Morgunblaðið - 17.01.2007, Side 13

Morgunblaðið - 17.01.2007, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2007 13 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF Eftir Kristján Torfa Einarsson kte@mbl.is GREINING Kaupþings hefur hækkað hagvaxtarspá sína fyrir árið 2007. Í síðustu spá bankans sem birt var í október sl. reiknaði greining- ardeildin með 0,2% samdrætti, en nú hljóðar spáin upp á 3,4% hag- vöxt. Kynnti deildin nýja spá sína á morgunverðarfundi sem Kaupþing efndi til í gær undir yfirskriftinni „Efnahagshorfur að vetri.“. Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningardeildar Kaupþings, sagði breytinguna á spánni helgast af þremur ástæðum. „Í fyrsta lagi virðist sem lands- menn hafi endurheimt bjartsýni en væntingavísitalan tók kipp núna fyr- ir jól þannig að það dregur ekki eins hratt úr einkaneyslu og við gerðum ráð fyrir,“ sagði Ásgeir, en vænt- ingavísitalan í desember sl. mældist 139,2 stig og sögulega hefur bjart- sýni neytenda aldrei verið meiri. Í öðru lagi nefndi Ásgeir að aukn- ing ríkisútgjalda og skattalækkanir hefði verið meiri en gert var ráð fyr- ir. Áætlar deildin að kaupmáttur launafólks aukist um rúm 5% nú í upphafi árs vegna skattalækkana en ríkisútgjöld aukist um 30 milljarða. „Í þriðja lagi gerir Greiningar- deild ráð fyrir að stóriðjufram- kvæmdir hefjist í Hafnarfirði, sem telur líklega eitthvað um 130 millj- arða,“ sagði Ásgeir en í máli hans kom jafnframt fram að þrátt fyrir að nægilegt eldsneyti væri til að halda hita á hagkerfinu út árið 2007, væri líklegt að verðbólga léti á sér kræla á nýjan leik. „Sú hætta er fyrir hendi að efna- hagslífið nái ekki að lenda eftir há- flug síðustu missera og þensla og verðbólguþrýstingur verði viðvar- andi. Það geta ekki talist sérstak- lega góðar fréttir fyrir heimili landsins sem munu horfa á eftir stórum hluta af kaupmáttaraukn- ingu sinni í verðbætur og vaxta- gjöld. Ennfremur veikir þetta sam- keppnisstöðu atvinnulífsins,“ sagði Ásgeir. Greiningardeild Kaupþings endurskoðar efnahagsspá sína frá því í haust Spá 3,4% hagvexti árið 2007 Morgunblaðið/Sverrir Fundur Kaupþing efndi til morgunfundar í gær um endurskoðaða spá sína. „MIKIL spurn eftir íslensku skuldabréfum breytir áhrifum þeirra stýri- tækja sem stjórnvöld hafa til að bregðast við þenslunni,“ sagði Ingólfur Helgason, for- stjóri Kaupþings banka, á fundi bankans í gær. „Háir vextir styrkja tiltrú manna til skemmri tíma að gengi krón- unnar haldist sterkt og því sé óhætt að taka lán í erlendum myntum Með öðrum orðum ýta vaxtahækk- anir undir væntingar um lágan fjármagnskostnað í stað þess að slá á væntingar – sérstaklega þegar vaxtahækkunarferlið er að hefj- ast,“ sagði Ingólfur sem hvatti jafn- framt eindregið til varkárni á næstu misserum. Vaxtahækk- anir ýta undir væntingar Ingólfur Helgason ● SAMKEPPNISEFTIRLITIÐ sér ekki ástæðu til að aðhafast nokkuð vegna samruna fyrirtækjanna Senu og Concerts. Þetta kemur fram í ákvörðun eftirlitsins sem birt var á heimasíðu þess í gær. Frá því var greint í októbermánuði síðastliðnum að Sena hefði keypt ráðandi hlut í tónleika- og umboðsfyr- irtæki Einars Bárðarsonar, Consert, sem hann stofnaði árið 2000. Til- kynnt var um kaupin til Samkeppn- iseftirlitsins í desember. Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins segir að athugun þess hafi leitt í ljós að ekki sé ástæða til að aðhafast vegna kaupanna. „Er í þessu sam- bandi vísað til þess að ekki virðist vera skörun á starfsemi félaganna sem hefur í för með sér röskun á samkeppni,“ segir í ákvörðun Sam- keppniseftirlitsins. Samruni Senu og Conserts heimilaður %& <  *   & < # =*#                       !"  #   $ ## %   "&     ' #  ( ) # * + , - . /+ ' #  & -' # , -  0   0  "    1   2$3 4 "54'  6      !  )7  " +   8  -   (-+  8  -   9: 5  ;0< $ =>   =>+++ 3 %3  ? %3  " #!$ % ! & ' 14 * + 13 -   ()*+$ % ! ($  -  ( 35   ,!% -! .   &  &% &$! !!& &$" #&! "%& "&$ ##& $& "$&% !& &$ %&" #& "&  "&! "%& &# # &!                                                                     (- 2 3#  - + ='3 @ # - +A .  1                                            2 2 2    2 2 2 2                    2      2 2 2                        2 2     2 2     ?3#  @ #B =( C  +   "5%- 3#           2 2 2  2 2 2 2 1@3  3# 3 9 - D 1E "$% #" '&" (& F F "=1) G< "  '&% '&" F F HH ;0< 1 ##  !!$"  '& (&" F F ;0< . % 9## ! "" (& & F F 8H)< GI J %%! "!%# (& (&" F F ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● ÚRVALSVÍSITALAN í Kauphöllinni, OMX á Íslandi, hækkaði um 1,0% í gær og er lokagildi hennar 6.885 stig. Gengi hlutabréfa Landsbank- ans hækkaði mest, eða um 3,5% og bréf Actavis um 2,6%. Mest lækkun varð hins vegar á bréfum Mosaic Fashions og Flögu, 2,0%. Hækkun í Kauphöll DISTICA er nýtt fyrirtæki sem hóf starfsemi um áramótin og sérhæfir sig í innflutningi, vörustjórnun og dreifingu á lyfjum, heilsuvörum, dýraheilbrigðisvörum og vörum fyr- ir heilbrigðisþjónustu og rannsókn- arstofur. Til síðustu áramóta var þessi starfsemi hluti af Vistor hf. í Garða- bæ en Distica hefur nú m.a. tekið við dreifingu á vörum Actavis á Ís- landi. Starfsmenn fyrirtækisins eru um 50 talsins en áætluð velta á fyrsta starfsári er um átta millj- arðar króna. Mun það vera stærsta félag sinnar tegundar hér á landi, með um 60% af allri lyfjadreifingu á Íslandi, og hið eina á sínu sviði sem hlotið hefur gæðavottun samkvæmt ISO 9001 staðlinum, að því er segir í fréttatilkynningu sem fyrirtækið sendi frá sér í gær. Sérhæfð meðhöndlun Haft er eftir Gylfa Rútssyni, framkvæmdastjóra Distica, að áhersla verði lögð á að bjóða vöru- stjórnunar- og dreifingarlausnir fyrir fyrirtæki sem selja vörur er krefjast sérhæfðrar meðhöndlunar, til að mynda lyf og aðrar heilbrigð- isvörur. Gæðavottunin hafi skilað sér í markvissri starfsemi og mikilli ánægju og ávinningi viðskiptavina. Nýtt lyfjadreifingarfyrir- tæki veltir átta milljörðum Lyfjadreifing Höfuðstöðvar Distica eru á sama stað og Vistor í Hörgatúni 2 í Garðabæ. ● BREYTINGAR hafa orðið á eign- arhaldi á Hugsmiðjunni ehf. Þórarinn Friðjónsson, fram- kvæmdastjóri Hugsmiðjunnar, hefur keypt þriðj- ungshlut í fyr- irtækinu af stofn- anda þess, Stefáni Baxter. Jafnframt hefur Industria ehf. keypt 20% hlut í fyrirtækinu af Stefáni. Aðrir hlut- hafar eru Trygg- ingamiðstöðin og nokkrir lykilstarfs- menn Hugsmiðjunnar. Undanfarin tvö ár hefur Hug- smiðjan unnið að sérhæfðum verk- efnum fyrir Industria sem tengjast stafrænu sjónvarpi. Stefán Baxter hefur leitt það starf en mun nú hefja störf hjá Industria. Frá þessu er greint í