Morgunblaðið - 14.01.2007, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 2007 B 17
ELKO
leitar að framtíðarstarfsmanni
Helstu verkefni eru:
● Þátttaka í innkaupum
● Bókun reikninga
● Umsýsla og utanumhald vegna innflutnings
● Tímaskráning starfsmanna
● Önnur tengd verkefni.
Leitað er að einstaklingi með óbilandi áhuga á
því sem hann tekur sér fyrir hendur ásamt met-
naði til að standa sig í starfi.
Góð ensku- og tölvukunnátta nauðsynleg.
Einkunnarorð okkar eru:
Lipurð - gleði - drifkraftur.
ELKO er leiðandi verslun á íslenskum
raftækjamarkaði og í stöðugum vexti.
Starfræktar eru tvær verslanir á
höfuðborgarsvæðinu og á næstu mánuðum
opnar glæsileg verslun í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar.
Vinsamlegast sendið skriflega umsókn með
upplýsingum um reynslu, menntun og
fjölskylduhagi til: ELKO, Smáratorg 1, 201
Kópavogur, merkt "UMS070110".
Upplýsingar eru ekki veittar í síma.
Öllum umsóknum verður svarað skriflega.
ELKO SMÁRATORGI OG SKEIFUNNI 7 - SÍMI
544 4000
Frjálsi fjárfestingarbankinn Lágmúla 6 108 Reykjavík Sími 540 5000 Fax 540 5001 www.frjalsi.is
Verkfræðingur eða
byggingatæknifræðingur
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Frjálsi fjárfestingarbankinn hf. óskar eftir að ráða í fullt starf, verkfræðing eða
byggingatæknifræðing í starf verkefnastjóra í nýbyggingalánadeild. Starfið
felst meðal annars í uppsetningu og yfirferð á kostnaðaráætlunum, úttektum
og eftirlit með eignum og verkefnastjórn á nýbyggingalána- og
fjárfestingarverkefnum.
Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi með menntun og starfsreynslu
á sviði byggingaverkfræði eða í byggingatæknifræði. Nákvæm og öguð
vinnubrögð, samskiptafærni, frumkvæði og sjálfstæði eru nauðsynlegir kostir.
Um er að ræða fjölbreytt starf á góðum reyklausum vinnustað.
Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Óli Árnason, forstöðumaður útlánasviðs í
síma 540 5000, milli kl. 15–16. Áhugasamir sendi umsóknir ásamt mynd til
bankans merktar„Byggingar”, eða á eirikur@frjalsi.is fyrir 26. janúar nk.
eextra
extra
í Kringlunni óskar eftir
starfsfólki í hlutastörf
jafnt virka daga og helgar.
Umsóknir berist til auglýsingadeildar mbl.
eða á box@mbl.is merktar extra-19450
Kranamaður
Óskum eftir vönum kranamanni á nýjan
Libherr H 112 til starfa hjá traustu bygging-
arfyrirtæki með næg verkefni framundan.
Góð laun í boði fyrir góðan mann.
Upplýsingar gefur Sæmundur í síma
893 0847 og Baldur í síma 893 3847.