Morgunblaðið - 17.01.2007, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 17.01.2007, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2007 11 FRÉTTIR Með fráfalli MagnúsarMagnússonar hefurSkotland misst sinnuppáhalds uppeld- isson.“ Svo skrifar Len Murray, fyrr- verandi talsmaður Skosku lögfræð- ingasamtakanna, í minningargrein um vin sinn í skoska dagblaðið The Herald í síðustu viku. Eftirmælin um Magnús í breskum og skoskum blöð- um eru flest á sömu lund, höfundar minnast hamhleypu sem allt virtist leika í höndunum á. Magnús vakti snemma athygli fyr- ir listhæfileika sína og skólafélagar hans við einkaskólann Edinburgh Academy segja að honum hafi verið klappað lof í lófa fyrir frammistöðu sína í hlutverki Little Buttercup í óp- erunni HMS Pinafore árið 1945 er hann var á 16. aldursári. Hann þótti einnig liðtækur í krikk- et og varð dúx skólans við útskrift ár- ið 1948. Margir af frægari sonum Skotlands, á borð við rithöfundinn Robert Louis Stevenson, höfðu num- ið við skólann. Að loknu námi þar var Magnús styrktur til náms við Jesus College við Oxford-háskóla. Á þessu skeiði þróaðist áhugi hans á leikhúsinu og hann réðst í það metnaðarfulla verkefni að þýða og setja upp röð íslenskra leikverka. Hann átti síðar eftir að þýða Njálu og þrjár aðrar fornsögur í félagi við Hermann Pálsson, auk fimm verka Halldórs Laxness, á ensku, svo eitt- hvað af löngum lista sé nefnt. Magnús tók aldrei upp breskan ríkisborgararétt og hélt alltaf tryggð við rætur sínar. Íslenska var töluð á heimili foreldra hans í Glasgow, þeirra Sigursteins Magnússonar og Ingibjargar Sigurðardóttur, sem fluttu frá Reykjavík er hann var níu mánaða, eftir að Sigursteinn tók við stöðu framkvæmdastjóra Sambands ísl. samvinnufélaga í Evrópu með að- setur í Edinborg. Hóf snemma blaðaskrif Samhliða námi sínu í enskri tungu og bókmenntum við Oxford-háskóla hóf hann sjálfstæð dálkaskrif fyrir Edinburgh Evening Dispatch til að ná sér í vasapening, auk skrifa í Isis, bókmenntatímarit nemenda. Að loknu fornámi varð Magnús einn af fáum nemendum í íslenskum fornbókmenntum við Oxford, þar sem hann naut mikils áhuga kennara og fræðimanna. Hann tók hins vegar viðburðaríkt líf blaðamannsins fram yfir kyrrsetulíf fræðimannsins og hóf störf sem fréttaritari hjá dagblaðinu Scottish Daily Express 1953, þar sem hann hitti lífsförunaut sinn, blaðakonuna Mamie Baird. Hún fylgir honum til grafar auk fjögurra núlifandi barna þeirra, en að ósk fjöl- skyldunnar verða aðeins nánustu vinir og ættingjar viðstaddir. Magnús komst fljótt til metorða hjá SDE og varð hluti af einvalaliði blaðamanna. Magnús þótti geysilega ákveðinn og kappsamur og gerði sér lítið fyrir og handleggsbraut frétta- stjórann í sjómanni. Honum var þó fyrirgefið því hann var orðinn að- stoðarritstjóri þegar hann yfirgaf blaðið 1961 til að hefja störf hjá Scotsman, einum helsta miðli lands- ins. Þar stofnaði hann þriggja manna rannsóknarhóp, líkan hinum fræga „Insight-hópi“ hjá dagblaðinu The Sunday Times og fór upplagið í 70.000 eintök árið 1965. Annar tveggja félaga Magnúsar í hópnum, David Kemp, segir þá fé- laga, sem gengu undir nafninu „Close-Up-tríóið“, hafa skrifað lang- ar greinar og að þeir hafi stundum vakað alla nóttina á heimili Magn- úsar í Glasgow til að ljúka fréttum á réttum tíma. Tríóið starfaði í nokkur ár og þóttu greinar þess marka tíma- mót í sögu skoskra dagblaða. Hinn félagi hans, Gus Macdonald, segir Magnús hafa verið afburða blaðamann, en í Scotsman segir, að hann hafi gegnt lykilhlutverki í rann- sóknarblaðamennsku þess. Magnús skrifaði leiðara fyrir Scotsman og eru skissugreinar hans sagðar hafa sýnt eitraða kímnigáfu og