Morgunblaðið - 06.01.2007, Síða 44

Morgunblaðið - 06.01.2007, Síða 44
44 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Þorsteinn Mika-el Einarsson fæddist á Grenivík 23. ágúst 1924. Hann lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri á gaml- ársdag síðastliðinn. Foreldrar hans voru Einar Guðbjartsson, f. 9. nóv. 1897, d. 13. nóv. 1927, og Guð- rún Stefánsdóttir, f. 31. des. 1899, d. 14. mars 1990. Fóstur- foreldrar Þorsteins frá 11 ára aldri voru Elín Björg Guðbjartsdóttir, f. 24. des. 1891, d. 28. feb. 1994, og Sigurður Jóhann- esson skósmiður, f. 4. maí 1892, d. 30. sept. 1981. Eftirlifandi bróðir Þorsteins er Matthías Einarsson, f. 10. júní 1926, kvæntur Jóhönnu Pálmadóttur. Einnig voru systkini hans: Friðrikka Jóhanna, f. 18. mars 1918, d. 8. apríl 1982; tvíbur- ar sem dóu í frumbernsku; Alda, f. 25. feb. 1922, d. 28. des. 1988; Ein- ar, f. 28. apríl 1928, d. 9. ágúst 1984. Fóstursystir Þorsteins er Sigurlína Sigurðardóttir, f. 15. jan. 1919. Þorsteinn kvæntist 29. júní 1946 Önnu Gunnlaugsdóttur, f. 15. mars 1926. Foreldrar hennar voru Gunnlaugur Friðfinnsson, f. 20. Pála, Birnir Mikael og Arngrímur. 4) Ingibjörg, f. 7. maí 1954, gift Róberti Pálssyni. Þeirra börn eru: a) Karen Sif í sambúð með Sigurði Hólm, þeirra dóttir er Sveina Rósa, b) Daði, c) Sveina Rún sem lést mánaðargömul árið 1993. Einnig eignaðist Ingibjörg soninn Inga Viðar árið 1974 sem lést sam- dægurs. 5) Þórhildur, f. 13. mars 1958 gift Páli Pálssyni. Þeirra börn eru: a) Eva, gift Gunnari Jónssyni, þeirra dóttir er Emma Ósk, b) Páll Þór og c) Haukur. 6) Elín Rún, f. 12. des. 1969, gift Bjarna Tómassyni, þeirra börn eru Davíð og Anna Líf. Þorsteinn flutti til Ólafsfjarðar 11 ára gamall. Þegar hann var að- eins 14 ára hófst hans sjómanns- ferill sem stóð alla hans starfsævi. Hann byrjaði sem háseti á opnum bátum og leitaði sér síðan mennt- unar og lauk vélstjóra- og stýri- mannsprófum. Hann var vélstjóri um árabil, síðan stýrimaður og skipstjóri um tíma. Lengi starfaði Þorsteinn við útgerð Sigvalda Þorleifssonar og einnig sem tog- arasjómaður hjá útgerðarfyr- irtækinu Sæberg. Vegna heilsu- brests þurfti hann að hverfa frá togarasjómennskunni. Þá keypti hann sér trillubát, Sigga Árna ÓF-10, og reri á honum meðan heilsan leyfði. Sjómennskan var hans líf og yndi og fylgdist hann vel með líf- inu við höfnina allt fram á síðasta dag. Útför Þorsteins verður gerð frá Ólafsfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. sept. 1894, d. 19. feb. 1927, og Gunnhildur Gunnlaugsdóttir , f. 10. maí 1902, d. 16. júlí 1972. Börn Þor- steins og Önnu eru: 1) Gunnlaugur Einar, f. 6. apríl 1946, kvæntur Jónasínu Dómhildi Karls- dóttur. Börn þeirra eru: a) Anna Lilja, í sambúð með Róberti Má Þorvaldssyni, þeirra dóttir er Rut Marín. b) Þorsteinn Mikael og c) Helgi Pétur. 