Morgunblaðið - 17.01.2007, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
MEIRA en 34.000 manns týndu lífi í ofbeldinu í
Írak á síðasta ári og margir voru pyntaðir fyrst.
Kemur þetta fram í nýrri skýrslu frá Sameinuðu
þjóðunum en talan er næstum þrisvar sinnum
hærri en íraska innanríkisráðuneytið hafði áður
áætlað.
Gianni Magazzeni, fulltrúi SÞ í Írak, sagði, að
34.452 Írakar hefðu fallið í ofbeldinu og átökunum
í landinu, 94 á degi hverjum, á síðasta ári og rúm-
lega 36.000 særst. Á síðustu tveimur mánuðum
ársins hefðu að minnsta kosti 6.376 manns látið líf-
ið og 6.875 særst.
Magazzeni sagði, að tölurnar væru byggðar á
upplýsingum frá íraska heilbrigðisráðuneytinu,
sjúkrahúsum, líkhúsum og öðrum stofnunum.
Sagði hann, að þær væru vissulega ekki tæmandi,
enginn vissi mannfallið nákvæmlega, en líklega
fremur of lágar en háar. Íraskir embættismenn
hafa þó oftar en ekki vísað fyrri áætlunum SÞ um
mannfall á bug.
Langverst er ástandið í höfuðborginni, Bagdad,
sem er meginvettvangur átakanna milli súnníta og
sjíta. Þar finnast oft tugir manna, sem hafa verið
líflátnir eftir hroðalegar misþyrmingar. Óttast
margir, að ofbeldið eigi eftir að aukast enn vegna
aftöku Saddams Husseins, fyrrverandi forseta, og
tveggja samstarfsmanna hans en súnnítum finnst
sem sjítar hafi niðurlægt þá með framkomu sinni
við dauðamennina.
Hundruð þúsunda manna á flótta
Hundruð þúsunda manna hafa flúið frá Írak eft-
ir innrásina fyrir nærri fjórum árum og þar að
auki hefur um hálf milljón manna, þar af nærri
40.000 í Bagdad, verið hrakin frá heimili sínu.
Ekki þarf að hafa mörg orð um almenna sam-
félagsþjónustu í landinu en víða er hún algerlega
hrunin.
Um miðjan dag í gær var vitað um 85 manns,
sem fallið hefðu í ofbeldisverkum í Bagdad-borg
einni, og enn fleiri voru sárir og sumir mjög alvar-
lega.
Meira en 30.000 manns
týndu lífi í Írak á síðasta ári
Um hálf milljón manna hefur hrakist frá heimili sínu vegna átaka trúarhópa
Í HNOTSKURN
» Enginn veit fyrir víst hve margir Írak-ar hafa fallið frá innrásinni í landið í
mars 2003. Á síðasta ári voru nefndar tölur
allt frá 50.000 og upp í 650.000.
» Auk þeirra, sem hafa fallið í átökum ogfyrir hendi hryðjuverkamanna, hafa
margir, kannski tugir þúsunda manna, lát-
ist vegna lítillar eða engrar læknisþjónustu.
Þá eru ótalin þau ör, sem ofbeldið skilur
eftir í sálinni, en áætlað er, að drjúgur hluti
íbúa Bagdad þjáist af þeim sökum.
Kabúl. AP. | Liðsmenn talibana, sem
reyna að ná völdum aftur í Afganist-
an, hafa notfært sér nýlegan friðar-
samning pakistanskra stjórnvalda
við ættflokkaleiðtoga í Pakistan og
stórhert árásir sínar á bandaríska
hermenn í austur- og suðausturhluta
Afganistans, að sögn bandarískra
herforingja í gær.
Karl Eikenberry, yfirmaður
bandaríska herliðsins í Afganistan,
sagði að árásum talibana hefði fjölg-
að um 200% í desember. Annar
bandarískur herforingi sagði að frá
því að samningurinn var gerður 5.
september hefði árásunum fjölgað
um 300%.
Eikenberry gagnrýndi ekki frið-
arsamninginn við ættflokkaleiðtog-
ana við landamærin að Afganistan
og kvaðst viss um að bandaríska her-
liðinu tækist brjóta talibana á bak
aftur. Hann spáði mjög hörðum
átökum á svæðinu á fyrstu mánuðum
ársins.
