Morgunblaðið - 17.01.2007, Page 1

Morgunblaðið - 17.01.2007, Page 1
STOFNAÐ 1913 16. TBL. 95. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is WHITAKER BAR AMIN UNDIR BALTASAR KORMÁK >> 15, 33 & 43 MAGNÚS MAGNÚSSON JARÐAÐUR Í DAG MINNINGAR UM ÍSLENDING >> 11 OG 26 Alltaf á mi›vikudögum! lotto.isPotturinn stefnir í 50 milljónir. Ofurpotturinn stefnir í 80 milljónir og bónusvinningurinn í 29 milljónir sem er sá stærsti frá upphafi. BÓNUS- 29 MILLJÓNIR VINNINGUR Vertu me› fyrir kl. 17, í dagSTÆRSTI BÓNUSPOTTUR FRÁ UPPHAFI Bagdad. AFP. | Ljóst er að minnst 70 manns, þ.á m. margir stúdentar, kennarar og aðrir starfsmenn, létu líf- ið af völdum sjálfsmorðssprengju- manns og bílsprengju í þekktum há- skóla, Mustansiriyah, í Bagdad í gær. Nær 140 að auki særðust. Sprenging- arnar urðu með stuttu millibili við anddyri skólans er nemendurnir, að- allega stúlkur, voru á heimleið. Nuri al-Maliki forsætisráðherra gaf í skyn að íslamskir ofstækismenn og stuðningsmenn einræðisherrans Saddams Husseins hefðu staðið fyrir ódæðinu við háskólann. „Réttlætið mun elta þá uppi“ „Um leið og við fordæmum þennan andstyggilega glæp ítrekum við að gerendurnir munu ekki sleppa við refsingu, réttlætið mun elta þá uppi, sama hve langan tíma það tekur,“ sagði al-Maliki. Hálfbróðir Saddams, Barzan Ibrahim al-Tikriti, stundaði um hríð nám við skólann sem stofn- aður var á 13. öld. Bræðurnir voru ný- lega teknir af lífi í Bagdad. | 14 Hryðju- verk í háskóla ÁSTRALSKA múslímakonan Aheda Zanetti hefur hannað baðföt handa trúsystrum sem vilja geta farið að ströndina án þess að hneyksla aðra múslíma. Fötin nefnast búrkiní, með vísan til bikiní og búrku, kufls sem hylur allan líkamann. Reuters Búrkiní er lausnin TÖLUVERT fjúk var í Austur- strætinu þegar ljósmyndari Morg- unblaðsins átti þar leið um í gær. Á dögum sem þessum borgar sig að vera vel búinn með hlýja húfu, vettlinga og trefil, enda virðist kaldur vindurinn ná að smjúga í gegnum merg og bein mörgum til mikillar armæðu. Morgunblaðið/Sverrir Skafrenningur í Austurstræti Eftir Ólaf Þ. Stephensen í London olafur@mbl.is GEOFF Hoon, Evrópumálaráðherra Bretlands, segist hafa skilning á áhyggjum íslenzkra stjórnvalda af vörnum landsins eftir að banda- rískt varnarlið var kallað heim frá Keflavíkurstöð- inni. Hins vegar séu herstöðvar með gamla laginu úreltar og gagnist ekki bandalaginu í verkefnum þess nú. „Það er mikilvægt fyrir NATO að við afleggjum þá hefð að hafa kyrr- stæðan herafla,“ sagði Hoon í samtali við Morgunblaðið í gær. Ráðherrann, sem fer meðal annars með málefni NATO í brezka utanríkisráðuneytinu, segist viðurkenna að auðvitað hafi það verið alvarlegt mál fyrir Ísland þegar varnarstöðin var lögð niður. „Þetta er ekki aðeins vandamál fyrir Ísland. Ég hef átt nákvæmlega sömu samtöl í Portúgal og öðrum ríkjum. En NATO leggur í dag áherzlu á hreyfanlegar sveitir. Hluti af vandamálinu, sem við verðum að horfast í augu við, er að öll aðildarríkin telja að þau ættu að hafa einhvers konar stöðvar eða búnað á vegum NATO, en það mun ekki hjálpa okkur mikið í aðgerðum okkar í Afganistan, Írak eða Afríku.“ Breyttar áherslur Hoon segist ekki taka undir þær áhyggjur, sem fram hafa komið m.a. í Noregi og á Íslandi, að NATO beini athygli sinni um of til suðurs og aust- urs, að fjarlægum átakasvæðum. „Áherzlan er ekki lengur á stað- bundnar varnir einstakra land- svæða,“ segir ráðherrann. „Núna snýst þetta um sveigjanleika og að geta sent herafla hvert á land sem er. Þessi sveigjanleiki mun auðvitað gera okkur kleift að senda herafla til norð- urslóða ef þörf krefur, rétt eins og til Afganistans eða Suður-Evrópu.“ Viðræður hátt settra íslenzkra og brezkra embættismanna um öryggis- og varnarmál hófust í London í gær. Herstöðvar í NATO- ríkjum nýt- ast ekki í Afganistan Geoff Hoon Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is MARGRÉT Sverrisdóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér í embætti varaformanns Frjálslynda flokksins, en kosið verður um embættið á landsþingi flokksins 27. janúar nk. „Ég lít svo á að með þessu sé ég að rétta fram sáttarhönd til að styrkja flokkinn og forðast klofning,“ segir Margrét og tekur fram að hún sé þess fullviss að hægt sé að setja nið- ur þær deilur sem ríkt hafi innan flokksins að undanförnu. Mikilvægt að konur skipi æðstu stöður til jafns við karla Aðspurð hvers vegna hún velji að sækjast ekki eftir formannsembætt- inu, eins og hún hafi sjálf ýjað að, segist Margrét líta svo á að það þjóni ekki hags- munum flokksins að hún fari gegn núverandi for- manni. „Við Guðjón höfum átt afar farsælt samstarf þau ár sem við höfum unnið sam- an,“ segir Margrét og segist þess fullviss að þau muni áfram eiga gott samstarf. Að mati Margrétar myndi það styrkja Frjálslynda flokkinn að stilla upp konu í annað æðsta embætti flokksins. Segist hún sannfærð um að eigi flokkurinn að höfða til breiðari hóps kjósenda en hann nú geri sé mikilvægt að konur skipi æðstu stöður flokksins til jafns við karla. Spurð hvort hún telji að hörð kosningabarátta um varaformanns- embættið sé framundan svarar Mar- grét: „Ég lít ekki á þetta sem slag, heldur tel ég framboð mitt vera kost fyrir flokksmenn að vega og meta. Mér finnst ég eiga erindi í varafor- mennskuna, ekki síst vegna þeirra málefna sem ég hef staðið fyrir,“ segir Margrét og nefnir í því sam- bandi mennta- og heilbrigðismál, sem og málefni þeirra sem eigi undir högg að sækja í samfélaginu, s.s. fatlaða og aldraða. Spurð um væntanlegt þingfram- boð segist Margrét ætla að óska eftir því að leiða lista Frjálslynda flokks- ins í Reykjavíkurkjördæmi suður. Sér framboðið sem útrétta sáttarhönd Margrét Sverrisdóttir Margrét Sverrisdóttir gefur kost á sér sem varaformaður

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.