mikla frásagnargáfu. Á þessum tíma var sjónvarpið að ryðja sér til rúms sem miðill og árið 1964 tók Magnús sér ársleyfi frá Scotsman til að vera kynnir þáttarins Tonight í breska ríkisútvarpinu, BBC. Þættinum var hins vegar fljót- lega hætt og Magnúsi boðið að vera kynnir í sjálfstæðu framhaldi hans, Twenty-Four-Hours. Magnús kaus hins vegar frekar að ala upp börnin í Skotlandi og hefja á ný störf hjá Scotsman. Hann skildi þó ekki við sjónvarpið heldur fram- leiddi vikulega þætti um málefni líð- andi stundar fyrir BBC Scotland. Árið 1966 varð hann svo kynnir í Chronicle, þætti um fornleifafræði og sögu á BBC2, til 1980. Má segja að orðspor hans sem alþýðufræðara hafa vaxið með hverjum þættinum, sem þóttu í alla staði afar vandaðir. Ári síðar hætti Magnús störfum hjá Scotsman og varð upp frá því fyrst og fremst sjónvarpsmaður og rithöf- undur, sem sérhæfði sig í sögu, forn- leifafræði og umhverfismálum. Chronicle höfðaði til fámenns en tryggs hóps áhorfenda og það var ekki fyrr en spurningaþátturinn Mastermind var settur á laggirnar sem andsvar við þættinum Univers- ity Challenge á ITV-sjónvarpsstöð- inni, að Magnús varð að stjörnu í bresku sjónvarpi og þótt víðar væri leitað. Þess má geta að þátturinn var hugarfóstur framleiðandans Bill Wrights, sem fékk hugmyndina frá yfirheyrslum Gestapo, leynilögreglu nasista, sem tóku hann höndum í Hollandi í síðari heimsstyrjöldinni. Tók við af Gordon Brown Mastermind var upphaflega sýnd- ur seint að kvöldi en var síðar færður yfir á besta útsendingartíma. Þegar mest var horfðu um 22 milljónir manna á þáttinn en um sex milljónir um það leyti er Magnús hætti með hann árið 1997. Þremur árum eftir að þátturinn hóf göngu sína varð Magnús rektor Edinborgar-háskóla. Hann þótti sýna skörungsskap í því embætti og koma skikk á samskipti nemenda og stjórnar, eftir stormasama tíð Gord- ons Browns, væntanlegs arftaka Tonys Blairs forsætisráðherra Bret- lands, í embætti rektors. Fjölmargar aðrar stofnanir og samtök nutu krafta Magnúsar, sem lét sig mikið varða menningararf og listir á Bretlandseyjum og að sjálf- sögðu á sögueyjunni í norðri. Hann sat í stjórn National Museums of Scotland og vakti athygli er hann lýsti því yfir að það væri þjóð- arskömm hvernig búið væri að forn- minjum landsins. Það er öðrum þræði þessi ástríða fyrir sögu Skot- lands sem skýrir þakklæti margra í garð Magnúsar fyrir að hafa vakið áhuga almennings á löngu liðinni tíð. Magnús var sæmdur íslensku fálkaorðunni og heiðursriddaraorðu hins breska heimsveldis. Árið 2000 gaf hann út ritið Scotland: The Story of a Nation, sem var yfir 700 síður, og var með fleiri járn í eldi eftir það. Alls gaf hann út yfir 30 bækur, ýmist einn eða í félagi við aðra, enda sí- skrifandi alla ævi. Fjölhæf hamhleypa Morgunblaðið/Sverrir Kom víða við Magnús var forseti konunglegu fuglaverndunarsamtakanna 1985 til ’90 og stjórnarmaður félags ungra leikara í Skotlandi 1976 til 78. Í HNOTSKURN »Alls tók 1.231 þátt í Mast-ermind árin 1972 til 97. »Magnús var skipaður heið-ursdoktor við sjö skoska og enska háskóla. »Hann verður jarðsunginnfrá Baldernock Church, norður af Glasgow. Í dag fer fram útför sjónvarpsmannsins og fjölfræðingsins Magn- úsar Magnússonar. Baldur Arnarson lítur yfir glæsilegan feril.  