Morgunblaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Steindór Árna-son fæddist á
Vopnafirði 10. júlí
1953. Hann lést á
Sjúkrahúsi Vest-
mannaeyja 29. des-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Árni Krist-
jánsson, f. 1.12.
1895, d. 29.8. 1969,
og Stefanía Sig-
urbjörnsdóttir, f.
24.5. 1918, d. 10.6.
1998. Systkini
Steindórs eru Sig-
urveig, f. 8.2. 1949, Sigurbjörn, f.
29.4. 1950, Kristjana, f. 28.11.
1951 og hálfbróðir, sammæðra,
Þórarinn Sigurbjörnsson, f. 3.10.
1945.
Steindór kvæntist árið 1973
Guðrúnu Báru Magnúsdóttur, f.
13.4. 1955, dóttur Magnúsar Pét-
urssonar, f. 5.8. 1931, og Þórdísar
Guðmundsdóttur, f. 27.8. 1931.
Synir Steindórs og Báru eru: A)
Guðlaugur Magnús, f. 7.8. 1972,
kvæntur Bergey Eddu Eiríks-
dóttur, f. 9.11. 1977, börn þeirra
eru Guðrún Bára, f. 14.10. 1996,
Aron Smári, f. 17.9. 1999, og Kar-
stýrimaður á Steinunni SF, en
flytur síðan til Eyja aftur vorið
1974. Þá liggja leiðir hans og
Sveins saman á ný er Steindór
ræðst sem stýrimaður á m/b
Valdimar Sveinsson VE og var
það upphafið að löngu og farsælu
samstarfi þeirra félaga, Steindór
varð síðar meðeigandi Sveins í út-
gerðinni. Samstarf þeirra varði
allt til ársins 1992 en þá kaupa
Steindór og fjölskylda útgerðina
og reka hana þar til fjölskyldan
selur útgerðina til Bergs-Hugins í
Vestmannaeyjum vorið 2000. Þá
hófst nýr kafli hjá Steindóri.
Hann og Magnús sonur hans festa
kaup á skóbúð Axels Ó í Vest-
mannaeyja haustið 2000 og árið
2005 er fyrirtækið stækkað með
kaupum á Skóbúð Selfoss. Öll
fjölskyldan hefur tekið virkan
þátt í þessum rekstri. Steindór
var félagi í Skipstjóra- og stýri-
mannafélaginu Verðandi og einn-
ig félagi í Útvegsbændafélagi
Vestmannaeyja. Árið 1993 gekk
Steindór í félagið Akóges í Eyjum
og var mjög virkur félagi þar all-
ar götur síðan og átti sæti í stjórn
félagsins og varð formaður þar
árið 2002.
Útför Steindórs verður gerð
frá Landakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 11.
en Eir, f. 29.10. 2003.
B) Stefán Þór, f.
26.5. 1978, unnusta
Þórhildur Rafns
Jónsdóttir, f. 2.4.
1976, sonur þeirra er
Logi Snær, f. 14.6.
1999.
Steindór ólst upp
á Vopnafirði til 15
ára aldurs. Sjó-
mannsferil sinn hóf
hann árið 1969 er
hann réðst sem há-
seti á m/b Kristínu
VE. Þaðan lá leiðin á
m/b Sigurfara VE. Haustið 1971
hóf Steindór nám við Stýrimanna-
skólann í Vestmannaeyjum. Um
vorið og sumarið 1972 á milli
bekkja í Stýrimannaskólanum
réðst Steindór sem stýrimaður til
Sveins Valdimarssonar á m/b Sæ-
borgu VE. Síðan tók við seinni
veturinn í Stýrimannskólanum, en
vegna eldgossins á Heimaey í jan-
úar 1973 fluttist skólinn til
Reykjavíkur og útskrifaðist Stein-
dór þá um vorið sem stýrimaður.
