Morgunblaðið - 06.01.2007, Page 48
48 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR Á MORGUN/KIRKJUSTARF
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 14.
Kór Bústaðakirkju syngur. Organisti Guð-
mundur Sigurðsson. Sr. Pálmi Matthías-
son. Fyrsta barnamessa ársins verður
sunnud. 14. janúar kl. 11.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Sr. Hjálmar
Jónsson prédikar. Dómkórinn syngur. Org-
anisti Marteinn H. Friðriksson.
GRENSÁSKIRKJA: Barnastarf kl. 11 í um-
sjón Jóhönnu Sesselju Erludóttur og ung-
linga í kirkjustarfinu. Messa kl. 11. Alt-
arisganga. Prestur sr. Ólafur Jóhannsson.
Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Organisti
Árni Arinbjarnarson. Samskot til ABC-
barnahjálpar. Molasopi eftir messu.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili:
Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Kjartan
Ólafsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa og barna-
starf kl. 11. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson
prédikar og þjónar fyrir altari ásamt
messuþjónum. Félagar úr Mótettukór
syngja. Organisti Björn Steinar Sólbergs-
son. Umsjón barnastarfs Magnea Sverr-
isdóttir djákni. Kaffisopi eftir messu.
HÁTEIGSKIRKJA: Laugard: Jólin dönsuð
út kl. 14. Dansað í kringum jólatré. Gesta-
gangur og veitingar. Umsjón Erla Guðrún
Arnmundardóttir og Þóra Marteinsdóttir.
Sunnud: Messa og barnaguðsþjónusta kl.
11. Umsjón Erla Guðrún Arnmundardóttir
og Þóra Marteinsdóttir. Léttar veitingar
eftir messu. Sr. Tómas Sveinsson.
Landsspítali háskólasjúkrahús: Foss-
vogur | Guðsþjónusta kl. 10.30 Rósa
Kristinsdóttir djákni, organisti Helgi
Bragason.
LANGHOLTSKIRKJA: Messa og barna-
starf kl. 11 í lok jólahátíðar. Hulda Sif
Ólafsdóttir syngur einsöng. Organisti Lára
Bryndís Eggertsdóttir. Prestur sr. Jón Helgi
Þórarinsson. Barnastarfið hefst í kirkjunni
en síðan fara börnin í safnaðarheimilið
með Rut og Steinunni. Kaffisopi.
LAUGARNESKIRKJA: Engin messa í Laug-
arneskirkju á morgun. Fyrstu messur nýja
ársins verða sunnudaginn 14. janúar kl.
11 og fer þá sunnudagaskólinn einnig af
stað og síðan verður fyrsta kvöldmessa
ársins þann sama dag kl. 20.
SÓLTÚN hjúkrunarheimili: Hátíðarguðs-
þjónusta kl. 14 í tilefni 5 ára afmælis Sól-
túns. Biskup Íslands hr. Karl Sigurbjörns-
son prédikar og þjónar ásamt prófasti sr.
Jóni Dalbú Hróbjartssyni, sr. Hildi Eir
Bolladóttur og Jóni Jóhannssyni djákna.
Ávarp: Anna Birna Jensdóttir. Alt-
arisganga. Kvartett. Organisti Aðalheiður
Þorsteinsd.
NESKIRKJA: Messa og barnastarf kl. 11.
Félagar úr Kór Neskirkju leiða safn-
aðarsöng. Organisti Steingrímur Þórhalls-
son. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar
og þjónar fyrir altari. Börnin byrja í mess-
unni en fara síðan í safnaðarheimilið. Um-
sjón Guðmunda og Björg. Kaffi og spjall á
Torginu eftir messu.
SELTJARNARNESKIRKJA: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Sunnudagaskólinn hefur
göngu sína að nýju eftir jól. Stundin er
sniðin að börnunum og fá þau öll nýja
sunnudagaskólabók, límmiða og poka.
Mikill söngur, brúðuleikrit o.fl. Organisti
Pavel Manasek. Umsjón hafa leiðtogar
sunnudagaskólans. Sr. Sigurður Grétar
Helgason.
ÁRBÆJARKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Helga Steffensen kemur með
Brúðuleikhúsið í heimsókn og sýnir leik-
ritið Númi eftir Sjón. Kaffi, djús og kex að
stundinni lokinni.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Messa kl. 11.
Prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir. Org-
anisti Magnús Ragnarsson. Barnaguðs-
þjónusta kl. 11 í umsjá Elínar, Jóhanns,
Karenar og Lindu. Léttur málsverður í
safnaðarheimili eftir messuna.
DIGRANESKIRKJA: Tónlistarguðsþjón-
usta kl 11. Kjartan Sigurjónsson organisti
kirkjunnar leikur valin orgelverk. Formaður
sóknarnefndar, dr. Hreggviður Norðdahl
flytur ritningarlestra og bænir milli tónlist-
aratriða. Sunnudagaskóli á sama tíma í
kapellu.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Messa kl. 11.
