Morgunblaðið - 17.01.2007, Síða 9

Morgunblaðið - 17.01.2007, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2007 9 FRÉTTIR SÍÐUMÚLA 11 - 108 REYKJAVÍK - SÍMI 575 8500 - www.fasteignamidlun.is Pálmi Almarsson lögg. fasteignasali Sverrir Kristjánsson lögg. fasteignasali Brynjar Fransson lögg. fasteignasali Þór Þorgeirsson lögg. fasteignasali TRAUST, ÞEKKING, FAGMENNSKA OG REYNSLA ERU OKKAR LYKILORÐ ERUM TIL ÞJÓNUSTU REIÐUBÚNIR - 100 ÁRA SAMANLÖGÐ REYNSLA Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Meiri verðlækkun á útsölunni Tilboðsdagar 20% afsláttur af völdum vörum Síðumúla 3, sími 553 7355 Opið virka daga 11-18, laugardaga 11-15 Bláu húsin Fákafeni, sími 588 4545. Sigurstjarnan Opiðvirka daga kl. 11-18, lau. kl. 11-15 Ekta pelsar 50% afsláttur Einnig stórar stærðir. Léttar greiðslur. Rýmingarsala XSTREAM DESIGN AN 07 01 002 Fjörður •  • 565 7100 Símar 561 1525 og 898 3536. Upplýsingar og innritun kl. 15-21 alla daga. Málað með olíu, vatnslitum og akrýl. Teiknun. HÆSTIRÉTUR hefur stytt gæslu- varðhald yfir rúmlega fertugum sí- brotamanni sem héraðsdómur úr- skurðaði í gæslu til 2. maí á föstudag. Rennur varðhaldið út 2. apríl sam- kvæmt dómi Hæstaréttar. Rétturinn leysti manninn úr gæsluvarðhaldi í síðustu viku og hnekkti þar með úr- skurði héraðsdóms, þar sem Hæsti- réttur taldi ekki að lögreglustjóri væri bær um að reka málið. Maðurinn var dæmdur í 5 ára fangelsi í héraðsdómi í desember sl. fyrir fjölmörg brot. Hefur hann sætt gæsluvarðhaldi frá 15. september og var í gæslu í fangelsinu á Litla- Hrauni. Maðurinn áfrýjaði 5 ára fangelsisdóminum til Hæstaréttar og í kjölfarið fór lögreglustjóri fram á áframhaldandi varðhald þar til mál hans yrði tekið til meðferðar. Hæsti- réttur felldi gæsluvarðhaldsúrskurð- inn úr gildi á þeim forsendum að for- ræði málsins hefði færst til ríkissaksóknara og því væri lög- reglustjóri ekki bær til að krefjast gæslu. Samdægurs fór lögreglu- stjóri með manninn af Litla-Hrauni fyrir héraðsdóm með endurnýjaða gæsluvarðhaldskröfu og formlegt bréf frá ríkissaksóknara um að lög- reglustjóri færi með forræði máls- ins. Áður hafði munnleg beiðni rík- issaksóknara um það verið fyrir hendi, en það nægði ekki að mati Hæstaréttar. Féllst héraðsdómur á nýju kröfuna á föstudag og úrskurð- aði manninn í gæslu til 2. maí. Kærði maðurinn þá niðurstöðu til Hæsta- réttar sem tók málið fyrir og taldi að stytta ætti gæsluvarðhaldið um fjór- ar vikur. Síbrotamaður í gæslu til 2. apríl HUGA þarf að sértækum eða sér- sniðnum úrræðum fyrir þá einstak- linga, sem erfiðastir eru viðureignar sökum alvarlegrar persónuleika- röskunar af völdum neyslu vímuefna eða af öðrum ástæðum, segir m.a. í minnisblaði sem dómsmálaráðherra lagði fram á ríkisstjórnarfundi í gær- morgun. Lagt er til að nefnd verði mynduð sem vinna á tillögur að úr- bótum á þessu sviði undir for- mennsku lögreglustjóra höfuðborg- arsvæðisins. „Þar komi til álita lokað vistunar- úrræði fyrir langt leidda einstak- linga vegna vímuefnaneyslu, sem óhjákvæmilegt sé að vista nauðuga og/eða svipta sjálfræði,“ segir m.a. í minnisblaði ráðherra og einnig að til- lögur sem nefnd þriggja ráðuneyta skilaði af sér í apríl 2003 um málefni alvarlegra geðsjúkra einstaklinga hafi aðeins tekið á vanda lítils hluta hóps hinna langt leiddu. „Nauðsyn- legt er að málefni hópsins alls verði skoðuð í víðu samhengi og kynntar tillögur um viðunandi lausn fyrir þessa einstaklinga.