Morgunblaðið - 17.01.2007, Síða 8

Morgunblaðið - 17.01.2007, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Þið Bakkafjörulallar getið hætt að dilla ykkur, það verða engar ákvarðanir teknar fyrr en við Maggi Toyota verðum búnir að djúpbora. VEÐUR Talsmaður svínabænda hefur náðþeim árangri með málflutningi sínum á síðum Morgunblaðsins und- anfarna daga að koma því til skila, að fataverð er of hátt á Íslandi – hvað sem líður verði á svínakjöti.     ÍMorgunblaðinu í gær kom fram,að skv. tölum hagstofu ESB væri fataverð 63% hærra á Íslandi en að meðaltali í 15 ríkjum ESB.     Hins vegar erljóst að þrátt fyrir hið háa verð hefur það verið að lækka. Hagstofa Ís- lands segir að föt hafi lækkað í verði um 10,8% á sama tíma og neyzluverðsvísitalan hafi hækkað um 36,5%.     Þetta þýðir að þótt föt hafi lækk-að í verði hafa þau ekki lækkað nógu mikið.     Þau hafa lækkað frá mjög háuverði en eftir sem áður er verð- munurinn alltof mikill.     Ingvi Stefánsson, formaður Svína-ræktafélags Íslands, hefur því skorað mark með röksemdafærslu sinni, þótt í fyrstu hafi þótt langsótt að tala um verð á svínakjöti og föt- um í sömu andrá.     Hátt fataverð réttlætir hins vegarekki of hátt verð á svínakjöti.     Hann er raunverulega að segjavið stórmarkaðina, alla vega þá, sem selja föt, að þeir séu að kasta steinum úr glerhúsi.     En er hann í glerhúsi sjálfur viðað kasta steinum?     Íslenzkir neytendur vilja fá svarvið því. Þeir kunna því ekki vel að vera hafðir að fíflum, hvort sem um er að ræða fataverð eða mat- vælaverð. STAKSTEINAR Ingvi Stefánsson Glerhúsin SIGMUND                   !   "# $! %!!  !  &' ( ) * ! -. ( -' -/ -/ 0 1'2 1-' / 13 '3 4  4  4  5 6! 4  ) % 5 6! 7   %   6! 5 6! 6!  )# + !  ,- .  ' / ! ! 0     +-  ! !   . - 8 / -- 0 0 ( 8 - 2 ) % ) %    5 6! 6! 6! 6!    7 6! 4   ! "1 2  !     1  3    2- 2  4! 1! & 5# )67! 8 !!) 1. 1. 1-8 1-9 1/ 10 19 1-/ - ' 8 )*6! 5 6! 4     5 6! 6! 5 6!      5 6! 7  %   ) %    9! : ;                                    !    !  "   #   : #  !* )        !  <2   < #  <2   < #  <2   !   :;    = 2!>         :! <  =    *  =1 5!    )6  !!   %  *  * 5!      !      <  ? 76   ?    ?    *   !  5     >  !  = @  *   2 -2 >       A= *6  *B    "3(4@ @<4A"BC" D./C<4A"BC" ,4E0D*.C" -2/ /'' 2>9 2>. 9-0 3'8 0/. '/3 --/( -/.8 -99/ (92 -3/9 -0/8 '''. -./( -29- --'- --28 -2'3 -8'9 -82. -9.8 -9.( '/.2 '2./ />8 '>2 ->' ->3 ->2 2>9 2>' 2>9 />/ ->3 ->- ->9 2>0 2>/            ÁTTA lífeyrissjóðir af ellefu, sem standa saman að Greiðslustofu lífeyr- issjóða, hafa ákveðið að miða við eldri reglur um tekjuviðmiðun örorkulíf- eyrisþega og taka ekki að fullu tillit til tekna öryrkja frá Tryggingastofnun við útreikninginn. Jafnframt skora sjóðirnir á stjórnvöld að flýta endur- skoðun kerfisins þannig að nýjar reglur verði tilbúnar áður en kemur að næstu tekjuathugun á hausti kom- anda. Um er að ræða lífeyrissjóði al- menns verkafólks utan höfuðborgar- svæðisins, bænda og hluta iðnaðar- manna, en Gildi lífeyrissjóður, sem er stærsti sjóðurinn í Reiknistofunni, hafði áður ákveðið að fara aðra leið í þessum efnum og miða framreikning tekna við launavísitölu en ekki neysluverðsvísitölu sem minnkar þá skerðingu sem annars hefði orðið. Kári Arnór Kárason, fram- kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Norður- lands, sem er einn ofangreindra sjóða, sagði að þarna væri á ferðinni tvö ólík mál og ekki lægi á að taka ákvörðun um að breyta viðmiðun framreiknings enda óvíst hvenær sú ákvörðun öðlaðist gildi. Í frétt af þessu tilefni kemur fram að vöxtur örorkulífeyris sé farinn að ógna öðrum tegundum lífeyris og muni leiða til lækkunar á ellilífeyri verði ekki hægt að sporna við