Morgunblaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 53
menning
Það varð talsverð hamingja áaðfangadag þegar yngstifjölskyldumeðlimurinn
fékk að gjöf sinn fyrsta mynd-
disk. Það var nýútkominn diskur
með þeim Skoppu og Skrítlu þar
sem þær bregða á leik í Húsdýra-
og grasagarðinum ásamt hópi
barna.
Diskurinn er skemmtilegur og
höfðar vel til þeirra allra yngstu,
með einföldum hreyfingum, dansi
og tónlist auk lifandi mynda af
dýrum.
Samt hugsa ég mig tvisvar um
áður en ég set diskinn í tækið
fyrir dóttur mína. Af hverju
skyldi það vera?
Jú, það er vegna þess að áðuren hægt er að skemmta sér
yfir Skoppu og Skrítlu neyðist
maður til að horfa á fimm auglýs-
ingar.
Fremst á mynddiskinn er nefni-
lega búið að klína auglýsingum
sem ekki er hægt að spóla yfir og
sleppa. Georg og félagar, teikn-
aðar pulsur og fljúgandi íspinnar
er meðal þess sem yngsta kyn-
slóðin verður að horfa á í hvert
sinn sem þessi annars ágæti
mynddiskur er settur í tækið!
Þá tekur steininn úr þegar að
auglýsingunum loknum er lítið
barn látið tilkynna úr hvaða
barnafataverslun öll fötin, sem
börnin í myndinni klæðast eru, á
meðan maður gónir á vörumerki
búðarinnar.
Ég myndi skilja vel hlutverk
auglýsinganna ef diskurinn væri
gefins, væri laumað í póstkassann
hjá fólki því að kostnaðarlausu.
En þegar búið er að greiða fyrir
hann úti í búð finnst mér veru-
lega brotið á rétti manns sem
neytanda að neyðast til að horfa
á fimm auglýsingar í hvert sinn
sem horft er á diskinn.
Ég geri mér grein fyrir að
framleiðsla á sjónvarpsefni er
ekki ókeypis en er virkilega svo
dýrt að gera innan við klukku-
stundar langt barnaefni, tekið
undir berum himni, að styrkt-
araðilar verði að vera í for-
grunni.
Í 20. grein útvarpslaga er kveð-ið á um vernd barna gegn ótil-
hlýðilegum auglýsingum. Þar
segir meðal annars að óleyfilegt
sé að hvetja börn til þess að
kaupa vöru eða þjónustu með því
að notfæra sér reynsluleysi
þeirra eða trúgirni.
Engin lög eru um lög fyrir og
eftir barnatíma í sjónvarpi en
meðal annars í Svíþjóð eru aug-
lýsingar bannaðar í sjónvarpi á
þeim tíma sem barnaefni er sýnt.
Mér finnst að við verðum að-
eins að vakna á verðinum hvað
þetta varðar. Finnst okkur sjálf-
sagt að öllum barnatíma fylgi
auglýsingar frá skyndibitastöð-
um, dótabúðum og bönkum?
Börn hafa ekki þroska til að
lesa milli línanna í auglýsingum
og sjá í gegnum sölumennskuna.
Ef eitthvað er gert aðlaðandi í
sjónvarpi er sjálfsagt í huga
barns að leita allra leiða til að
eignast það sjálft, ekki satt?
Ég vil þó taka fram að mérfinnast Skoppa og Skrítla
ljómandi skemmtilegar og eins
árs dóttur minni líka. Þær Linda
Ásgeirsdóttir og Hrefna Hall-
grímsdóttir hafa með vinnu sinni
framleitt prýðisgott efni fyrir
yngstu áhorfendurnar, bæði á
sviði og í sjónvarpi.
Því miður eigum við þó trúlega
ekki eftir að horfa eins oft á
diskinn góða, sökum auglýsing-
anna sem ekki er hægt að spóla
yfir.
Uppáþrengjandi auglýsingar
Morgunblaðið/Kristinn
Skoppa og Skrítla Sá galli er á mynddiski þeirra að nauðsynlegt er að horfa á auglýsingar áður en fjörið byrjar.
AF LISTUM
Birta Björnsdóttir
» Georg og félagar,teiknaðar pulsur og
fljúgandi íspinnar er
meðal þess sem yngsta
kynslóðin verður að
horfa á í hvert sinn sem
þessi annars ágæti
mynddiskur er settur í
tækið!
HINN litríki breski söngvari Mika
hefur verið útnefndur besti nýlið-
inn í könnun breska ríkisútvarps-
ins, BBC’s Sound of 2007. Mika,
sem er 23 ára, er fæddur í Beirút í
Líbanon en býr nú í Lundúnum.
Honum hefur verið líkt við bæði
Scissor Sisters og sjálfan Freddie
Mercury.