Að loknu námi flytur Steindór
ásamt fjölskyldu sinni til Horna-
fjarðar og Steindór ræðst sem
Elsku pabbi, mikið er sárt að þurfa
að kveðja þig svona. Veikindi þín
voru þér erfið þessa tvo mánuði sem
á þeim stóð en hverja mínútu barðist
þú af dugnaði og bjartsýni en því
miður dugði það ekki til. Ég settist
niður og fór að rifja upp minningar
um þig og kom þá margt í hugann
minn. Æskuárin voru mér góð, þrátt
fyrir að þú værir mikið á sjó. Þú
byggðir fyrir mig dúfnakofa sem við
fjölskyldan erum mikið búin að hlæja
að eða þegar ég tók myndina af dúf-
unni sem var flogin þegar ég smellti
af. Þú innréttaðir þvílíkt herbergi
fyrir mig í kjallaranum heima og ekki
kipptir þú þér upp við það á unglings-
árum mínum þó að um hverja helgi
væru allir vinirnir heima að skemmta
sér áður en haldið var á ball. Þegar
ég var 19 ára fór ég að róa með þér á
Valdimari og vorum við saman á sjó í
fimm ár. Það var góður og lærdóms-
ríkur tími sem við áttum saman þó þú
værir ekki oft ekki eins ljúfur á sjón-
um eins og heima fyrir. En líf okkar
tók miklum breytingum árið 2000,
þegar við hófum saman búðarrekstur
og byggðum saman bústað sem er
yndisleg minning um þig og þinn
dugnað. Við höfum verið mikið sam-
an upp frá því, og þú hefur verið dug-
legur að annast og umgangast barna-
börnin, þeirra tími með þér verður
þeim ógleymanlegur. Ekki var mikið
mál að fá hjá ykkur pössun og þið
dugleg að fara með börnin í bústað-
inn. Brúkaupsdagurinn er mér og
Bergey minnisstæður, þú stóðst þig
eins og hetja og toppaðir allt með því
að fá Stebba og Eyfa til að spila í
brúðkaupinu því að ég sagði einhvern
tímann að það væri draumur minn að
fá þá tvo til að spila fyrir okkur og
það var bara klárað og farið í málið
eins og svo margt annað hjá þér. En
ég fékk mikið að vera með þér okkar
síðasta sumar saman er við byggðum
saman sólhús hjá mér, það hreinlega
lék allt í höndunum á þér og var ekki
mikið mál þegar ég kom til þín og bað
þig um að byggja eitt stykki sólhús,
það var bara drifið í því og gert og sá
tími verður mér ógleymanlegur. En
síðustu dagarnir voru þér erfiðir en
nú ertu kominn á stað þar sem þú
þarft ekki að þjást meira.
Elsku pabbi, þín verður sárt sakn-
að.
Magnús.
Ég bjóst ekki við að þurfa að skrifa
þessi orð svo snemma á lífsleið minni.
Það er svo stutt síðan þú varst við
hestaheilsu og kenndir þér ekki
meins. En svona getur lífið verið og
verðum við greinilega alltaf að vera
tilbúin undir reiðarslag sem þetta.
Þú varst mér svo stór og mikil fyr-
irmynd og það var ósjaldan sem ég
hringdi í þig með spurningar um ým-
isleg mál, þá tóku oft við svakalega
langar útskýringar sem manni fannst
vera svolítið of ýtarlegar, en þannig
varstu pabbi minn, þú tókst þér eitt-
hvað verkefni fyrir hendur og það var
ekki að spyrja að því, það var gert
100%. Það verður gott að ylja sér við
allar þær stundir sem við áttum sam-
an og á sama tíma leiðinlegt að vita
að þær verða ekki fleiri.
Við töluðum mikið um það í sumar
að ég kæmi með þér á gæsaveiðar á
síðasta tímabili og það gat ég svo á
endanum ekki, því miður. Síðast töl-
uðum við um það á Landsspítalanum
að það yrði þá bara að bíða til næsta
hausts. Þá óraði mig ekki að það yrðu
aðeins þrjár vikur til þess dags er ég
kveddi þig. Ég kveð þig nú pabbi
minn um leið og ég þakka guði fyrir
að þjáningum þínum er lokið.