“ Ráðaleysi gagnvart sjúkum Samkvæmt minnisblaðinu er átt við einstaklinga sem almenningi stafar hætta af og „[d]æmi eru um, að menn standi ráðalausir andspæn- is einstaklingi, sem hefur verið svipt- ur sjálfræði vegna alvarlegs geð- sjúkdóms eða ofneyslu vímuefna“. Lagt var til að fulltrúar félags- málaráðuneytis, heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis og dóms- og kirkjumálaráðuneytis skipuðu nefnd til að vinna að tillögunum. Yfir henni yrði Stefán Eiríksson, lög- reglustjóri á höfuðborgarsvæðinu. Segir þörf á sér- tækum úrræðum SJÓMANNAFÉLAG Íslands hefur samþykkt í atkvæðagreiðslu að segja sig úr Sjómannasambandi Íslands. Fara þarf einnig fram atkvæða- greiðsla í félaginu um úrsögn úr Al- þýðusambandi Íslands og mun hún standa yfir alla næstu viku frá mánu- deginum 22. janúar til föstudagsins 26. janúar, samkvæmt upplýsingum Birgis Björgvinssonar, fram- kvæmdastjóra félagsins. Sjómannafélag Reykjavíkur sam- einaðist Matsveinafélaginu á síðasta ári í Sjómannafélagi Íslands. Á aðal- fundi félagsins milli jóla og nýárs kom fram eindreginn vilji til þess að segja sig úr Alþýðusambandi Ís- lands, að sögn Birgis. Efnt var í framhaldinu til atkvæðagreiðslu sem stóð yfir í tvo daga. Greiddu 64 atkvæði og 63 samþykktu úr- sögn. Í framhald- inu kom í ljós að samkvæmt reglum þarf einn- ig að greiða atkvæði um úrsögn úr ASÍ og fer sú atkvæðagreiðsla fram í næstu viku, eins og fyrr sagði. Birgir sagði að þeir hefðu gjarnan viljað vera áfram í Sjómannasam- bandinu, en það væri ekki hægt að vera í því án þess að vera í ASÍ eins og skipulagi Alþýðusambandsins væri háttað. Spurður af hverju atkvæða- greiðslan hefði ekki staðið lengur yf- ir en í tvo daga, þar sem atkvæða- greiðslur um kjarasamninga sjómanna standa iðulega yfir í fimm vikur til þess að allir sjómenn eigi örugglega kost á því að greiða at- kvæði, sagði hann enga þörf á því. Reglur heimiluðu þetta og það hefði komið fram skýr vilji á aðalfundinum um úrsögn úr ASÍ, auk þess sem þeir hefðu fengið yfirlýsingar frá áhöfn- um á skipum þess efnis. Atkvæði greidd um úrsögn Birgir Björgvinsson Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ hefur staðfest að vél N196D lenti á Kefla- víkurvelli kl. 18.30 á sunnudag og hafði þar viðdvöl yfir nótt áður en förinni var haldið áfram til Ný- fundnalands. Um er að ræða vél sem norskir fjölmiðlar telja að hafi verið notuð sem fangaflutningavél Banda- rísku leyniþjónustunnar CIA en um- rædd vél lenti í Stafangri á sunnudag á leið sinni frá Króatíu. Ekki hefur verið fullyrt að fangar hafi verið í vélinni og íslenska utanríkisráðu- neytið telur að svo komnu máli að ekki hafi verið neitt torkennilegt við komu vélarinnar. Samkvæmt upp- lýsingum ráðuneytisins var um að ræða flugvél í einkaeign sem ekki þarf yfirflugs- eða lendingarleyfi á Íslandi. Þótt ekki hafi verið ástæða til að ætla að eitthvað óeðlilegt hafi verið á ferðinni stóð ráðuneytið eigi að síður fyrir athugun á málinu og komst að því að vélin er skráð í Lex- ington í Norður-Karólínu í Banda- ríkjunum. Tveir flugmenn voru skráðir í vélina og fóru þeir frá borði og gistu í Reykjanesbæ aðfaranótt mánudags og héldu síðan flugi áfram á mánudeginum. Ólíklegt er, að mati ráðuneytisins, að fleiri hafi verið um borð. Ráðuneytið hefur ekki upplýs- ingar um á hvers vegum flugvélin var og ekki hefur verið ákveðið hvort eftir þeim upplýsingum verði leitað. Áfram verður þó fylgst með málinu og ferðir hennar sérstaklega kann- aðar. Biður um upplýsingar Að sögn Aðalheiðar Sigursveins- dóttur, aðstoðarmanns utanríkisráð- herra, verður að koma í ljós hver við- brögð ráðuneytisins verða ef vélin hafi verið í fangaflugi fyrir CIA og haft viðkomu hér. Gert er ráð fyrir að í dag muni ráðuneytið fá umbeðn- ar upplýsingar um ferðir vélarinnar. Staðfest að bandarísk vél lenti en óvíst með fangaflug

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.