2) Sig- ursveinn Hilmar, f. 2. mars 1948, kvæntur Valgerði Kristjönu Sig- urðardóttur. Börn þeirra eru: a) Gunnlaugur, kvæntur Gerði Ell- ertsdóttur, börn þeirra eru Örn Elí og Sunneva Lind. b) Þorsteinn Sigursveinsson, hans dætur eru Valgerður Kristjana og Álfheiður Birta. c) Freygerður, gift Her- manni Herbertssyni, þeirra dætur eru Hanna Karin og Hildur Heba. 3) Guðbjörg Þorsteinsdóttir, f. 17. des. 1951, gift Guðbirni Arngríms- syni. Þeirra dætur eru: a) Anna Hilda gift Guðmundi Jónssyni, þeirra synir eru Ívar Örn, Guðjón Breki og Guðbjörn Máni. b) Gunn- laug Björk, gift Birni Frey Björns- syni, þeirra börn eru Hugrún Ég hugsa til elskulegs pabba míns með ást og söknuði því með hlýju sinni og umhyggju umfaðmaði hann mömmu mína, okkur börnin sín og barnabörn. Ég er almættinu óendanlega þakklát fyrir hann pabba minn því með sinni hæglátu framkomu kenndi hann mér svo margt. Hann kenndi mér að það þarf ekki að hafa mörg orð um hluti heldur segir hlýja og virðing gagnvart öðrum meira en þúsund orð. Að mannkærleikur gerir alla að betri manneskjum og heiminn að betri stað fyrir börnin okkar. Ég mun hlýja mér við minning- arnar og segja börnunum mínum og barnabörnum sögur af honum afa. Hvað ég hlakkaði alltaf til þegar hann var að koma af sjónum, þegar mamma hélt veislu þegar hann kom í land og þegar hann horfði á mömmu með blik í auga og sagði: „Þessi manneskja.“ Og þegar ég horfði á hann pabba minn sofa og hugsaði hvað það væri nú gott að hafa hann heima. Það er gott að eiga fjársjóð af góð- um minningum og varðveita þær í hjarta sér. Ef líkja má ævinni hans pabba við sjóferð má segja að af og til hafi gefið á bátinn en oftast var stafalogn og ég er viss um að pabbi hefði sagt að hann hafi fiskað vel og gert góðan róður. Einu sinni var pabbi minn ungur drengur sem horfði út á hafið og lagði af stað í lífsins ólgusjó. Nú er hann farinn í sína hinstu ferð og við sem eigum líf okkar samtvinnað hans lífi horfum á eftir honum með söknuði og óendanlegu þakklæti fyr- ir allt. En við sjáum hann í huga okkar með kímið augnaráð, silfurgráa hár- ið og stóru hendurnar sínar, hann Dodda skó, brosa og veifa eins og þegar hann sigldi út á fjörðinn á Sigga Árna ÓF-10. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta, þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir, og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Þórhildur (Tóta). Ég hef leitað að orðum en átt erfitt með að finna þau. Ég hef eiginlega uppgötvað að orðin verða ansi fátæk- leg á stundum sem þessum. En það er kannski dálítið í anda pabba míns því hann var ekki maður margra orða. Pabbi minn var sá besti, hann var mikill rólyndismaður sem hugsaði fyrst og fremst um fjölskylduna sína og auðvitað sjómennskuna því sjó- maður var hann mikill. Hann var kærleiksríkur, umhyggjusamur og umfram allt góður faðir. Ég á margar fallegar minningar um hann enda var ég mikil pabba- stelpa. Hann kallaði mig oft lukku- skotið sitt því þegar ég fæðist eru systkini mín sum orðin fullorðin og sjálf farin að eiga börn. Þá var hann líka hættur að dvelja langdvölum í öðrum landshlutum á vertíð og hafði loks tíma til að sinna fjölskyldunni eins og hann vildi. Hann sinnti þó sjómennskunni alla tíð og margar af mínum minningum tengjast því, t.d. dvaldi ég mörgum stundum með pabba í vélasal Sólbergsins þegar hann var að taka olíu. Einnig man ég oft eftir mér sitjandi á kambinum að bíða eftir að skipið kæmi inn fjörð- inn. Ég man líka eftir spenningnum