Prestur sr. Svavar Stefánsson. Um tónlist-
ina sér Þorvaldur Halldórsson. Sr. Svavar
flytur stutta innleiðingu að guðspjalli
sunnudagsins og þeir Svavar og Þorvaldur
verða síðan með stutt spjall um prédik-
unarefni dagsins og hvernig guðspjallið
talar til okkar í upphafi nýs árs.
GRAFARVOGSKIRKJA: Jazz- messa kl.
11. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson prédikar
og þjónar fyrir altari. Kvartett Björns Thor-
oddsens leikur. Barnaguðsþjónusta kl.
11. Prestur séra Bjarni Þór Bjarnason.
Umsjón: Hjörtur og Rúna. Undirleikari:
Stefán Birkisson.
GRAFARVOGSKIRKJA – Borgarholts-
skóli: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Prestur
séra Lena Rós Matthíasdóttir. Umsjón:
Gunnar, Díana og Dagný. Undirleikari:
Guðlaugur Viktorsson.
HJALLAKIRKJA: Guðsþjónsta kl. 11. Sr.
Sigfús Kristjánsson þjónar. Félagar úr kór
kirkjunnar syngja og leiða safnaðarsöng.
Organisti Sigrún M. Þórsteinsdóttir.
Barnaguðsþjónusta kl. 13. Við minnum á
bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18
(sjá einnig á www.hjallakirkja.is).
KÓPAVOGSKIRKJA: Þar sem starfsfólk á
frí þessa helgi verður ekki guðsþjónusta.
Barnastarf hefst sunnudaginn 14. janúar.
LINDASÓKN í Kópavogi: Messa og sunnu-
dagaskóli í Salaskóla kl. 11. Kór Linda-
kirkju leiðir safnaðarsöng undir stjórn
Keith Reed. Sr. Guðmundur Karl Brynj-
arsson þjónar.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Söngur, saga, ný mynd! Guðsþjónusta kl.
14. Ólafur Jóhann Borgþórsson guðfræð-
ingur prédikar. Kirkjukórinn leiðir söng.
Organisti Jón Bjarnason. Sjá heimasíðu
www.seljakirkja.is
BOÐUNARKIRKJAN: Samkomur alla laug-
ardaga kl. 11. Bænastund alla miðviku-
daga kl. 20. Biblíufræðsla allan sólar-
hringinn á Útvarp Boðun FM 105,5. Allir
velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Samkoma sunnu-
daginn 7. janúar kl. 20. Umsjón: Anne
Marie og Harold Reinholdtsen. Heim-
ilasamband fyrir konur mánudaginn kl.
15. Opið hús daglega kl. 16–18 (nema
mánudaga).
FRÍKIRKJAN KEFAS: Almenn samkoma
sunnudaginn 7. janúar kl. 14. Björg R.
Pálsdóttir prédikar. Lofgjörð, fyrirbænir,
barnagæsla og kaffisala eftir samkomu.
Allir velkomnir.
HVÍTASUNNUKIRKJAN FÍLADELFÍA:
Brauðsbrotning kl. 11. Ræðum. Vörður
Leví Traustason. Almenn samkoma kl.
16.30. Ræðum. Jón Þór Eyjólfsson. Lof-
gjörðarhópur samhjálpar leiðir söng. Fyr-
irbænir í lok samkomu. Aldursskipt barna-
kirkja 1–12 ára. Allir velkomnir. Bein
útsending á Lindinni eða á ww.gospel.is.
Samkoma á Omega kl. 20.
KFUM og KFUK: Samkoma kl. 20. Guð-
laugur Gunnarsson flytur okkur nýárs-
boðskap. Fyrirbæn fyrir starfinu á nýju ári.
Heitt á könnunni eftir samkomu. Allir vel-
komnir.
KROSSINN: Almenn samkoma að Hlíð-
arsmára 5 kl. 16.30.
KIRKJA JESÚ KRISTS hinna síðari daga
heilögu, Mormónakirkjan: Sakrament-
issamkoma verður haldin kl. 11:15 að
Ásabraut 2, Garðabæ. Allir velkomnir.
Barnafélags-, unglingafélags- og fullorðn-
isbekkir í sunnudagaskóla eru í beinu
framhaldi.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Guðs-
þjónusta verður í Stafkirkjunni á þrettánda
degi jóla kl. 14 með Lúðrasveit Vest-
mannaeyja. Sr. Kristján Björnsson þjónar.
Ekki verður messað í Landakirkju sunnu-
daginn 7. janúar en barnaguðsþjónustur
hefjast að nýju á nýju ári 14. jan. og mess-
ur sama sunnudag eftir hádegi. Prest-
arnir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Prestur sr. Gunnþór Þ. Ingason.
