti svo til Svíþjóðar þar sem hún var aðalkennari í Aktiver- um-stöð Jónínu Benediktsdóttur í Helsingborg í mörg ár og síðar gerð- ist hún framkvæmdastjóri fyrir aðrar sænskar stöðvar áður en þau hjónin tóku sig upp og fluttust til Dubai þar sem þau nú búa ásamt tveimur ung- um sonum. Sektarkennd og aukin vanlíðan Helga fluttist á hinn bóginn til Dubai fyrir sjö árum með þáverandi egypskum eiginmanni, en hún tók BA-próf í sálfræði í Stokkhólmi og fór síðan í Íþróttaháskóla Stokk- hólms þaðan sem hún lauk BA-prófi í íþrótta- og næringarfræði auk þess sem hún hefur lært svokallaða NLP- tækni, sem snýst einkum um hugar- ástand. „Við fórum til Dubai til að freista gæfunnar. Við bjuggum fyrst með átta Filippseyingum í pínulitlu rými og borðuðum hrísgrjón í öll mál því í reynd var enga vinnu að hafa í fyrstu. Ég var því á leiðinni heim þegar kí- rópraktor í Dubai setti sig í samband við mig og bauð mér að endurhæfa sjúklingana sína,“ segir Helga. „Offita og óheilbrigði á oft rætur að rekja til andlegrar vanlíðunar og streitu. Fólk borðar til að auka vellíð- anina, en sú vellíðan endist oft ákaf- lega stutt með þeim afleiðingum að í kjölfarið siglir bæði sektarkennd og aukin vanlíðan. Alltof oft leitar fólk í skyndimegrunarkúra þar sem þján- ingin virðist vera nauðsynlegur hluti af ferlinu. Við trúum því að megrun- arkúrar og skyndilausnir virki alls ekki, heldur hlýtur hið endanlega markmið að fela í sér jákvæða lífs- stílsbreytingu með því að fórna slæmum venjum fyrir góðar. Hjá okkur á fólk að njóta þess að breyta um mataræði og lífsstíl. Þar er ekki vænlegt til árangurs að þvinga hug- myndum upp á fólk sem því líkar ekki við. Ég trúi því að allir verði að fá að hafa sínar sérþarfir og því er ekki til sá megrunarkúr, sem hentað getur öllu fólki. Allir þátttakendur byrja á því að koma í einkaviðtöl þar sem útbúnir eru sérsniðnir matarlistar fyrir hvern og einn. Þetta er sérstaklega mikilvægt í Dubai þar sem við erum að vinna með fólk hvaðanæva úr heiminum. Ég hef líka komist að því að fólk svarar fæði á mjög mismun- andi hátt því að því sem einn þyngist af léttist annar af. Eitt mikilvægasta hlutverk mitt lýtur að því að finna út hvað virkar fyrir hvern einstakling,“ segir Helga, sem fer svo með hópana sína út í næsta stórmarkað til að kenna að versla „rétt“ inn og lesa „rétt“ úr innihaldslýsingum. Auk þess hefur Helga nú síðastliðið hálft annað ár boðið skjólstæðingum sín- um upp á heimsendan hollan mat fimm sinnum á dag sem hún segir að pottþétt sé að fólk léttist af. Tilfinningarnar skipta sköpum Annar mikilvægur þáttur nám- skeiðsins er að kenna fólki að ná stjórn á tilfinningum sínum í gegnum NLP-tæknina. „Hver hugsun leiðir til ákveðinna tilfinninga sem aftur leiða til ákveðins hugarástands. Til- finningarnar eru því ein mikilvæg- asta orsök þess að fólk borðar óhóf- lega, en með huglægri þjálfun og auknu sjálfstrausti má kenna fólki að ná árangri og njóta lífsins til fulln- ustu. Mikilvægt er að skilja orsök ofáts til að geta hjálpað fólki því öll hegðun byggist á góðum og slæmum venjum. Það má því segja að nám- skeiðið okkar gangi út á það að hjálpa fólki að breyta þeim venjum, sem standa í vegi fyrir því að það nái ár- angri,“ segir Helga að lokum og bæt- ir við að þær stöllur hafi áhuga á að setja upp námskeið í þessum anda hér heima, sé áhugi fyrir því. Glæsihótel Heilsunámskeið Helgu og Guðfinnu eru haldin á Fairmont-hótelinu, fimm stjörnu lúxushóteli í furstadæminu Dubai. Snýst um góðar og slæmar venjur Garðbæingarnir, skóla- systurnar, einkaþjálf- ararnir og eróbikkkenn- ararnir Helga Berg- steinsdóttir og Guðfinna Sigurðardóttir Hansen hittust af tilviljun úti í Dubai fyrir fimm árum og reka þær nú í samein- ingu vinsæl heilsunám- skeið fyrir líkama og sál í furstadæminu. Jóhanna Ingvarsdóttir hitti þær í jólafríinu. Heilsufrömuðir Guðfinna Sigurðardóttir Hansen og Helga Bergsteinsdóttir reka saman vinsæl heilsunámskeið í furstadæminu Dubai sem vakið hafa athygli þar í landi. Lyfta Líkamlega þjálfunin þarf að vera fjölbreytt og skemmtileg, seg- ir Guðfinna Sigurðardóttir Hansen. Tilfinningastjórnun Hver hugsun leiðir til ákveðinna tilfinninga, sem aft- ur leiða til ákveðins hugarástands, segir Helga Bergsteinsdóttir. Morgunblaðið/Árni Sæberg TENGLAR ..................................................... www.8weeks.net helgamarin@hotmail.com join@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.