þegar pabbi var að koma heim úr siglingu því hann sá alltaf til þess að allir fengju eitthvað. Hann tók ekki nærri sér að kaupa kjóla á mömmu, föt á alla krakkana og eitthvað fleira spennandi. Auðvitað keypti hann líka kók í dós og útlenskan lakkrís og þá var mikið sport að rölta út í bæ með útlenskar gersemar og sýna að pabbi væri komin heim frá útlönd- um!! Eitt sinn setti ég í gleraugna- hulstrið hans áður en hann fór út á sjó lítið merkispjald sem hafði verið bundið um vínflösku – þar var það í mörg ár. Pabbi hafði reyndar sett ut- an um það límband því það rispaði svo gleraugun hans . Minningarnar eru margar, pabbi að bera mig um allan bæ á háhesti, pabbi að dansa við mömmu og síðar mig á eldhúsgólfinu og auðvitað raul- andi, pabbi að pota í bumbuna mína til að athuga hvort ég væri orðin södd. Litlar minningar úr daglegu lífi sem skipta mig svo miklu í dag. Systkini mín gera oft grín að því hve ég var seig að fá pabba til að borga fyrir mig enda sá hann alltaf til þess að ég kom heim úr ferðalög- um með meiri pening en ég hafði far- ið með í upphafi. Ég fékk kannski pening hjá afa til að fara með í ferða- lagið, síðan keypti ég alls konar hluti, pabbi borgaði og ég fékk af- ganginn!!! Mamma og pabbi áttu sextíu ára brúðkaupsafmæli í fyrra. Þau voru ástfangin alla tíð og báru mikla virð- ingu hvort fyrir öðru og óska ég þess að mitt hjónaband verði eins farsælt og þeirra. Þegar ég gifti mig leiddi pabbi mig inn kirkjugólfið þó honum þætti það frekar erfitt. Hann var ekki mikið fyrir athygli og því er ég óendanlega þakklát fyrir að eiga þessa minningu um hann. Einnig dansaði ég við hann í brúð- kaupsveislunni við lag sem mamma hafði samið – sú stund mun verða í huga mínum alla tíð. Eins og ég var mikil pabbastelpa voru börnin mín álíka mikil afabörn enda voru þau honum mjög mikils virði. Hann spurði um þau daglega og vildi fá vita hvernig gengi hjá okk- ur í Mosfellsbænum. Undir lokin hafði hann áhyggjur af því að hann fengi ekki að sjá þau þegar við kæm- um norður um áramótin því hann átti bókaðan tíma á spítalanum hinn 28. desember. Það fór nú svo að hann var orðin mjög veikur þegar við komum en gleðisvipurinn á andlitinu leyndi sér ekki þegar hann sá þau í dyragættinni. Eins og áður sagði var pabbi sjó- maður í húð og hár. Eftir að hann hætti sem togarasjómaður keypti hann sér gamla trillu sem hann nefndi Siggi Árna ÓF-10. Á sumrin reri hann og naut þess að sigla út fjörðinn, helst sem lengst og moka inn afla. Eftir að heilsan gaf sig fylgdist hann samt vel með og fór margar ferðir á bryggjuna á hverj- um degi. Það var eiginlega táknrænt að sama dag og pabbi lést trónaði gamla trillan hans efst á toppi ára- mótabrennunnar. Fjölskyldan stóð og horfði á Sigga Árna brenna og hugsaði um pabba sigla sínu gamla fleyi inn í eilífðina. Elín (Ella). Gamlársdagur var skrýtinn hjá okkur í fjölskyldunni Skó. Við ætl- uðum öll að vera saman um kvöldið og fagna 60 ára brúðkaupsafmæli ömmu og afa, sem var í sumar. Allir komnir að sunnan, það er svo gaman þegar við hittumst öll. En þessi dag- ur var ekki eins og hann átti að vera, afi Doddi var alltof veikur til að geta verið með