Organisti Aðalheiður Þorsteinsdóttir. Kór
Hafnarfjarðarkirkju leiðir söng. Sunnu-
dagaskólar í Hvaleyrarskóla og Strand-
bergi á sama tíma.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Fjöl-
skylduhátíð kl. 11. Sunnudagaskólinn og
fjölskylduguðsþjónustan saman í einni
stórri fjölskylduhátíð. Barnakórinn og Ung-
lingakórinn syngja undir stjórn Áslaugar
Bergsteinsdóttur.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11.
VÍDALÍNSKIRKJA: Fjölskylduguðsþjón-
usta kl.11:00. Sr. Hans Guðberg Al-
freðsson leiðir guðsþjónustuna ásamt Jó-
hönnu Guðrúnu Ólafsdóttur djákna og sr.
Jónu Hrönn Bolladóttur. Jóhann Baldvins-
son organisti leiðir lofgjörðina ásamt fé-
lögum úr kór kirkjunnar. Sjá www.garda-
sokn.is
AKUREYRARKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Sólveig Halla Kristjánsdóttir. Fé-
lagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Súpa
og brauð (kr. 300) eftir guðsþjónustuna.
GLERÁRKIRKJA: Messa kl. 11. Félagar úr
kór Glerárkirkju syngja. Organisti Hjörtur
Steinbergsson. Sr. Arnaldur Bárðarson
þjónar. Kvöldguðsþjónusta með léttri tón-
list kl. 20.30. Krossbandið, Snorri, Ragga
og Kristján, leiða söng. Sr. Arnaldur Bárð-
arson þjónar.
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Almenn
samkoma sunnudag kl. 17. Pétur Reyn-
isson talar. Allir velkomnir.
EGILSSTAÐAKIRKJA: Ljósahátíð sunnu-
dagaskólans kl. 11. Sóknarprestur.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa sunnu-
dag 7. janúar kl. 11. Sóknarprestur.
SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 11. Kirkjukór
Selfoss. Organisti Jörg E. Sondermann.
Foreldrar fermingarbarns, hjónin Rósa I.
Traustadóttir og Guðmundur G. Gunn-
arsson lesa ritningartexta. Fermingarbörn
og foreldrar sérstaklega hvött til að koma
til kirkju. Barnasamkoma fellur niður en
verður haldin næst 14. janúar nk.
HVERAGERÐISKIRKJA: Kynningarfundur í
Hveragerðiskirkju mánudaginn 8. janúar
kl. 20. Upplýsingar og innritun í síma
483 4255, gsm 862 4253. netfang: jon-
.ragnarsson@kirkjan.is
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Guðspjall dagsins: Þegar
Jesús var tólf ára.
(Lúk. 12).
Þorvaldur Halldórsson
í Fella- og Hólakirkju
ÞORVALDUR Halldórsson tónlist-
armaður verður gestur okkar í
messunni í Fella- og Hólakirkju kl.
11 á morgun, sunnudag. Þorvaldur
mun spila og leiða, ásamt kór-
félögum úr kór kirkjunnar, þá
söngva sem fluttir verður í mess-
unni. Sóknarprestur Fellasóknar,
sr. Svavar Stefánsson, þjónar fyrir
altari og verður hann með stutt
innlegg út frá guðspjalli sunnu-
dagsins sem fjallar um Jesús og
börnin. Í framhaldi af því munu
þeir sr. Svavar og Þorvaldur spjalla
saman um efni dagsins og einnig
verða kirkjugestir hvattir til að
koma fram með athugasemdir og
eigið innlegg um þetta íhugunar-
efni sunnudagsins, Jesús og börnin.
Þannig geta þeir sem vilja lagt sinn
skerf til hins talaða orðs í mess-
unni.
Þetta form gefur okkur tækifæri
til að bregða út af vananum og hafa
tilbeiðsluna og boðunina með öðru
yfirbragði en í hinni hefðbundnu
messu. Auk þess gefur það meira
svigrúm fyrir almenna þátttöku og
virkni hins almenna kirkjugests.
Þetta efni, Jesús og börnin, er líka
sístætt umfjöllunarefni og snertir
okkur öll með einum eða öðrum
hætti.
Allir eru velkomnir í Fella- og
Hólakirkju á sunnudaginn kl. 11 að
taka þátt í messunni. Á eftir verður
kaffi á könnunni eins og venjulega
og djús fyrir þá sem kjósa.
Grafarvogskirkja –
Jazz-messa
JAZZ-messa kl. 11. Á annan áratug
hefur verið haldin Jazz-messa á jól-
um í Grafarvogskirkju. Dr. Sig-
urjón Árni Eyjólfsson hefur prédik-
að og þjónað fyrir altari öll árin.