Þinn sonur,
Stefán Þór.
Elsku Steindór, minningarnar
streyma í huga mér. Það er svo
margt sem mig langar að skrifa.
Þetta eru búin að vera yndisleg ellefu
ár sem ég er búin að eiga með þér.
Ég hitti þig fyrst á Höfðaveginum, ég
var að byrja með Magga og þú komst
niður og bauðst mér að koma og
borða með ykkur humar, sem mér
þótti bestur, en ég þorði ekki að
þiggja boðið en oft hefurðu getað
strítt mér á því. Alltaf gátum við leit-
að til þín ef eitthvað þurfti að gera
heima hjá okkur. Þú klipptir fyrir
okkur gardínur, flísalagðir, sást um
garðinn og smíðaðir það sem þurfti.
Það lék allt í höndunum á þér enda
öfunduðu vinkonur mínar mig af því
að eiga svona tengdapabba. Þú og
Bára áttuð útgerð þegar ég kynntist
Magga. En í byrjun árs 2000 selduð
þið útgerðina og svo um haustið
keyptum við saman Axel Ó. Þetta
sama ár var ákveðið að byggja bústað
á Flúðum og hjálpaði Maggi þér mik-
ið með hann. Þið höfðuð þrjár vikur
til að reisa hann og loka honum því
við vorum að fara saman út til Dan-
merkur og ekki var að spyrja að því
að það tókst. Svo seinna keyptum við
Skóbúðina á Selfossi og mikið ertu
búinn að vera duglegur að dytta að
báðum búðunum.
Minningarnar, þú að slá grasið í
bústaðnum á traktornum með barna-
börnin sitjandi á til skiptis, spjallið
við eldhúsborðið og allt sem þú hefur
kennt og gert með okkur og börn-
unum. Brúðkaupið okkar Magga í
fyrra, þú komst okkur á óvart með
því að fá Stebba og Eyfa í veisluna,
sólhúsið sem þið smíðuðuð í sumar og
öll matarboðin. Þetta eru allt minn-
ingar sem ég ætla að geyma vel.
Elsku Bára, Magnús og Stefán, megi
Guð gefa ykkur styrk á þessum erf-
iða tíma. Með þökkum fyrir allar
yndislegu stundirnar.
Þín tengdadóttir,
Bergey Edda.
Elsku besti afi Steindór.
Við þökkum þér fyrir allar ferðirn-
ar í bústaðinn þar sem við gerðum
svo margt saman. Við fórum í pott-
inn, slógum grasið á traktornum,
spiluðum og grilluðum sykurpúða
saman. Eins gleymum við aldrei ferð-
unum saman til útlanda og allan ísinn
sem þú gafst okkur, hafragrautinn á
morgnana og allt spjallið við eldhús-
borðið. Elsku afi Steindór, við mun-
um alltaf hafa þig í hjarta okkar og
vitum að þú passar okkur áfram.
Þín afabörn,
Guðrún Bára, Aron
Smári og Karen Eir.
Elsku bróðir, þá hefur þú kvatt
þennan heim eftir stutt og erfið veik-
indi aðeins 53 ára gamall. Hugurinn
leitar til baka á heimaslóðirnar á
Vopnafirði þegar þú 15 ára réðst þig
sem háseta á bát og sigldir á braut
sjómennskunnar sem átti eftir að
verða þitt ævistarf. Ungur settist þú
að í Vestmannaeyjum þar sem þú
eignaðist þína fjölskyldu og rákuð þið
eigin útgerð í mörg ár enda varstu
fengsæll og farsæll skipstjóri. Fyrir
nokkrum árum selduð þið útgerðina
og þú komst í land og helgaðir þig
öðrum störfum. Alltaf varst þú tilbú-
inn að rétta hjálparhönd ef á þurfti að
halda og var sama hvað þú tókst þér
fyrir hendur, allt lék í höndunum á
þér og ber baðherbergið hér í Mosó
þess glöggt vitni, því ekki kom annað
til greina hjá þér en hjálpa mér við að
flísaleggja það síðastliðið sumar.