honum. Aukningin bitni mjög mismunandi mikið á einstaka sjóðum „sem ekki getur talist sanngjarnt eða eðlilegt. Aukning á örorku er samfélagslegt vandamál, sem rétt er að taka sam- eiginlega á“. Segir að í trausti þess að lífeyriskerfið verði endurskoðað með það að markmiði að jafna stöðu lífeyr- issjóðanna að þessu leyti, samþykki þeir að miða áfram við eldri reglur um tekjur frá TR, jafnframt því sem skorað er á stjórnvöld að flýta endur- skoðun kerfisins. Nota eldri reglur um tekjuviðmiðun Skorað á stjórnvöld að flýta endurskoðun lífeyriskerfisins vegna örorkulífeyris HAGVÖXTUR er mjög mismunandi eftir landshlutum, samkvæmt nýrri skýrslu sem Byggðastofnun og Hag- fræðistofnun Háskóla Íslands hafa tekið saman fyrir tímabilið 1998– 2004. Langmestur var hagvöxturinn á þessum árum á höfuðborgarsvæð- inu, eða 39%, en hagvöxtur fyrir landið allt var 29%. Hagvöxturinn er reiknaður út frá framleiðsluuppgjöri fyrirtækja í hverjum landshluta, en jafnframt er höfð hliðsjón af atvinnuteknaupp- gjöri. Notuð voru gögn um atvinnu- tekjur og rekstur fyrirtækja frá Hagstofunni en ekki var farið lengra aftur í tímann en til ársins 1998 þar sem góð gögn liggja ekki fyrir um fyrri ár. Næstmestur reyndist vöxt- urinn á Austurlandi, 22%, en á þessu tímabili hófust einmitt stóriðjufram- kvæmdir við Kárahnjúka og á Reyð- arfirði. Vesturland, Suðurland og Suðurnes koma næst á eftir og segja skýrsluhöfundar að þeir landshlutar njóti vafalaust nálægðarinnar við höfuðborgarsvæðið. Hagvöxtur á Norðurlandi eystra reyndist vera 11% en verst koma Vestfirðir og Norðurland vestra út á þessu tímabili. Þar varð samdráttur um 6% í hvoru kjördæminu „gamla“ fyrir sig en skýrsluhöfundar miða við kjördæmaskipanina eins og hún var árin 1959–1999, með þeirri und- antekningu að nágrenni Reykjavík- ur er flokkað með höfuðborginni og Suðurnesin höfð sér. Hvað gerist fyrir austan? Mun meiri sveiflur í atvinnulífinu voru á þessum árum á Vestfjörðum en á Norðurlandi vestra. Þannig varð mikill samdráttur í fiskveiðum árið 1999 en árið 2001 réttu veiðarn- ar heldur úr kútnum. Skýrsluhöf- undar segja fróðlegt að fylgjast með hagvexti eftir landshlutum á kom- andi árum, ekki síst á Austurlandi að loknum stóriðjuframkvæmdum. Hagvöxturinn í landinu misjafn + + + + + + %! , -  # ./ % &" !     0  1   1   2"   3  0 2"      4             56+ 56+ VERSLANAKEÐJAN 10–11 hefur ákveðið að selja áfengis- og fíkni- efnapróf í öllum verslunum sínum í ljósi áhuga viðskiptavina á vörunum sem fyrst voru seldar í einni búð í desember. Um er að ræða skyndi- próf vegna áfengis, kannabis, am- fetamíns, e-taflna, kókaíns og mor- fíns. Guðjón Reynisson framkvæmdastjóri 10–11 segir söl- una leyfilega og bætir Guðmundur Gíslason innkaupastjóri 10–11 því við að um sé að ræða aukna þjónustu við viðskiptavini með sölu á vöru sem áður var seld í apótekum. Guðmund- ur telur kaupendahópinn saman- standa m.a. af fíkniefnaneytendum, foreldrum og ef til vill fyrirtækjum sem vilja leggja fíkniefnapróf fyrir sína starfsmenn. Salan á skyndiprófunum hefur reyndar ekki verið í miklum mæli, en eigi að síður nægileg til að 10–11 hafa ákveðið að stórauka framboðið á vörunum. Með ákvörðun sinni hafa 10–11 nálgast markað apótekanna meira en áður um leið og verið er að bjóða upp á nýjungar að sögn Guð- mundar. Aðspurður segist hann eng- ar áhyggjur hafa af því að 10–11 búð- irnar fari með þessu að draga fíkniefnaneytendur inn í búðirnar með tilheyrandi vandamálum. Bend- ir hann á að daglega versli 20 þúsund manns í 10–11 búðunum og klárlega séu nú þegar einhverjir fíkniefna- neytendur meðal viðskiptavina. Selja fíkni- efnapróf í 10–11

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.