Kvartett Björns Thoroddsens leik-
ur.
Í gegnum árin hefur verið mikil
þátttaka í þessum messum sem eru
óvenjulegar um margt.
Barnastarfið í
Grafarvogskirkju
ALLT barna- og æskulýðsstarf
hefst frá og með sunnudeginum 7.
janúar. Barnaguðsþjónustur verða
í Grafarvogskirkju og Borgarholts-
skóla kl. 11.
Nánar er fjallað um starfið á vef
kirkjunnar: www.grafarvogs-
kirkja.is
Kyrrðarstundir í
Grafarvogskirkju
KYRRÐARSTUNDIR eru alla mið-
vikudaga kl. 12. Í stundinni er alt-
arisganga og fyrirbænir. Boðið er
upp á léttan hádegisverð að lokinni
stundinni. Allir velkomnir.
Alfa-námskeið
í Breiðholtskirkju
Hver er tilgangur lífsins? Hvernig
leiðbeinir Guð okkur? Hvað með ei-
lífðina? Þessar spurningar eru
meðal þess sem fjallað verður um á
Alfa-námskeiði sem haldið verður í
Breiðholtskirkju í Mjódd næstu
þriðjudagskvöld. Alfa er tíu vikna
námskeið þar sem þátttakendur
koma saman einu sinni í viku og
hefst hver samvera með léttum
málsverði. Á námskeiðinu er fjallað
um grundvallaratriði kristinnar
trúar á einfaldan og þægilegan
hátt. Alfa-námskeiðið er opið fyrir
alla sem hafa áhuga á að velta fyrir
sér mikilvægum spurningum lífsins
og er engin krafa gerð um trúaraf-
stöðu. Hver og einn kemur á Alfa á
eigin forsendum og hafa nám-
skeiðin notið mikilla vinsælda á síð-
astliðnum árum.
Kynningarkvöld fyrir Alfa-
námskeiðið verður haldið í safn-
aðarheimili Breiðholtskirkju nk.
þriðjudagskvöld 9. janúar kl. 20.
Námskeiðið hefst síðan á sama stað
viku síðar, 16. janúar kl. 19. Hverri
samveru lýkur um kl. 22, en einnig
er gert ráð fyrir að þátttakendur
fari saman einn sólarhring út úr
bænum. Frekari upplýsingar eru
veittar í Breiðholtskirkju í síma
587 1500 og þar er einnig tekið við
skráningum. Sömuleiðis má fá nán-
ari upplýsingar um Alfa-nám-
skeiðin á heimasíðunni www.alfa.is
Foreldramorgnar í
Grafarvogskirkju
FORELDRAMORGNAR eru alla
fimmtudaga kl. 10–12. Fræðandi og
skemmtilegar samverustundir.
Alltaf heitt á könnunni, djús og
brauð fyrir börnin.
Alfanámskeið í
Grafarvogskirkju
KYNNINGARFUNDUR um Alfa-
námskeið í Grafarvogskirkju verð-
ur fimmtudaginn 11. janúar nk. kl.
19. Skráning fer fram á skrifstofu
Grafarvogssóknar í síma 587 9070.
Brúðuleikhús í
Árbæjarkirkju
Á sunnudaginn verður fjölskyldu-
guðsþjónusta í Árbæjarkirkju. Líkt
og undanfarin ár kemur Helga
Steffensen með brúðurnar sínar í
heimsókn í upphafi árs. Að þessu
sinni er það leikritið Númi eftir
Sjón sem boðið er upp á. Við hvetj-
um kynslóðir til að sameinast og
fjölmenna í guðsþjónustu á sunnu-
daginn. Að venju er boðið upp á
kaffi, djús og kex að stundinni lok-
inni.
Fjölskylduguðsþjón-
usta í Vídalínskirkju
BARNASTARF Garðasóknar hefst
á nýju ári með fjölskylduguðsþjón-
ustu á sunnudag í Vídalínskirkju kl.
11. Sr. Hans Guðberg Alfreðsson
leiðir guðsþjónustuna ásamt Jó-
hönnu Guðrúnu Ólafsdóttir djákna
og sr. Jónu Hrönn Bolladóttur. Jó-
hann Baldvinsson organisti og fé-
lagar úr kór Vídalínskirkju leiða
lofgjörðina. Guðsþjónustan er snið-
in að þörfum barnanna hvað varðar
biblíufræðslu og boðun.
Tókum á móti nýju ári með þakk-
læti og eigum stund með hvert öðru
í kirkjunni. Að lokinni guðsþjón-
ustu er boðið upp á hressingu í
safnaðarheimili Vídalínskirkju. All-
ir velkomnir. Sjá www.gardsokn.is
Morgunblaðið/Arnaldur Halldórsso