Ég vil að lokum þakka þér allar
góðu samverustundirnar sem við átt-
um á veiðum í gegnum árin, og minn-
ist ég með sérstökum hlýhug sum-
arsins og haustsins sem leið, þú
ákveðinn að ná settu marki og lagðir
hart að þér þá orðinn sárþjáður, þó
ekki grunaði okkur hvað fram undan
var.
Elsku bróðir, hafðu þökk fyrir allt
og allt.
Þinn bróðir
Sigurbjörn.
Okkur langar með nokkrum orð-
um að kveðja Steindór Árnason sem
verður jarðsunginn í dag frá Vest-
mannaeyjum.
Þegar dóttir okkar kynnti okkur
fyrir kærastanum sínum fyrir ellefu
árum síðan eignuðumst við ekki bara
tengdason heldur líka mjög góða vini.
Bergey og Maggi byrjuðu að búa eft-
ir stutt kynni og fluttu í fyrstu íbúð-
ina. Þá var nú ýmislegt sem þurfti að
gera og þá var kallað í foreldrana. Og
Steindór var tilbúinn í allt. Hvort
sem það var að mála, parketleggja,
bólstra eða leggja flísar. Bergey
þurfti bara að hnippa í hann og þá var
hann mættur. Þegar börnin fóru að
koma eitt af öðru kom í ljós að Stein-
dór var algjör barnagæla og vildu
börnin gjarnan vera hjá afa. Vanda-
mál voru ekki til hjá Steindóri. Þegar
átti að skíra Aron var Bára lasin. Tók
þá Steindór að sér að gera kransa-
köku og honum tókst það vel eins og
annað sem hann tók sér fyrir hendur.
Við urðum fljótt eins og ein stór
fjölskylda og áttu Bergey og Maggi
stóran þátt í því. Þau voru dugleg að
bjóða foreldrum sínum í mat og
þannig þróaðist vinátta sem óx og óx
með hverju ári. Við eyddum mörgum
jólum og áramótum saman. Steindór
fór í gæs á hverju ári og gæsaveisla
var orðinn árviss viðburður. Já,
minningarnar streyma fram. Brúð-
kaupið fyrir ári, þegar Bergey og
Maggi ákváðu loksins að ganga í
hjónaband. Já, það var sko eftir-
minnilegur tími. Bæði undirbúning-
urinn og svo sjálfur dagurinn. Ekki
má gleyma sumarbústaðnum sem þið
Bára byggðuð fyrir nokkrum árum
og Steindór var sífellt að laga og
bæta. Þar áttum við margar ánægju-
stundir. Ef við hjónin brugðum okk-
ur af bæ í lengri eða skemmri tíma og
Steindór og Bára buðu Bergey og
Magga í mat þá var oft hringt í Hann-
es bróður Bergeyjar og honum boðið
líka, enda var hann farinn að líta á
Steindór og Báru sem aukaforeldra.
Það er ótrúlegt að fyrir aðeins tveim-
ur mánuðum sátum við eldhúsborðið
hjá Steindóri og Báru og ræddum um
lífið framundan og Steindór var eins
og venjulega að glettast örlítið í Ber-
gey, en honum fannst gaman að æsa
hana upp. Eitthvað varstu að tala um
að þú værir slæmur í baki og þyrftir
að láta kíkja á það. Ekki óraði okkur
fyrir því að þú værir orðinn illa hald-
inn af þeim sjúkdómi sem dregur svo
marga til sín. Barnabörnin, sem eru
svo stór hluti af lífi okkar, búin að
missa afa sinn. Einn hlekkur í keðj-
unni sem umvafði þau er horfinn á
braut. Núna fylgist þú með þeim ann-
ars staðar frá. Við sitjum eftir með
minningar um frábæran mann, sem
við geymum í hjarta okkar.
Hugur okkar er hjá Magnúsi og
Stefáni, eiginkonum þeirra og börn-
unum Guðrún Báru, Aron Smára,
Karen Eir og Loga Snæ, en sérstak-
lega hjá Báru sem hefur misst svo
mikið. Megi góður Guð blessa og
vernda ykkur öll á þessum erfiðu
tímum.