Rúmlega 130 breskir tónlistar-
gagnrýnendur tóku þátt í könn-
uninni með því að nefna þá nýju
tónlistarmenn sem þeim þykir
mest til koma. Rokksveitin The
Twang frá Birmingham hafnaði í
öðru sæti og indí-harðkjarna-reif-
rokkararnir í Klaxons lentu í
þriðja sæti. Í fyrra var söngkonan
Corinne Bailey Rae í fyrsta sætinu
en meðal sigurvegara fyrri ára eru
50 Cent, Keane og The Bravery.
Fyrsta smáskífulag Mika, Grace
Kelly, hefur hlotið mikla spilun og
er nú mest spilaða lagið á BBC
Radio 2.
Mika segist virkilega ánægður
með viðurkenninguna. „Þetta
skiptir mig miklu máli, sérstaklega
þegar litið er til þess fólks sem
hefur unnið á undanförnum árum.
Það er góður félagsskapur,“ sagði
hann.
Colin Martin, yfirmaður tónlist-
armála hjá Radio 2, fór lofsam-
legum orðum um Mika eftir að úr-
slitin voru kunngerð. „Það er ekki
algengt að nýr listamaður komi
fram sem öruggt er að slái í gegn,
en það er allt útlit fyrir að árið
2007 verði árið hans Mika,“ sagði
hann.
Alison Howe, framleiðandi þátt-
anna Later … with Jools Holland,
sagði að Mika væri „náttúruleg
poppstjarna með mikinn karakter,
persónuleika og frábær popplög“.
Paul Rees, ritstjóri tónlistar-
tímaritsins Q fór einnig lofsam-
legum orðum um kappann. „Hann
hefur útlitið og lögunum hans svip-
ar til þess sem maður hefði haldið
að kæmi út úr samstarfi Queen og
Scissor Sisters,“ sagði Rees.
Tónlistartímaritið NME kallaði
hljómsveitina The Twang, sem
hafnaði í öðru sæti, „bestu nýju
hljómsveit Bretlandseyja“ en Klax-
ons, sem lentu í þriðja sæti, þykja
hafa nýjan og frumlegan hljóm.
Tónlistarmenn sem höfðu átt
plötu eða lag meðal þeirra 20 vin-
sælustu í Bretlandi áttu ekki
möguleika á að komast inn á
listann, né heldur þeir sem höfðu
orðið frægir af einhverjum öðrum
ástæðum.
Tónlist | Bestu nýliðarnir í Bretlandi voru valdir á dögunum
Breskur Líbani útnefndur bestur
Flottur Mika segist virkilega ánægður með viðurkenninguna.
Bestu nýliðarnir samkvæmt könn-
uninni.
1. Mika
2. The Twang
3. Klaxons
4. Sadie Ama
5. Enter Shikari
6. Air Traffic
7. Cold War Kids
8. Just Jack
9. Ghosts
10. The Rumble Strips
GÓÐ
HEILSA
GULLI
BETRI
Lið-a-mót
FRÁ
www.nowfoods.com
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
H
á
g
æ
ð
a
fr
a
m
le
ið
sl
a
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
NNFA QUALITY
No. 1 í Ameríku
Leikarinn Alec Baldwin íhugaði aðfremja sjálfsmorð þegar hann
var álitinn slæmur faðir. Baldwin
gekk í gegnum erfiða forræðisdeilu
við fyrrverandi eiginkonu sína, Kim
Basinger, en saman eiga þau dótt-
urina Ireland.
Í viðtali við breska tímaritið GQ
segir Baldwin að það hafi reynt veru-
lega á taugarnar þegar dagblöð og
tímarit sögðu endalaust fréttir um að
hann væri ekki góður faðir og máluðu
dökka mynd af honum. Líkir hann
þessu við það að upplifa martröð.
„Ég man eftir því að hafa legið uppi
í rúmi og hugsað að ég vildi deyja. Ég
vildi hins vegar ekki stökkva út um
glugga þar sem þá ætti ég á hættu að
lenda á einhverjum og að við yrðum
báðir lamaðir til æviloka. Ef það
myndi gerast ætti ég á hættu að
verða öreigi þar sem viðkomandi
myndi eflaust höfða skaðabótamál á
hendur mér og þá ætti ég enga pen-
inga fyrir dóttur mína,“ segir Baldw-
in í viðtalinu.
Leikarinn ítrekar í viðtalinu að
hann sé góður faðir og geri hvað sem
er fyrir Ireland þegar þau eru saman.
Hann segist reyna að fara til Los
Angeles aðra hverja helgi til að hitta
Ireland.
Baldwin og Basinger hafa verið
svarnir óvinir síðan þau skildu árið
2000 en seint á síðasta ári virtist sem
samband þeirra væri ögn að skána.
Fólk folk@mbl.is