Talsmaðurinn handtekinn?
Talsmaður afgönsku leyniþjónust-
unnar sagði í gær að hún hefði hand-
tekið meintan talsmann talibana,
Muhammad Hanif, í landamæra-
bænum Torkham.
Hanif er annar tveggja manna
sem hafa oft haft samband við frétta-
menn í Pakistan og Afganistan og
sagst tala fyrir hönd talibana. Hermt
er að hann hafi komið skilaboðum frá
leiðtoga talibana, múlla Omar, á
framfæri við fjölmiðla.
Talibanar
stórherða
hernaðinn
YFIRVÖLD í Færeyjum ætla að
fjölga lögreglumönnum á vakt í
Þórshöfn um helgar sökum vaxandi
ofbeldis og mun grófara en áður.
Eyðun Berg, formaður í félagi
færeyskra lögreglumanna, sagði í
viðtali við blaðið Dimmalætting, að
þróunin í þessum málum væri slæm
og ekki síður hitt, að minni virðing
væri borin fyrir lögreglunni en áður
var.
„Nú ber það ósjaldan við, að okkur
er beinlínis ógnað. Það tengist að
sjálfsögðu aukinni fíkniefnanotkun,“
sagði Eyðun. Sagði hann, að stemma
yrði stigu við þessu, ella mundi það
enda með ósköpum.
Löngum hefur verið lítið um alvar-
leg afbrot í Færeyjum. Þar var síð-
ast framið morð fyrir næstum 20 ár-
um, 1988, þegar afbrýðisamur,
ungur maður skaut unnustu sína.
Ofbeldi vex
í Færeyjum
London. AFP. |
Tony Blair, for-
sætisráðherra
Bretlands, varaði
í gær við hvers
konar tilraunum
til að skilja Eng-
land og Skotland
að. Hann sagði að
aðskilnaður
myndi vera „fá-
sinna“ og „ótrúlegt afturhaldsskref“
300 árum eftir sameiningu Englands
og Skotlands.
Þess var minnst í gær að 300 ár
eru liðin frá því að þjóðþing Eng-
lendinga og Skota voru sameinuð. Af
því tilefni kvaðst flokkur skoskra
þjóðernissinna, SNP, ætla að herða
baráttu sína fyrir þjóðaratkvæða-
greiðslu um sjálfstæði Skotlands.
Tvær skoðanakannanir frá því í nóv-
ember hafa bent til þess að meiri-
hluti Skota og Englendinga sé
hlynntur aðskilnaði. Ný könnun, sem
breska ríkisútvarpið birti í gær,
bendir hins vegar til þess að 56%
Skota og 73% Englendinga séu and-
víg aðskilnaði.
Segir
aðskilnað
fásinnu
Blair varar við
sjálfstæði Skotlands
Tony Blair
GRÝLUKERTI á styttu af Martin Luther King yngri í
almenningsgarði í Albany í New York-ríki eftir fimb-
ulstorm sem geisað hefur víða í Bandaríkjunum síðustu
daga.
Að minnsta kosti 40 manns hafa látið lífið frá því á
föstudag í beljandi byl í ríkjunum Oklahoma, Texas,
Missouri, Iowa, New York og Maine, að sögn banda-
rískra fjölmiðla í gær. Flest dauðsfallanna urðu á veg-
um af völdum hálku.
Hundruð þúsunda Bandaríkjamanna voru án raf-
magns í gær af völdum óveðursins, þeirra á meðal yfir
300.000 manns í Missouri-ríki og meira en 100.000
manns í Oklahoma.
Bandaríska veðurstofan varaði við flóðum í nokkrum
ríkjum, frá Louisiana til Ohio og Illinois. Ennfremur
var spáð nístingsköldum stormi og stórhríð í ríkjunum
New Hampshire og Maine. Þá var varað við hálku og ís-
ingu víða í suðausturhluta Texas.
AP
Skæður vetrarstormur vestra
♦♦♦
Jerúsalem. AFP. | Ísraelar og Sýr-
lendingar náðu saman um megin-
drætti friðarsamkomulags í leynileg-
um viðræðum á síðustu tveimur
árum, að því er haldið var fram í ísr-
aelska dagblaðinu Haaretz í gær.