Eiríkur og Karen
Minningarnar um Steindór mág
minn eru orðnar margar eftir tæp 35
ára kynni.
Samvera hér í Mosó og á öllum
þjóðhátíðunum í Eyjum þar sem við
skemmtum okkur ásamt fjölskyldum
okkar og alltaf var Steindór höfðingi
heim að sækja og hrókur alls fagn-
aðar. Útilegur með tjaldvagnana í
eftirdragi um landið.
Hjólandi um allar trissur í Hol-
landi.
Í hitabylgju á Spáni liggjandi í eig-
in svita, þá naut Steindór sín vel.
Keyrandi um Spán á leið til Kiddu
og fjölskyldu.
Á Flúðum þar sem hann hafði
byggt bústað sem varð samverustað-
ur fjölskyldunnar á fastalandinu.
Þessi minningabrot tengjast að
sjálfsögðu einnig Báru því erfitt er að
hugsa sér þau hvort án annars. Þau
voru búin að vera saman í um 36 ár og
gift í 33 ár og undarleg er sú tilviljun
að Steindór kvaddi á brúðkaupsdag-
inn þeirra.
Það má þakka forsjóninni að fyrir
átta árum kom hann alkominn í land
eftir að hafa verið á sjó frá 15 ára
aldri og hafði því meiri tíma með fjöl-
skyldunni en áður.
Minning um góðan vin lifir.
Jarþrúður.
Allt of snemma kveð ég þig, elsku
frændi. Fréttin um veikindi þín barst
mér þegar ég kom að utan í byrjun
nóvember því að pabbi vildi ekki vera
að hringja í mig út þegar þú greindist
með ólæknandi sjúkdóm. Ég man
okkar síðasta fund á öðrum degi jóla,
þú orðinn mjög veikur en samt hafðir
þú smáorku til þess að tala lítillega
við mig. Ég er svo glaður að hafa
komið til þín þá og hitt þig.
Ég man eftir því þegar ég fluttist
til Vestmannaeyja haustið 1996 til
þess að fara á sjó. Þar kynntist ég þér
á annan hátt en bara sem frænda sem
ég hitti í fríum hér heima eða í ferð-
um okkar fjölskyldna erlendis. Það
hafði verið draumur að fara á sjó með
Steindóri frænda síðan ég var smá-
Steindór Árnason
Ég sakna þín mikið afi minn.
Takk fyrir allar góðu ferð-
irnar í sumarbústaðinn og það
var gaman þegar þú komst í
heimsókn til mín. Það er gott
að nú hefur krabbameinið
læknast við að þú hefur kom-
ist til himna. Knús,
Logi Snær.
HINSTA KVEÐJA
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
OLGA GÍSLADÓTTIR,
Kirkjulundi 8,
Garðabæ,
áður Heiðargerði 90,
Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans mánudaginn
1. janúar.
Útförin fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ mánudaginn 8. janúar
kl. 15.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hinnar látnu er
bent á Krabbameinsfélag Íslands.
Sigurður Sigurðsson,
Erla Fríður Sigurðardóttir, Ingvar Friðriksson,
Fríður Sigurðardóttir, Ari Guðmundsson,
Guðmundur Kristinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐRÚN JÓNA SÆMUNDSDÓTTIR,
Kirkjuhvoli, Hvolsvelli,
áður til heimilis í
Miðtúni 2,
Selfossi,
lést fimmtudaginn 14. desember.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Guðmundur Finnbogason,
Sæmundur Þór Guðmundsson, Bára Jónasdóttir,
María Erla Guðmundsdóttir,
Hildur Guðmundsdóttir,
Finnbogi Guðmundsson, Sigríður Matthíasdóttir,
Svanur Guðmundsson, Kristjana Ólöf Valgeirsdóttir,
Sigurborg Svala Guðmundsd., Sigurður Rúnar Ívarsson.