okkur. Við hræddumst öll framhaldið, vissum hvert stefndi en enginn trúði því hvað þetta gerðist hratt. Afi Doddi dó á gamlársdag og sama dag var trillan hans, Siggi Árna, brennd á áramótabrennunni. Síðasti róður þeirra beggja. Hann afi er dáinn, það er svo ótrú- legt að segja þetta. Þessi stóri, fal- legi og góðhjartaði maður var besti afi sem hægt var að hugsa sér. Svo ótrúlega góður maður sem var svo umhugað um að öllum liði vel. Það er ekki annað hægt en að elska hann og ömmu Önnu og vera þakklát fyrir þau bæði. Afi var líka dásamlegur langafi og börnin okkar fengu svo sannarlega að kynnast því. Afi var lúmskur húmoristi, hann var ekki mjög málglaður en hann átti sínar stundir og skemmtileg tilsvör. Okk- ur þótti nú ekki leiðinlegt þegar hann var að stríða henni ömmu. Við systurnar erum svo heppnar að eiga fullt af góðum minningum um afa og ömmu á Gunnólfsgötunni. T.d. þegar amma las fyrir okkur Jón Odd og Jón Bjarna, afi skellihló og við lágum á dýnum á gólfinu og hlógum að afa. Þegar við vorum á leið í bústað á Ill- ugastöðum með Gylfa Ægis í kass- ettutækinu og á miðri Vaðlaheiði var stoppað og amma auðvitað með nesti, heimabakaðar snælur í köku- dunki. Þegar við spiluðum á spil við þau og afi kallaði hátt og með til- þrifum „rommí“ þegar hann vann. Hin síðari ár brást sjaldan er maður kom á Gunnólfsgötuna að afi var að lesa Moggann, örugglega í tíunda skiptið þann daginn eða að horfa á fótbolta í sjónvarpinu. Það er gott að eiga góðar minn- ingar, þær hugga okkar núna þegar við kveðjum afa. Elsku amma og allir í fjölskyld- unni Skó, við biðjum góðan Guð að blessa okkur öll, varðveita og styrkja í sorginni. Anna Hilda og Gunnlaug Björk. Nú þegar elsku afi Doddi hefur kvatt þennan heim langar okkur að minnast hans í nokkrum orðum. Hann afi Doddi var svo sterkur og stór; ég man að þegar ég var lítil stelpa grobbaði ég mig oft af því að afi minn Doddi væri með stærstu hendur í heimi. Nú þegar ég er orðin fullorðin minnist ég hans líka fyrir að vera með stærsta hjarta í heimi. Hann var alltaf svo góður og ljúf- ur. Hann var kannski ekki mikið fyr- ir að tala en hann sagði það sem hann þurfti að segja. Undanfarin ár höfum við átt ómet- anlegar stundir með afa Dodda og ömmu Önnu því að oft þegar við sát- um bara fjögur saman í Gunnólfsgöt- unni fór afi að segja okkur sögur frá því í gamla daga. Það var svo gaman að hlusta á hann segja skemmtilega frá og svo hlógu hann og amma saman að öllu því sem þau voru að rifja upp. Þau voru einstök hjón og hafa allt- af verið góð fyrirmynd okkar sem yngri erum, enda aldrei annað að finna á Gunnólfsgötu en góð- mennsku og hlýju. Emma Ósk var alltaf svo hrifin af afa Dodda þrátt fyrir að stundum hafi liðið nokkuð langur tími milli þess sem þau hittust. Nú bendir hún oft á hann á myndunum hérna heima og segir Doddi – við foreldrarnir ætl- um að vera dugleg að segja henni frá hvað hún hafi átt góðan langafa. Það verður skrýtið að fara á Gunn- ólfsgötuna og sjá ekki afa liggja í sóf- anum að lesa Moggann. Við vitum þó að hann er með okkur á annan hátt og huggum okkur við að hann er kominn á góðan stað. Elsku amma mín Anna og