Var fullyrt að skrifstofur Ariel
Sharons, fyrrverandi forsætisráð-
herra Ísraels, og Ehuds Olmerts,
forsætisráðherra, hefðu vitað af
þeim en stjórnin vísaði þessu á bug.
Dov Weisglass, fyrrverandi að-
stoðarmaður Sharons, sagði hins
vegar í viðtali við útvarpsstöð hers-
ins, að hópur fólks hefði lagt loka-
hönd á friðarsamkomulag sem Shar-
on hefði aldrei samþykkt.
Í frétt Haaretz er því haldið fram,
að viðræðurnar hafi átt sér stað á
tímabilinu september 2004 til júlí
2006, með þátttöku evrópsks millilið-
ar og vitneskju ríkjanna tveggja.
Viðræðurnar strönduðu hins veg-
ar þegar Ísraelar höfnuðu beiðni
Sýrlendinga um að gera þær opin-
berar.
Yrðu að hætta að styðja Hamas
Samkvæmt ákvæðum samkomu-
lagsins myndu Ísraelar draga sig frá
Gólan-hæðum, sem þeir hernámu af
Sýrlendingum í Sex daga stríðinu
1967. Í staðinn yrðu Sýrlendingar að
hætta að styðja Hizbollah-hreyf-
inguna í Líbanon, Hamas-samtökin í
Palestínu og írönsk stjórnvöld. Enn-
fremur yrði komið á hlutlausu svæði
á landamærum ríkjanna
Hittust Ísraelar og Sýrlendingar á laun?
Orðrómi um
samning neitað
Madríd. AP, AFP. | Ástand Fidels
Castros, leiðtoga Kúbu, er „mjög al-
varlegt“ eftir að hann gekkst undir
þrjár misheppnaðar skurðaðgerðir
vegna þarmakvilla sem hafa ágerst,
að sögn spænska dagblaðsins El
País í gær.
Blaðið hafði þetta eftir tveimur
ónafngreindum heimildarmönnum á
Gregorio Maranon-sjúkrahúsinu í
Madrid. Yfirskurðlæknir sjúkra-
hússins, Jose Luis Garcia Sabrido,
fór til Kúbu í desember til að skera
Castro upp.
„Alvarleg sýking í digurgirni, að
minnsta kosti þrjár misheppnaðar
aðgerðir og ýmsir fylgikvillar hafa
orðið til þess að batahorfur einræð-
isherra Kúbu, Fidels Castros, eru
mjög slæmar,“
sagði El País.
Að sögn blaðs-
ins varð fyrsta að-
gerðin til þess að
Castro fékk líf-
himnubólgu sem
getur verið ban-
væn. Hann fékk
síðan gallrásar-
bólgu, en dánar-
hlutfall þeirra sem fá þann sjúkdóm
er 80%, að sögn El País.
„Enn ein lygin“
Stjórnarerindreki í sendiráði
Kúbu í Madríd sagði að frétt blaðs-
ins væri „tilbúningur“. „Þetta er enn
ein lygin og við ætlum ekki að tala
um hana. Ef einhver þarf að tala um
veikindi Castros þá er það stjórnin í
Havana.“
Garcia Sabrido sagði í viðtali við
CNN-sjónvarpið í gær að hann væri
ekki heimildarmaður El País. Hann
bætti við að allar yfirlýsingar um
heilsu Castros, sem kæmu ekki frá
læknum hans, væru aðeins vanga-
veltur. Skurðlæknirinn kvaðst
standa við yfirlýsingu sína frá 26.
desember um að Castro væri á bata-
vegi og ekki með krabbamein.
Castro fól bróður sínum, Raul,
stjórnartaumana í júlí eftir að hafa
verið við völd í 47 ár. Bandarískir
embættismenn hafa sagt að Castro
sé með ólæknandi sjúkdóm og eigi í
mesta lagi nokkra mánuði eftir.
Ástand Fidels Castros
sagt vera mjög alvarlegt
Þrjár skurðaðgerðir leiddu til fylgikvilla sem hafa ágerst
Fidel Castro