Minningar | 26 STUTTUR þátt- ur sem gerður var um Ómar Ragnarsson og baráttu hans gegn Kára- hnjúkavirkjun hefur vakið mikla athygli í Bæjara- landi eftir að hann var sýndur þar í sjónvarpi. Sigurður Grímsson, kvikmynda- gerðarmaður, sagði að hann hefði sett saman þátt fyrir Euroblick hjá þýska ríkissjónvarpinu ARD, þ.e. þann hluta þess sem er í Bæjara- landi, BR. Þátturinn hefði verið sýndur í síðustu viku og endur- sýndur í gær og vakið mikla athygli en þungamiðjan í þættinum hefði verið Ómar sjálfur og þessi barátta hans. „Þetta fékk feikilega góðar við- tökur og hringt var í okkur til að láta vita að þetta hefði vakið mikil við- brögð og fengið mikið áhorf. Áhorf- endur létu í sér heyra og vildu vita hvernig þeir kæmust í samband við þennan merkilega mann,“ sagði Sig- urður ennfremur. Ómar vekur athygli úti Ómar Ragnarsson NÝTT vefsvæði skattayfirvalda verður tekið í notkun 1. mars næstkomandi og munu öll rafræn skil skattframtala framvegis fara í gegnum þann vef. Nýi vefurinn heitir www.skattur.is en gamli vefurinn, www.rsk.is, verður áfram upplýsingavefur fyrir þá sem skila flóknari framtölum. Þetta var meðal þess sem var rætt á skattstjóra- fundi á föstudaginn í liðinni viku en það var fyrsti fundur þeirra með nýjum ríkisskatt- stjóra, Skúla Eggerti Þórðarsyni, sem tók við starfinu um áramót. Rafrænt skattkort innan tíðar Aðalmálið á dagskrá fundarins var fram- tíð rafrænnar þjónustu skattstjóra. Í sam- tali við Morgunblaðið sagði Skúli að sú þjón- usta myndi bæði breytast og eflast á næstu árum. Það væri t.a.m. fyrirhugað að menn gætu sótt um skattkort rafrænt sem síðan yrði prentað út á viðkomandi skattstofu og sent viðtakanda í pósti. Þá væri ætlunin að innan 2–3 ára myndu mun fleiri upplýsingar birtast sjálfkrafa á skattframtölum laun- þega. Í raun mætti segja að þá yrði skatt- framtalið tilbúið fyrirfram og framteljendur þyrftu ekki að gera annað en að staðfesta framtalið með rafrænni undirskrift. Til þess að þetta væri hægt yrði hver og einn fram- teljandi að ákveða hvort hann samþykkti að bankar veittu upplýsingar um stöðu á reikn- ingum. Ef fólk vildi það ekki yrði það sjálft að setja þessar upplýsingar á skattframtalið og bætti Skúli við að fólk gæti haft full- komlega eðlilegar ástæður fyrir því, t.d. ef það er skráð fyrir reikningum í eigu barna, félags o.s.frv. Níu skattstjórar eru í landinu, auk rík- isskattstjóra. Ein af ástæðunum fyrir því að ákveðið var að breyta um lén er sú að álagn- ing opinberra gjalda er í höndum hvers skattstjóra fyrir sig. Þá inniheldur rsk.is margvíslegt og flókið efni sem gat haft trufl- andi áhrif á framtalsgerðina. Skila á framtölum um nýjan vef Rafræn skattskil verða framvegis á vefnum www.skattur.is sem verður opnaður 1. mars nk. www.rsk.is verður upplýsingavefur fyrir fagmenn og þá sem skila flóknum framtölum Morgunblaðið/Golli Skattmenn F.v. Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri, Bogi Sigurbjörnsson, skattstjóri Norðurlands vestra, Ingvar J. Rögnvaldsson vararíkisskattstjóri, Jón H. Steingrímsson, for- stöðumaður þjónustusviðs ríkisskattstjóra, Ingi T. Björnsson, skattstjóri Vestmannaeyja, og Sigmundur Stefánsson, skattstjóri Reykjaness, á fyrsta fundi með nýjum ríkisskattstjóra. ♦♦♦ RAGNHEIÐUR Ármannsdóttir hefur tekið við störfum sem framkvæmda- stjóri þingflokks Frjálslynda flokksins. Ragnheiður er með stúdentspróf af náttúrufræði- sviði stærðfræði- deildar Menntaskólans við Sund. Hún stundaði enskunám við Háskóla Ís- lands og er með BA-próf í frönsku og spænsku. Einnig hefur hún menntun í dönsku, þýsku og katalónsku. Ragn- heiður hefur dvalið við nám og störf í Danmörku, Spáni, Frakklandi, Bandaríkjunum og Mexíkó. Hún hef- ur unnið að tölvumálum, hefur víð- tæka reynslu af ferðaþjónustu og er með leiðsögumannsréttindi á spænsku, frönsku og ensku. Ragnheiður Ármannsdóttir fædd- ist í Vestmannaeyjum og bjó þar til tíu ára aldurs. Hún er búsett í Reykjavík ásamt manni og tveimur börnum. Nýr fram- kvæmda- stjóri Ragnheiður Ármannsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.