fréttatilkynningu. Breytingar hjá Hugsmiðjunni ehf. Þórarinn Friðjónsson LETTNESKT leiguflugfélag, Latcharter, sem er í eigu Loftleiða- Icelandic, dótturfélags Icelandair Group, hefur gert samning við ísr- aelska flugfélagið Israir um leigu á tveimur Airbus A320 farþegaflug- vélum til þriggja ára. Frá þessu er greint í tilkynningu til Kauphall- arinnar, OMX á Íslandi. Í tilkynningunni kemur jafn- framt fram að Loftleiðir-Icelandic hefur framlengt leigu á Boeing 767–300ER breiðþotu til hins ísr- aelska flugfélags til loka þessa árs. Umfang þessara samninga er um 50 milljónir dollara eða rúmlega 3,5 milljarðar íslenskra króna. Loftleiðir eignuðust Latcharter á miðju síðasta ári. Félagið hafði þá tvær Airbus-vélar í rekstri en sá floti tvöfaldast með þessum samn- ingi. Segir í tilkynningunni að gert sé ráð fyrir að floti félagsins vaxi enn frekar á næstunni. Framkvæmdastjóri Latcharter er Garðar Forberg sem áður starf- aði hjá Íslandsflugi og Air Atlanta. Leigja þotur til flugfélags í Ísrael FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ spáir nú að hagvöxtur á þessu og næsta ári verði meiri en ráðuneytið gerði ráð fyrir í þjóðhagsspá sinni í október- mánuði síðastliðnum. Þetta kemur fram í endurskoðaðri þjóðhagsspá sem birt var í gær. Segir ráðuneytið að mikill sam- dráttur verði í fjárfestingum í ár við lok núverandi stóriðjuframkvæmda. Þá verði samdráttur í einkaneyslu nokkur vegna veikingar á gengi krónunnar og aukins aðhalds í efna- hagsstjórninni. Ráðuneytið áætlar að hagvöxtur hafi verið 2,5% á síðasta ári. Þá er gert ráð fyrir því í hinni endurskoð- uðu þjóðhagsspá að þrátt fyrir sam- drátt í fjárfestingum og einkaneyslu verði hagvöxturinn 2,2% í ár, þar sem aukinn útflutningur áls muni segja til sín. Í fyrri spá var gert ráð fyrir 1,0% hagvextir á árinu 2007. Vegna áframhaldandi bata í utanrík- isviðskiptum er nú spáð 3,3% hag- vexti á næsta ári í stað 2,6% sam- kvæmt spánni frá því í október. Í þjóðhagsspánni segir að þótt verulega hafi dregið úr verðhækk- unum á fasteignamarkaði á árinu 2006 hafi lækkun á gengi krónunnar og aðrar kostnaðarhækkanir innan- lands leitt til þess að verðbólga varð 6,8% milli áranna 2005 og 2006. Spá- ir ráðuneytið því að verðbólgan á þessu ári verði 3,8% að meðaltali og 2,3% árið 2008. Í októberspá ráðu- neytisins var gert ráð fyrir 4,5% verðbólgu 2007 og 2,5% árið 2008. Atvinnuleysi eykst Áætlað er að atvinnuleysi hafi ver- ið 1,3% að meðaltali árið 2006 og reiknar ráðuneytið með því að það muni aukast í 2,0% í ár og enn meira á næsta ári og verði þá 3,3%. Vegna skattabreytinga og samn- inga aðila vinnumarkaðarins er áætl- að að kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann hafi aukist um 5,2% í fyrra. Vegna lokaáfanga í lækkun á tekju- skatti einstaklinga og hækkun per- sónuafsláttar ásamt lækkun skatta á matvæli í ár er því spáð að kaup- máttur muni aukast um 4,6% á þessu ári og 2,0% árið 2008. Áætlað er að viðskiptahallinn hafi verið 22,4% árið 2006. Ráðuneytið spáir því að hallinn dragist hratt saman í ár og verði 14,5% og að hann verði kominn í 7% á næsta ári. Fjármálaráðuneytið spáir 2,2% hagvexti í ár Morgunblaðið/Ásdís Spá Fjármálaráðuneytið hefur endurskoðað þjóðhagsspá sína.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.