fjöl- skyldan öll, við skulum vera dugleg að taka utan um hvert annað og hugga hvert annað þegar við syrgj- um elsku afa, sem var langbesti afi í heiminum. Ég er á langferð um lífsins haf og löngum breytinga kenni. Mér stefnu frelsarinn góður gaf. Ég glaður fer eftir henni. Mig ber að dýrðlegum, ljósum löndum. Þar lífsins tré gróa’ á fögrum ströndum. Við sumaryl og sólardýrð. Og stundum sigli ég blíðan byr og bræðra samfylgd þá hlýt ég og kjölfars hinna er fóru fyrr án fyrirhafnar þá nýt ég. Í sólarljósi er særinn fríður og sérhver dagurinn óðum líður, er siglt er fyrir fullum byr. En stundum aftur ég aleinn má, í ofsarokinu berjast. Þá skellur niðadimm nóttin á, svo naumast hægt er að verjast. Ég greini ei vita né landið lengur, en ljúfur Jesús á öldum gengur, um borð til mín í tæka tíð. Mitt skip er lítið, en lögur stór og leynir þúsundum skerja. En granda skal hvorki sker né sjór því skipi, er Jesús má verja. Hans vald er sama sem var það áður, því valdi’ er særinn og stormur háður. Hann býður: Verði blíðalogn! Þá hinsti garðurinn úti er, ég eigi lönd fyrir stöfnum. Og eftir sólfáðum sæ mig ber, að sælum blælygnum höfnum. Og ótal klukkur ég heyri hringja. Og hersing ljósengla Drottins syngja. Velkominn hingað heim til vor. Lát akker falla ! Ég er í höfn. Ég er með frelsara mínum. Far vel þú æðandi dimma dröfn! Vor Drottinn bregst eigi sínum. Á meðan akker í æginn falla. Ég alla vinina heyri kalla, sem fyrri urðu hingað heim. (Þýð. Vald. V. Snævarr) Eva, Gunnar og Emma Ósk. Nú er lífsgöngu mágs míns og kærs vinar lokið. Öll verðum við að hlíta þeim æðsta dómi að eitt sinn skal hver deyja og er þá ekki spurt um stað eða stund. Þorsteinn Mikael Einarsson, eða Doddi eins og hann var jafnan kall- aður, var fæddur á Grenivík 23. ágúst 1924. Faðir hans, Einar Guð- bjartsson vélstjóri, var einn af fjór- um mönnum sem komust af í hinu hörmulega slysi er vélskipið Talism- an fórst við Vestfirði árið 1922 og bar Þorsteinn nöfn tveggja skipsfélaga og vina föður hans sem fórust í slys- inu, stýrimanns og skipstjóra þess. Einar faðir hans lést síðan árið 1927, líkast til af afleiðingum slyssins, og stóð móðir Dodda, Guðrún Stefáns- dóttir, þá ein uppi með fjögur börn og eitt ófætt en áður höfðu þau hjón misst unga tvíbura. Þá voru engar bætur og engir sjóðir sem hægt var að leita til og veit ég að það var tengdamóður minni erfitt að þurfa að flytja úr nýbyggðu húsi sínu og gerast ráðskona við útgerð föður síns. Þar ólust börnin upp, nema Doddi, honum var komið fyrir á bæj- um þar í sveitinni. Um ellefu ára ald- ur fer hann til föðursystur sinnar á Ólafsfirði, ólst þar upp og átti þar heima ætíð síðan. Hjá Sigurði skó- smið og föðursystur sinni Elínu eign- aðist Doddi loks öruggt skjól og at- læti sem veitti honum gott brautar- gengi til lífs síns. Eins og títt er um drengi í sjáv- arplássum var það sjórinn sem heill- aði og ungur fór Doddi til sjós og varð sjómennska hans ævistarf. Þorsteinn Mikael Einarsson Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birting- ardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bil- um - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.